Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Qupperneq 4
DV. FIMMTUDAGUR 7. APRIL1983. 4 Stjömumessa DV ’83: / miklu að snúast við undirbúninginn — veislan hefst klukkan 19 í kvöld Hér er bið galvaska Stjörnuband samankomið á sviðinu í Broadway, þar sem það mun leika við hvurn sinn fingur í kvöld. Aftar á myndinni talið frá vinstri: Jóhann Ásmundsson bassaleikari Mezzoforte, Björgvin Gíslason hljómsveitarstjóri, Kristján Edeistein gítarleikari sem áður lék með hljómsveitinni Start og Pétur Hjaltested hljómborðsleikari, sem leikur með hljómsveit Björgvins Haildórs- sonar. Sitjandi á sviðinu eru þeir Gunnlaugur Briem trommuleikari Mezzoforte, til vinstri og Hjörtur Howser hljómborðsleikari í hljómsveit Björgvins Halldórs- sonar. Stjörnumessa DV er í kvöld eins og alþjóð erkunnugt. Blaðamaðurog ljós- myndari brugöu sér í Broadway í gær til aö huga að undirbúningi messunnar. Þeir sem þar voru höfðu í nógu að snúast. Gísli Sveinn ljósa- meistari var önnum kafinn við að setja upp og stilla ljóskastara sem lýsa eiga upp sviðið þar sem stjömurnar verða opinberaðar almenningi í kvöld. Gunnar Smári var á þönum fram og aftur við stillingar og prófanir á sándinu, enda má það síst bregöast þegar stóra stundin rennur upp. Svo má að sjálfsögöu ekki gleyma framleiðendum . sándsins, Stjörnu- bandinu undir stjóm Björgvins Gísla- sonar, gítarleikarans góðkunna. Bandið var þama við léttar æfingar og má víst telja aö enginn verði svikinn af frammistööu þ ess í kvöld. Því miður vom skreytingar ekki komnar upp er viö vorum í Broadway og verða gestir að bíða til kvöldsins með að berja þær augum. Hinir sem ekki komast á messuna verða aö bíöa föstudagsins eftir að sjá dýröina en þá mun DV að sjálfsögöu skýra frá úr- slitum Stjömumessunnar í máli og myndum. Stjörnumessan hefst í kvöld klukkan 20 með boröhaldi en húsið verður opnaö klukkan 19, svo að fólki gefist færi á að koma sér fyrir áður en matur er á borö borinn. Klukkan 22 er áætlað aö menn verði búnir að raða í sig réttunum og hefst þá verölaunaaf- hendingin. Hún stendur til miðnættis en þá taka við úrslit Ford módel samkeppninnar. Að henni lokinni veröur stiginn dans til klukkan tvö og sér hljómsveit Björgv- ins Halldórssonar um sveifluna. Góða skemmtun. -SþS. Skemmdarverk unnin iHnífsdalskapellu Brotist var inn í Hnífsdalskapellu aðfaranótt laugardags í síðustu viku. Engu var stolið, en nokkur skemmdarverk voru unnin innan dyra, aðaliega á orgeli kapellunnar. Að sögn lögreglunnar á Isafirði er talið víst að innbrotið hafi verið framið á milli klukkan fjögur og tiu á laugardagsmorgun. Fariö var inn í kapelluna með því að brjóta rúðu við útidyrahurðina og hún síðan opnuð. Barnaskólinn og kapellan eru í sama húsi og var að sögn lög- reglunnar á Isafirði eitthvað rótað til ískólanum. Málið er í rannsókn og biður lög- reglan á Isafirði alla þá sem kynnu að hafa orðiö varir við mannaferðir fyrir utan kapelluna á milli klukkan f jögur og tíu á laugardagsmorgun að hafa samband við sig sem fyrst. -JGH. TEPPTISTITURNI Hér sjást þeir Gísli Sveinn Loitsson ljósameistari og Gannar Smári Hetgason hljóðmeistari við stjórnborð sín í diskóteki Broadway, þaðan sem þeir munu stjórna Ijósunum og sándinu í kvöld. DV-myndir GVA. Ungur Frakki, sem starfar á Landspítalanum, varð fyrir heldur ónotalegri lifsreynslu um páskana hér í borg. Um kvöldmatarleytið á skírdag brá hann sér upp í tum Hallgríms- kirkju til að taka myndir. Aörir gestir tumsins vom famir á undan honum og þegar Frakkinn hugðist taka lyftuna niður var búið aö stöðva hana. Engin upphitun er efst í turninum og varð maöurinn að berja sér til hita um nóttina, enda mjög kaltíveðri. Lyftan var ekki opnuð fyrr en klukkan 10 aö morgni föstudagsins langa og hafði Frakkinn þá mátt dúsa í tuminum í rúman hálfan sólarhring. Honum mun ekki hafa orðiðmeintafdvölinni. -PÁ. Smygl f innst í verslunum af smyglinu heföi fundist í annarri versluninni. Hann sagði aö haldið yrði áfram að fylg jast með verslunum hér í bæ. Þá gat hann þess að 160 kíló af skinku og 90 myndbandsspólur, óáteknar, 10 kassar af bjór og 20 flöskur af áfengi hefðu fundist í tog- aranum Karlsefni. -JGH. Tollgæslan