Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1982, Qupperneq 4
20
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 9. JULI1982.
Messur
Guösþjónustur sunnudaginn 11. júli.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta í
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 árd.
(Síðasta messa fyrir sumarleyfi sóknarprests
og starfsfólks). Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1
kl. 11. Helgistund Hrafnistu 14. júli kl. 11. Sr.
Ámi Bergur Sigurbjömsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Jón Ragnarsson prédikar, organleikari Guðni
Þ. Guðmundsson. Sóknarnefndin.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Ferming og altarisganga. Guðrún
Ölafía Gunnarsdóttir, Bethesda, Maryland,
USA., p.t. Hagamel 8, Reykjavík. Dómkór-
ínn syngur, organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Sunnudagur ki. 18. Orgeltónleikar,
Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti leikur
á orgebð í 3D—40 minútur. Aðgangur ókeypis
og öllum heimill.
LANDAKOTSSPlTALI: Messa kl. 10. Sr.
Hjalti Guðmundsson, organleikari Birgir As
Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr.
Þorsteinn Björnsson.
FELLA- OG HÖLAPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Safnaðarheimilinu Keilufelli 1 ki.
11 árd. Sr. Hreinn Hjartarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudagur kl. 10.30: Fyrir-
bænaguðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjömsson. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson
verður í sumarleyfi til 16. ágúst nk.
HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organleik-
ari Olafur Finnsson. Sr. Tómas Sveinsson.
BORGARSPÍTALINN: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Fermd verður Alepa Dagga Serisano, p.t.
Birkigrund 58, Kópavogi. Altarisganga. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
LAUGARNESKIRKJA: I^augardagur 10.
júlí: Guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guösþjónusta fellur niður
vegna árlegrar sumarferðar safnaðaríns.
Farið verður frá kirkjunni kl. 9 og ekiö um
Þingvelli og Kaldadal, komið að Reykholti,
þar sem verður helgistund. Ekið um Borgar-
fjarðardah. Þátttaka tilkynnist kirkjuverði í
sima 16783 kl. 11—12 í dag, laugardag. Mið-
vikudagur 14. júlí: Fyrirbænamessa kl. 18.15,
beðið fyrir sjúkum. Sr. Frank M. HaUdórsson.
FRIKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Messa kl. 2.
Organleikari Sigurður Isólfsson, prestur sr.
Kristján Róbertsson. (Siðasta messa fyrir
sumarleyfi). Safnaðarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 2. Sókn-
arprestur.
Listasöfn
Sýningar
GALLERÍ LANGBRÓK: I GaUerí Langbrók
stendur engin sýning yfir eins og er en verk
Langbróka eru þar til sýnis og sölu.
LISTASAFN ASl: Þar er nú lokað og vinna
menn þar baki brotnu við að ljósmynda lista-
verk.
ÁSMUNDARSALUR: Þar mun verða iokað
til 13. ágúst.
GALLERY LÆKJARTORG: Nú stendur yfir
samsýning ýmissa málara sem áður hafa
sýnt í Gallery lÆkjartorgi. Þar er opið á
verzlunartima og athugið að gengið er í gegn-
um plötuverzlunina.
GALLERI HVERFISGÖTU 32: Lárus
Þorjeifsson sýnir leðurmuni. Sýningin er opin
virka daga frá klukkan 14—18 og laugardaga
frá kl. 10—12.
KJARVALSSTAÐIR: Á trönum nefnist sýn-
ing Kjarvals sem stendur yfir i Kjarvalssal. 1
Vestursal sýnir nýstofnað félag sem nefnist
Listmálafélagið. Á göngum og í kaffi-
stofu sýnir Magnús Tómasson. Sýningin er
opin aUa virka daga frá kl. 14—22. Sýningu
Kjarvals lýkur um miðjan ágúst, en hinar
sýningamar standa yfir til11. júlí.
