Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1982, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1982.
21
Hvað er á seyði um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Planótónleikar 6
Kjarvalsstöðum
Mactiko Sakurai frá Tokyo hcldur píanótónlcika á
Kjarvalsstöðum sunnudaginn 18. apríl klukkan 17.
Á efnisskrá verða sónötur eftir: Schubert (a dúr)
Mozart (c-moll) Prokofiev (c dúr). Mactika stundaði
nám í Japan og síðan i Vínarborg og lauk þaðan
diplóma 1980. Síðan hefur hún haldið tónleika víða
um Evrópu og Asiu.
íþróttir
Knattspyrnumót
Föstudagur 16. april y.
Háskólavöllur — Rm. 1. fi. — Léttir-KR 19.00
Framvöllur — Rm. 1. fi. — Fram-Valur 19.00
LAUGARDAGUR:
MELAVÖLLUR: Fram og Fylkir í Reykjavíkurmót-
inu kl. 14.
Víkingsvöllur — Rm. 2. fi. A — Víkingur-Þróttur
14.00
Valsvöllur—Rm. 2. fl. A — Valur-KR 13.30
Valsvöllur Rm. 2. fi. B — Valur-KR 15.00
KÓPAVOGUR: Breiðablik og Akranes í litlu bikar-
keppninni kl. 14.
HAFNARFJÖRÐUR: Haukar og FH í litlu bikar-
keppninni kl. 14.
SUNNUDAGUR: ,
MELAVÖLLUR: Þróttur — Vikingur i Reykja-
víkurmótinu kl. 14.
Miðvikudagur 14. april
Melavöllur — Rm.mfl. — KR-Ármann 19.00
Fimmtudagur 15. apríl
Melavöllur — Rm. mfl. — Fylkir-Valur 19.00
Leiklist
„Don kfkóti" eða
„sinnhvað má Sanki þola"
Sýning i Alþýðuleikhúsinu, föstudags- og sunnu-
dagskvöld klukkan 20.30, á gamanleiknum ,,Don
kikoti” eða „sitthvað má Sanki þola” eftir James
Saunders. Leikarar i sýningunni eru: Arnar Jónsson,
Bjami Ingvarsson, Borgar Garðarsson, Eggert
Þorleifsson, Guðmundur Ólafsson, Helga Jóns-
dóttir og Sif Ragnhildardóttir. Þýðinguna gerði Karl
Guðmundsson, leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir.
Garðaleikhús sýnir
Karlinn (kassanum
í Tónabæ (gamla Lidó) á laugardagskvöldið kl.
20.30, fáar sýningar eftir. Aðalleikarar, Magnús
Ólafsson, Aðalsteinn Bergdal og Guðrún Þórðar-
dóttir. Miðasala opin i Tónabæ föstudag frá kl.
17—19oglaugardag kl. 17.
Leynimelur 13
Að undanförnu hefur Skagaleikflokkurinn sýnt
gamanleikinn Leynimel 13 eftir Þrídrang í Bíóhöll-
inni Akranesi, leikstjóri er Guðrún Alfreðsdóttir.
Þeir sem fara með helztu hlutverk eru þau Guðjón
Þ. Kristjánsson, Jón Páll Björnsson og Hrönn Egg-
ertsdóttir. Næstu sýningar verða föstudag 16. apríl
kl. 20.30 og laugardag 17. apríl klukkan 15.00 og
verða þetta síðustu sýningar. Miðasala hefst
Enska knattspyrnan —■ í sjónvarpi:
Markaregn á
Goodison Park
—þar sem Everton og Manchester
Unitedáttustvfiö
Það verður fjörugur leikur, sem
veröur aðalleikur i ensku knatt-
spymunni i sjónvarpinu á laugar-
dag ki. 18.55. Er það lelkur Everton
og Manchester United, sem fór
fram á Goodison Park. Fyrir leik-
inn óskuðu 10 af ielkmönnum Ever-
ton að vera settir á söluskrá hjá fé-
laglnu.
Leikurinn var fjörugur og voru
sex mörk skoruð í honum, þannig
að sjónvarpsáhorfendur fá að sjá
nóg af mörkum. Mike Lyons, fyrir-
liði Everton, átti stórgóðan leik en
hjá Manchester United bar mest á
Bryan Robson, sem var frábær á
miðjunni.
Liðin sem léku á Goodison Park
voru skipuð þessum leikmönnum:
Everton: Southall, Borrows, Ly-
ons, Higgins, Ratchliffe, Irvune,
McMahon, Heath, Ross, Sharp,
Ainscow og varamaður Lodge.
Man. Utd.: Bailey, Gidman,
Moran, Duxbury, Albiston, Rob-
son, Wilkins, Moses, Coppell, Mc-
Garvey og Stapieton. Varamaður:
Grimes.
Neville Southall, markvörður
Everton, meiddist illa rétt fyrir
leikslok, þegar hann ienti í sam-
stuði við Kevin Moran.
Þá veröur einnig sýndur leikur
Bryan Robson, enski landsliðsmaðurinn hjá United.
Mike Lyons, fyrirliði Everton.
West Ham og Swansea, sem fór
fram í London — og áttu leikmenn
„Hammers” i miklum erfiðleikum
með Svanina.
-sos
klukkan 19.00 á föstudag og klukkan 13.00 á laugar-
dag.
