Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Síða 13
NU NALGAST STÓRA STUNDIN! Kjallari á fimmtudegi DV. FIMMTUDAGUR 7. APR1L1983. Oðum styttist nú til kosninga. Þegar þetta blað berst lesendum sínum er ekki nema rösklega hálfur mánuður þar til kjósendur kveða upp sinn dóm og velja þá sem eiga að stjórna málefnum þjóðarinnar. En þótt svona stutt sé í kosningarn- ar finnst mér óvenju erfitt að átta sig á því hvernig straumamir liggja. Á því kunna að vera ýmsar skýringar. Eg held að ein þeirra sé almenn póli- tísk þreyta kjósenda, sem ekki eygja enn sem komið er neinn góðan valkost að mati almannaróms. Önnur ástæða kann aö vera sú að „úrval” frambjóðenda er óvenju mikiö, tvö ný stjómmálaöfl hafa haslað sér völl og eiga möguleika á því að fá menn kjöma á alþingi. Ég man ekki eftir því að fyrr hafi verið í kjöri sex framboðslistar við alþingis- kosningar í Reykjavlík, sem allir geta komið manni eöa mönnum aö. Þótt framboð hafi áður veriö svo mörg þá hefur ekki verið reiknaö meö því að fleiri en fimm kæmu til greina, raunar hefur baráttan oft staðið um hvort fjórir eða fimm listar kæmu að manni. Hver svo sem ástæðan er, þá er ljóst að pólitísk deyfð er almenn og mjög margir k jósendur ennþá óráðn- ir í hvem þeir velja á kjördegi. Jafn- ljóst er að hin nýju framboð njóta vemlegs fylgis og að minnsta kosti annað þeirra mun eiga fulltrúa á næsta alþingi. Bandalag jafnaðarmanna virðist sterkt Ekki verður annað ráðið af viðbrögöum fólks en Bandalag jafnaðarmanna njóti talsverðs fylgis. Auðvitað er of snemmt að spá nokkm um það hversu marga full- trúa það kemur til með að eiga á næsta löggjafarþingi, en ég er illa svikinn ef þeir verða ekki nokkrir gerist ekkert óvænt síðustu vikur kosningabaráttunnar. Ekki yrði ég hissa þótt þeir yrðu 6—8. Þeir gætu h'ka orðið færri. Ef hið mikla óráðna fylgi hallast á lokasprettinum að gömlu flokkunum getur hlutfall bandalagsins orðið miklu minna en þaðvirðistnú. Hins vegar virðist þetta mikla fylgi bandalagsins dálítið undarlegt sé miðað við fylgi annarra flokka. Eg þekki marga sem munu greiða því atkvæði sitt, eða ætla það að minnsta kosti. Þess þekki ég hins vegar mjög fá dæmi að fólk ætli að gera það vegna þess að þaö sé svo hrifið af stefnuskrá bandalagsins. Það ætlar einfaldlega að kjósa Bandalag jafnaðarmanna til þess að kjósa á móti hinum stjórnmálaflokkunum, refsa þeim fyrir þaö sem það telur hafa verið ráðleysi og dáðleysi á undanförnum árum. Þetta fólk virðist hreint ekkert varða um það hvaða stefna er boöuö og ekki heldur hvaða fólk er í framboði nema Vilmundur einn. Það ætlar að kjósa Vilmund, hinum til ama og bölvunar. Nú kann vel að vera aö það sé tilviljanakennt að ég skuli fyrst og f remst verða var við slík viðbrögö og vitanlega eru þau hvergi nærri ein- hlít. Engu að síður er ég sannfærður um að þessi hópur er stór og í því kann að liggja veikleiki þess byrjar sem bandalagið nýtur. Slíkt fylgi er ekki til að reiða sig á til lengdar og því kann að fara fyrir bandalaginu líkt og Alþýðuflokknum 1978 að sigurinn verði meiri en menn geta ráðið við. Þetta fólk getur líka snúið við blaðinu fyrir kosningar, ef einhverjum hinna flokkanna tekst aö koma boðskap sínum trúverðuglega tilskila. Undiralda með kvennaframboði? Um fylgi kvennaframboösins finnst mér miklu erfiðara að dæma. Einhvern veginn virðist ekki sama hrifning yfir því og fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar. Það þarf samt alls ekki að þýða fylgisleysi þess. Með því kann að vera býsna þung undiralda, sem reynist nota- drjúg að kvöldi kjördags. Það er alveg víst að fylgi þessa framboðs er nokkuð öðruvísi saman sett en fylgið í sveitarstjómarkosningunum. Enda þótt framboðiö sé nú eins og þá hreint kvennaframboö, þá er eðli þess samt að ýmsu leyti annaö. Þaö þýöir ekkert að koma með kvenna- framboð einungis kvennanna vegna við alþingiskosningar. Það er ekki hægt að segja nú eins og í sveitar- stjómarkosningum aö þetta sé þverpólitískt, allt að því ópólitískt framboð, sem miði aö því að efla einhver óskilgreind áhrif kvenna. Þegar kosið er til alþingis hugsa kjósendur ööruvísi, þeir vilja vita hvað viö tekur, þeir telja