Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 8
DV. FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983. Utlörsd Utlönd Utlönd Útlönd Landnemará Falklandseyjum Eftir aö Falklandseyjastríðinu lauk, hafa borist 3000 fyrirspurnir frá fólki sem vill setjast þar að. Þessar upplýsingar gaf talsmaður yfirvalda á Falklandseyjum. Meðal umsóknanna er að finna umsóknir frá Indlandi, Pakistan, og Hong Kong og eru þar á ferð kaupsýslumenn semvilja taka þar upp einhvers konar rekstur. Ibúa- tala Falklandseyja er nú 1800 manns. Yfirvöld á Falklandseyjum vilja fá um 6000 landnema þangað en húsnæðisskortur mun setja þeim þröngar skorður um sinn. Sagt er að umsækjendur séu af ýmsum stéttum, margir atvinnulausir. Glæpumfjölgar íBretlandi Alvarlegum glæpum fjölgaði um níu prósent í Bretlandi á síöasta ári og tíöni rána hefur fjórfaldast þar í landi síðan 1972. Um helmingur þeirra sem handteknir eru fyrir alvarlega glæpi er undir 21 árs aldri. Minni háttar glæpir, svo sem innbrot og þjófnaður á eöa úr bifreiðum, voru um helmingur þeirra glæpa sem lögreglan fékkst við 1982 en alvarlegri glæpir, svo sem morö, líkamsárásir og rán meö ofbeldi, voru innan við 10 prósent af heildartölunni. Þó hefur hlutfall þeirra mála sem lögreglan leysir ekki lækkað. Enn eru um 16% allra glæpa sem lögreglan fær tilmeöferðar upplýstir. Bömbrjótastinn Fjögurra ára gamall drengur var einn félagi í hópi ungmenna sem brutust inn í tvo skóla í London og brutu þar allt og brömluðu svo kostnaður við viðgerðir er metinn verða um ein milljón íslenskra króna. Lögregluþjónar komu að bömunum þar sem þau voru að brjóta húsgögn og kveikja í þeim. Aðeins tvö þeirra, tíu ára gömul stúlka og ellefu ára gamall dreng- ur, verða sótt til saka. Hin börnin voru öll of ung, en þau voru sex saman. Stöðutákn Það fylgja grasflatir með 13 milljónum breskra heimila, en 13250 þúsund heimila í Bretlandi eiga garösláttuvélar. Þetta kom í ljós í markaðskönnun sem gerð var á vegum garðsláttuvélafram- leiöenda. „Það viröist sem fólk kaupi sér garðsláttuvélar til þess að sýnast,” sagði talsmaður fram- leiðenda. EldgosíEtnu Eldfjallafræðingar segja að stór sprunga hafi myndast í miðgíg eld- fjallsins Etnu á Sikiley. Þeir telja að sprungan gefi til kynna að hraunkvikan undir fjallinu sé á mikilli hreyfingu en Etna hefur nú gosiö í rúmlega viku. Sérfræðingar segja að sprungan, sem aðeins myndaðist fyrir tveim dögum, sýni að eitthvað sé á seyði í megin- hraungangi eldfjallsins. Nú þegar hefur hraunstraumur- inn náð neðar en oftast áöur í Etnu- gosum, en ekki stafar fólki enn hættaafhonum þó vegur við fjalls- ræturnar hafi rofnað. Heróínsmygl Tveir menn voru handteknir um siðustu helgi á Kennedy-flugvelli þegar þeir reyndu að smygla inn í Bandaríkin heróíniaðverðmæti350 milljónir íslenskra króna. Cahudy Alam, 35 ára gamall lögfræöingur frá Pakistan, var handtekinn með 5,4 kíló af hreinu heróíni innan klæöa þegarhannkommeðflugvél frá París og degi fyrr hafði starfs- maður Air India, Manhar Barot, verið handtekinn þegar hann reyndi að smygla 1,8 kílóum af hreinu heróíni. Báðir mennimir eiga yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsifyrirvikiö. Ustinov marskálkur, vamarmálaráðherra Sovétríkjanna: HÓTAR ÁRÁS Á BANDA- RÍKIN SJÁLF, EF... eldflaugum verði beitt gegn Sovétmönnum Dimitry Ustinov, vamarmálaráð- herra Sovétríkjanna, hefur varað Bandaríkjamenn við því að Sovétríkin muni gera árás beint á bandarískt landsvæði ef bandarísku eldflaugunum í Evrópu verði beitt gegn Sovétmönn- um. Þessu hótaði Ustinov marskálkur í ræðu sem hann flutti í gær yfir austur- þýskum og sovéskum hermönnum í bænum Erfurt í A-Þýskalandi. Veittist hann einnig harkalega í ræðu sinni að tillögum Reagans forseta varðandi takmarkanir á meðaldrægum eld- flaugum og hugmyndum hans um| geimaldar eldflaugavarnir. Kremlverjar hafa verið mjög harð- orðir í garð Washingtonstjórnarinnar undanfarnar vikur vegna