Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1982, Page 17
DV. FÖSTUDAGUR 30. JULl 1982. 17 Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Ik*itaiinia Hospital Britannia Hospital hefur fengið heldur dræmar viðtökur meðal brezkra gagnrýnenda. Blaðamenn brezka tónlistartímaritsins NME brugðu sér á fund hins aldna leik- stjóra og fara glefsur úr viðtalinu við hannhéráeftir. Anderson var inntur eftir frumsýn- ingu Britannia Hospital nú í byrjun sumars. „Hryllileg sýning — ég sýni aldrei mynd þar framar (í sal BAFTA). Hann er svo kaldur og ruglandi. Þú þarft vissan innileika. Og þessir hryllilegu áhorfendur sem engin andsvör gáfu, svokallað fjölmiðla- fólk. Guði sé lof aö þetta lið er ekki eins mikilvægt fyrir kvikmyndirnar og þaö er fyrir leikhúsin í Lundún- um. Þetta eru frekar hindranir en raunverulegir túlkendur.” Lindsey er þá minntur á að hann var gagnrýnandi s jálfur. Ekki déskotans sósíalisti „Þetta er allt breytt frá því í gær —. ég var aldrei „blaða” gagnrýn- andi. Sequence (blaðið sem Ander- son reit fyrir) var alveg óhkt ein- hverju á borð viö The Guardian, sem flytur fólki afþreyingarefni.” En hvers vegna ræöst Britannia Hospital af offorsi á verkalýösfélög og verömæti hinna vinnandi stétta? Þetta er undarlegt þegar haft er í huga að Anderson hefur löngum talizt jafnaðarmaður. „Eg er róttækur, ekki jafnaðar- maður! Þetta er árás á kerfið. Ef þú heldur að verkalýðshreyfingin sé ekki orðin að stofnun þá er ég hræddur um aö við séum ósammála. Hún eyðileggur ábyrgö einstaklings- ins. Eg tala sem stjórnleysingi en ekki einhver déskotans sósíalisti. Sjáðu bara hvað hefur gerzt í Tékkó- slóvakíu og Póllandi.” Nú er heimssýnin í Britannia Hospital heldur dökkleit. „Guð minn góður — þú ert vonandi ekki tilfinningasamur? Þetta er hæðin ádeila á veikleika manna. Malcolm McDowell föndrar við beinagrind6 stóru myndinni, en á þeirri litlu svitar Leonard Rossiter sig á þrekhjóti. Hvort tveggja úr Britannia Hospital. Þú getur auglýst auðveldlega og ef mynd vinnur til verðlauna er það styrkur fyrir hana í Evrópu, varla eins mikill hér í Bretiandi eða í Bandaríkjunum. Það er eins iíklegt að dómurinn verði hálfvitalegur eins og hann verði skynsamlegur. Síðast þegar ég átti mynd þarna var Ingrid Bergman forseti dómnefndar. Heillandi kona, en ég hef grun um að hún sé nokkuð tilfinningasöm.” Lindsey gefur skít í tilfinninga- semi en leggur mikla áherzlu á sann- leikann. Hann er spurður hvers vegna í ósköpunum hann hafi tekið aö sér hlutverk í Chariots of Fire, einhverri tilfinningasömustu mynd seinnitíma. ,,Ég féllst á þetta vegna þess að mér fannst það fagleg áskorun. Það er gott fyrir leikstjóra að hafa nokkra reynslu af leik. Það er allt og sumt.” Linsay Anderson er 59 ára gamall. Hann segist ekki hafa hugmynd um það hvað næsta mynd hans mun f jalla um. I lok viðtalsins við blaða- mann NME biöur hann manninn blessaöan aö smella sér aftur í bíó til að sjá Britannia Hospital. Snúið og sneytt — SKJ. Lífskrafturinn í hverju verki er í stíl þess. Eftir hverju vilt þú vonast?” En bjartsýnin er vörn æskunnar. Óbeit á rugli og vitleysu „Eg heföi nú haldiö að virðingar- verðara persónuleikaeinkenni væri að hafa óbeit á rugli og vitleysu. Þetta er sannleikurinn um þetta land og hegðun mannkyns eins og ég sé hana. Ef til vill er ég að segja eitt- hvað um mannkynið sem þú getur ekkiviðurkennt.” Síðustu myndir Andersons viröast vera í framhaldi hver af annarri. Malcolm McDowell kemur fram í Britannia Hospital sem foringi rannsóknarblaðamanna og fleiri per- sónum úr O Lucky Man bregður nú fyrir á ný. Er Britannia Hospital framhald af fyrri myndum Andersons? „Nei, stíll þessarar er mjög ólíkur hinum fyrri. Þetta er frásögn. Þemað eitt leiðir þig gegnum mynd- ina — í henni er engin aðalpersóna. Þetta er ekki frásögn í þeirri merk- ingu sem lögð er í orðið í Hollywood, ekki í tima og rúmi heldur í hug- myndum. Þú ert beðinn að vinna og nota skynsemina.” Britannia