Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1982.
19
Hvað er á seyði um heiyína
Hvað er á seyði um helgina
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavikurprófastsdœmi sunnu-
daginn 28. febrúar 1982.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma i
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30.
Guösþjónusta í Safnaðarheimilinu kl. 2. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2.
Sr. Árni Bergur Sigurbjönsson. Miðvikudagur 3.
marz: Kirkjukvöld á föstu, i Laugarneskirkju, kl.
20.30. Dr. Gunnar Kristjánsson flytur erindi og
sýnir litskyggnur. Manuela Wiesler leikur einleik á
flautu. Kirkjukór Ás- og Laugarnessóknar syngja
nokkur lög, enda er kirkjukvöldið á vegum beggja
safnaðanna.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl.
11. Messa kl. 14 í Brciðholtsskóla. Altarisganga. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. ll.Messa
kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Æsku-
lýðsfundur mánudagskvöld. Félagsstarf aldraðra
miðvikudag milli kl. 2 og 5. Föstumessa
miðvikudagskvöld kl. 20.30. Sr. ólafur Skúlason,
dómprófastur.
DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í
Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 11.
Guösþjónusta i Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Sunnudagur: Messa kl. 11.
Altarisganga. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 2.
Sr. Þórir Stephensen. Guðfræðinemar koma i
heimsókn. Ólafur Jóhannsson, stud. theol.
prédikar. Vænzt er þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 10.
Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir
Stephensen.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr.
Árelíus Níelsson. — FéLfyrrverandi sóknarpresta.
FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: LaugardaRur:
Barnasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagur: Barnasamkoma i Fellaskóla kl. 11 f.h.
Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl.
2 e.h. Samkoma nk. þriðjudagskvöld i Safnaðar-
heimilinu kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 2. örn B. Jónsson, djákni,
prédikar. Guðsþjónusta og altarisganga kl. 20.30.
Ný tónlist. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld
kl. 20.30. Sr. Halldór Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudagur 2. marz kl. 10.30.
fyrirbænaguðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum.
Miðvikudagur 3. marz kl. 20.30. föstumessa. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Kvöldbænir verða kl. 18.15
alla virka daga föstunnar nema miðvikudaga og
laugardaga. Kirkjuskóli barnanna er i gömlu
kirkjunni á laugardögum kl. 2.
HÁTEIGSKIRKJA: Ðarnaguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrímur
Jónsson. Föstuguðsþjónusta fimmtudag 4. marz kl.
20.30. Sr. Arngrímur Jónsson. ,
KARSNESPRESTAKALL.Fjölskylduguðsþjónusta
i Kópavogskirkju kl. 11 árdegis. Fullorðnir eru
hvattir til að koma með börnunum til
guðsþjónustunnar. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óskastund barnanna kl.
II. Sigurður Sigurgeirsson. Söngur, sögur, myndir.
Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Kristin ögmunds-
dóttir. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson.
Safnaðarnefnd.
LAUGARNESKIRKJA: Sunnudagur: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Mánudagur 1.
marz. Kvenfélagsfundur kl. 20. Þriðjudagur 2.
marz: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Æskulýösfundur
kl. 20.30. Miðvikudagur 3. marz: Kirkjukvöld á
föstu kl. 20.30, dr. Gunnar Kristjánsson flytur
erindi og sýnir litskyggnur. Manuela Wiesler leikur
einleik á flautu. Kirkjukórar Ás- og Laugarnes-
sóknar syngja nokkur lög, enda er kirkjukvöldið á
vegum beggja safnaðanna.
NESKIRKJA: I.augardaginn 26. íebrúar:
Samverustundaldraðrakl. 15. Vilhjáimur Hjálmars-
son fyrrv. ráðherra segir frá einu og öðru í léttum
dúr og alþingismennirnir Helgi Seljan og Karvel
Pálmason syngja. Vísnavinurinn Hjalti Jón
Sveinsson tekur lagið. Sunnudagur 28. febrúar:
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 14.
Þriðjudagur 2. marz: Æskulýðsfundur kl. 20.
Bibliulestur kl. 20.30. Miövikudagur 3. marz: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 18.15. Beðið fyrir sjúkum
Fimmtudagur 4. marz: Föstuguðsþjónusta kl. 20.