NORRÆNA HUSIÐ VH) HRINGBRAUT:
Altasýning nefnist sýning á listiðnaði, plaköt-
um og fleiru frá Alta í Norður-Noregi, henni
lýkur á sunnudaginn. Einnig stendur yfir
höggmyndasýning John Ruds og stendur hún
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina H
Fjalakötturinn:
Tveir dagar eftir
af frönsku vikunni
Síðustu sýningar frönsku
kvikmyndavikunnar í Fjalakettinum
verða nú um helgina. Fimm myndir
eru til sýnis og bera þær nöfnin
„Unglingurinn”, „Lestin”, „La
guerre des Polices”, „Le Crab-
Tambour”, og „Síðasti milljóna-
mæringurinn”. Skírteini á kvik-
myndavikuna kosta 50 krónur fyrir
félagsmenn og 70 krónur fyrir aðra.
Er það einkar vægt verð sé miðað við
verð aðgöngumiða að kvikmynda-
húsunum. Sýningar Fjalakattarins
fara sem fyrr fram í Tjarnarbíói.
„Unglingurinn” eftir Jeanne
Moreau fjallar um tólf ára gamla
stúlku sem er smám saman að breyt-
ast í fullorðna manneskju. Sú fræga
Simone Signoret fer með hlutverk
ömmu stúlkunnar.
„Lestin” fjallar um flótta franskra
borgara undan innrás Þjóðverja í
Frakklandi. Myndin er ákaflega
áhrifamikil og vel gerð og að líkind-
um einhver ágætasta mynd sem sézt
hefur hér á landi í langan tíma. Leik-
stjóri „Lestarinnar” er Pierre
Granier-Deferre.
„Le Guerre des Polices” er ósköp
venjulegur en vel gerður þriller.
Robin Davis leikstýrði Lögreglu-
stríðinu.
Gamli meistarinn René Clair á
eina mynd á frönsku kvikmynda-
vikunni. Hún heitir , ,Síðasti
milljónamæringurinn”. I myndinni
má greina alla helztu kosti Clair, en
hann þótti ágætur gamanmynda-
höfundur. Grín hans var þó oft á tíð-
um líkast hárbeittu vopni.
Umdeildasta myndin á frönsku
kvikmyndavikunni er að bkindum
mynd Pierre Scoendoeffer, en hún
ber nafnið „Le Crabe-Tambour.
Myndin var frumsýnd 1978 og vakti
strax talsverðar deilur. Hægrimenn
töldu hana flytja boðskap um hug-
rekki, heiöur og vináttu. Vinstri-
menn töldu myndina hins vegar
varpa of miklum ljóma á nýlendu-
tima Frakka. Það er þó varla óhætt
að horfa á myndina án allrar pöli-
tískrar gagnrýni. Crabe-Tambour er
bæði fallegt verk og frumlegt og
hlaut frönsku Cesar-verðlaunin árið
1978. Leikstjóri myndarinnar er
Pierre Scoendoeffer.
Síöustu sýningar frönsku kvik-
myndarvikunnar verða sem hér seg-
ir:
Laugardagur 10. júlí
kl. 3 Síöasti millj ónamæringurinn
Kl. 5 Unglingurinn
Sunnudagur 11. júlí
kl. 5 Le Crabe-Tambour
kl. 7 La guerre des Polices
kl. 9 Lestin
Núer umað gera að láta ekki happ
úr hendi sleppa því franskar myndir
eru ekki á boðstólum á hverjum
degi.
-SKJ
Kvikmyndir
Kappreiöar aru gjarnan æsispennandi. Hór geysast þrír gæöingar i átt að endt
svipaða atburði að líta á landsmótinu á Vindheimamelum.
Spennandi keppni
og margt um skei
á landsmótinu 1982 á Vindheimamelum
Landsmót hestamanna á Vindheimamel-
um stendur sem hæst um helgina. Mikill
viðbúnaður er á mótsstað og búizt við 10.000
manns og 2.000 hestum. Auðvelt ætti að vera
að komast á mótsstað því Flugleiðir halda
uppi loftbrú til Sauðárkróks og af Króknum
eru sætaferðir á Vindheimamela. Þeir sem
ekki vilja fljúga geta tekið Norðurleiðarútu
á mótsstaö hafi þeir ekki yfir eigin bifreið að
ráða. Glæsilegast er þó óneitanlega að riða
vökrum gæðingi á mótiö.
