Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1982, Síða 4
20
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982.
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Tónleikar helgarinnar—Lækjartorgi:
Ego kynnir efni nýju plötunnar
Hljómsveitin EGO hefur vakið á sér mikla athygli undanfarið, ekki sízt eftir útkomu hljómplötu þeirra félaga fyrir
skömmu. Platan nefnist Breyttir timar og munu þeir félagar með Bubba Morthens í fararbroddi kynna aðdáendum sín-
um efni hennar á hljómleikum, sem þeir efna til á Lœkjartorgi á morgun kl. 14.00.
Slysavarnafólag
ísjands í Rvk
ráðgerir ferð um Snæfelisnes og Borgarfjörð dagana
26. og 27. júní nk. Upplýsingar i síma 84548.
Ferðanefnd.
Frá Ferðafólagi
íslands
Dagsferðir sunnudaginn 18. apríl:
1. kl. 09 — Skarðsheiðin. Ath.: Torfi Hjaltason og
Hreinn Magnússon félagar í islenzka Alpaklúbbnum
Ieiðbeina þátttakendum í meðferð brodda og ísaxa.
Verökr. 150.-.
2. kl. 13 — Reynivallaháls i KJós. Létt ganga fyrir
alla fjölskylduna. Fararstjóri: Baldur Sveinsson.
Verð kr. 100.-.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Frítt.t
fyrir börn í fylgd fullorðinna. Farmiðar viö bíl.
Sunnudaginn 18. aprll verða tónleikar í Laugarnes-
kirkju kl. 17.00. Á efnisskránni verða eingöngu verk
eftir Gunnar Reyni Sveinsson, bæði orgelverk og
verk fyrir barítonrödd og orgel. Á tónleikunum
verður m.a. frumflutt kantata fyrir orgel og einsöng,
en höfundur tileinkar hana minningu kennara síns
Dr. Viktors Urbancic.
Flytjendur veröa Halldór Vilhelmsson og Gústaf
Jóhannesson.
Sónataá
Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 17. apríl kl. 5 heldur brezki píanóleik-
arinn John Lewis tónleika að Kjarvalsstöðum. Á
efnisskránni er sónata nr. 2, „Concordsónatan” eft-
ir Charles Ives, og er þetta í fyrsta skipti sem þessi
sónata er flutt hér á landi.
Sónatan er samin á árunum 1908—1915 og draga
kaflaheitin nöfn af þeim rithöfundum og heimspek-
ingum sem bjuggu í Concord, Massachusetts um
miðja síðustu öld, Emmerson, Hawthorne, Alcotts
og Thoreau. Á tónleikunum mun herra Lewis einnig
spjalla um sónötuna.
John Lewis stundaði nám í heimalandi sínu og
hefur leikið talsvert af nútímatónlist í Lundúnum,
en hefur einbeitt sér æ meir síðustu ár að tónlist
Charles Ives. í nóvember síðastliðnum lék hann ýmis
af smærri verkum Charles Ives á tónleikum i Nor-
ræna húslhu. John Lewis hefur í vetur verið kennari
við Tónlistarskólann í Stykkishólmi.
„Að sunnan og
að norðan"
Sextíu og þriggja manna hljómsveit heldur tón-
leika á Akureyri og í Reykjavík núna um helgina.
Þetta er strengjasveit auk fímm blásara og eru
hljóðfæraleikararnir allir nemendur úr fjórum tón-
listarskólum, Tónlistarskólanum í Reykjavík, Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar, Tónmenntaskól-
anum og Tónlistarskólanum á Akureyri.
Hljómsveitarstjóri er Mark Reedmán og einleikari
á fíðlu verður Guðný Guðmundsdóttir, konsert-
mcistari Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Æft hefur verið sitt í hvoru lagi, bæði fyrir norðan
og hér fyrir sunnan. Næsta föstudag fljúga Reykvík-
ingar norður og er ætlunin að æfa saman fyrir tón-
leika sem haldnir verða á vegum Tónlistarfélagsins á
Akureyri, laugardaginn 17. apríl kl. 1«7 í íþrótta-
skemmunni. Eru þetta fjórðu áskriftartónleikar
félagsins á þessu starfsari. Sunnudaginn 18. april
mun þessi óvenjustóra hlj-^nsveit halda tónleika í
Reykjavík i sal Menntaskólans viö Hamrahlíð, kl.
17.
Sala aögöngumiða fer fram í bókabúðinhi Huld á
Akureyri og við innganginn á báðum stöðum.
Málverkasýning helgarinnar:
Rómanhskar f ugla- og landslagsmyndir
eftir Homfirðinginn Höskuld Bjömsson
Verkfrœðingafélag
íslands
Út er komið Verkfræðingatal 1981. í því eru 962
æviskrár islenzkra verkfræðinga og annarra félags-
manna Verkfræðingafélags íslands, auk ritgerðar
um menntun íslenzkra verkfræðinga eftir Svein-
björn Björnsson og skráa yfir mannanöfn, fyrirtæki
ogstofnanir.
