Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1983, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR 7. JANUAR1983.
21
Hvað er á seyði um helgina Hvad er á seyði um helgina
andsmelstari, Ieikur með TBR a áSelfossi.
aðrafok
Iminton fer þar fram um helgina
Reykjavíkur, eöa TBR — a b, c og d. Þá leika
Skagamenn og KR-ingar einnig í 1. deild.
Fimmta liöiö frá TBR leikur í 2. deild, eöa
TBR e. Átta lið taka þátt í 2. deildar keppninni,
þau eru þessi: Badmintonfélag Hafnarfjarðar,
TBV frá Vestmannaeyjum, UMFS, Gerpla, IA
b, Víkingur, TBR e ogValur.
„Múrarinn” sýnir í Nýlistasafninu
„UM SÉREIGNARRÉTT’
— fyrirlestur Hannesar H. Gissurarsonar
I Nýlistasafninu viö Vatnsstíg 3B
verður opnuð sýning á verkum
Danans Jörgen Bruun Hansen kl. 16
ámorgun.
Jörgen Bruun Hansen, eöa Jörgen
Murer eins og hann er gjaman kall-
aöur, er fæddur áriö 1927 í Dan-
mörku. Hann er kennari viö Konung-
legu listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn og er jafnframt þekktur sem
ljóöskáld.
Islendingum er Jörgen Murer
einkum kunnur fyrir ljóð sín, sem
sum hafa veriö þýdd á íslensku og
hafa birst í blööum og tímaritum.
Hingaö til lands kom hann fyrst í
boöi Norræna hússins árið 1973 og las
þá upp úr verkum sínum og hélt
fyrirlestra. Einnig hefur hann kennt
i Myndlista- og handíðaskólanum í
sérfagi sínu sem viðkemur múrverki
og útfærslu veggskreytinga. Jörgen
Murer hefur fariö víða um álfuna og
sett upp vegg- og múrmyndir fyrir
hina ýmsu listamenn. Þar má nefna
veggskreytingu Tryggva Olafssonar
á sjúkrahúsinu á Neskaupstaö.
Jörgen veröur viðstaddur opnun sýn-
ingar sinnar og les upp úr verk-
um sínum kl. 18. Á sýningunnu eru 14
sgraffitto-myndir, geröar meö
blandaðri tækni, jámbleki og pastel
á litaðan grunn. Þetta eru ljóömál-
verk þar sem ljóðtextar eru skrifaðir
Jörgen Murer
hefur fimm
sinnum komiö
til íslands
og á hér f jölda
vina og
kunningja.
hver yfir annan á flötinn uns upp úr
stendur heildstætt myndverk.
Sýning Jörgens Murer er opin dag-
lega frá klukkan 16—22 og stendur til
16. janúar.
Á sama staö verður opnuö á
laugardaginn klukkan 16 sýning á
verkum þýsku listakonunnar
Dagmar Rhodius. Dagmar er fædd
árið 1945 og stundaði nám í Þýska-
landi og Hollandi. Þessi sýning
stendur fram á sunnudagskvöldið 16.
janúar.
-PÁ.
Félag áhugamanna um heimspeki
gengst fyrir fyrirlestri nú á sunnu-
daginn kl. 15 í stofu 101 í Lögbergi.
Þaö er Hannes H. Gissurarson sem
flytur fyrirlesturinn Séreignar-
rétturinn.
I honum ræöir hann um þau rök
sem leidd hafa veriö gegn réttlætis-
kenningu bandariska heimspekings-
ins Roberts Nozicks og reynir aö
betrumbæta hana með því aö nota
hina gömlu kenningu John Lockes
um sjálf seign einstaklingsins og hina
nýju kenningu ýmissa hagfræöinga
um þekkingu eöa öllu heldur
þekkingarskort. . -PA.
LISTMUNAHÚSIÐ: Engin sýning um þessa
helgi.
GALLERt LANGBRÖK: Engin sýning um
þessahelgi.
LISTASAFN ÍSLANDS v/Suðurgötu: Þar eru
til sýnis verk í eigu safnsins, eru það íslensk
og erlend oliumálverk og teikningar. Safnið
er opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga
og sunnudaga frá kl. 13.30—16.
KJARVALSSTAÐIR við Miklatún: A laugar-
daginn verður opnuö sýning á norrænni
vefjarlist, eru þetta tertilverk frá Norður-
löndunum. Sýningin er í báðum sölunum og á
göngum. Hún verður opin alla daga frá kl.