Sýnd verður kvikmynd frá ísrael. Kaffiveitingar. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SEIJASÓKN. Barnaguösþjónusta i ölduselsskóla
kl. 10.30. Barnaguösþjónusta að Seljabraut 54 kl.
10.30. Guðsþjónusta í ölduselsskóla kl. 14. Altaris-
ganga. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRDI: Bamatiminn kl.
10.30 fyrir unga sem eldri. Guðsþjónustá kl. 14. Dr.
Björn Björnsson, prófessor prédikar. Við orgelið
Jóhann Baldvinsson. Eftir messu er fundur ferming-
arbarna og foreldra þeirra með Sævari B.
Guðbergssyni fjölskylduráðgjafa. Safnaðarstjórn.
NORRÆNA HÚSIÐ: Samiska listakonan og ljóð-
skáldið ROSE-MARIE HUUVA er komin hingað til
lands I tengslum viö sýninguna SÁMI DÁIDDA,
sem er i sýningarsölum Norræna hússins.
Föstudaginn 26. febr. kl. 20:30 flytur hún erindi um
samiska listiðn og listiðnaðarmenn og svarar fyrir-
spurnum. Sýnd veröur kvikmyndin „Konstens
hánder, 33ja mín. mynd i lit. Myndin fjallar um list-
iðnaö Sama en cinnig um stööu þeirra sem minni-
hlutahóps. Einar Bragi skáld les þýðingar sínar m.a.
á Ijóðum Rose-Marie Huuva.
ÁRBÆJARSAFN Árbæ, simi 84412: Upplýsingar
um opnunartíma milli kl. 9 og 10. Strætisvagn 10
gengur frá Hlemmi aö safninu.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74, simi 13644:
Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga t'rá kl.
13.30—16. Vetrarsýning.
DJÚPID sími 13340. Eggert Mag'nússon sýnir 44
oliumálverk, aðallega náttúrulifsmyndir.Sýningin er
opin á sama lima og vciiingasiaðurinn llorniö, (sem
er á hæðinni fyrir ofan) eöa frá kl. 11.00—23.30.
LISTASAFN ÍSLANDS v/Suflurgötu: verður lokað
til 6. marz vegna viðgerða.
HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar: sími
32155: Opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
frákl. 14—16.
MOKKA-KAFFI Skólavörflustíg 3a. Stefán frá
Möðrudal sýnir vatnslitamyndir.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ. Safnið er opið þriðjudaga,
Fimmtudaga og um helgar, frá kl. 13.30. Siminn er
22220.
PIZZAHÚSIÐ, Grensásvegi 7, Elín Magnúsdóttir
sýnir Ijósmyndir. Sýningin stendur frá 30. janúar-
21. febrúar.
LISTMUNAHÚSIÐ, Lækjargötu 2: Gunnar örn
Gunnarsson opnaði málverkasýningu laugardaginn
6. febrúar. Sýningunni lýkur 28. febrúar. Virkadaga
er opið frá kl. 10—18, laugar- og sunnudaga frá kl.
14—22. Lokað á mánudögum.
RAUÐA HÚSIÐ AKUREYRI: Kess Visser,
hollenzkur myndlistarmaður sýnir verk sln.
GALLERÍ LANGBRÓK, Amtmannstíg 1: Guðrún
Auðunsdóttir sýnir verk sin. Virka daga er opið frá
kl. 12—18 en um helgar frá kl. 14—18.
Listsýningar helgarinnar—Kjarvalsstöðum:
Óvenjulegar sýningar
hjá þrem Rstamönnum
— myndlist, skúlptúr og myndverk
Listviðburður helgarinnar gerist á
Kjarvalsstöðum um helgina en þar
verða þrjár sýningar opnaðar á morg-
un kl. 15. Það eru listamennirnir
Einar Hákonarson, Karl Júlíusson og
Steinunn Þórarinsdóttir sem sýna og
standa sýningar þeirra yfir fram til
13. marz.
Einar Hákonarson er með sína sýn-
ingu í vestursal þar sem hann sýnir 56
olíumálverk, sem unnin eru sl. þrjú
ár. Flest verkin eru til sölu. f mynd-
um sínum lýsir Einar mannlifinu í öll-
um sínum margbreytileika — ís-
lenzku mannlífi.
Karls Júlíusson sýnir margvisleg
myndverk, unnin úr ólikum efnum i
austurforsal. öll hans verk eru unnin
með sleðaformi i grunni.
