Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1982, Qupperneq 6
22
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1982.
Hvað er á seyðé um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Tónleikar helgarínnar—Kjarvalsstöðum:
Verk eftir f rönsk tónskáld
leikin af Eddu Erlendsdóttur
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Boröapantanir
í síma 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30. Vín-
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurnugvelli.
Boröapantanir i sima 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30. (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vinveitingar. Veitingabúð Hótels Loftleiða opin alla
daga kl. 5—20.
HÓTEL SAGA við Hagatorg. Borðapantanir í
Stjörnusal (Grill) í sima 25033. Opið kl. 8—23.30.
Matur framreiddur kl. 12—14.30 og 19—22.30.
Vinveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Símar 12509 og
15932. Opið kl. 4 eftir miönætti til kl. 23.30. Vín-
veitingar.
KRÁIN við Hlemmtorg. Sími 24631. Opið alla daga
kl. 9—22.
Edda Erlendsdóllir píanóleikari heldur tónleika á Kjarvalsstöðum á sunnudag.
Kvikmyndir
kvikmyndahatið sXk
Kvikmyndasamkeppni
SÁK, Samtök óhugamanna um kvikmyndagerö,
efna til kvikmyndasamkeppni um kvikmyndir
gerðar af áhugamönnum dagana 27. og 28. febrúar
að Hótel Loftleiðum. Laugardaginn 27. febrúar, kl.
14 veröa allar myndir sem berast i keppnina sýndar
og mun dómnefnd dæma þá hverja mynd fyrir sig.
Sunnudaginn 28. febrúar kl. 14 verða þær myndir
sýndar er verðlaun hljóta. Keppt er í tveim aidurs-
flokkum, yngri en 20 ára og eldri. Hans Petersen h/f
gefur nýja glæsilega bikara i hvorum flokki. Þing
samtakanna verður haldið að lokinni verðlaunaaf-
hendingu. Allir áhugamenn um kvikmyndir eru
hvattir til að mæta.
Skemmistaðir
SNEKKJAN: DansbandiS ltikur föstudags- og
laugardagskvöld. Matsölustaðurinn Skútan opin
sömu kvöld.
LEIKHÚSKJALLARINN: Föstudags- og laugar-
dagskvöld — „kjallarakvöld” skemmtiþáttur I og 2
í kjallaranum „dúa”.
MANHATTAN: Opið öll kvöld helgarinnar
skemmtiatriöi verða framvegis alltaf á föstudags-
Edda Erlendsdóttir píanóleikari
er stödd hér á landi um þessar
mundir og heldur hún einkatónleika
að Kjarvalsstöðum á sunnudag kl.
17. Edda Erlendsdóttir stundaði
nám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan einleikaraprófi
árið 1973. Hún hlaut siðan franskan
styrk og stundaði nám við Tónlistar-
skólann í París í fimm ár. Hún er nú
búsett í París.
Á efnisskrá hjá Eddu á Kjarvals-
stöðum eru verkin Paysage og Im-
provisation eftir Emmanuel
Chabrier, Nocturne nr. 6 op. 63 eftir
kvöldum. Aö þessu sinni veröur Nickv Vauehan eld-
gleypir og töframaður. Húsið opnað kl. 19 fyrir
matargesti. Borðpantanir i sima 45123.
HÓTEL SAGA: Hljómsveit Ragga Bjama sér um
fjörið á laugardagskvöldið svo verða Samvinnu-
ferðir og Landsýn með Grikklandskynningu.
GLÆSIBÆR: Laugardags- og sunnudagskvöld
verður Grétar Laufdal í diskótekinu Glæsibæ. Það
er diskósalur 74, tónlistin úr safni feröadiskóteksins
Rocky. Grétar býður alla velkomna og óskar gestum
góðrar skemmtunar. Salur 74 er opinn frá kl. 10—3.
Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi í öðrum sal
hússins öll kvöld helgarinnar.
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir
dansi bæði föstudags- og laugardagskvöld diskótek
á tveim hæðum. Lokað sunnudagskvöld.
HREVFILSIIOSIÐ: Opið laugardagskvöld, gömlu
dansarnir.
HOLLYWOOD: Diskóið verður í fullum gangi
föstudags- og laugardagskvöldið. Á sunnudags-
kvöldið sýnir Jón Steinar nýja Darraðardansinn sinn
og módel 79 verður með tízkusýningu, plötu-
kynning.
HÓTEL BORG: Diskótekið Disa sér um diskósnún-
inga bæði föstudags- og laugardagskvöld. Sunnu-
dagskvöld verður hljómsveit Jóns Sigurðssonar með
tónlist af vönduöu tagi sem hæfir gömlu dömsum.
LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu dansarnir.
Valgerður Þórisdóttir syngur undir leik hljómsveitar
Rúts Kr. Hannessonar.
ÓÐAL: Opið öll kvöld helgarinnar, Fanney og Dóri
skiptast á að snúa plötunum við.
SIGTÚN: Opið laugardagskvöld kl. 14.30, laugar-
dag verður spilað bingó.
ÞÓRSCAFÉ: Kabarettinn kætir alla. Galdrakarlar
leika sin beztu lög, diskótek á neðri hæð, opið öll
kvöld helgarinnar.
BROADWAY: Föstudagskvöld. FÍH. verður með
tónleika, laugardagskvöld verða djassfimleikar og
dans, sunnudagskvöld einkasamkvæmi.
Veitingahús helgarínnar—Hlíðarendi:
HLÍDARENDIKVEDUR
MED HÁTÍDARKVÖLDI
I júffengur matseðill og fjölbreyttar uppákomur
Það cr sannarlega eilthvað forvilnilegt i pottum þeirra Hlíðarendabænda um
helgina en þetta er siðasta helgi sem veitingahúsið starfar. DV-mynd KÖE
Veitingahúsið Hlíðarendi er að
leggja upp laupana, eins og flestum
mun kunnugí. Hlíðarendabændur
ælla sér þó ekki að kveðja án þess að
gera sér og öðrum dagamun. Síðasta
kvöldið verður á sunnudag og verða
þá Ivö listform allsráðandi, að sögn
bændanna, malargerðarlistin og
tónlistin.
Matreiðslumenn verða með sér-
stakan hátíðarmatseðil sem hljómar
svo: Sjávarréttasalat, kjötseyði,
Carmen framreitt með ostakexi,
logandi piparsteik, flamberuð í sal og
íeftirrétt jarðarberjatrifflé.
Til að auka matarlystina bjóða
bændurnir öllum gestum upp á
kokteil um leið og tekið er á móti
þeim við innganginn. Og til að gera
stemmningu kvöldins sem bezta hafa
þeir fengið píanóleikarann, Gunnar
Axelsson, til að leika undir borðum.
Skemmtiatriði verða að sjálfsögðu
ofarlega á baugi enda Hlíðarendi
hvað frægastur fyrir sínar marg-
víslegu uppákomu. Má þar nefna'
klassísku kvöldin sem notið hafa
mikilla vinsælda. Það má segja að
sunnudagskvöldið verði síðasta
klassíska kvöldið því að það eru
hjónin Sieglinda Kahman og Sigurð
Björnsson, sem verða sérstakir gestir
kvöldsins.
Undir lokin fá allir gestir heim
með sér minningargjöf sem okkur er
bannað að segja frá. Öll þessi veizla
kostar 400 krónur fyrir manninn.
Þess má að lokum geta að Hlíðar-
endi er að sjálfsögðu opinn í kvöld og
annað kvöld og er þá boðið upp á
bæði sérréttalista og rétti dagsins.
' -ELA.
Gabríel Fauré, Þrjár etýður eftir
Claude Debussy, Koss Jesúbarnsins
eftir Olivier Messiaen, Jeux d’Eau og
Ondine eftir Maurice Ravel.
Allt eru þetta verk eflir frönsk
tónskáld og eru samin á tímabilinu
1890—1944. Verkin eru meira eða
minna tengd þeirri stefnu sem nefnd
hefur verið impressionismi í tónlist
og varð til í Frakklandi í lok síðustu
aldar.
Þess skal getið að hluti af þessari
dagskrá var flutturá Háskólatónleik-
um föstudaginn 19. febrúarsl.
-ELA.
Matsölustaðir
REYKJAVÍK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Simar 18385 og 29355:
Opið kl. 9—24 alla daga. Vínveitingar frá kl. 18
virka daga og allan daginn á sunnudögum.
ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Simi 81344: Opið kl.
11—23.30.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, viö Óöinstorg. Sími
25090: Opið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á
sunnudögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suöurlandsbraut 2. Simi
82200: Opið kl. 7—22. Vinveitingar.
HLÍÐARENDI, Brautarholti 22 (gengið inn frá
Nóatúni). Borðapantanir í síma 11690. Opið kl.
11.30—14.30 og 18—22.30. Vinveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Borðapantanir í sima
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld
vikunnar. Vínveitingar.
HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Sími 13340: Opið kl.
11—23.30. Eldhúsinu lokaö kl. 21. Léttar vínveit-
ingar.
LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opiö 8—
24.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR, Laugavegi 116.
