Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Side 17
HORNA- FLOKKUR Stórstjörnur slá saman Það sætir tíðindum þegar stjórstjörnur á borð við Paul McCartney og Stevie Wonder slá saman, en nýlega kom á markað lítil plata með þcssum tveimur risum i poppinu. Platan hefur að geyma lagið „Ebony And lvory” cftir Paul og er það söngur gegn kynþáttamisrétti. „Mig dauðlangaði að vinna með einhverjum eins og Stevie Wondcr vegna þess að lag- ið er um samlyndi hvítra og svartra,” sagði Paul. Á B-hlið smáskifunnar er líka nýtt lag eftir Paul, „Rainclouds” og það mun ekki verða á væntanlegri breiðskifu hans, „Tug Of War” sem útgefin verður innan tiðar. Sætindi f rá Squeeze „Sweets From A Stranger” heltir ný breiðskifa brezku hljómsveitarinnar Squeeze, sem gefin verður út i næstu viku. Squeeze átti að margra áliti eina beztu plötu stðasta árs, „East Side Story”, og blaðamenn brezka poppblaðsins Record Mirror töldu hana þá beztu. Lagasmlðum Squeeze, Dif- ford og Tilbrook er einatt likt við Lennon/McCartney og það er einmitt fyrrum sam- starfsmaður Bftlanna, Phil McDonald, sem stjórnaði upptökum á nýju plötunni. Smáskífa með laginu „Black Coffee in Bed” er kominn út en þar kemur Elvis Costello ögn við sögu. Lengi lifir í... Gary Brooker, fyrrum söngvari Procul Haruni og höfundur popplagsins sigilda „A Whiter Shade Of Pale”, er aftur kominn fram á sjónarsviðið með breiðskífu sem hann hefur unnið ásamt nokkrum heimsfrægum félögum sínum, þeirra á meðal Phil Collins, George Harrison og Eric Clapton. Platan hefur fengið mjög góða dóma. Um langt árabfí hefur brezka hljómsveftín Japan sent frá sér stór- merkílega tónlist án þess eð mergir hefí veftt því eftirtekt. Hljómsveitin hefur sumsó leikið fyrir daufum eyr- um iengstaf, en upp 6 síðestið hefur orðið stórbreyting á; ellt í einu er I Japan orðin vinsœll Síðeste breið- \skrfan „Tin Drum" fókk hlýjar j viðtökur og mikfð umtal, smóskrfan Imeð laginu „Ghosts" er meðal íþeirra vinsælustu og komin upp við \topp brezkaiistans. Ætla mætti auðvitað að hljómsveitarmenn Itækju þessari breytingu með miklum fögnuði, |(eflaust gleðjast þeir i hjarta sínu), skipulegðu lhljómleikaferðir og sinntu öðru vinsældarbrölti Iminnugir gamla orðtaksins að hamra skuli járnið lmeðan það er heitt. En bfðum við. Nei, þeir létu ClASH nýjabrciðswtu Jæja, þá eru strákarnir i Clash altur komnir á vestrænar slóðir og með nýja brciðskilu undir armin- um. Platan var tekin upp i Astraliu þar sem hljóm sveitarmenn hafa alið manninn mestan hluta velrar en þegar síðast fréttist var afkvæmið óskirt. Hins vegar er komin úl smáskifa með laginu „Know Vour Rights” og er lagið sagt dæmigert Clash-lag. Hljómsvcitin hcfur siðustu vikur verið á hljóm- leikaferðalagi i Austurlöndum fjær, eins og myndin hér til hliðar ber með sér. Hún er tekin í japönsku borginni Kyoto og sýnir þá Mick Jones og .loc Strumnter fitla við sérkennilegan gosbrunn. Clash byrjar nitján daga hljómleikaferð um Bret- land á mánudaginn kemur. á sér skiljast að hljómsveitin væri hætt um stundarsakir að minnsta kosti. David Sylvian leiðtogi Japan segist ekki vita hversu lengi þessi skilnaður liðsmanna hljómsveitarinnar muni vara, en telur ekki ósennilegt að líða muni þrír eða fjórir mánuðir þar til Japan komi saman á nýjan leik. En hvað gerðist? Hvers