14—22 til 30. janúar.
NORRÆNA HÚSEÐ við Hringbraut: I dag,
föstudag, verður opnuð sýning á verkefnum
10 nemenda, sex íslendinga og fjögurra Norð-
manna, við Arkitektaskólann í Osló á skipu-
lagningu flugvallarsvæðisins og Skugga-
hverfisins í Reykjavík. Sýningin stendur til
15. janúar og er opin frá 9—19 alla daga vik-
unnar nema sunnudaga kl. 13—18. Einnig
stendur þar yfir sýning sem ber heitið „Á leið-
inni” og eru það teikningar eftir norræna
skólanema. Sýningin er opin alla daga frá kl.
14—19 og stendur yfir til 13. janúar.
Tónleikar
Tónleikar í Gamla
bíói á sunnudag
Kammersveit Reykjavíkur efnir tii 2. tón-
leika starisársins í Gamla bíói sunnudaginn 9.
janúar klukkan 16.00. Stjómandi verður Paul
Zukofsky frá Bandaríkjunum, sem lagt hefur
mikið af mörkum til íslensks tónlistarlífs á
undanfdmum árum, meðal annars með
sumamámskeiðum í tónlist sem við hann em
kennd og haldin eru á vegum Tónlistarskól-
ansíReykjavík.
Á þessum tónleikum ræðst Kammersveitin í
að flytja Kammersinfóníu Schönbergs, sem
er stórvirki á sínu sviði, en hún er fyrir 15
hljóðfæri og talin eitt af erfiðustu kammer-
verkum sem samin hafa verið. Þá verður
Dance Preludes fyrir 9 hljóðfæri eftir pólska
tónskáldið Lutoslawski á dagskránni og tón-
leikunum lýkur með tónverkinu La Création
du Monde fyrir 17 hljóðfæri eftir Milhaud.
I kynningu Kammersveitarinnar á dagskrá
sinni í vetur er komist svo að orði að við undir-
búning og flutning þessara verka njóti hljóm-
listarmennirnir ómetanlegrar leiðsagnar
Paul Zukofskys, sem svo oft hefur lagt
Kammersveitinni lið við flutning kammer-
verka frá 20. öld.
Miðar á tónleikana verða seldir við inngang-
inn en fastir áskrifendur að tónleikum
Kammersveitarinnar eru minntir á að taka
með sér áskriftarkort sín til að framvísa þeim
við dyravörð.
NVUSTASáFNIÐ Vatnsstíg 3b: A morgun,
laugardag 8. jan., kl. 16.00 opna tveir lista-
menn sýningar sínar. Er önnur sýningin á
verkum þýsku listakonunnar Dagmar Rohdi-
us. Dagmar, sem fæddist árið 1945, hefur
stundaö myndUstarnám bæði í Þýskalandi og
HoUandi auk fjögurra ára Ustasögunáms.
Einnig opnar danski listamaðuriim Jörgen
Bruun Hansen sýningu á 14 sgraffitto, mynd-
um gerðum með blandaðri tækni, jámbleki og
pastel á listaðan grunn. Sýningamar em opn-
ar daglega frá kl. 16—22 og lýkur þeim sunnu-
dagskvöldið 16. janúar.
Ferðalög
Frá Ferðafélagi íslands
Sunnudagur 9. janúar—dagsf erð:
Kl. 13.00: Skiðagönguferð i nágrenni Reykja-
víkur. Farið verður þangaö sem færöin er
best á sunnudaginn. Verð kr. 100.
Brottför frá Umferöarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bílinn.
ATH.: Þeir sem tóku myndir (sUdes) i nýaf-
staðinni áramótaferð Ferðafélagsins em
vinsamlegast beðnir að lána félaginu mynd-
irnar gegn góðri meðferð og hafa þá samband
við skrifstofuna, öldugötu 3, simi 19533.
Tilkynningar
Tímaritið
Gangleri
Síðara hefti 56. árgangs tímaritsins Ganglera
er komið út. Þetta hefti er helgað 100 ára
minningu Jakobs Kristinssonar og grein er
eftir hann. Af öðrum greinum má nefna Guð-
spjaU hinna tólf heUögu eftir Ævar Jóhannes-
son.
Grein er um lifsviðhorf eftir Vilhjálm
Hjálmarsson og önnur eftir séra Rögnvald
Finnbogason.