Slmi 10312. Opið kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Borðapantanir í síma
17759. Opið alla daga kl. 11—23.30.
NESSÝ, Austurstræti 22. Sími 11340. Opið kl. 11 —
23.30 alladaga.
ÓÐAL við Austurvöll. Borðapantanir i sima 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til
fimmtudaga, kl. 21—03 föstudaga og laugardaga.
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími
96-21818. Bautinn er opinn alla daga kl. 9.30—
21.30. Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30.
Vínveitingar.
HÓTEL KEA, Hafnarstrœti 87—8». Simi 96-22200.
Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45.
Vínveitingar.
SKRÍNAN, Skólavöröustig 12. Sími 10848. Opið kl.
11.30— 23.30. Léttar vinveitingar.
VESTURSLÓÐ, Hagamel 67. Sími 20745. Opið kl.
11— 23 virka daga og 11—23.30 á sunnudögum.
Léttar vínveitingar.
ÞÓRSCAFÉ, Brautarholti 20. Borðapantanir í sima
23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga
kl. 20—22. Vínveitingar.
KÓPAVOGUR
VERSALIR, Hamraborg 4. Sími 41024. Opiö kl.
12— 23. Léttar vínveitingar.
HAFNARFJÖRÐUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Sími 54424. Opið alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vinveitingar.
SNEKKJAN ogSKÚTAN, Strandgötu 1—3. Borða-
pantanir I síma 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar-
daga. Matur er framrciddur i Snekkjunni Á laugar-
dögum kl. 21—22.30.
AKRANES
STILLHOLT, Stillholti 2. Sími 93-2778. Opið kl.
9.30— 21 virka daga og 9.30—22 laugardaga og
sunnudaga. Léttar vínveitingar eftir kl. 18.
Á æfingu undir stjórn Hjálmars R. Ragnarssonar.
Söngskemmtun helgarínnar—Félags-
miðstöð stúdenta:
Alíslenzk efnisskrá
hjá Háskólakómum
—heldur þrenna tónleika um helgina
Áhugafólk um tónlist kann enn að
minnast tónleika Háskólakórsins i
fyrra, enda vöktu þeir ágæta athygli
og fengu góða áheyrn. Nú standa
fyrir dyrum aðrir tónleikar kórsins og
er efnisskráin alíslenzk, óvenjuleg og
oft splunkuný.
Háskólakórinn heldur þrenna
tónleika að þessu sinni, á
föstudaginn, laugardaginn og
sunnudaginn, alla í Félagsmiðstöð
stúdenta við Hringbraut. Flutt verða
lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Atla
Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson,
Jónas Tómasson og Hjálmar R.
Ragnarsson, en hann er stjórnandi
Háskólakórsins. Hjálmar hefur
einnig útsett þjóðlög úrsafni Bjarna
Þorsteinssonar, sem eru fyrst á efnis-
skránni. Nokkur laganna eru samin
sérstaklega fyrir beiðni kórsins: Lög
Atla Heimis við Ijóð John Donne og
William Blake — það síðarnefnda
verður frumflutt núna — sem eru
tileinkuð minningu brezka
tónskáldsins Benjamins Brittens, Lög
Jónasar Tómassonar, Fimm
mansöngvar úr Kantötu IV, voru
einnig samin fyrir beiðni kórsins og
voru frumflutt á tónleikum Musica
Nova í haust. Kantatan er samin við
Ijóð Hannesar Péturssonar,
Manvísur.
Á tónleikunum um helgina verður
einnig flutt ,,Á þessari rímlausu
skeggöld” eftir Jón Ásgeirsson. Jón
samdi þetta að beiðni danska
tónskáldafélagsins og var það flutt
fyrst árið 1974. Og lag Þorkels Sigur-
björnssonar, Heyr himna smiður, við
bæn Kolbeins Tumasonar, verður
einnig flutt á tónleikunum. Tón-
leikunum lýkur með flutningi laga
eftir Hjálmar R. Ragnarsson við ýmis
Ijóð Dunganons og er samheiti laga-
flokksins Corda Exotica. Dunganon
orti á mörg tungumál, svo sem á
hindustandi, maori (Suðurhafseyja-
mál) og á hinni týndu mállísku
atlantis-málsins. Hjálmar tónskáld
skilur ekkert þessara tungumála, en
kvaðs aðspurður hafa gefið
Ijóðunum merkingu með tónum.
Tónleikar Háskólakórsins eru
fyrstir á föstudag kl. 20.30, aðrir á
laugardag kl. 17 og þeir þriðju og
siöustu á sunnudag kl. 20.30, allir i
Félagsstofnun stúdenta, eins og fyrr
sagði.
-Ms.