Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Qupperneq 1
DV. FÖSTUDAGUR 7. JANUAR1983.
Sjónvarp
17
HELGARDAGSKRÁ
Laugardagur
8. jartúar
16.30 íþróttir. Umsjónannaöur
Bjarni Felixson.
18.30 Steini og OUi. Nýr Flokkur.
Fyrsti þáttur. Brókarlaus bróöur-
sonur. Frægustu tvímenningar
þöglu myndanna, Stan Laurel og
Oliver Hardy (Gög og Gokke) fara
á kostum í þessum myndaflokki
frá árunum 1923—1929. Þýöandi
EUert Sigurbjörnsson.
18.50 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður. Bandarískur gaman-
myndaflokkur. Þýöandi Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Grínleikarinn (The Comic).
Bandarísk bíómynd frá 1969. Leik-
stjóri Carl Reiner. Aðalhlutverk:
Dick Van Dyke, Michele Lee og
Mickey Rooney.
22.35 Rlur grunur. ENDURSÝNING
— (Shadow of a Doubt). Bandarísk
bíómynd frá 1942. Leikstjóri
Alfred Hitchcock. Aðalhlutverk:
Teresa Wright, Joseph Cotten og
MacDonald Carey. Þaö verða
fagnaöarfundir þegar Charlie
frændi kemur í heimsókn tU ætt-
ingja sinna í smábæ einum. En
bráté ber fleiri gesti aö garöi og
frændi reynist ekki aUur þar sem
hann er séöur. Myndin var áöur
sýnd í janúar 1970.
Þýðandi Þórður öm Sigurösson.
00.10 Dagskrárlok.
Sunnudagur
9. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Bragi Skúlason flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. Blindir á
ferð — fyrri hluti. Bandarískur
framhaldsflokkur um landnema-
fjölskyldu. Þýöandi Oskar Ingi-
marsson.
16.55 Um ljósmyndun. Síöari hluti.
Snowdon lávaröur fjaUar um
verðgUdi ljósmynda og markaðs-
möguleika. Þýðandi Hallmar
Sigurðsson.
17.40 Hlé.
18.00 Stundin okkar. Umsjónar-
menn: Asa H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Upptöku
stjórnar Viðar Víkingsson.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Kona er nefnd Golda. Síöari
hluti. Ný bandarísk sjónvarps-
mynd í tveimur hlutum um ævi
Goldu Meir (1898—1978), sem var
utanríkisráöherra og síöan for-
sætisráðherra ísraels á miklum
örlagatímum. Leikstjóri Alan
Gibson. Aðalhlutverk Ingrid Berg-
man ásamt Jack Thompson, Anne
Jackson, Leonard Nimoy, Nigel
Hawthome o.fl. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.20 Pétuc.í tunglinu. Tónverk eftir
Arnold Schönberg. Kammersveit
Reykjavíkur leikur. Stjórnandi
Paul Zukofsky. Einsöngvari Rut
Magnússon. Formála flytur
Hjálmar H. Ragnarsson. Upptöku
stjórnaði Tage Ammendrup.
23.10 Dagskrárlok.
Mánudagur
10. janúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Tommiog Jenni.
20.40 iþróttir. Umsjónarmaöur
Steingrímur Sigfússon.
Fleksnes er á mánudag kl. 21.10.
21.10 FÍeksnes. „Kvef og hósti
kvelja þjóð”. Sænsk-norskur
gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson. (Nordvision
— sænska og norska sjónvarpiö).
21.40 Blind í trúnni (Blind Faith).
Ný kanadísk sjónvarpsmynd.
Leikstjóri John Trent. Aðalhlut-
verk: Rosemary Dunsmore, Allan
Royal og Heath Lamberts. I
hlýr flokkur mefl þeim Laurel og Hardy — Gög og Gokke efla Steina og Olla
— hefur göngu sina á laugardaginn kl. 18.30.
Vesturheimi hafa ýmsir söfnuöir
og predikarar tekiö sjónvarp í
þjónustu sína til aö boöa kenn-
ingar sínar og afla þeim stuönings.
Myndin segir frá ráövilltri hús-
móöur sem verður bergnumin af
slíkum sjónvarpspredikara og
heittrúarboöskap hans. Þýöandi
Heba Júlíusdóttir.
22.40 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
11. janúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Sögur úr SnæfjölIum.Barna-
mynd frá Tékkóslóvakíu. Þýöandi
Jón Gunnarsson. Sögumaöur Þór-
hallurSigurösson.