Dario Fo, Kjartan Ragnars-
son og Halldór Laxnass ó
fjölunum hjá Leikfólagi
Reykjavfkur
í kvöld (föstudagskvöld) sýnir Leikfélag Reykja-
víkur ærslaleikinn Hassið hennar mömmu eftir
þúsundþjalasmiðinn Dario Fo i 6. sinn. Eins og
nafnið ber með sér fjallar lcikurinn um fikniefna-
ncyzlu, en eins og þcssum höfundi er einum lagið,
fléttar hann saman gamnl og atvöru þannig aö hass-
reykingar og heróinneyzla unglinga i dag verða á
lciksviðinu tilefni ótrúlegasta skops og skemmtunar,
Veitingahús vikunnar: Hótel Holt
ÞÚ ÞARFT RJÓMA, HVÍT-
VÍN 0G EITTHVAÐ ÚR SJÓ
Hefur þú smakkað gellur soðnar í
hvítvini og rjóma, síðan ofnbakaðar i
hörpuskel? Ef ekki, þá ættirðu að
reyna—hvort sem þú beitir eigin snilld
(sem vafalaust er mikil) eða ferð niður
á Hótel Holt. Þar kostar krásin kr. 95
eftir nýjustu vísitöluhækkun, súpa kr.
25. Þannig færðu Ijúfa nautnarstund í
matsal með dúkuðum borðum og
fögrum málverkum á veggjum og
kostar varla tvöfalt á við hraðgleypingu
á hamborgara, frönskum og kók.
Þetta lága verð kemur á óvart. Satt
að segja hafði ég ekki þorað að fara og
borða á Holti í mörg mörg ár, af
hræðslu við að koma út ekki svöng en
gjaldþrota.
Svipað gildir um ýmsa matstaði í
bænum. Þeir eru ótrúlega ódýrir, ekki
sízt í hádeginu, miðað við þjónustu og
umhverfi. En Holt er í sérflokki, ekki
aðeins vegna þess hvað málverkin á
veggjunum eru dýr (sum metin á yfir
hundrað þúsund krónur) heldur vegna
þess að þar hafa skapazt hefðir.
Ásamt Naustinu var Holt eitt fyrsta
veitingahúsið sem reyndi að bjóða það
bezta í matreiðslu með því að nota
íslenzk hráefni á fjölbreyttan hátt.
Krækfíngur
úr Breiðafirði
Glóðarsteikt lamb er stolt þeirra
Holtsmanna, en við höldum okkur i
þetta sinn við fiskréttina, enda óvíða í
heiminum hægt að fá þá betri og
ódýrari en á íslandi.
Graflaxinn er löngu frægur orðinn
og eins fiskréttasamsetningin „Tónar
hafsins”. En hver matsveinninn af
öðrum hefur fundið upp á nýjum að-
ferðum við sjávarréttina.
Yfirmatsveinn á Holti núna heitir
Ingvar Jakobsson og er 31 árs gamall.
Hann er frá Hvammstanga við Húna-
flóa, á afmæli i fiskamerkinu og fimm
ára gamall ætlaði hann að verða mat-
sveinn á Gullfossi þegar hann yrði stór.
Þegar hann eldar fiskrétti verður
hann að hafa rjóma og hvítvin — það
eru grunntónarnir. Við smökkuðum
ltjá honum kræklinga, veidda í Breiða-
firði, og soðna í hvítvini og vatni.
Soðið var bætt rneð rjóma og einhverju
fleiru og úr varð létt sósa. M-m-m-m!
Diskur af skeljum kostar kr. 115 (og
hægt er að kaupa hálfan skammt).
Þá er óhætt að niæla með regnboga-
silungi ræktuðum i Vestmannaeyjum
(hvort sem það er við hitann i hrauninu
eða ekki!) Ingvar steikir hann i smjöri
—það krefst mikillar þolinmæði því
smjörið brennur auðveldlega við. En
útkoman er eftir því — og þetta kostar
heldur ekki nema kr. 95, eins stór
skammtur og maður vill.
Verðið er það santa hvort sem er i
hádeginu eða á kvöldin. í hádeginu er
venjulega einn kjötréttur á kr. 89, með
Martröð matsveinsins: „Mig dreymir
að gestirnir séu komnir, en maturinn
hrár og allt gangi á afturfótunum í eld-
húsinu,” segir Ingvar Jakobsson, yfir-
matsveinn á Hótel Holti.
DV-mynd: Friðþjófur.
ábót, en á kvöldin er matseðillinn
miklu fjölbreyttari og iburðarmeiri. Þá
geturðu borðað fyrir meira en einn
rauðan. Byrjað til dæmis á glóðar-
steiktum humarhölum fyrir kr. 289 og
fengið þér nautalundir á kr. 265 á eftir.
Fieira er matur
en hamborgarhryggur
Þótt hvítvín sé í fisksósunum er úti-
lokað að verða sætkenndur á þann veg
— vinandinn gufar allur upp við
suðuna. Margir munu fagna þvi en
aðrai lála kannske freistast til að slá i
hvítvínsflösku. Edelfraulein (5—6 glös)
kostar kr. 102, þurrt ameriskt Chablis
kr.94.
Og þess má geta að í tengsium við
matsalinn var fyrir fáum mánuðum
opnaður huggulegur pianóbar í hús-
næðinu þar sem áður var afgreiðsla og
heildsala fyrir kjötbúðina Sild og fisk.
Barinn er fyrst og fremst ætlaður
matar- og hótelgestum og opinn á
lögleyfðum tírna, milli tólf og eitt í 'ná-
deginu og aftur frá sjö á kvöldin til
hálftólf, eða eitt eftir miðnætti um
helgar.
Þeir Árni Elfar og Revnir Jónasson
spila á píanóið til skiptis, einkum þegar
frídagar eru framundan. Og á veggjun-
um hanga eingöngu andlitsmyndir og
teikningar eftir Kjarval, sextíu talsins
(það gerir hundrað og tuttugu þegar
maður er farinn að sjá tvöfalt).
-ihh.