Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Blaðsíða 40
ÁTTA ÁRA DRENGIR
KVEIKTU í FRIÐUÐU
HÚSIÁ FLATEYRI
— glöggt stóð með björgun piltanna og húsið brann til ösku
Þrír drengir í kringum átta ára
gamlir kveiktu í gömlu liúsi á Fiat-
eyri í fyrrakvöld meö þeim afleiöing-
um aö húsiö fuöraði upp á tíu minút-
um og er nú lítið eftir nema askan.
Um var aö ræöa gamalt verzlunar-
hús, í eigu Kaupfélags önfiröinga,
sem búiö var aö friðlýsa og flytja á
sérstakan staö þar sem til stóö aö
gera þaö upp. Hús þetta var orðið
Vinstri
meirihluti
á Akureyri
myndaður
— meðþátttöku
Framsóknar,
Alþýðubanda-
lagsogKvenna-
framboðsins
Framsóknarflokkur, Alþýöubanda-
lag og Kvennaframboöiö hafa myndað
meirihluta í bæjarstjóm á Akureyri.
Tókst samkomulag á milli flokkanna
aöfaranótt síöastliðins sunnudags eftir
löng og ströng fundahöld. Samkomu-
lagiö var svo formlega staðfest á
sunnudagskvöld.
Samkvæmt því verður Helgi M.
Bergsendu1 ráöinn bæjarstjóri á Akur-
eyri næsta kjörtímabil á bæjar-
stjómarfundi í dag en hann hefur
gegnt því embætti síðan 1. september
1976. Þaö var Framsóknarflokkurinn
sem lagöi áherzlu á endurráðningu
Helga. Á móti mun Kvennaframboöiö
fá forseta bæjarstjórnar úr sínum röö-
um. Að líkindum veröur Valgerður
Bjamadóttir kosin í þaö embætti. Al-
þýöubandalagið mun meöal annars fá
formennsku í bygginganefnd í sinn
hlut. Um margt fleira var samið sem
gert verður opinbert á bæjarstjómar-
fundinumídag.
Margir heimildarmenn DV voru
þeirrar skoðunar aö í meirihlutasam-
þykktinni sé ekki tekin afstaða til
hugsanlegrar stóriöju við Eyjafjörö,
sem var eitt helzta bitbeiniö í
samninga viöræöunum.
Upphaflega var Alþýöuflokkurinn
meö í viðræðunum um myndun áöur-
nefnds meirihluta. Freyr Ofeigsson
bæjarfulltrúi Alþýöuflokks lagöi
samningsdrögin fyrir fund í fulltrúa-
ráði flokksins á laugardag. Þar vora
þau feildmeð átján atkvæðum gegn
tveimur. Eftir það bauö Sjálfstæöis-
flokkurinn Alþýðubandalagi og Al-
þýðuflokki til viöræöna um meirihluta-
myndun. Meö þaö tilboð í bakhöndinni
hélt Alþýðubandalagiö áfram viöræö-
um á laugardagskvöldið um þá meiri-
hlutamyndun sem úr varö. Á meðan á
þeim fundi stóö létu Framsóknarmenn
þau boö út ganga aö þeir væru tilbúnir
til að slíta viðræðum ef Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur væru reiðu-
búnir til viðræðna um meirihluta-
myndun og þá með Helga M. Bergs
sem bæjarstjóra. Tilboðinu mun hafa
verið svarað á þá leið að grundvöllur
væri til viðræðna en án skilyrða. Það
mun síðan hafa orðið til þess aö Fram-
sóknarmenn þoröu ekki að slíta yfir-
standandi viðræðum af ótta við
hugsanlega meirihlutamyndun Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks.
GS/Akureyri.
yfir 100 ára gamalt og var upphaf-
lega í eigu danskra kaupmanna áður
en kaupfélagiö eignaðist það.