20.40 Andlegt lif í Austurheimi. Ind-
land. Sagan af Rama. Breskur
myndaflokkur um trú og helgisiði í
nokkrum Asíulöndum. Þessi fjóröi
þáttur sýnir hin árlegu hátíöahöld
til dýröar guöinum Rama í borg-
inni Benares. Þýöandi Þorsteinn
Helgason.
21.45 Því spurði enginn Evans?
Fjóröi hluti. Sögulok. Breskur
sakamálaflokkur gerður eftir sögu
Agöthu Christie. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
12. janúar
18.00 Söguhornið. Umsjónarmaöur
Guöbjörg Þórisdóttir.
18.10 Stikilsberja-Finnur og vinir
hans. Finnur hittir Jim.
Framhaldsflokkur geröur eftir
sögum Marks Twains. Þýöandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Furðufiskar. Bresk nátt-
úrulífsmynd um vatnafiska á
suðurhveli sem klekja út hrognum
sínum í kjaftinum. Þýöandi og
þulur Jón O. Edwald.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gabriel García Márques.
Sænski sjónvarpsmaöurinn Lars
Helander ræðir við kólumbíska rit-
höfundinn García Márques sem
hlaut bókmenntaverölaun Nóbels
áriö 1982. Þýöandi Sonja Diego.
(Nordvision — sænska sjón-
varpiö).
21.15 Dallas. Bandarískur fram-
haldsflokkur um Ewingfjöl-
skylduna í Texas. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.00 Á hraðbergi. Viðræðuþáttur í
umsjón Halldórs Halldórssonar og
Ingva Hrafns Jónssonar.
22.55 Dagskrárlok.
Föstudagur
14. janúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Á döfinni. Umsjónarmaður
Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
20.45 Skonrokk. Dægurlagaþáttur.
21.15 Kastljós. Þáttur um innlend og
erlend málefni. Umsjónarmenn:
Bogi Ágústsson og Ölafur Sigurös-
son.
22.15 Hinsta flug arnarins.
Svissnesk sjónvarpsmynd frá
1980. Leikstjóri Jean-Jacques
Lagrange. Aöalhlutverk: Bernard
Fresson, Jean-Marc Bory, Béa-
trice Kessler og Veronique Alain.
Myndin gerist í f jallaþorpi í Sviss.
Þar í fjöllunum hyggst braskari
nokkur reisa lúxusíbúöarhverfi og
leggja flugvöll. Hann fær í lið með
sér þekktan Alpaflugmann,
Germain að nafni. Þessar fram-
kvæmdir mæta mikilli andstööu
meöal þorpsbúa og umhverfis-
verndarmanna. Þýöandi Olöf
Pétursdóttir.
23.50 Dagskrárlok.
Michele Lee og Dick Van Dyke ihlutverkum sinum.
Sjónvarp laugardag kl. 21.00:
GRINLEIKARINN
— bandarísk tragi-kómedía
Dick Van E>yke leikur aöalhlut-
veriö í bandarísku bíómyndinni
Grínleikarinn (The Comic), sem
sýnd verður annaö kvöld klukkan 21.
Mynd þessi er frá árinu 1969 og er
gerö af Carl Reiner. I henni er sagt
frá grínleikara nokkrum, Billy
Bright, sem öðlaöist frægð og frama
á tímum þöglu myndanna þegar þeir
Buster Keaton, Harold Lloyd og
Chaphn voru uppi.
Með Billy eru fastir fylginautar,
þau Mary og Cockeye. Billy notar
brúökaup Mary og leikstjóra þeirra,
Franks, sér til framdráttar og notar
brúðkaupsathöfnina sem atriði í nýja
grínmynd sína. Ymislegt miöur
heiðarlegt viröist síöan vera á döf-
inni hjá Billy, er til kastanna kemur.
Hann má muna sinn fífil fegri sem
grínleikari og þaö er farið aö halla
undan fæti hjá honum.
Kvikmyndahandbókin gefur
myndinni þrjár og hálfa stjömu og
segir Dick Van Dyke ná vel fram
hinum grátbroslegu hliðum á
þessum þreytta grínleikara.
j Snowdon lávarflur fjallar um verðgildi Ijósmynda og markaðsmöguleika
þeirra í siflari hluta þáttarins Um Ijósmyndun. Hann er á dagskrá á sunnu-
daginn kl. 16.55.
Andlegt lif i Austurheimi er
þriðjudaginn 11. janúar og er þafl
fjórfli þáttur. Nú er sagt frá helgi-
siðum á Indlandi.