Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 14
Jónas Helgason bóndi í Æðey. DV. FÖSTUDAGUR 30. JULl 1982. er mest gaspnr í stjórnmálamönnuin — segir Jónas Helgason, bóndl í Æðey við Isafjarðardjúp Jöröum í ábúö viö Isafjarðardjúp hefur farið fækkandi á undanfömum áratugum. Sagt hefur verið aö þegar búskap veröi hætt í Æöey og Vigur veröi allar aðrar jaröir við Djúpið farnar í eyði, enda fylgja þeim meiri hiunnindi en öðmm. Jónas Helgason hefur verið bóndi í Æðey undanfarin átta ár, síðan hann tók við af föður sínum. Hann er ekki ókunnugur búskaparháttum í eynni, því hann var þar í sveit hjá skyldmenn- um sínum frá tveggja ára aldri og flutti þangað með foreldrum sínum 13 ára gamall. Hann hefur tekið upp ýmsa nýbreytni í búskap og hefur mörg járn í eldinum. Jónas var fyrst spurður hverjar væru horfur með bú- skap í Djúpinu og hvort rétt væri að Æðey væri meiri kostajörö en aörar jarðir þar um slóðir. Æðarvarpið stór hluti af búskapnum „Það gæti orðið stórt stökk í fólks- flótta úr þessu ef heldur fram sem horfir með grassprettu hér um slóðir. Ég er að visu með hluta af mínum búskap í hlunnindum en það eru blikur á lofti á því sviði líka. Það hefur verið sölutregða á æðardún og enn er ekki búið að selja allt frá því í fyrra. Eitthvað af því fer á markaö í Japan en það verður varla búið að selja allan dún fyrra árs fyrr en í haust. Verðið á dún hefur einnig staðið í stað í ár ef miðað er viö þýzk mörk, þótt breyting- ar hafi orðið á gengi.” Hvað er dúntekjan stór hluti af bú- skapnum? „Það fer eftir veðri og árferöi hvaö næst mikið inn. I fyrra eyðilögðust um 35% af dúninum í vondu veðri sem gekk hér yfir í tvo sólarhringa. Dúnninn fauk og þaö blotnaði i honum auk þess sem það eyðileggst alltaf eitthvað þeg- ar svartbakurinn étur eggin í hreiðrun- um. Æðarvarpið er stór hluti af búskapn- um en samt ekki það stór að ef annar búskapur legðist niður myndi það ekki standa undir búsetu hér en æðarvarpið er hægt að nýta án búsetu.” Tilraunir með eldi á æðarfugli Undanfarin 3 ár hefur Jónas gert til- raunir til að ala upp æðarunga í sam- vinnu við Búnaðarfélag íslands. ,,Ég byrjaði með 250 unga í vor en nú eru um 200 eftir. Það drepst alltaf eitthvað fyrstu dagana, sérstaklega ungar sem ekki aðlaga sig því að éta sjálfir. I fyrra reyndi ég að gefa ungunum marfló en þá urðu áberandi mikil van- höld. Ég hef líka reynt að gefa þeim fisk með mjölinu en það virðist ekki gefa betri raun. Það virðist standast að ala ungana inni í 4 vikur og sleppa þeim þáút.” En hvers vegna að ala upp æðar- unga, — fer æðarfuglinum fækkandi? „Nei, honum hefur ekki fækkaö en ég er að reyna að fjölga stofninum. Það er talið að aðeins 2 til 5% af verptum eggj- um komist upp, vegna svartbaksins og af fleiri ástæðum. Én þetta hefur ekki verið rannsakaö til hlítar. Þetta er þriðja árið sem þessar til- raunir standa yfir og því er varla hægt að segja til um hvaða niðurstaða verð- ur af þessu. Það er talið að æðarfugl verpi tveggja ára gamall og þá ættu þessir ungar sem nú er verið að ala aö skila sér í varp. Annars er náttúru- fræðistofnun aö rannsaka þetta hér í eynni í sumar og merkja unga og þá ætti að vera hægt aö seg ja nánar til um þetta. Sjálfur hef ég ekki merkt mína unga.” Gæsaregg í hreiöur æðarfugla 1 Æðey eru einnig um hundrað gæs- arungar sem Jónas er með í eldi. „Eg fer inn í Djúp og tek þar gæsar- egg sem ég set undir kollur eftir því hvað þær eru með mörg egg sjálfar. Eg set allt upp í 3 egg í hreiöur. Þaö misferst alltaf mikið af þessu eða 70 til 80% af eggjafjöldanum. Mest fer í útungun og fyrstu vikumar en úr því heyrir til undantekninga ef ungar drepast. Það viröist vera yfirdrifinn markaður fyrir þetta hér í nágrenninu. Eg byrjaöi fyrst á þessu fyrir 20 ár- um. Þaö henti hins vegar árið 1974 að við máttum ekki vera að því aö slátra vegna þess aö verið var að byggja fjár- hús. En ungarnir biöu ekki nema til 25. október um haustið, þá flaug allt liðið. Þetta vom 90 ungar og 60 þeirra skil- uðu sér aftur næsta vor, veturgamlir. Þeir fóru að verpa hér eftir tvö ár. En það hefur kvamast úr hópnum og nú en: aðeins tvö pör eftir þótt gæsin geti náö 16 ára aldri. Hún er mikið skotin i Skotlandi.” En hvaö um hinar hefðbundnu bú- greinar? „Ég er hér með 260 rollur sem eru fluttar upp á land á vorin. Eg var með kýr en ég gafst upp á því vegna þess að vegarslóðinn sem liggur niður að bryggju hleypur upp