( Einnig fylgir upplýsingarit um Verkfræöingafélag
íslands. Þar er getið þess helzta sem félagið varðar.
Verkfræðingafélag íslands veröur 70 ára 19. apríl
1982. Afmælishátíðin verður haldin í Súlnasal Hótel
Sögu 21. maí 1982 og á eftir verður haldinn á Húsa-
vík fundur norrænu Verkfræðingafélaganna um
sameiginleg áhugamál verkfræðinga á Norður-
löndum.
Laugarneskirkja
Opið hús fyrir aldraða á morgun, föstudag, klukkan
14.30. Torfí Ólafsson sýnir litskyggnur um líf og
starf móður Theresu. Kaffíveiiingar.
Frá Norrœna
félaginu
Svíþjóðarkynning.
Senn liður að lokum ferðar Unnar Guðjónsdóttur og
Þórs Bengtssonar um landið til kynningar á Svíþjóð.
Síðustu samkomurnar verða sem hér segir: Á
Selfossi mánudagskvöld 19. apríl. Á Hvolsvelli
þriðjudagskvöld 20. april og í Hveragerði miðviku-
dagskvöld 21. apríl.
Eru kynningarnar á vegum Norrænu félaganna á
viðkomandi stöðum. Einnig munu þau koma fram í
skólum á þessum stöðum.
Til viðskiptavina
Hafskips hf.
Við vekjum hér með athygli yöar á nýrri áætlunar-
höfn Hafskips hf.
Hafskip hf. hefur hafíð reglulegar áætlunarsigl-
ingar til Álaborgar, Danmörku og verðum við þar á
tveggja vikna fresti, meö línuskip okkar sem sigla á
Skandinaviu.
Með þessari nýju áætlunarhöfn, vonumst við til
Fundaskrá
AA-samtakanna á
íslandi
Föstudagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00
Tjarnargata 5. Græna húsið Enska. kl. 19.00
Graham, sími 20129
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið, opinn fjöl-
skyldufundur kl. 21.00
Tjarnargata 5 (91-12010). lokaður uppi kl. 21.00
Tjarnargata 3 Rauða húsið, Hádegisfundur kl. 12.00
Tjarnargata 3 (91-16373). Rauða húsið kl.'Sl.OO
Hallgrimskirkja, Byrjendafundir kl. 18.00
Ingólfsstræti lá 3h kl. 21.00
Neskirkja, 2. deild kl. 18.00
Neskirkja kl. 21.00
LANDIÐ
Akureyri, Sporafundur kl. 21.00
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 kl. 12.00
Hellissandur, Hellisbraut 18 kl.-21.00
Húsavík, Höfðabrekka 11 kl. 20.30
Neskaupsstaöur, Egilsbúð kl. 20.00
Selfoss, (99-1787). Sigt. 1, Sporafundur kl. 20.00
Laugardagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00
Tjarnargata 5. (91-12010). Græna húsið kvennadeild
uppi kl. 14.00.
Tjarnargata 3 (91-16373). Rauða húsið kl. 21.00
Tjarnargata 3 (91-16373). Rauða húsið kl. 23.30
Langholtskirkja kl. 13.00
ölduselsskóli Breiðholti kl. 16.00
LANDIÐ
Akureyri, (96-22373). Geislagata 39 kl. 16.00
Höfn Hornafirði, Miðtún 21 kl. 17.00
Staðarfell Dalasýslu, (93-4290). Staðarfell kl. 19.00
* Tálknafjöröur, Þinghóll kl. 13.00
Vestmannacyjar, (98-1140). Heimagata 24, opinn kl.
. 17.00
Keflavík (92-1800). Klapparstíg 7 kl. 14.00
* og þégar togari er inni.
Laugardaginn 17. apríl nk. kl.
14.00 verður opnuð sýning á Kjar-
valsstöðum á verkum Höskulds
Björnssonar, þeirra er enn eru í eigu
fjölskyldu hans.
f ár verða 75 ár liðin frá fæðingu
Höskulds Björnssonar og af því
tilefni er efnt til þessarar sýningar.
Höskuldur Björnsson var fæddur
26. júlí 1907 að Dilksnesi í Horna-
firði oglézt2. nóvember 1963.
Höskuldur lærði teikningu hjá
Ríkharði Jónssyni myndhöggvara
veturinn 1925—26. Hann naut einnig
tilsagnar Jóns Stefánssonar list-
málara 1928—31.
