Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Skólabörnin þurfa gott fæöi iskólunum ogjafnframt kennslu iheimilisfræðum. D V-mynd Einar Ólason. BARNANNA —kom fram á fundi Manneldisf élagsins og Hússt jórnarfélags íslands Heimilisfræöi er núna aöeins kennd í 117 grunnskólum af 208. Nemendur í 91 skóla fá þannig alls enga kennslu í þessum bráðnauösyn- legu fræöum. Og í skólunum þar sem heimilisfræði verður að teljast kennd er oft ekki kennt nema einn eöa tvo tíma á vetri. Best er ástandið í Reykjavík. Á öörum stööum hrjáir menn hins vegar víða aöstööuleysi og skortur á menntuðum kennurum. Þetta kom fram í máli Bryndísar Steinþórsdóttur námsstjóra á fundi Manneldisfélagsins sem haldinn var í marslok. Aö fundinum stóð einnig Hússtjómarfélag Islands. Auk Bryn- dísar töluðu þar Salome Þorkelsdótt- ir, Oddur Helgason, Ingibjörg Hall- dórsdóttir, Anna Finnsdóttir, Benedikta T. Waage og Laufey Stein- grímsdóttir. Salome kynnti þingsályktunartil- lögu sem hún ásamt sjö öörum þing- mönnum lagði fyrir síöasta þing. I henni var lagt til að fastákveðinn yröi stundafjöldi í öllum grunnskól- um landsins til kennslu heimilis- fræða. Þetta yrði matreiðsla, mat- væla- og efnafræði, heilsufræði, híbýlafræði og meðferð ungbama. Taldi Salome mikla þörf á aö þetta yrði samþykkt og voru fundarmenn henni sammála í því. Samþykktu þeir í fundarlok stuðningsyfirlýsingu viðtillöguna. Oddur Helgason sagði frá tilraun Mjólkursamsölunnar með skóla- nesti. Hún hefur verið gerð í vetur í Reykjavík. Kannanir hafa sýnt aö skólabörn nærast orðið mest á sæl- gæti. Hluti þeirra sleppir morgun- matnum og fær að hafa með sér nesti. Því er brýnt að þau fái eitthvað að borða í skólanum. Anna Finnsdóttir lýsti því hvernig tilraunamaturinn er samsettur. Er um að ræða brauösamloku, oftast með kjötáleggi og eftirrétt, oft jógúrt eða ávexti. Með er drukkinn ávaxta- safi, mjólk eöa kókómjólk. Ingibjörg Halldórsdóttir ræddi um næringuna í þessum skammti og taldi hana ágæta nema hvaö fulllítiö væri af járni og B3 vítamíni. Anna Finnsdóttir og Benedikta Waage kynntu mönnum á fundinum þetta nánar og brögðuðu fundargest- ir á skólanestinu. Laufey Steingríms- dóttir stjórnaði síðan fjörugum um- ræðum í fundarlok. ds Aksturogumferð: NÝ BÓK SEM HJÁLPAR TILVIB BÍLPRÓFIÐ „Með þessari bók viljum viö ýta und- ir þann vilja manna aö mennta sig vel sem ökumenn. En því miður er líklega nauðsynlegt að auka jafnframt kröf- umar í sjálfu ökuprófinu,” sagði Sigurður Ágústsson hjá Umferðarráði. ökukennarafélag Islands gaf nýlega út kennslubókina Akstur og umferð sem Sigurður hefur ritað. Bókin er fyrst og fremst ætluð þeim sem eru að taka bílpróf í fyrsta sinn. En hún kem- ur einnig þeim að gagni sem vilja halda umferðarfræðslunni við, eru ef tO vill að taka bílpróf í annaö sinn, eru að byrja aö aka aftur eftir langan tíma eða em að fara í meirapróf. Bókin er um 340 síður með fjölda teikninga og annarra mynda. Teikningarnar era sérlega skemmtilegar og lýsandi. Þær gerði ungur nemandi í Myndlista- og handíðaskólanum. „Mesta verkiö var einmitt að finna myndir í bókina, miöað við það var ekkert að skrifa hana,” sagði Sigurð- ur. ökukennarar ætla að fara fram á það við nemendur sína að þeir kaupi bókina. Ekki er þó hægt að skylda þá til þess. Bókin kostar 400 krónur og kann einhverjum að þykja það mikið. En ein kennslustund á bíl kostar 355 krónur. Og ólíkt meira er hægt aö læra með lestri bókarinnar en einum öku- tíma, aö dómi Guðbrands Bogasonar, formanns Ökukennarafélags Islands. væru ekki ökukennurum að kenna heldur því aö ökuprófið væri of létt. Og vegna þess að þeir sem eru aö læra á bíl eru í fæstum tilfellum fjársterkir vilja þeir taka eins fáa ökutíma og þeir mögulega komast af með til að skríða í gegnum prófið. Því hafa ökukennarar einnig fariö fram á það að í reglur verði sett að tímafjöldi í kennslubifreið skuli vera 14 tímar á hvern