Ekki mátti miklu muna aö illa færi
fyrir piltunum sem kveiktu í. Mikill
reykur kom strax upp innandyra og
gekk þeim illa að sjá til þess að
komast út. Einn þeirra komst þó á
brott hjálparlaust en vegfarandi sem
leið átti hjá gat bjargaö þeim sem
eftir vora inni og sluppu þeir alveg
við brana og önnur meiðsl.
Húsiö brann eins og fyrr segir til
ösku á tíu mínútum og gat enginn
rönd viö reist enda timbriö oröiö
gamalt og þurrt og þar með tilvalinn
eldiviður. önfirðingum er sennilega
mikil eftirsjá í þessari gömlu
byggingu því nú er aðeins eitt hús
komlð vel tll ára sinna eins og sjá
má. Um hrið stóð trésmíðaverkstæð-
inu sem þarna sést á bak við nokkur
hætta af eldinum en engar skemmdir
urðu þó þar.
eftir til minja um verzlun á Flateyri
ásíðustuöld.
-JB
verði gefinn kostur á eins árs námi er
ljúki með prófi og fái þá um leið starfs-
heitið aðstoðarhjúkranarfræðingur.
„Viö lögðum á þaö áherzlu að sett
yrði nefnd á laggirnar til að endur-
skoða reglugerðina um S júkraliðaskól-
ann og á hún að ljúka störfum 1.
nóvember næstkomandi. ”
— Hvenær gætu þessi námskeið og
framhaldsmenntun hafizt?
„Það gæti orðiö um eöa eftir næstu
áramót.”
— Kæmi slík framhaldsmenntun
ekki til með aö hækka laun ykkar?
,,Um það verður tekin ákvörðun
þegar námiö er komið á,” sagði
Sigríður Kristinsdóttir.
-KÞ
SjúkraUðar kynna sér samnlnglnn í húsakynnum BSRB i gær. A innfeUdu myndlnni er Einar Olafsson, formaður
Starfsmannafélags rikisstofnana í ræðustóU. DV-myndGVA
Sjúkraliðarsömdu:
TMenntunarákvæðið gæti
komið til framkvæmda
strax um næstu áramót’
segir Sigríður Krisf insdóttir
„Viö erum ekki ánægð meö þá launa-
flokkahækkun, sem við fengum, hins
vegar teljum viö okkur hafa náð því er
við ætluöum okkur meö bókuninni um
störf, starfssvið og menntun sjúkra-
liöa,” sagði Sigríður Kristinsdóttir,
formaður Sjúkraliðafélags Islands, í
samtali við DV um sérkjarasamning
fjármálaráðherra og Starfsmanna-
félags ríkisstofnana v/sjúkraliöa en
samkomulag náðist í gær.
Samkvæmt samkomulaginu hækka
sjúkraliöar um einn launaflokk frá og
meö 1. ágúst næstkomandi, þannig fær
sjúkraliöi á fyrsta starfsári greitt eftir
9. launaflokki, sjúkraliöi á 2. til 3.
starfsári eftir 10. launaflokki, á 4. til 6.
starfsári eftir 11. launaflokki og eftir 6
starfsár fær hann greitt eftir 12. launa-
flokki.
„Þetta er einum flokki hærra en við
voram með,” sagði Sigríður, „en þar
við bætist að eftir 9 ára starf kemur og
til hækkun um einn launaflokk og tekur
sú hækkun gildi frá og með deginum í
dag.”
I bókuninni er kveðið á um
sérmenntun sjúkraliða í formi lengri
eða skemmri námskeiða. Þá verði
komið upp framhaldsdeild viö
Sjúkraliðaskólann þar sem sjúkralið-
um með a.m.k. 3ja ára starfsreynslu
TÆKNIMENN FRESTUÐU
Tæknimenn útvarpsins frestuðu
fyrirhugaðri vinnustöðvun sem til
framkvæmda átti að koma í dag.
