Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983. 5 Halldór Snorrason. „Orðinnvanur aðvíkjafyrir stórbyggingum” — segirHalldérí Aðal-bílasölunni Þaö verður sjónarsviptir aö fleiru en Hafnarbíói og leik- húsununum þar þegar fram- kvæmdir hefjast við stórhýsið sem á aö rísa á mótum Skúlagötu og Barónsstígs. Þá hverfur um leiö Aöal-bílasalan sem verið hefur ó planinu fyrir neðan Hafnarbíó síöan 1968, og er orðinn fastur liður í munstrinu hjá þeim sem fara um Skúlagötuna. „Ég fer nú að verða vanur að víkja fyrir stórhýsum,” sagði Halldór Snorrason, eigandi bíla- sölunnar, þegar við litum inn hjá honum. „Eg var áður í Ingólfs- strætinu en varð að flytja þaöan þegar Iönaðarhúsið var byggt þar,”sagðihann. „Ég er að leita mér að öðrum stað og held að ég sé búinn aö sjá hann út, en þarf að ræða við rétta aðila um það. Ég er ekkert á þeim buxunum að hætta þessu alveg strax, en þaö kemur sjálf- sagt að því innan skamms. Héðan þarf ég trúlega að fara fljótlega og verö þá vonandi búinn aö fá annan staö undir skúrinnminnogbílana.” -klp- Ljónsmenn á ísafirdi: SÆKIA UM ÚTBURÐAR- HEIMILD TIL FÓGETA —f restur sem kaupf élagið f ékk til að yf irgefa vörumarkaðinn rann út í gær Fresturinn sem Ljónið á Isafirði gaf Kaupfélagi Isfirðinga til.að.rýma vörumarkaðinn, sem kaupfélagið keypti af Ljóninu í haust, rann út í gær án þess að til tíðinda drægi. Heiöar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ljónsins, sagði í gær að ekkert svar hefði komið frá kaupfélagsmönnum og engin viðbrögð sýnt. „Við erum nú að undirbúa greinargerö sem viö erum að fara meö til fógeta til aö fá útburðarúr- skurðinn formlega. Ég reikna fastlega með að úrskurðurinn fáist og út- burðurinn gæti þá oröiö um helgina.” Kaup kaupfélagsins á vörumarkaði Ljónsins fóru fram í haust. Þegar átti aö ganga endanlega frá samningum fyrir nokkru, neitaði kaupfélags- stjórinn að staðfesta hann vegna þess að húsnæðið væri ekki löglegt sam- kvæmt reglum brunamálayfirvalda. Taldi hann að Ljóniö yrði aö kosta þær breytingar, sem gera þyrfti, þar sem ekkert væri í samningum frá í haust um þessar nauðsynlegu breytingar. Ljónsmenn halda hins vegar fram að þáverandi kaupfélagsstjóra hafi verið kunnugt um að húsnæðið væri ekki samþykkt af brunamálastjóra. Kaupfélagið verði því að kosta breytingarnar. Kaupfélagiö hefur þegar innt af hendi fyrstu greiðslur en neitar að borga meira fyrr en þessi mál komast á hreint. Ljónið lítur á það sem brot á samningi og fer þess vegna fram á út- burðinn. -JBH. Úr vörumarkaði kaupfélagsins. Tréloftið þarna yfir hefur aldrei verið samþykkt af Brunamálastofnun og stendur deila Ljónsins og Kaupfélagsins nú um hver skuli kosta endurbætur á því. Á sinum tíma var verslunarhúsnæðið stækkað nánast um helming með því að setja söluloftið upp. DV-mynd: Bjarnleifur. „m BENIDORM A SfANI xyj~~'.P- HÖCURRAVKNA FERD'á.%Hl PIClGGJA Vorferð eldri borgara Ferðamiðstöðin hefur undanfarin vor efnt til sérstakra ferða fyrir eldri- borgara. Að þessu sinni er þessi ferð 28 dagar/fjórar vikur á sama verði og þriggja vikna ferðirnar. Hjukrunarfræðingur verður með í ferðinni. Styttið veturinn og njótið vorsins á besta sumarleyfisstað Spánar — Beniaorm. Fjölskyldirferð Frítt fyrir bömin Auðvitað er fjölskyldufólki boðið að taka þátt í þessari vorferð og til þess að bæta þetta verðtilboð ffjögurra vikna ferð á þriggja viku verði) bjóðum við nú frítt far fyrir börnin.Góðar íbúðir eða hotel með fæði. FM-Ferðalón FERÐAMIÐSTÖÐIN býður upp á sérstök FM—ferðalán sem byggj- ast á innlángreiðslum mánaðarlega fram að brottför, og síðan jöfnum afborgunum í tiltekinn tíma eftir að heim er komið. Kynntu þér þessi hagkvæmu greiðslukjör og staðgreiðsluafsláttinn. 0 FERÐAMIÐSTÖÐIN AÐALSTRÆTI9 SÍM128133 11255

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.