nemanda. Rökstyðja þeir þá beiöni með því aö grönur leiki á aö þeir sem taka færri tíma valdi fremur skaða í umferðinni en hinir sem meiri þjálfun fá. Einnig er hvatt til þess að ökuskólar verði lög- giltir. En mörgum nemum á bíl svíður hversu dýrt er að læra. Guðbrandur var spurður að því hvort hægt væri að minnka kostnað við ökunám eitthvað. Hann benti á að með því að sækja tíma í ökuskólanum fá nemendur fræðslu sem svarar til margra tíma í bílnum hjá ökukennurum. Því væri í raun og Sigurður Ágústsson með nýju bók- ina sina. veru spamaður í því að fara í ökuskól- ann. I reglugerð um ökukennslu og próf ökumanna ertekiö fram að prófið skuli vera fræðilegt og verklegt. Fræðilega prófið á að vera munnlegt. Telja öku- kennarar þetta mikinn galla. Miklu betur sé hægt að mæla raunverulega kunnáttu nemanna í skriflegu prófi, helst krossaprófi. Það ætti líka að vera ódýrara í framkvæmd því þá get- ur einn maður prófað fjölda nemenda í einu en ekki einn og einn eins og nú er. DS slíku svæði. Á hinum Noröurlöndunum eru þau algeng og er þá jafnvel hver ökukennari meö marga nema í einu, því þeir eru látnir aka einir. En hér á landi er alveg harðbannað að maður sem er aö læra á bíl aki án þess að öku- kennari sitji við hliö hans. ökukennarar vilja reyndar láta breyta reglum um ökuprófið talsvert. Gera það þyngra og meira í samræmi við umferðina en nú er. Ég spurði Guð- brand aö því hvort ekki væri nægilegt að kennaramir tækju sig saman um aö kenna nemendunum meira, hvort nokkuö þyrfti að þyngja prófið sjálft. „Það er ekki nóg að félag ökukennara setji einhverjar reglur ef menn utan fé- lagsins taka síðan að sér að kenna eftir öðrum reglum. Því verða stjómvöld að koma til og setja ákveðnar reglur eða þá að skylda alla ökukennara til aö vera í félagi ökukennara,” sagði hann. Siguröur sagði að lélegir ökumenn Guðbrandur Bogason, formaður ökukennarafélags íslands. DV-myndir Bj.Bj. ökukennarar héldu nýlega lands- þing sitt. Þar var mikið rætt um breyt- ingar á ökukennslu. Vilja kennararnir aö komið verði upp sérstöku æfinga- svæði þar sem hægt er að kenna á bíl fyrstu tímana. Slíkt yrði dýrt og er far- ið fram á aðstoö opinberra aöila og tryggingafélaga viö aö koma upp Spurt um götuskrá „Götuskráin sem núna er notuð er rétt rúmlega ársgömul. Yfirleitt hafa slíkar skrár verið gefnar út á 2—4 ára fresti,” sagði Margrét Kjartansdóttir, starfsmaöur Pósts og síma. Hingaö haföi hringt maður sem ætlaði að kaupa sér sh'ka skrá. Hún var hins vegar ekki til en sögð vænt- anleg. Taldi maðurinn aö meö því myndi vera átt við nýja skrá. En Margrét sagði svo ekki vera. Líklega hefði upplagið verið þrotið á þeim stað sem maðurinn fór á og því verið beðið eftir frekari prentun á skránni frá því í fyrra. Götuskrár er hægt að fá afgreiddar bæði á póststöðvum og hjá afgreiöslu símans. Götuskráin nær einungis til Stór- Reykjavíkursvæðisins. Ég spuröi Margréti hvort aldrei hefðu verið gefnar út shkar skrár fyrir aðra staði, til dæmis stóra staði eins og Akureyri. Sagði hún svo ekki vera. Núna eftir að tölvuskráin hefði verið tekin upp væri máhð oröiö einfaldara en það var en sér væri samt ekki kunnugt um að rædd hefði verið slík útgáfa. Götuskráin er seld á kostnaðar- verði og kostar 170 krónur stykkið. DS Upplýsmgaseðiíí: til samanourðar á heimiliskostnaði! Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega scndið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þálltak- | andi í uppl.Vsinganviðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar . fjolskvldu af siimu stærð ot> vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. I I --------------------------------------I Nafn áskrifanda Heimili íi :l Sími fl----------------------- J 1 Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í marsmánuði 1983 Mátur og hreinlætisvörur kr. Annað ' kr. Alls kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.