Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982 9 Útlönd Útlönd Bretar vilja hreinsa i gagnnjósna- deildinni eftir síðasta hneykslið OPIÐ T\\- TllJSk 'gl^ÖLD í ÖLLUM KVÖV-O JIB Jón Loftsson hf. DEILDUM /A A A A. A A -TO" dg:3 ~ d: 'dj ui ju:ij j'; ^ C3 t-J !.)□□, |'j i 1 JTi HRINGBRAUT121 - SIM110600 lUHfjUMUHllllÍIIIII Háværar kröfur eru nú uppi um aö hrist veröi ærlega upp í gagnnjósna- deild bresku leyniþjónustunnar, eftir aö upp komst um sovéskan njósnara sem í 14 ár starfaði innan veggja hennar. Þaö voru afbrigðilegar kynferðistil- hneigingar sem urðu Geoffrey Prime aö falli, því aö hann hafði ráöist á ungar skólatelpur og rannsókn á einni slíkri árás fletti ofan af honum. Hann var í gær dæmdur í 36 ára fang- elsi fyrir njósnir og 2 ára fangelsi fyrir nauögun og var dómurinn vart fyrr fallinn en upp hófst mikill kurr i breska þinginu þar sem menn kröfðust ræki- legra hreinsana innan gagnnjósna- deildarinnar. Þykir mönnum hún margstaðin að þvi aö vera máttvana gegn sovéskum njósnurum sem laumast hafi inn í leyniþjónustuna. Prime, sem er 44 ára, var sérfræð- ingur í rússnesku og vann við hleranir njósnað fyrir Rússa í 14 ár. og þýðingar á rússneskum leyni- skeytum og dulmálsorðsendingum. Um fjórtán ára bil lét hann Sovét- mönnum í té ýmsar upplýsingar og leyndarmál sem hann varð áskynja um í starfi sínu. Féll aldrei grunur á hann, fyrr en gerð var húsleit heima hjá honum eftir að hann varð uppvís að ónáttúru sinni gagnvart skólastúlkum. Þegar menn fundu hjálpartæki njósn- ara undir rúmi hjá honum rann allt í einu upp fyrir þeim ljós. Thatcher forsætisráðherra hefur neitað að svara öllum fyrirspumum í þinginu um þetta mál þar til réttar- höldum sé lokið. Búist er við þvi að hún kveði sér hljóðs á þingfundi í dag. Mál þetta er eitt af fjölmörgum njósnahneykslum sem tröllriðið hafa bresku leyniþjónustunni eftir lok seinni heimstyrjaldar. Prime starfaði í aðalstöðvum leyni- þjónustunnar í Cheltenham í vestur- hluta Englands, en Bretar eiga mikiö samstarf við Bandaríkjamenn við rekstur þessarar stöðvar, sem aðal- lega vinnur á sviði fjarskipta. Hafði Prime aögang að ýmsum leyndar- málum sem Bandarikjamenn deildu meðBretum. Óveður í Andorra Mikið hvassviðri geisaði í Andorra á mánudag og þriðjudag, eins og víðar i Suður-Evrópu og létu sex manns lífið í þeimhamförum. Franskar herþyriur fluttu hjálpar- gögn til Andorra, sem liggur einangrað í Pyreneafjöllum við landamæri Spánar. Fluttu þyrlumar fjölda franskra ferðamanna til baka en þeir voruveðurtepptir. Urkoma hefur fylgt storminum og hafa ár flætt yfir bakka sína og sópað með sér brúm og vegum. Einnig hafa verið töluverð skriðuföll. Veðurfræðingar segja að þetta sé versta veður sem komið hefur á þessum slóöum í þrjátíu ár. Laker stofnar nýja ferðaskrifstofu „Freddie Laker Holidays” heitir nýtt fyrirtæki sem flugmálaráðið breska veitti í gær leyfi til þess að skipuleggja flugferðir og til ferðaskrif- stofureksturs. Stofnandi þessa nýja félags er sir Freddie Laker, sem ruddi brautina fyrir ódýru flugfargjöldin, en „skýja- lestar” fyrirtæki hans beið gjaldþrot í febrúar síðastliðinn vetur. Hefur því leyfisveitingin mætt nokkurri gagn- rýni í Bretlandi því að Sky Train skuldaöi 270 milljón sterlingspund þegar fyrirtækið var tekið til gjald- þrotaskipta og hafa ekki allir náð sínu aftur. Sir Freddie segir að flugmálaráðið hafi krafist einnar milljónar sterlings- punda tryggingar til þess að tryggja viðskiptavini nýju ferðaskrifstofunn- ar. Höfuðstóll þessarar nýju ferðaskrif- stofu verður 750 þúsund sterlingspund til að byrja með og mun Lonhro — fjöl- þjóða hringurinn leggja til helminginn, en sir Freddie sjálfur hinn helminginn. En nýja ferðaskrifstofan ætlar að bjóða upp á ódýrar helgarferðir og sumarorlof. Aðallega til Karíba- hafsins, Mexíkó, Miðjarðarhafsins og Bandarikjanna. Sir Freddie opnar nýju ferðaskrif- stofuna 13. desember næstkomandi og kvíðir engu um að gjaldþrotið síðast- liðinn vetur fæli frá honum viðskipta- vini. Þó urðu þúsundir ferðamanna strandaglópar síðasta vetur, staddir erlendis á vegum ferðaskrifstofu hans, þegar gjaldþrotið var kunngert. armitage a Hreinlætistæki shanks n <ii M % 8s* #* # V fts sé S* í« ® Sl .8» jfe iW * íú 5*6 86 .;/%» .» %>. íó « M fi » dttlftl «* 88 B # 8» /|! > - V,«o »» lú í£s «6 M* 11 iitir B{fggingAV0ruv«r%leso iÆS] TrjfggvA Hnnnessonnr SIDUMÚLA 37 - SlMAR 83290-83360 N || 6/odum við þœr einnigí Ijósu beyki AW Skrifstofueiningar bjóða upp á mikla möguleika í uppröðun, með grunnum, djúpum, lágum og háum skáp- um. FÆRANLEGAR HILLUR í ÖLLUM SKÁPUM. rr HUSGOGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.