Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Blaðsíða 4
20 DV. FÖSTUDAGUR 7. JANUAR1983. Kirkjustarf Kvenféiag Bústaðasóknar Kvenfélag Bústaöasóknar heldur fund mánu- daginn 10. janúar kl. 8.30 í Safnaðarheimilinu. Spilaö verður bingó, góöir vinningar. Mætiö vel og takiö meö ykkur gesti. Utanbæjar- prestar predika í Reykjavíkur- prófastdæmi I nokkur undanfarin ár hafa prestar í Prestafélagi Suöurlands sótt hver ann- an heim og annast messugjörð hjá hver öörum. Tilgangur þessara heim- sókna er tvíþættur, annars vegar til þess aö þeir geti sjálfir sótt sér heim fróöleik, kynnst heföum og starfshátt- um starfsbræöra sinna og svo hins veg- ar til þess að auka og lífga upp á safn- aðarstarfið, gera þaö fjölbreytilegra á þann veg aö gefa fólki kost á að hlýöa á kennimenn, sem þeir ella ættu erfitt meö að komast til aö hlusta á sökum fjarlægðar þeirra f rá heimabyggð. Aö þessu sinni munu utanbæjar- prestar annast guösþjónustur í Reykjavík og Kópavogi. 1 ár hefur næstkomandi sunnudagur 8. janúar orðið fyrir valinu og eftirfarandi heim- sóknir eru ákveönar: Arbæjarpresta- kaU: Sr. Gylfi Jónsson rektor í Skál- holti. Ásprestakall: Sr. Bragi Friöriksson profastur í K jalamesprófastsdæmi. Breiðholtsprestakall: Sr. OlafurOddur JónssoníKeflavík. Bústaöakirkja: Sr.Gísli JónssoníVíkí Mýrdal. Digranesprestakall: Sr. AuðurEir Vil- hjálmsdóttir í Þykkvabæ. Dómkirkjan: Sr. Sveinbjörn Svein- bjömsson prófastur í Árnesprófasts- dæmi og sr. Sváfnir Sveinbjamarson prófasturí Rangárvallaprófastsdæmi. Feiia- og Hólaprestakall: Sr. Olfar Guömundsson á Eyrarbakka. Grensáskirkja: Sr. Heimir Steinsson á Þingvöllum. Hallgrímskirkja: Sr.HalldórGunnars- son í Holti og sr. Eiríkur J. Eiríksson fyrrv. prófastur. Háteigskirkja: Sr. Gunnþór Ingason í Hafnarfiröi. Kársnesprestakall: Sr. BragiSkúiason fríkirkjuprestur í HafnarfiröL Laugameskirkja: Sr. Sigfinnur Þor- leifsson á Stóra-Núpi. Neskirkja: Sr. Hanna María Péturs- dóttir í Ásum. Seljaprestakall: Sr. Guðmundur Öli Olafsson í Skálholti. Fríkirkjan í Reykjavík: Sr. Hannes Guðmundsson í Fellsmúla. Heimsóknum prestanna lýkur meö samverustund í safnaðarheimili Bú- staöarkirkju, sem hefst klukkan 18.30 meösameiginlegu boröhaldi. Hvað er á seyði um hefgina Hvað er á seyði um helgina Leikf élag Reyk javíkur: Fjórar leiksýningar í boöi um helgina —112. sýningá Jóa I kvöld er fimmta sýning á Forsetaheimsókninni, hinum nýja gamanleik Leikfélagsins, sem fram- sýndur var milli jóla og nýárs. Höfundamir eru franskir, Rego og Bmneau en verkiö fjallar á gaman- saman hátt um það umstang sem veröur á venjulegu heimili þegar von er á forsetanum í heimsókn. Þórarinn Eldjárn þýddi verkið, leikmynd og búninga geröi Ivan Török en Stefán Baldursson er leik- stjóri. Með helstu hlutverk fara Guörún Ásmundsdóttir, Sigríöur Hagalín, Kjartan Ragnarsson, Guö- mundur Pálsson, Soffía Jakobs- dóttir, Gísli Halldórsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Hanna María Karlsdóttir. Annaö kvöld hefjast að nýju sýn- ingar á hinu vinsæla leikritiKjartans * Ragnarssonar, Skilnaöi, sem sýnt hefur veriö fyrir fullu húsi í allan vetur. Sama kvöld, þ.e. laugardagskvöld, er svo fyrsta miönætursýning eftir jól á Hassinu hennar mömmu eftir Dario Fo. Leikurinn hefur notiö mikilla vinsælda og veriö sýndur fyrir fullu Austurbæjarbíói um helgar síöan í haust. Sýningin hefst klukkan 23.30. Fjóröa sýning Leikfélagsins um helgina er á