lagði hald á um 140 kíló af smygluðum matvælum í tveimur verslunum í Reykjavík í síðustu viku. Að sögn Kristins Olafssonar tollgæslustjóra var hér aðallega um nautakjöt, endur, kalkúna og smá- vegis af spægipylsum og skinku aö ræða. Hann sagði ennfremur að mest Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði NJÓSNARARNIR FJÖRUTÍU Þessa stundina unir þjóðin sér við að horfa á tvo breska sjónvarpsþætti í sérflokki, annars vegar Ættaróðalið en hins vegar Drengina hans Smiley, og leika í báðum þáttunum bestu leikarar Breta, lávarðar og sörar. Þótt þessir þættir f jalli hvor með sin- um hætti um breskt þjóölíf, gefa þeir þó báðir skýringu á því, af hverju Sovétmenn áttu alltaf vísa góða njósnara í hinum hæstu stöðum kon- ungdæmisins. Breska hástéttin var komin úr tengslum við breskt þjóðlif, og á árunum milli styrjaldanna var það tíska að vera vinur Sovétríkj- anna undir kjörorðinu að Eyjólfur kynni að hressast, og þess utan sann- færðu menn sjálfa sig um, að stuön- ingur við málstað sósialismans, og jafnframt föðurland hans, væri jafn- framt sú föðurlandsást, sem best væri og heitust. Svo var einnig hér. Það er þess vegna einkennilegt, að síðari tíma sósíalistar skuli nú reyna að afneita þessum staðreyndum, reyna aö halda því fram, að þeir Brynjólfur, Einar, Sverrir og; Halldór I.axness hafi ekki haft meiri taugar tii Stalíns en kaupfélagsstjór- ans í Ingóifsfirði. Atvikin hafa hagað þvi þannig, að ekki er lengur i tisku meðal mennta- manna í Evrópu að stunda sjálfboða- liöastörf fyrir Sovétmenn, og verða þeir i staðinn að annast sjálfir njósnaþjónustu sína. Að sjálfsögðu eru svo ailtaf til reiðumenn, sem trúa á framgang sósialismans, eink- um, ef peningar fylgja með. Og Sovétmenn hafa jafnt og þétt aukið njósnaþjónustu sina með þvi að fjölga í sendiráðum sínum viða um heim. Vegna alþjóðlegra samninga um friðindi diplómata er ekki hægt að koma lögum yfir þessa menn, og geta viðkomandi stjórnvöld aðeins vísað þeim úr landi, ef þeir eru staðnir að verki, annað ráð er ekki til. Og er það út af fyrir sig íhugunar- efni, að rikisstjórnir skuli geta þann- ig brugðið skildi yfir sendimenn sína, burtséð frá starfsemi þeirra, hvort heldur það eru njósnir, eiturlyfja- smygl eða jafnvel morð. Um helgina, meðan isienska út- varpið var önnum kafið við að elta uppi allar friðargöngur sem Sovét- menn stofnuðu til í dymbilvikunni, var lögreglan í Frakklandi annað að sýsla. Og uppskera helgarinnar komst svo loksins til skila í fréttum gærdagsins: Búið er að reka fjörutíu sovéska þegna úr Frakklandi fyrir njósnir. Nokkrir þessara manna eru fréttamenn, en hinir njóta allir diplómatiskra réttinda. Eftir því sem franska utanríkisráðuneytið segir, þá höfðu hinir f jörutíu njósnar- ar skipulagt njósnastarfseml í Frakklandi og var net þeirra bæði vel og þétt riðið. Skömmu áður hafði verið visað sovéskum mönnum úr öðrum Evrópulöndum, suður á ítalíu er ver- ið að rannsaka þátt Sovétmanna i morðtilræðinu við páfa. Og rifjast þá upp, að nýlega fannst franskur leyni- lögreglumaður myrtur í Suður- Frakklandi, en sá hafði verið að rannsaka tengsl sovéskra njósnara við morðtilræðið. Gæti ekki verið, að brottrekstur hinnafjörutiu njósnara standi eitthvað i tengslum við það mál? En þótt lögregluyfirvöld í Vestur- Evrópu standi í daglegu stríði við sovéska njósnara, þá bcrast engar fréttir af því, að yf irvöldum á tslandi hafi þótt ástæða til þess að gera at- hugasemdir við starfsemi sovéska sendiráðsins á íslandi. Þó er vitað, að umfang þess sendiráðs er langt- um meira, en viðskipti islands við föðurland sósíalismans gefa tilefni til. Það hafa komið upp mál, þar sem islendingar hafa játað að hafa njósn- að fyrlr Sovétmenn og bregst þá ekkl, að Þjóðviljinn tekur sjálfkrafa við sér um að rægja viðkomandi mann og sparar ekki stóru orðin. Það er e.t.v. ekki eftir miklu að slægjast á islandi, en hins vegar er engin ástæða til þess að gefa Sovét- mönnum frítt spil hér á landi. Dæmið frá Frakklandi sýnir, að það er fyllsta ástæða til þess að gefa þess- um piltum góðan gaum og reyna að setja þeim einhvern stól fyrir dyrn- ar. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.