í dmllu vor og haust og ég vildi ekki bera mjólkina þessa leiö á sjálfum mér. Hins vegar er ég með 18 kálfa og nokkrar eldri kvígur.” mikið meiri samgangur milli land- bæja. Eg er ekki aö þvælast þetta á bát eins og veður er hér umhleypinga- samt.” Svartsýnishljóð í bændum Nú heyrist manni mikill barlómur vera í bændum hér um slóðir, þú ert ekkert að gefast upp á búskap? „Ef bæir fæm að fara í stórum stíl í eyði þá myndi ég hugsa minn gang. Eg heyri mikið meira svartsýnishljóð í mönnum en áður enda man ég ekki eft- ir öðm eins þurrkasumri og nú. Þegar fer að kvikna í jörð ef menn henda frá sér sígarettustubb, eins og komið hefur fyrir hér, þá er ástandið oröið alvar- legt. Ef þessi jörð væri orðin ein út af fyrir sig þá segir það sig sjálft að maður myndi hugsa málið upp á nýtt. Hins vegar hefur verið litið um að jarðir hafi fallið hér úr byggð á síöustu árum en aftur á móti hafa risið 2 nýbýli.” Lítið séð byggðastefnu í framkvæmd Byggðastefna. .. Telurðu rétt að styrkja bændur á þeim stöðum sem bú- skapur virðist ekki standa undir sér? Hér er D júpbáturinn til dæmis að stór- um hluta ríkisstyrktur. „Eg hef heyrt þessa byggðastefnu nefnda frá því að ég man eftir mér en lítið séð af framkvæmdum. Þetta er mest gaspur í stjómmálamönnum. Hér var eitt sinn gerð svokölluð Inn- djúpsáætlun en ég hef nú séö mest h'tiö af henni utan hvað hér voru byggð nokkurfjárhús. En hér lokast allir vegir í Snæfjalla- hreppi yfir veturinn. Eg sé eldd annað en að miðað við vegakerf ið verði bátur- inn að ganga um ófyrirsjáanlega fram- tið. Þaö væri þó hægt að fá hagkvæm- ara skip í reksturinn miðaö við þá flutningatæknisem völerá ídag.” Hvaö er þá helzt til ráða? „Mesta lyftistöngin fyrir héraðið væri aukin atvinnuuppbygging. Það er mikið af ungu fólki hér að komast á þann aldur að það þurfi að fá vinnu. En það fær enga vinnu hér og þá leitar það til Isafjarðar og þegar það stofnar heimili þá sezt það auðvitað að þar. Það eru hér ýmsir möguleikar i at- vinnuuppbyggingu. Það má nefna sér- staklega möguleika á fiskþurrkun með því að nota heita vatnið á Reykjanesi, eins og gert er í Eyjafirði. Einnig hefur verið rætt um sláturhús á Nauteyri. Á Reykjanesi eru augu úti í sjónum og vatniö þar getur orðið anzi heitt. Þetta er eina háhitasvæðið á Vest- fjörðum og vatnið rennur þar ónotaö beint í sjó fram.” ÖEF Póstmeistari og minkaveiðimaður Svo ertu líka póstmeistari hér í Æðey? Jónas vill nú ekki kannast við að hann beri svo fínan titil en segist sjá um bréfhirðingu. „Bréfhirðingin er hugsuð aðeins fyr- ir þennan bæ, enda er erfitt aö sækja allan ábyrgðarpóst til lands. Þetta er vel borgað miöaö við umfang. Hingað leita frímerkjasafnarar og þeir sem safna póststimplum. Það er fátítt aö menn komi hingað en margir senda umslög til að stimpla. Mest hef ég feng- ið 650 bréf á einu bretti sem ég var beð- inn um aö stimpla fyrir Norðurlanda- klúbb frímerk jasafnara. ” Og minkaveiðar hér í sveit eru á þinni könnu? „Já, ég er ráðinn til þess af hreppn- um. Það er ekki mikiö sem það skilar af sér ef allt er reiknað. En ég geri þetta aöallega út af varpinu og myndi reyna að stunda þetta þótt ekkert væri borg- aö fyrir þaö. Eg hef f engiö mink hingað í eyna, til dæmis komu 2 í fyrra. Það er lítill hólmi milli lands og eyjar sem minkurinn getur synt yfir á. Hann hefur þó ekki komizt aö ráði í varpið. Þeir sem voru hér í fyrra komu í lok varps. En þegar lundinn er kominn er erfitt að ná minknum því að hundarnir sækja svo í lyktina í lundaholunum.” Hvemig er að vera bóndi hér í eynni yfir vetrartímann — fólk hlýtur að vera hér einangraö? „Það er ekki hægt að neita því að þetta er einangrað en ég finn lítið fyrir þvi. Eg kann þessu ágætlega. Það er Séð heim að bæjarhúsunum í Æðey. Fyrir miðri mynd er fbúðarhúsið sem byggt var árið 1864. Lengst til vinstri er um 200 ára gamalt hús sem verið er að endurbyggja. Eins og sjá má eru mjög góð hafnarskilyrði fyrir smábáta í víklnni fvrir framan húsin. Þetta gamla hús er frá tímum saltvinnslunnar á Hann var heldur lúpulegur æðarunginn þegar hann var Reykjanesi við Djúp, sem var aflögð árið 1794. Húsið tekinn úr búrinu... var endurbyggt í Æðey 1874 og þá byggt við það bíslagið að framan. Nú standa yfir gagngerar endurbætur á húsinu. . .en gæsarungarnlr voru hins vegar öllu sprækari og hlýddu kalll stráksins umsvifalaust. DV-myndir GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.