vegna siglir nýfræg hljómsveit uppá sker loksins þegar heim- urinn er tilbúinn að hlusta? Svörin viö þessum spurningum eru eflaust margvísleg. Japan samanstendur af fjórum ung- um mönnum, sem allir eiga sín áhugamál fyrir utan hljómsveitina, — og þeim fannst nú kom- inn rétti tíminn til að sinna þeim, hversu kjána- lega sem þetta kann nú aö hljóma. Steve Karn er niðursokkinn í höggmyndagerð, Steve Jansen er gripinn skyndilegum áhuga á ljósmyndun, og Richard Barbieri e; heltekinn af undrum tækninnar einkum tveimevsnúaað hljóð- upptöku. Sjálfur höfuðsmaðurinn, David Sylvi- an, hefur i ýmsu að sýsla. Hann gómaði gamlan félaga sinn, Riuichi Sakamoto (liðsmann Yellow Magic Orchestra) nýlega og þeir skunduöu inn í stúdíó til hljóðritunar á tveimur lögum. Þeir hafa áður unnið saman því Sakamoto liðsinnti Sylvian á plötunni, „Gentlenen Take Pola- roids”. Með þeim í stúdíóinu var iíka Steve Jan- sen, bróðir Sylvian og liðsmaður Japan, — og þykir ekki ósennilegt að þetta óformlega tríó láti eitthvað meira frá sér fara en eina smáskífu. Sylvian hefur einnig verið að bauka með Richard Barbieri við skoðun á tækniundrunum, þeir hafa verið að taka upp „instrumental” tónlist sem áformað er að komi út á tveimur eða þremur breiðskifum. Þeirri hugmynd hefur líka verið fleygt að hijómsveitin standi fyrir einhverskonar listsýn- ingu þar sem boðið verður upp á höggmyndir Steve Karns, ljósmyndir Steve Jansens, og „instrumental” tónlist þeirra David Sylvians og Richard Barbieris. Ekki er ljóst hvort af þessu verður, en augljóst að liðsmenn Japan eru fjöl- hæfir mjög og geta látið að sér kveða á fleiri en einu listasviði. -Gsal Útsetningar á dægurlögum hafa i seinni tið fengiö æ meira gildi, þó laglinan skipti að sönnu miklu máli er umbúnaðurinn ekki siður mikil- vægur. I Bretlandi er áberandi hvað mörg dægurlaganna eru snilldar- lega vei úr garði gerð. Einn eftir- sóttasti útsetjarinn er Trevor Horn liðsmaður Buggies. Hann hefur stjórnað upptökum á lögum Dollar, ABC og nú siðast Altered Image og Spandau Bailet. Er ekki kominn timi til að íslandsrokkarar gefi útsetningum meiri gaum en hingað til? Gamlar stjörnur Piltarnir i Heaven 17 sem standa aö haki B.E.E. 4 hafa aö undanförnu verið að vinna meö nokkrum glcymdum poppstjörnum og hefur vcriö gefin út breiðskifa sem heitir „Music of Quality And Distinction”. Meöal gömlu stjarnanna sem þar koma fram er Sandie Shaw; búió er að skjóta undir hana skóm, en hún var frægust fyrir þaó að spranga um berfætt syngjandi „Puppet On A String” fyrir flmmtán árum. Aörir sem fram koma á plötunni eru Hank Marvin, Paul Jones, Gary Glitter og Bernie Nolan. Einhver efnilegasta popphljómsveit sem komið hefur fram á sjónarsvióiö undan- farin misseri er ótvírætt brezka hljómsveitin Haircut 100. Nú hyggjast strákarnir nýklipptu feta í fótspor gömlu Monkees og gera sjónvarpsþætti. Aö því er Nick Hcyward foringi hljómsveitarinnar scgir veröa þættirnir byggöir upp á svipaðan hátt og þættir Apakattanna, blandað verður saman tónlist og grini, en sjálfur ætlar Nick að semja handrit aö þáttunum. — Fyrsta breiðskifa Haircut 100, Pelican West hefur fengið einkar góöar móttökur og ný smáskífa er komin út með laginu „Fantastic Day” af stóru plötunni. NYIR APAKETTIR?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.