ákvarðanir alþingis miklu örlagaríkari en ákvarðanir sveitarstjóma. Þeir vilja fá að vita stefnuna, nema hjá Vilmundi, og velja í samræmi við það. Þessu hafa konumar greinilega gert sér grein fyrir. Eg trúi því líka að þær hafi gert sér grein fyrir því að framboð þeirra er ekki aðeins kvennaframboð, heldur vísir að nýju pólitísku afli, innlegg í þá upplausn í íslensku stjórnmálalífi sem verður jarðvegur nýs flokkakerfis í náinni framtíð. Þær hafa sett fram stefnu- skrá sem sýnir að þær reyna að hugsa eftir öörum línum en flokkam- ir, þær em óbundnar af kreddum þeirra og hagsmunatengslum og margir sem em í vafa um hvemig þeir eiga að verja atkvæði sínu munu vissulega velta fyrir sér þeim mögu- leika að efla kvennaframboðið til áhrifa. Hvort þær fá svo engan full- trúa eða þrjá eða fjóra á þing skal ósagt látið, einhvem veginn grunar mig að þar verði býsna mjótt á mununum. Gamlir flokkar ívörn Mér finnst að gömlu flokkamir eigi allir undir högg að sækja í kosningunum, misjafnlega þung þó. Eg held að báðir hinna svokölluðu A- flokka muni tapa þingsætum, en vegna þess hve uppbótarsæti skipta þá miklu máli getur á miklu oltið fyrir þá hvort kvennaframboö kemur manni að, og svo auðvitað hve mikiö f jöldafylgi flykkist mn Banda- lag jafnaöarmanna. Enga trú hefi ég á því að Alþýðuflokkurinn þurrkist út af þingi eins og sumir spá, ég held að lítill og traustur kjarni sé nógu stór til að koma í veg fyrir þaö. Fari hins vegar svo, kollvarpast allar bolla- leggingar vegna þess hve mörg uppbótarsæti losna. Með Framsóknarflokkinn er allt ljósara. Mjög er ósennilegt að hann fái uppbótarsæti í þessum kosningum, en þó ekki útilokað. Hann mun væntanlega tapa þingsæti í Norðurlandskjördæmi vestra og þrjú önnur þingsæti em í verulegri hættu, þriöja sætið í Norðurlands- kjördæmi eystra, annað sætiö í Reykjavík og þingsæti í Reykjanes- kjördæmi- Færi svo að hann tapaði sætum í öllum þessum fjölmennu kjördæmum naumlega, gæti vissu- lega komið upp sú staða að hann fengi uppbótarmann, nú þegar síðast er kosiö eftir hinu gamla kerfi, og þá í fyrsta skipti í sögu þess. Sennilega koma hin nýju framboð í veg fyrir stórsigur S jálfstæðisflokks- ins, sem ýmsir fylgjendur hans töldu á næsta leiti fyrir ári eöa svo. Raunar má kannski að sumu leyti rekja þau til þeirrar óeiningar sem þar hefur ríkt en látum það eiga sig hvað er orsök og hvað afleiðing, Magnús Bjarnfreðsson margir þeir kjósendur sem hefðu kosið flokkinn til þess að mótmæla stjórnarfarinu telja sig nú eiga ann- arra og betri kosta vöL Vafalítið vinnur flokkurinn á og hann getur hæglega unnið þingsæti bæði í Reykjavík og á Reykjanesi. Þausæti myndu nýtast flokknum aö fullu, vegna þess mikla atkvæðamagns, sem þar er á bak við hvert þingsæti. Þótt hann hins vegar ynni þingsæti úti á landi — og það gerir hann áreiðanlega — þarf það ekki að þýöa þingmannaaukningu, því á móti kæmu þá færri uppbótarþingmenn. Hvaðsvo? Hvað tekur svo við að loknum kosningum? Það getur auövitað enginn sagt um fyrr en búið er að telja upp úr kössunum á kosninga- nóttina. Það er opinber skoðun þriggja stjórnmálaflokka að kjósa beri fljótlega aftur eftir nýjum kosningalögum. Eg held að úrslitin gætu breytt þessu. Fari svo að Bandalag jafnaðarmanna vinni yfir- buröa kosningasigur og komi 8 eða 10 mönnum aö, svo dæmi sé tekið, þá hygg ég að menn myndu hugsa sinn ganga mjög vandlega áður en þeir blésu að nýju í kosningalúðra. Ég held að þeir hlytu að athuga þann möguleika mjög gaumgæfilega að setjast niður og stjóma landinu eins og menn í heil fjögur ár, þar til kosið væri að nýju og unnt væri að horfa með sæmilegri samvisku framan í kjósendur með svipaða verðbólgu og í nágrannalöndunum. Þaö myndi auðvitaö þýða átök og hörku, en fólk er orðið þreytt á stjórnleysi og þaö yrði erfitt fyrir upphlaupshópa að afla sér samúðar næstu árin ef við stjórnvölinn sætu menn sem sýndu að þeir þyröu að taka stórar ákvarðanir og standa við þær. Magnús Bjarnfreösson. • „Ég held að þeir hlytu að athuga þann raöguleika mjög gaumgæfilega að setjast niður og stjórna landinu eins og menn í heil fjögur ár...”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.