Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 2
DV. FIMMTUDAGUR7. APRlL 1983. ALUSUISSE BLANDAR SÉR í KOSNINGABARÁTTUNA — segir iðnaðarráðherra um þá f rétt DV í gær að Alusuisse vilji hækka raf orkuverð um 150% „Það eru algerlega ný tíðindi fyrir íslensk stjómvöld að Alusuisse sé reiðubúið til að hækka raforkuverð. Með þessari yfirlýsingu virðist mér Alusuisse vera að blanda sér á bein- an hátt inn í þá kosningabaráttu sem nú stendur yfir á íslandi. Þeir gefa í skyn að þeir séu reiðubúnir til að hækka raforkuverðið ef aöeins einn maður víki, að það sé aðeins einn maður sem standi í vegi fyrir hækk- uninni.” Þetta sagði Hjörleifur Guttorms- son iðnaðarráðherra um frétt í DV í gær um aö Alusuisse væri reiðubúið til að hækka orkuverö til álversins í Straumsvík um 150%. Forsenda þessarar hækkunar átti að' vera aö leyfö yrði stækkun álversins úr 80 þúsund tonna framleiðslugetu í 120 þúsund og jafnvel síðar 160 þúsund tonna framleiðslugetu. Upplýsingar þessar voru hafðar eftir einum aðal- stjómanda álversins. Hjörleifur segir að fram til þessa hafi Alusuisse ekki verið reiðubúiö til aö nefna neina tölu um hækkun raf- orkuverðs. Hafi umboðsmaður fyrir- tækisins, sem átti fjóra fundi með iönaðarráðherra á síðasta ári, ekki talið sig hafa umboð til að nefna þá tölu. I skeyti til iðnaðarráðuneytis- ins, 18. mars síðastliðinn, þvertekur fyrirtækið fyrir að það vilji fallast á neina byrjunarhækkun á raforku- verði. „I fréttinni segir að hækkunin tengist stækkun álversins. Þetta virðist tengjast áhuga þeirra á aö kaupa sig inn í okkar raforkuauðlind- ir í auknum mæli. En við höfum verið að tala um leiðréttingu á núverandi samningi. Eg hefði kosið að komið hefði fram vilji til að leiðrétta þann samning sem við nú búum við, en fram til þessa hefur aðeins komið fram neitun og aftur neitun,” sagöi Hjörleifur. OEF Hin veglega bókagjöf var gefin í tilefni heimsóknar forseta íslands til Oxford fyrir rúmu ári. Á myndinni skoða Guðmundur Magnússon háskólarektor og Vigdís Finnbogadóttir forseti bókagjöfina. DV-mynd Einar Ólason. VEGLEG GJÖF TIL HÁSKÓLABÓKASAFNS MHIjónjóla- tréeruónýt — blágreni og fjallaþinur ræktuð í stað rauðgrenis „Þau skipta hundmðum þúsunda og em sjálfsagt yfir milljón rauögreni- trén, sem gróðursett voru á sjöunda áratugnum og em ónýt. Þetta átti að verða efniviður í jólatré. Nú höfum við horfið frá því að rækta rauðgreni í þeim tilgangi og munum í staðinn rækta aðallega blágreni og fjallaþin, sem koma úr KlettafjöUum. Slik jóla- tré koma þó ekki á markaðinn úr okkar ræktun fyrr en eftir 15—20 ár.” Þetta sagði Siguröur Blöndal, skóg- ræktarstjóri ríkisins, í samtali við DV. Hannkvaöskógræktarmenn hafa oröið fyrir miklum vonbrigðum með rauðgrenið víðast hvar. Þaö var gróðursett á einum átta stórum svæðum og á sumum þeirra, eins og á Þingvöllum, er varla finnanlegt nothæft tré. Skást hefur gengið á svæðum á Austurlandi. Þó hefur mest af jólatrjánum komið úr Þjórsárdal um undanfarin jól. Skógræktarstjóri sagði ýmsar ástæður fyrir því hve illa hefði gengið með rauðgrenið. Geysimikið hefði skemmst vegna kólnandi veðráttu undanfarinn áratug og sérstaklega allra síðustu