Lengst af dvaldist Höskuldur í
Austur-Skaftafellssýslu þangað til
hann fluttist búferlum til Hvera-
gerðis, þar sem ekkja hans,
Hallfríður Pásdóttir, býr enn. Eftir
lát eiginmanns síns, breytti hún
vinnustofu hans í notalega
kaffistofu, Bláskóga, þar sem gestir
geta virt fyrir sér handbragð lista-
mannsins. Þar getur að líta það sem
helzt einkenndi Höskuld Björnsson.
Rómantískar fugla- og landslags-
myndir auk mynda af gömlum
byggingum, svo nokkuð sé nefnt.
Auk verkanna á vinnustofunni
verður fjöldi annarra, sem ekki hafa
verið sýnd áður.
Alls verða um 150 myndir á
sýningunni. Hún verður opin til 9.
maí, alla daga frá kl. 14—22.
Fram-skfðamót
Innanfélagsmót verður haldið nk. laugardag 17.
apríl. Keppt verður i öllum flokkum. Skráning fer
fram við skíðaskálann í Eldborgargili i Bláfjöllum
sama dag til kl. 12.30. Keppni hefst kl. 13.00. Rás-
númer keppenda gildir sem happdrættismiði. Veg-
legur vinningur frá verzl. Sportval. NÆGUR
SNJÓR.
að ná betri hagkvæmni fyrir viðskiptamenn Haf-
skips hf. í flutningi vöru frá Danmörku.
Umboðsmaður Hafskips hf. i Álaborg er: E.A.
Bendix og Co., Slotsgade 35, 9100 Aalborg. Sími:
08-138300. Telex: 69643.
Varðandi frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið
samband við Markaösdeild Hafskip hf.
Samkomur
Samkoma f
Norrœna húsinu
Norræna félagiö í Reykjavík efnir til samkomu í
Norræna húsinu laugardaginn 17. apríl ’82 kl.
20.30. Þar munu Unnur Guðjónsdóttir og Þór
Bengtson kynna Sviþjóð og sænska menningu með
frásögnum, tónlist og myndum.
Þau eru búsett í Stokkhólmi og hafa kynnt ísland
víðsvegar um Svíþjóð á hliðstæðum samkomum. Nú
eru þau hér á landi í boði Norræna hússins og
Norræna félagsins og hafa kynnt Svíþjóð víða um
land. Samkoman í Norræna húsinu á laugardag 17.
apríl verður síðasta samkoman í Reykjavík, sem þau
koma fram á. öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Tilkynningar
Frá fálagi einstæðra foreldra
Hvað gerist við skilnað? F.E.F. heldur almennan
íúnd um bamalög að Hótd Heklu þriðjudaginn 20.
apríl kl. 20.30. Ólöf Pétursdóttir, fulltrúi í dóms-
málaráðuneytinu kynnir barnalögin. Sálfræðingarn-
ir Guðfínna Eydal og Álfheiður Steindórsdóttir tala
um foreldraráðgjöf. Ásdís Rafnar lögfræðingur
F.E.F. svarar fyrirspurnum. Fundurinn er öllum
opinn og áhugafólkkum málefni barna og foreldra
sérstaklega bent að mæta. Stjórnin.
Félag sálfrœðinema
við Héskóla íslands
efnir til málþings, laugardaginn 24. apríl kl. 13.30 í
Félagsstofnun stúdenta.
Umræðuefni þingsins verður: Hvernig verður
mannshugurinn rannsakaður? Fyrirlesarar verða:
Anna Valdemarsdóttir sálfræöingur, Jörgen Pind
sálfræðingur, Páll Skúlason prófessor í heimspeki.
Að loknum fyrirlestrum verða fyrirspumir og
frjálsar umræður.
Áhugafólk er eindregið hvatt til að mæta.
Frá Iðnfræðinga-
fálagi íslands
Nýlega var haldinn á Hótel Loftleiðum aöalfundur
Iðnfræðingafélags íslands og var hann vel sóttur.
Þar kom fram að mikil gróska var í starfsemi
félagsins á síðasta starfsári. Þau mál sem hæst báru
voru lögverndunarmálið svonefnda og stofnun
kjaradeildar.
Síðan félagið var stofnað fyrir 2 árum hefur verið
unniö að því að fá starfsheitið iðnfræðingur, lög-
verndað. Frumvarp til laga um þetta efni liggur nú
fyrir alþingi og verður væntanlega afgreitt sem lög
fyrir þinglok.
Kjaradeild félagsins var stofnuö í júní sl. og er
starfssvið hennar að vinna að kjaramálum iðn-
fræðinga.
Fjárhagsafkoma félagsins var sæmileg og leigir
félagið nú skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 29.
Stjórn félagsins skipa nú. Siguröur öm Gislason
formaður, Magnús Björnsson, Benedikt Egilsson,
.Garðar Sigurðsson og Gunnar Hólm Hjálmarsson.
Fundir
Ferðalög
Tónlist
<
\