Steinunn Þórarinsdóttir sýnir í
vesturforsal skúlptúra þar sem fram
koma margar meiningar. Þungamiðj-
an er manneskjan og umhverfi henn-
ar og kemur mengunin þar viðsögu.
Allar þessar þrjár sýningar eru
mjög óvenjulegar og má segja að það
sé sérstakur listviðburður að fá
þannig þrjá ólíka listamenn saman á
einum stað. -ELA
Karl Júliusson við eitt verka sinna,
sem hann nefnir simaklefa.
Steinunn ÞOrarínsdútur gerír manneskjuna og umhverfi hennar að við-
fangsefni sinu. DV-myndir Bjarnleifur.
Einar Hákonarson við eitt verka sinn sem hann nefnir Á Valhúsahæð.
Bækur vikunnar—Litlu listaverkabækumar:
Mikil list í of smáu broti
Óhætt mun að fullyrða að litlu
listaverkabækurnar teljist til minnstu
kvera er undirritaður hefur augum
barið á sínu lífsskeiði. Þær hljóta að
vera of litlar ef höfð er í huga sú stað-
reynd að hér er um listaverkabækur
að ræða. Verkin sem siik njóta sín
aldrei til fulls á þeim örfáu senti-
metrum sem þau þekja hvert fyrir
sig. Það er ókostur bókanna — og
flcira kemur til.
Þau verk sem einhverra hluta
vegna þekja opnur bókanna falla
hlutfallslega lengra inn í kjöl þeirra
en ef um stærri bækur væri að ræða.
Verður þetta oft þess valdandi að
hlutar myndanna og í flestum tilvik-
um miðjur þeirra hverfa í kjölinn, ef
svo má segja, og verða vart greindir.
Er augljóst að margar undurfagrar
og vel gerðar myndir gjalda þessa
beinlínis— og er það ver.
Hvað það var sem olli þvi að
ákveðið var að Itafa bækurnar í þessu
litla broti, sem raun ber vitni, skal
ósagt látið. Hitt er víst að litlu lista-
verkabækurnar hefðu að ósekju mátt
vera liðlega þrisvar sinnum stærri en
þær eru og hefði slíkt gert þær að
raunverulegum djásnum, en þær
voru einmitt auglýstar sem slikar á
sínum tíma.
Bækurnar eru fjórar og fjalla um
jafnmarga listamenn, er sett hafa
ríkulega svip á evrópska listmennt
allt frá miðöldum til okkar tíma.
Leonardo da Vinci, Rembrandt van
Rijn, Francisco Goya og Vincent
Willem van Gogh — allt eru þetta
merkir og mikilsmetnir listamenn og
raunar brautryðjendur hver á sínu
sviði. Steinprent og strlðsmyndir
Goya, bibliumyndir Leonardos, ljós-
beiting Rembrandts og hinir skæru
litir van Goghs — allt eru þetta hug-
lægar afurðir meistara sem enn lifa í
veröld nútímans.
Listaverkabækurnar skiptast, hver
um sig, í tvo meginhluta. Annars
vegar er tæpt á æviatriðum, listsköp-
un og stíl viðkomandi listamanns en
hins vegar er skrá yfir helztu eða
þekktustu málverk þeirra.
Vel er komizt frá fyrri hluta bók-
anna. Sá texti er undantekningarlítið
tæmandi og vel upp settur. Hann er
ekki of langur og ekki of stuttur held-
ur miklu fremur skilmerkilegur og
gagnlegur fyrir leikmenn jafnt sem
lærða. Því er þó ekki að leyna að
sumsstaðar gætir of mikillar tilhneig-
ingar til ofútskýringa, sem verða þess
iðulega valdandi að fyrir leikmenn
eru þær illskiljanlegar. Þetta ríkir
mjög í hugtökum og þar sem lýst er
stefnum í listsköpun. Skylt er þó að
benda á það að íslenzkan er ákaflega
illa 1 stakk búin fyrir þýðingar á list-
fræðilegum texta. Hún er fátæk að
því leyti— og er það auðsjáanlegt við
lestur bókanna. Samt sem áður verð-
ur umfjöllunin oft á tíðum hrífandi
og ekki er laust við að lesandinn geti
á köflum komizt inn í þann blæ sem
öðru jöfnu hefur leikið um meistar-
ana og gjörðir þeirra. Er það vel, þvi
til mikils er að vinna að skilja verkin
og það sem þau hafa yfir að búa fyrir
allar frekari listfræðilegar rannsókn-
ir, ef svo má nefna.
