Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Page 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982.
.19
Kolbainn BJamason flautuleikarí.
Einleikur
á f lautu
í Félags-
stofnun
stúdenta
Þriðjudagskvöldiö 1. júní næst-
komandi heldur Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari tónleika í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut. Kolbeinn
mun flytja tvö tónverk eftir franska
tónskáldið André Jolivet. Verkin eru 5
særingaþulur sem samdar voru árið
1938 og Ascéses (Meinlæti) sem samið
var áriö 1967. Einnig mun hann spila
Partítu í a moll fyrir einleiksflautu eft-
ir J.S.Bach.
Kolbeinn Bjamason lauk prófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið
1979 og var hann þar undir handleiðslu
Jósefs Magnússonar. Síðan stundaði
hann nám hjá Manuelu Wiesler til
haustsins 1981, en síöastliðinn vetur
var hann við nám hjá japanska flautu-
leikaranum Kiyoshi Kasai i Basel.
Manuela Wiesler hefur leiðbeint Kol-
beini við undirbúning tónleikanna sem
hef jast kl. 20.30.
90 100 120 140 160 KHZ
Vestur Þýska þvottavélin Royal 85 frá
BBC er engin venjuleg þvottavél, því hún
hefur til að bera afburðaeiginleika svo
sem:
1. Þeytuvinduhraða - 800 sn. á mín.
2. Þyngd -102 kg sem gerir vélina hljóðláta
og mjög stöðuga í þeytivindingu.
3. ÞÚ getur ráðið hita þvottavatnsins með
sjálfstæðum hitastilli.
I 4.Toppstykkið á vélinni er hannað sem
vinnuborð.
k 5. Hæð - 85 cm, breidd - 60 cm, dýpt - 60 cm.
Þess vegna er BBC á réttri bylgjulengd.
Lattu bankann avaxta
peningana þína!
Þriggja mánaða verðtrygging - ný vömgegn verðbólgu.
Viðskiptabankamir
ÓSA