Mikil vinna hefur verið lögö í undirbúning
Jandsmótsins. Hreinlætisaöstaða er með
ágætum á staðnum og tjaldstæði eru til
reiðu. Gróður litur óvenjuvel út á mótssvæð-
inu og hefur verið borið sérstaklega á
slægjuland handa aðkomuhestum svo þá á
ekki að svengja. Handa mannfólkinu er mat-
sala, banki, minjagripaverzlun og reiðtygja-
verzlun. Ámótsstaö verður einnig hægt að fá
gert við minniháttar bilanir á reiötygjum. I
kvöld og á laugardagskvöld verða kvöldvök-
Þrir kassar eftir Sigurð örlygsson.
SYNINGU LISTMt
deiiur eins ogsvo mörg igæt lisjtaverk.
FELAGSINS AÐ L
yfir til ágústloka. Sýningamar eru opnar alla
virka daga kl. 9—19 og sunnudaga frá kl. 12—
19. Bókasafnið er opið virka daga frá kl. 13—
19 og sunnudaga frá kl. 14—19.
ÁSGRÍMSSAFN: Breyttur opnunartími Ás-
grimssafns. Opið alla daga nema laugardaga
frákl. 13.30-16.00.
MOKKAKAFFI, SKÖLAVÖRÐUSTÍG: Þann
26. júní sl. opnaði Kristján Jón Guðnason sýn-
ingu á klippimyndum. Kristján er fæddur í
Reykjavik 1943 og hefur stundað nám við
Myndlista og handiðaskóla Islands og við
Listiðnaðarskólann í Osló. Þetta er 4 einka-
sýning Kristjáns en hann hefur tekið þátt í
nokkrum haustsýningum FÍM.
NVLISTASAFNH): 1 kvöld, fóstudag, kl. 21
verður hljóðperformance framkvæmdur af
enskum listamanni Rod Summers, einnig
sýnir Þór Elias Pálsson video-installation
(uppsetningu).
PÉTUR STEFANSSON hefur opnaö 4 mynd-
listarsýningar. Hann sýnir ásamt 13 félögum
sínum í Listmunahúsinu en einkasýningar
hefur hann opnað í Djúpinu, Gallerí Austur-
stræti 8, og Galieriinu á bak við bókaskápinn
á homi Vesturgötu og Garðastrætis sem var á
yngri árum verzlunargluggi.
LISTMUNAHÚSBD, LÆKJARGÖTU 2: Þessa
dagana stendur yfir sýning nýútskrifaðra
nemenda úr Handíða- og myndlistarskólan-
um, á sýningunni eru textílverk, keramik og
grafík. Sýningin er opin frá kl. 14—22 og lýkur
henni á sunnudagskvöld.
SKRUGGUBUÐ, SUÐURGÖTU 3a: Hjartað á
skemmtigöngu nefnist sýning Medúsu á verk-
um Jóhannes Hjáimarssonar og hefur sýning-
in að geyma teikningar frá árunum 1961—62.
Skruggubúð er opin frá kl. 14—21 um helgar
og frá 17—21 virka daga.
HAHOLT, DALSHRAUNI 96 HAFNAR-
FIRÐI: Málverkasýning Jóns Gunnarssonar
hefur nú staðið yfir í viku. Á sýningunni era
bæði olíu- og vatnslitamyndir, aðaliega frá
sjávarsiðunni. Þetta er 15 einkasýning Jóns.
Sýningin er opin frá kl. 14—22 og lýkur henni á
sunnudagskvöld.
RAUÐA HUSIÐ, AKUREYRI: Nýlega opnaði
Jan Voss sýningu í Rauða húsinu á Akureyri.
Sýningin er opin frá kl. 16—20 og lýkur henni á
sunnudagskvöld.
LISTASAFN ÍSLANDS VID SUÐURGÖTU: A
laugardaginn opnar sýning sem nefnist
Landslag í islenzkri myndlist. Era þetta lista-
verk í eigu safnsins eftir ýmsa fremstu lista-
menn þjóðarinnar. Sýningin er opin alla daga
frákl. 13.30-16.
Skemmistaðir
HÓTEL SAGA: Á föstudags- og laugardags-
kvöld munu hljómsveit Finns Eydal og
Helena skemmta í Súlnasalnum og dansinn
mun duna frá klukkan 10—3. Auk þess er
Grillið opið alla daga.
BROAÐWAY: Á Breiðvangi mun hljómsveit-
in Galdrakarlar halda uppi fjörinu á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Þar er opið frá kl.
10-3.