sunnudagskvöld, en þá veröur sýnt leikrit Kjartans Ragnarssonar, Jói, og er þaö 112. sýning. Síöan verkiö var frumsýnt haustiö 1981 hefur þaö notið feiki- vinsælda. Auk þess var fariö meö þaö í leikferð um Norður- og Vestur- land síðastliöiö sumar. -PÁ. Broddi Kristjánsson, margfaldur ts! Mikið fj áSel — 1. og 2. deildarkeppnin í bat Það veröur mikið fjaörafok á Selfossi um helgina, þegar allir bestu badmintonspilarar landsins mæta þar til leiks í 1. og 2. deildar keppninni í badminton sem hefst kl. 10 á laugar- dagsmorguninn og veröur síöan fram haldið kl. 10 á sunnudag. Sex liö taka þátt í 1. deildar keppninni og eru fjögur af þeim frá Tennis- og badmintonfélagi Fundir Frá AA-samtökunum Suðurnesjum Á síðastliönu ári voru 10 ár síðan fyrsta AA- deildin var stofnuö á Suðumesjum. I dag eru starfandi 8 AA-deildir að Klapparstíg 7 Kefla- vik en þar er sameiginlegur fundarstaöur deildanna utan Grindavikur, en þar eru einn- ig starfandi AA-deildir, einnig er starfandi A1 Anon-deild á Suðumesjum sem heldur fundi á mánudögum að Klapparstíg 7. Af þessu tilefni gangast AA og A1 Anon á Suðuraesjum fyrir sameigmlegum kynningarfundi í Félagsbíói Keflavík laugardaginn 8. janúar kl. 14.00. Það fólk sem hefur áhuga á að kynna sér áfengis- málin er hvatt tii að mæta. Samstarfsnefndin. Sýningar IMorræna húsið Sýningin: Við erum á ieiðinni. Síðasta sýningarhelgi. Þetta er sýning norrænna unglinga. I myndum tjá þeir skoðanir sínar á þeim málum sem þeim finnast mikilvægust i nútíð og framtíð. Á hreinskilinn hátt lýsa þeir áliti sínu á mikilvægi friðar, náttúravemdar, jafnréttis og vináttu allra manna. Þeir lýsa ótta sínum við að mannkynið sé ef til vill á barmi glötunar, ótta við kjamorkustríð, mengun og eyðingu náttúru, ótta við einræði, ofbeldi, kúgun, fátækt, atvinnuleysi. Þeir lýsa vonum sínum og draumum um betri framtíð. Sýningin hefur verið í höfuðborgum og mörg- um stórborgum allra Norðurlanda og hefur hvarvetna vakið mikla athygli og umtal. Öll- umer hollt að taka eftir skoðunum og boðskap unglinganna. Eftir örfá ár verða margir þeirra áhrifamenn um stefnumörkun Norður- iandanna í þeim málum sem mest varða framtið okkar allra. Sýning á gömlum Ijósmyndum í Ljósmyndasafninu Ljósmyndasafnið hefur að undanfórnu staðið fyrir sýningu í Bolvirki, sýningarsal teppa- verslunar Alafoss að Vesturgötu 2 Reykjavík. Þar era sýndar liðlega 20 gamlar Reykja- víkurmyndir eftir Magnús Olafsson, en hann var meðal þekktustu ljósmyndara landsins á fyrstu 3 áratugum þessarar aldar. Myndim- ar, sem eru flestar af gömlum byggingum í miðbæjarkvosinni, eru til sölu. Síðasta sýningarvika er nú að hefjast en sýningunni lýkur laugardaginn 10. janúar nk. og er hún opin á verslunartima. Listasöfn ÞJOÐMINJASAFN Islands, Suðurgötu 41: er opið sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga á milli kl. 13.30—16.00. LISTASAFN EINARS JÖNSSONAR: er opið sunnudaga og miðvikudaga frá kl. 13.30—16. ASGRlMSSAFN Bergstaðastræti 74: Opið þriöjudaga, fimmtudaga og sunnudaga frá kl. 13.30-16.00. GALLERÍ LÆKJARTORG: Engin sýning um þessa helgi. LISTASAFN A.S.I.: Engin sýning fyrr en 15. janúar. ÁSMUNDARSALUR Freyjugötu 10: Engin sýning um þessa helgi. óskar að ráða b/aðburðarbörri í eftírta/in hverfi: • Kleppsholt • Laugaráshverfi • Hverfisgötu • Blesugróf • Njörvasund Upplýsingar eru gefnar í afgreiðslu blaðsins Þverholtí 11, sími 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.