Seinni hluta bókanna, sem geymir
málverkin, geldur mjög hins smáa
brots bókanna, eins og áður segir, og
er í raun ónauðsynlegt að bæta þar
nokkru við. Hitt er vist að þessi
margfrægu listaverk standa alltaf
fyrir sínu sem slík og munu gera i
ókominni framtíð. Samnefnara
þeirra má lesa á blaðsíðu 18 í bókinni
um Rembrandt, þar sem listamaður-
inn van Hoogstraten segir: „í þinu
eigin landi er svo margt fallegt að
finna, að líf þitt endist ekki til þess að
skilja það allt og tjá og túlka. Hversu
fagurt sem landið kann að vera, verð-
ur það þér einskis nýtt, ef þú ert ekki
þess umkominn að tjá og túlka það
sem er allt í kringum þig.”
(Staðfærsla blms).
Eins og i öllum sönnum fræðibók-
um, getur að líta í lok litlu listaverka-
bókanna skrá yfir helztu æviatriði
viðkomandi listamanna og þær bæk-
ur sem vert er að lesa til þess að
grúska í þeim og verkum þeirra. Slik-
ar skrár eru nauðsynlegar bókum sem
þessum— og verða bækurnar að
teljast mikið gagn þeim er áhuga hafa
á list, þó litlar séu.
Bækurnar kosta hver um sig út úr
búð kr. 49.40, en allar saman kr.
197.60. -SER.
NÝLISTASAFNIÐ VATNSSTtG 3b. ÞriSjudaginn
2. marz, klukkan 20—22, sýnir Eggcrt Pétursson i
Nýlistasafninu, Vatnsstig 3b. Eggert sýnir eitt verk
og þaö vcröur aðeins til sýnis þetta eina kvöld.
Verkiö er unnið meö sal Nýlistasafnsins í huga.
Eggcrt nam viö Myndlistaskóia Reykjavíkur, Mynd-
lista- og handiöaskólann og síöan við Jan van Eyck
Academie i Maastricht, Hollándi. Hann hefur áður
haldiö tvær cinkasýningar og tekið þátt i nokkrum
samsýningum. Eftir Eggert ‘liggja einnig nokkrar
bækur.
ASMI NDARSAII R, Freyjugötu: Engin sýning
fyrr en i marz.
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegl 16: Yfirlits-
sýning á verkum Vigdísar Kristjánsdóttur vefjar-
listakonu, en hún iózt 11. febrúar 1981. Á sýning-
unni eru 28 myndvefnaöarverk. Sýningin stendur
yftr til 6. marz.
EDEN Hverageröi: Engin sýning fyrr en í marz.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR Skélavöröu-
holli: Safniö er lokað um sinn.
ALASKA BREIDHOLTl: Peter Tybjerg danskur
kennari í Handlða- og myndlistaskólanum hefur
haidið sýningar viöa um heim. Hann sýnir nú kera-
mik og skreytir á staðnum. Opiö iaugardag og
sunnudag frá kl. 14—18.
KJARVALSSTAÐIR: Gunnsteinn Gislason sýnir
nýja ttekni i veggmyndagerö hérlcndis. Myndirnar
eru unnar i múrristu (sgraffito.) 1 vestursal er sýning
á húsgögnum, grafík og nytjalist, Rud Thygescn og
Johnny Sörensen frá Danmörku sýna. í Kjarvalssal
og á austurgangi er alþjóðleg skákmót. Allt stendur
þelta yfir til 21. febrúar. Opið virka daga frá kl.
20—22. cn um helgar frá kl. 14—22.
GALLERt KIRKJUMUNIR: Sigrún Jónsdóttir
listakona heldur sýningu á kirkjuiegum munum,
batik, virka daga er opið frá kl. 9—18 en um helgar
frákl.9—16.
GALLERÍ HVERFISGÖTU 32. Harpa Bergsdóttir
sýnir 47 blýants- og pastelsmyndir. Sýningin stendur
frá 20. febr. n.k. til 5. marz n.k. og er opið frá kl.
12.00 til 18.00 alla daga vikunnar og kostar ekkert
inn. Þetta mun vcra fyrsta einkasýning Hörpu.