Þeir höfðu heitið því fyrir hvítasunnu
að ef þeim þætti góður vilji hjá
samningsaöilum sínum að fresta
vinnustöðvun á meðan á viðrasðum
stæði. Á síðasta fundi fyrir hátíðar
þótti þeim hljóöið í viðsemjendum
nógu gott til frestunar. Aðeins hefur
verið tekin ákvörðun um daginn í
dag. Samningafundur er boðaður
klukkan tvö og gangi hann ekki
greiðlega má því eins búast við
vinnustöðvun á morgun. Tæknimenn
hafa enn ekki fengið greitt kaup fyrir
júnímánuð eins og aðrir ríkisstarfs-
menn. Er ekki búizt við að það
verði greitt fyrr en samningar hafa
náðst.
DS
frjálst, úháð dagblað
_ÞRIÐJUDAGUR 1, JÚNl 1982,
Hvítasunnan betri
enoftáður:
Lögreglan
alsæl með
áfengislokun
áföstudag
Hvítasunnuhelgin virðist hafa liðið
án nokkurra teljandi óhappa.
Lögreglumenn úti á landi voru á einu
máli um að áfengisneyzla hefði verið
með minna móti víöast hvar og var þaö
einkum þakkaö fyrirvaralausri lokun á
áfengisútsölum fyrir helgina. Vora
þeir alsælir meö þá ráðstöfun þó
óbreyttir borgarar taki væntanlega
fæstir undir það.
I Keflavík var lítið um að vera og tal-
ið að stór hluti yngri kynslóðarinnar
hefði haldið í Húsafell en þar var eini
staðurinn sem unglingar söfnuöust
saman á í einhverjum mæli yfir helg-
ina. Sömu sögu var að segja á Akra-
nesi. Þargekk helgin mjög rólega fyrir
sig.
Dansleikur var í Vestmannaeyjum í
fyrrinótt og fór hann vel fram. Það
sama má segja um flestar samkomur
sem fregnir bárust af. Þannig söfnuð-
ust tæplega 1000 manns saman í
Félagsgarði í Kjós á miönætti í fyrra-
kvöld. Einnig þar gekk allt eins og í
sögu.
Lögreglan í Reykjavík lét lítið yfir
atburðum helgarinnar. Nokkur fjöldi
ungmenna kom saman í miöbænum að-
faranótt laugardags, „en þaö var
betra en oft áöur,” eins og einn lög-
reglumaöurinn orðaði það. Hann taldi
þó áberandi mikiö hafa sézt af utan-
bæjarfólki. Rólegt var nóttina eftir í
miðbænum, fátt fólk á ferð.
-JB
BÚVÖRUR
HÆKKA Á NÝ
Mjólkurlítrinn kostar krónu meira í
dag en hann gerði í gær. Verð.á öllum
búvörum nema kartöflum hækkaði í
dag í samræmi við breyttan verðlags-
grundvöll. Hækkunin til bænda er
14,7%. Stærstu liðir í henni eru launa-
hækkun og kostnaður vegna áburðar.
Mjólkurlítrinn hækkar sem fyrr
sagði um kónu, kostaði 5,65 í gær, kost-
ar 6,65 í dag. Súpukjötið hækkar úr
39,80 í 46,15. Smjörið hækkar úr 57,30
krónur kílóið í 71,10. Verð á kartöflum
helzt hins vegar óbreytt, 2 1/2 kg kosta
8,10krónur.
DS.
DagblaöiöSt Vísir
Frá og með 1. júní hækkar áskriftar-
verð Dagblaðsins & Vísis í kr. 120,00 á
mánuöi. Verð blaðsins í lausasölu verð-
ur kr. 9,00 eintakið og Helgarblaðs kr.
11,00 eintakið. Grunnverð auglýsinga
verður kr. 72,00 hver dálksentimetri.
LOKI
Loki samfagnar nafna sínum,
Ragnari Loka.