Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1982, Síða 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 9. JULI1982.
19
Ferðalög • Hestamannamót • íþróttir • Bækur
Leiklist
„Á fíótta undan þeirri tið". Úr
sýningu ieikhópsins Sargasso,
sem verður i Norræna húsinu öii
kvöld um helgina.
Ferðalag
frá okkar
tíð til
miðalda
— um ábyrgð og flótta
manneskjunnar
Leikhópurinn Sargasso fráStokk-
hólmi veröur meö athyglisverðar
sýningar í Norræna húsinu í kvöld,
annað kvöld og sunnudagskvöld kL
21.00. Þetta eru níu manns og sýna
leikverk, sem þau hafa sjálf samið.
Fjallar það samkvæmt þeirra eigin
sögn um hvemig manneskjurnar
flýja eða reyna að komast hjá að
takast á við aðsteöjandi deilur og
vandamál, varpa af sér ábyrgðinni
og skella skuldinni á aöra. Þau nota
atburði úr mannkynssögunni aftur
að miööldum og hugmyndafræði
hvers tíma til aö setja þetta á svið.
Leikurinn hefst í loftvamabyrgi á
okkar dögum, þar sem nokkrar
manneskjur hafa leitað hælis undan
yfirvofandi hættu og endar í jarð-
hýsi einu á miööldum þar sem
„sömu” manneskjur hafa falið sig
undan ósköpum svartadauöa. Þess á
milli hefur leið farandleikhússins
aftur í tímann legið gegnum
skemmtanabrjálæði þriðja ára-
tugarins, þjóðernisrómantík og
hreinlifnaöarstefnu 19. aldar, norna-
brennur 18. aldar og trúarhita og
samfélagsbreytingar þeirrar 17. Inn
í þetta allt saman fléttast mannleg
vandamál, sem upp koma hjá venju-
legumleikhópi.
Leikararnir byggja mikið á lát-
bragði og likamshreyfingum, en
texti er að mestu á sænsku. Þó er
nokkuð á íslenzku, enda einn í hópn-
um Islendingur, Birgir Edvardsson.
Leikverkið heitir „Pá flykt frán den
tid” eða „Áflótta undanþeirritíð”.
Var þaö frumsýnt í Stokkhólmi í maí
við góðar undirtektir gagnrýnenda.
Hópurinn hefur síðan ferðazt með
það um Noreg, Færeyjar og frá
Egilsstöðum norður og vestur nm
landið. ^11
GENGIÐ A SNÆVIÞAKINN
OG SPRUNGINN EIRÍKSJÖKUL
— fjórar helgarf erðir hjá Ferðafélagi íslands
Aðalferð Ferðafélags Islands um
þessa helgi verður á Eiríksjökul og
fjallið Strút, sem er rétt vestan við
jökulinn. Auk þess verður Ferða-
félagið með ferðir til Hveravella, í
Landmannalaugar og Þórsmörk.
Ferðin á Eiríksjökul er tjaldferð
og verður gist í Torfabæli. Gengið
verður á jökulinn, sem er rétt rúm-
lega 1670 metra hár, og mun sú ferð
taka um fjórar klukkustundir,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk á skrifstofu Ferðafélagsins.
Ekki skal þó sagt hvort gengið verð-
ur á hæsta tind jökulsins.
Ferðalangar telja það spennandi
mjög að ganga á jökulinn og fjalla-
sýnin frá honum kvaö vera fögur.
Ekki er taliö erfitt að ganga á jökul-
inn en göngumenn þurfa að vera vel
skóaðir og klæddir. Jökullinn er
dálitið sprunginn núna, mun meira
en undanfarin ár, en það á þó ekki að
hefta Fór neins. Hamrabelti er um-
„Ískatdur Eiriksjökull veit aiit, sem talað er hór,'
efast um þau orð.
segir skáldió, en tign jökulsins og reisn erslik, að enginn
hverfis jökulinn og á honum sjálfum
ermikil snjóhetta.
Töluvert er um þátttöku út-
lendinga í ferðir sem þessa, einkum
sækja Svisslendingar, Hollendingar,
Þjóðverjar og Skandinavar í þær.
Eru útlendingamir oft félagar í
ferðafélögum í sínu heimalandi, eins
og t.d. Dennorske Turistforening.
Um síðustu helgi var ferðafélagiö
meö ferð í Landmannalaugar, en
ekki var bílfært alla leiðina og urðu
þátttakendur aö ganga síðasta spöl-
inn. Nú er hins vegar fært stórum
bílum og verður farið um Sigöldu í
Landmannalaugar þessa helgi.
Áætlaö var að ferðin á Hveravelli
yrði grasaferð, en þeirri ferð hefur
verið frestað um viku. Veröur grasa-
ferðin því ekki farin fyrr en helgina
16.-18. júli.
Loks fer Ferðafélag Islands í Þórs-
mörk að venju. Allar ferðimar
hef jast kl. 20 í kvöld og komið verður
til baka um kvöldmatarleytið á
sunnudag. Farið verður frá BSI.
-SA
Svifflug
Flugvélar eru notaðar til að draga sviffíugumar á loft og hór er verið að leggja af stað. Vonandi viðrar til sviffíugs á Islandsmótinu sem hefst
um helgina.
ÍSLANDSMÓTÁ HELLU
— sólskin forsenda fyrir keppninni
Islandsmót í svifflugi 1982 hefst á
Helluflugvelli á morgun og mun það
standa til sunnudagsins 18. júli.
Keppt er í hraðflugi á þríhyrnings-
leiðum eöa á leiðum að og frá tiltekn-
um stöðum. Keppendur þurfa að
sanna flug sitt yfir vissa staði með
því aö ljósmynda þá úr lofti.
Atta keppendur og svifflugur era
skráöir til keppni á Islandsmótinu í
svifflugi: Garðar Gíslason (LS3—
17), Hörður Hjálmarsson (K—8B),
Höskuldur Frímansson (K—8B),
Leifur Magnússon (KA—6E),
Sigmundur Andrésson (Standard
Astir), Sverrir Thorláksson (Speed
Astir), ÞorgeirÁmason (BG—12/16)
og Þórmundur Sigurbjamarson
(Ka—6CR). Auk keppenda era í
hverju keppnisliði einn til þrír
aðstoðarmenn.
Flugvélar draga svifflugumar upp
í 600 metra flughæð. Þar sleppir
svifflugmaðurinn dráttartauginni og
reynir síðan að láta fluguna svífa þá
keppnisleið sem mótsstjórnin hefur
tilkynntfyrir mótsdaginn. Svifflugur
haldast einkum á lofti af völdum
hitauppstreymis en til að það mynd-
ist þarf yfirleitt að vera sólskin.
Mótsstjóri á Islandsmótinu verður
Dr. Þorgeir Pálsson en veður-
fræðingur mótsins verður Guðmund-
ur Hafsteinsson. Flugmenn dráttar-
flugvéla veröa þeir Ámi Guðmunds-
son, Gunnar Arthúrsson og
Þorsteinn Jónsson.
-SKJ