eldflauga- áætlunar NATO. Marskálkurinn sagði ennfremur að stjórnir Vesturlanda mættu hafa hug- fastað gagnárásSovétmanna ef eld- flaugunum yrði beitt gegn Sovétríkjun- um gæti þýtt endalokin fyrir mörg þau V-Evrópuríki þar sem ætlunin er að koma NATO-eldflaugunum fyrir. Sakaöi hann Bandaríkjamenn um að tefla bandamönnunum í V-Evrópu fram sem gíslum með eldflauga- áætluninni í von um aö geta fremur bjargað eigin skinni. Vildi hann vara þá við að þeim mundi ekki óhegnt ef eldflaugunum y rði hleypt af. Mönnum kemur ekki á óvart sá boð- skapur í ræðu Ustinovs að takmarkaö kjarnorkustríð sé útilokaður mögu- leiki. Sovétstjórnin hefur áður marg- áréttað að hiklaust yrði beitt öllum kjamorkumætti Sovétmanna ef til átaka kæmi milli austurs og vesturs. Orðum marskálksins þykir fyrst og fremst beint til andstæðinga kjarn- orkuvopna í V-Evrópu og Bandaríkjun- um, sem leggja þyngsta áherslu á hættuna á gjöreyðingarstríði vegna til- vistar kjarnorkuvopna. En ræða marskálksins þykir um leið sanna málflutning þeirra manna á meginlandinu, sem vilja meö eld- flaugaáætlun NATO tengja enn fastar varnir V-E vrópu við Bandaríkin. Stríösskaöa- bætur! Itali, sem missti báða bræður sína, ættaróðalið og verðbréf, vegna hefndaraðgeröa nasista á árum síðari heimsstyrjaldarinnar, hefur núna loksins fengiö úr- skurðaðar stríösskaðabætur. Morelli slapp naumlega sjálfur lífs, þegar nasistar skutu bræður hans og brenndu sveitabæ fjöl- skyldunnar, áður en þeir hörfuðu undan innrás bandamanna. Hann var 14 ára þá og faldi sig undir líki annarsbræðranna. Hann særðist á fæti og hefur síðan þegið lágmarksörorkubætur. Stríösskaöabætumar sem honum voru dæmdar nema 300 ís- lenskum krónum, þr jú hundruð....! Óánægja út af spamaði Lögreglan varð að verja fjármála- ráðuneytið í París fyrir ásókn and- mælenda þeirra sparnaðarráðstaf- ana stjómarinnar sem gera ráð fyrir gjaldeyrishömlum og einkanlega skömmtun ferðamannagjaldeyris. Ferðaskrifstofumar efndu til mót- mælaaðgerða fyrir páska og lá við borð að til uppþots kæmi. Franska þingið samþykkti í morgun spara- aðarráöstafanirnar og um leið traustsyfirlýsingu til handa ríkis- stjóminni. Ein af skæruliðakonum E/ Salvador myrt í Managua Einn af kvenskörungum skæmliða- hreyfingarinnar í E1 Salvador var myrtur skammt frá höfuöborg Nicara- gua snemma í gær. Otvarpið í Managua sagði að Melida Amaya Montes, daglega kölluð Ana Maria foringi, heföi verið fómarlamb grimmilegs morðtilræðis og að hafin væri rannsókn á morðinu. Frekari upp- lýsingar komu ekki f ram. I fyrstu fréttum var sagt að hin myrta væri Ana Guadelupe Martinez, aðaltalsmaður Farabundo Marti-þjóð- frelsishreyfingarinnar, en það var síð- arleiðrétt. Ana Maria foringi var næstæðsti for- ráðamaöur alþýðufrelsishreyfingar- innar, sem er ein af fimm skæruliða- samtökum er teljast innan vébanda Farabundo. Hún var á fimmtugsaldri og hefur tekið lengi þátt í andófinu gegnstjóminni íSan Salvador. Fréttimar herma aö hún hafi verið skotin til bana í húsi um 14 km suður af Managua í árás sem talið er að hægrisinnaðar „dauðasveitir” hafi gert. Einn aðstoöarmanna hennar særðist íárásinni. Aðrar fréttir greina frá því að eftir sókn útlaganna inn í Nicaragua frá Hondúras á undanförnum vikum hafi vinstrisinna stjóm sandinista átt æerf- iðara með að halda öfgaöflum hægri- manna í skefjum, eins og t.d. „dauöa- sveitunum”, eins og þær leynihreyf- ingar eru kallaðar sem á undanförnum ámm hafa átt sök á fjölda launmorða og mannshvarfa í löndum S-Ameríku. Barist út af húskofum Til átaka kom í Hong Kong milli lögreglu og 250 íbúa húskofa, sem úrskurðaðir hafa verið óhæfir til mannavista og til stendur að rífa nið- ur. Bámst átökin um húsþök, eins og myndin hér við hllöina ber með sér. 37 slösuðust í róstunum. — Mikil hús- næðisekla ríkir í Hong Kong vegna skorts á byggingarlóöum og uppi em áætlanir um að rífa verstu kofa- hreysin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.