Hospital fór á kvik- myndahátíðina í Cannes. Viðtalið við Anderson í NME var tekið áöur en hann lagði upp til Frakklands. Hann var minntur á að 0 Lucky Man hefði goldið mikið afhroð á hátíðinni 1973. Mun ganga betur í ár? Heillandi kona en nokkuð tilfinningasöm „Eg veit ekki hvað á að ganga vel. ttroí lir viötali viö EAndsati Xnderson Lindsay Anderson hefur verið iöinn viö að sýna dekkri hliðarnar á brezku samfélagi síðustu tuttugu árin. Honum hefur líka oft á tíðum tekizt að koma ærlega við kaunin á þjóðfélögum Vesturlanda. Þekktasta Lindsay Anderson leikstjóri birtist fyrir framan myndavélarnar i Chari- otsofFire. Hórsóst hann i hlutverki skólastjórans ásamt John Gielgud. mynd hans er án efa 0 Lucky Man meö Malcolm Mc Dowell í aðalhlut- verki. Aðrar frægar myndir Lindsay Andersons eru If. . . og The White Bus. Allar þessar myndir háfa vakið veröskuldaöa athygli. Ádeila Ander- sons er oft á tíðum blönduð atriöum sem flokkast vart undir annaö en hreinan fáránleika. Myndir hans hafa líka ævinlega verið í gaman- samara lagi og á köflum stórfyndn- ar. Það er ekki svo lítill kostur sé tekið tillit til þess að O Lucky Man tekur til dæmis um þrjár klukku- stundir í sýningu. Mörguní þykir sem Anderson hafi ekki tekizt jafn vel upp og fyrr við gerð nýjustu myndar sinnar Britannia Hospital. Myndin á að sýna Bretland nútímans í hnotskurn „Þessir hrylU- legu úhorf- endur...svo- hailað fjöl- miðlafólh99 og er flokkuö með gamanmyndum. I augum Andersons er Bretland land þar sem heimskulegar reglur, sere- móníur og rauðir dreglar eru í heiðri hafðir. Jafnhliða þessu þrífst í land- inu óréttlæti, misrétti og kúgun af ýmsu tagi. Ef til vill gefur Bntannia Hospital nokkuð nákvæma mynd af staðreyndum málsins. Óféleg hjörð Á Britannia Hospital kennir margra grasa. Starfsliðið getur varla verra veriö og sjúklingarnir eru heldur óféleg hjörð. Á lokuöum deildum sjúkrahússins getur að líta fulltrúa yfirvalda og peningamanna. Þeirra á meðal er meira að segja ein- hverskonar Amin/Bokassa fígúra sem leggur smáböm sér til munns. Fyrir utan girðinguna kringum spít- alann er auðvitað æstur múgur í vígahug. Ekki vantar brjálaða prófessora í Britannia. Graham Crowden fer meö hlutverk hans og heldur þannig áfram í sama hlut- verkinu og hann hafði í 0 Lucky Man. Oði prófessorinn tengist hinni nýju tækni sem viröist ógna (eða bjarga) mannkyninu. StOl Andersons er raunsæislegur og á köflum surrealískur og Brit- annia Hospital minnir um afar margt á 0 Lucky Man. Þó er eins og frásögnin sé ekki eins beinskeytt í Britannia Hospital og í fyrri mynd- inni. Aðþessu sinni er söguþráðurinn hjá Anderson ívið undinn og flæktur og hann flækir ef til vill fleiri mál en hann skýrir. I handritinu er að finna afar marga lausa enda og trosnaða, svo marga að helzt mætti líkja því við rýjateppi. Of langtfrí? Malcolm McDowell leikur Mick Travis, rannsóknarblaðamann, í Britannia Hospital. Mick þessi líkist persónunum sem McDowell lék í If . .. og O Lucky Man. Hann þarf að þola sitt af hverju og er meðal ann- ars tilraunadýr prófessors, Millers hins brjálaða. Leonard Rossiter fer með hlutverk spítalaráðsmannsins. Hann stendur í ströngu við aö undirbúa heimsókn konungborinnar persónu. I því skyni stendur hann meðal annars fyrir viöamikilli æfúigu starfsfólks sjúkrahússins í hirðsiðum. Mikill f jöldi þekktra brezkra leik- ara kemur fram í Britannia Hospital. Þar finnst misjafn sauöur í mörgu fé og ef til vill á mannmergðin og umsvifin á spítalanum eftir aö minna íslenzka áhorfendurá ósvikna réttastemmningu að haustlagi. Lindsay Anderson haföi ekki leik- stýrt kvikmynd í hartnær áratug þar til hann tók sig til og gerði Britannia Hospital. Honum hefur vafalítið gengið gott eitt til viö gerö þessarar nýju ádeilu sinnar, en hún er engu að síöur ruglingslegri og verr skipulögð en fyrri myndir hans. Ef til vill hefur þessi ágæti leikstjóri tekið sér of langt frí. -SKJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.