ár. Meðalhiti tímabilsins júní-september hefði reynst hálfri gráöu lægri en á löngu tímabili áður. Þetta þýddi í raun að ræktunarbeltiö færðistniöur um 100 metra. Þá nefndi skógræktarstjóri saltveðr- iö sem gekk yfir hluta landsins fyrir tveim árum. Eins heföi á sumum stöðum mátt fylgjast betur með trján- umoggefa þeimáburð. Fyrir utan öll afföllin kvaö Siguröur Blöndal það orðiö fullljóst að fólk vildi síst rauðgrenið sem jólatré, þar sem barrið félli fljótt af því við stofuhita. Að því leyti væri blágrenið miklu sterk- ara og f jaliaþinurinn nær öruggur. Islensk jólatré hafa verið um 10.000 undanfarin jól. Það mun vera nálægt þriðjungi allra jólatrjánna sem viö notumárlega. HERB BENEDIKT SENDI- HERRA í JÚGÓSLAVÍU Háskólabókasafni barst i febrúar síðastliönum vegleg bókagjöf frá út- gáfufyrirtækinu Blackweli Scientific Publication í Oxford. Gjöfin var veitt í tilefni af heimsókn forseta Islands, Vigdísar Finnbogadóttur, til Oxford fyrirrúmu ári. Hér er um aö ræða um sjö hundruð bindi vísindarita sem fyrirtækið hefur gefið út, þar af um tvö hundruð bindi tímarita. Jafnframt fól gjöfin í sér áskrift aö þrettán vísindalegum tíma- ritum, svo og fyrirheit um allmargar bækur sem koma út síðar á þessu ári. Bækurnar í gjöf þessari eru nýjar af nálinni og taka tii flestra greina sem kenndar eru við háskólann. Þó er mis- jafnt hvað greinar bera úr býtum og fer það eftir þeim vísindasviðum sem fyrirtækið hefur mesta rækt lagt við. Nefna má sem dæmi að ailmikið er um rit í læknisfræði og skyldum greinum, náttúruvísindum, hagfræði og heim- speki. Forgöngu um gjöf þessa haföi Per Saugman, stjómarformaður og for- stjóri Blackwell Scientific Franski eldhúsmeistarinri Jean Louis Tavemier er þekktur langt út fyrir Frakkland. I heimaiandi sínu hefur hann veriö heiðraður með gull- medalíu og kynnt fyrir samlöndum sínum meistarahandbragð hinnar sönnu matargerðarlistar í sjón- Publications, en hann er mikill áhuga- maöur um tsland og íslenska menningu. Bækurnar verða til sýnis í handbóka- salHáskólabókasafnstil 12. apríl. varpsþáttum. Hingað til Islands er hann kominn þeirra erinda aö erta bragðlauka gesta á franskri viku í Blómasal Hótel Loftleiða. Franska vikan hefst í dag og er þetta í sjötta sinn sem slík frönsk tíðindi gerast á Hótel Loftleiðum. Auk þess sem gest- Benedikt Gröndal afhenti nýlega Petar Stambolic, forseta Júgóslavíu, trúnaðarbréf sem sendiherra Islands í ír geta snætt lostæti, franskættað í Blómasalnum, veröa franskir smá- réttir framreiddir á kaffiteríunni alla vikuna. I tilefni af frönsku vikunni er ann- ar góður gestur hér, franska söng- konan Yvonne Germain. Víða um Júgóslavíu. Aðsetur Benedikts Grön- dal mun þó ekki veröa þar heldur í Stokkhólmi. -klp- heim hefur hún þanið nikkuna og brýnt raustina. Á blaðamannafundi sem haldinn var í gær á Hótel Loft- leiðum söng Yvonné Gérmain nokkra slagara a ia Piaf. Hún var ósvikin franska stemmningin þá og verðurþaðútnæstuviku. -ÞG -KMU. Frönsk vika í Blómasal Beckers jgý pjóN*JsTA SCNSKA GÆÐAMÁLNINdN GLÆSILEGT LITAÚRVAL í MÁLNINGU OG LÖKKUM Vörnmarkaðurinn hf. ARMULA 1a S: 86117

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.