Bókarkafli er eftir ritstjórann Skúla
Magnússon og einnig skrifar hann um Jakob
Kristinsson og Guðmund Kristjánsson. Ritið
er að venju 96 bls. og sími er 39573.
íþróttir
Handknattleikur
Föstudagur:
Akureyri: Kl. 20.00 2. d.ka., KA—Grótta.
Sandgerði: Kl. 20.003. d.ka., Reynir—Fylkir.
Akranes: Kl. 20.303. d.ka., IA—SkaUagr.
Laugardalshöll: Kl. 19.00 2. d.kv., Þróttur—
lA. Ki. 20.00 1. d.ka., Víkmgur—Fram. Kl.
21.151. d.kv., KR-Þór Ak. Kl. 22.15 1. fl. ka.,
Fram-HK.
Laugardagur:
Varmá: Kl. 14.00 2. d.ka., UBK-UMFA. Kl.
15.151. fl. ka., UMFA—Ármann.
Ásgarður: Kl. 14.00 2. d.kv., Stjaman—HK.
Kl. 15.001. fl. ka., Stjarnan—IR.
Laugardalshöll: Kl. 12.30 1. d.kv., ÍR—Þór
Ak.
Keflavík: Kl. 14.002. d.kv., ÍBK-Selfoss.
Vestmannaeyjar: Kl. 13.30 2. d.ka., Þór Ve.—
Ármann. Kl. 14.45 2. d.kv., ÍBV—Fylkir.
Sunnudagur:
Hafnarfjörður: Kl. 20.00 1. d.ka., Stjaman—
Þróttur.
Körfuknattleikur:
Föstudagur:
Keflavík: Island — Danmörk kl. 21.00.
Borgarnes: SkaUagrímur — IS í 1. deild kl.
20.00.
Laugardagur:
LaugardalshöU: Island—Danmörk kl. 14.00.
Sunnudagur:
Njarðvík: Grindavík—IS í 1. deild kl. 14.00.
Borgarnes: ísland—Danmörk kl. 14.00.
Badminton:
1. og 2. deildarkeppnin í badmmton fer fram í
íþróttahúsinu á Selfossi um helgina og hefst
kl. 10.00 á laugardagsmorgun og verður siðan
fram haldið kl. 10.00 á sunnudag.
Skemmistaðir
BROADWAY: A föstudags- og laugardags-
kvöldið leika Finnbogi og Magnús Kjartans-
synir fyrir matargesti. Hljómsveit Björgvms
HaUdórssonar leikur fyrir dansi og einnig
koma fram Jassport og dansstúdió Sóleyjar
með dansinn sinn Stripper.
GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður i diskó-
tekinu. Hann er með ferðadiskótekið Rocky
og segir eins og er, að í Glæsibæ ég fer. Þar er
fjörið i diskósal 74. Urvals tónlist og tryUtur
dans. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi í
öðrum sal hússins.
HOLLYWOOD: Þar veröur diskótekið á fuHu
aUa helgina undir öruggri handleiðslu hinna
sivinsælu diskótekara.
HREYFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld,
gömlu dansamir.
HÖTEL BORG: Diskótekið Dísa sér um
diskósnúninga bæöi föstudags- og laugardags-
kvöld. Sunnudagskvöld verður hljómsveit
Jóns Sigurðssonar með tónlist af vönduðu tagi
sem hæfir gömlu dönsunum.
HOTEL SAGA: A föstudags- og laugardags-
kvöld mun hljómsveit Úlafs Gauks leika fyrir
dansi og er opið frá kl. 22—03. Auk þess er
griUið opið aUa daga.
ÞÓRSKAFFI: Þar mun dansinn duna aUa
helgina, líka á sunnudagskvöldið. A neöri hæð
er diskótek en á efri hæð skemmtir Dansband-
ið gestum hússins. Þórskabarett hef st kl. 22.
SIGTÚN: Diskótek verður bæði föstudags- og
iaugardagskvöld.
ÖÐAL: A föstudagskvöld verður Asmundur í
diskótekinu, Fanney á laugardag og Dóri á
sunnudag og aö venju aUir í banastuði.
SNEKRJAN: A Fóstudagskvöld verður HaU-
dór Arni í diskótekinu en á laugardagskvöld
mun hljómsveitin Metal skemmta gestum
staðarins.