Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983. Spurningin Ætlarðu að fara að sjá kvikmyndina Á hjara veraldar? Þórdis HaUgrímsdóttír húsmóðir: Eg hef áhuga á því. Runólfur Ingólfsson rafvlrki: Já, ég ætla aðsjáhana. Áifheiður Jónasdóttir, starfstúlka í verslun: Eg á ekki von á því. Eg fer mjög lítið í kvikmyndahús. Ema Helgadóttir húsmóðir: Endilega hreint. Mér finnst hún vel þess virði. Kristbjörg Kjartansdóttir húsmóðir: Já. / Agnar H. Jóhannesson, starfsmaður íj verslun: Já, ég býstfastlega viðþví. ' Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Hvergi i heiminum þar sem yfirvöid væru með réttu ráði fengi Frakkinn leyfi tíl að skipuieggja rallakstur um friðuð svæði eða jafnviðkvæm svæði og gert er ráð fyrir i íslandsrallinu," segir 1145—5964 meðal annars í bréfisínu. Rall einungis á afmörkuðum brautum 1145—5964 skrifar: IDV 9. mars sl. segir Ævar Sigdórs- son um Islandsralliö: „RaU fer ekki fram utan vega”. Þær leiöir sem Frakkinn, sem að rallinu stendur, hefur valið upp á sitt eindæmi að því 'er virðist (því enginn sómakær Islendingur mundi mæla með þeim), þær eru ekki vegir heldur slóðir, og er þar mikiU munur á og það sem méstu máli skiptir. I frétt í DV 8. mars sl. af MintexralUnu í Bretlandi er talað um malbik, malarvegi og Rally Cross brautir. En á Islandi ætlar Frakkinn að aka eftir moldartroöningum og slóðum, í aUt að 800 m hæð, þar sem aUur gróður á erfitt uppdráttar við þær norölægu aðstæður sem hér ríkja. Þetta er kjami málsins. Menn geta kaUað raU íþrótt, ef þeir vUja, en það á ekki rétt á sér nema á sérútbúnum og tU þess afmörkuöum brautum. Hvergi í heiminum þar sem yfirvöld væru með réttu ráði fengi Frakkinn leyfi tU að skipuleggja rallakstur um friöuð svæði eða jafnviökvæm svæði og gert er ráð fyrir í IslandsralUnu. Hann ætlar að fara leiöir sem íslenskir rallökumenn hafa ekki farið um áður í raUkeppni. Hann ætlar að fara leiðir sem jafnákafur rallökumaður og Omar Ragnarsson er ekki sáttur við. Svo er annað atriði sem ekki hefur verið haldið á lofti. Otlendu rallöku- mönnunum stendur til boða að taka þátt í LjómaraUinu, sem fer fram nokkrum dögum áður. Hér er því ekki um eitt rall að ræða heldur tvö. Ævar Sigdórsson ræðst töluvert að leiðsögumönnum í grein sinni í DV 9. mars sl. og segir að nú séu þeir á móti ralUnu en að ekkert hafi heyrst frá þeim þegar auglýstar hafi verið safari- og ævintýraferðir til Islands erlendis. Ævar veit bersýnilega ekki mikið um baráttumál leiðsögumanna sem hafa a.m.k. á mörgum síðustu ferðamálaráðstefnum einmitt verið að vara við þessum ævintýraferðum út- lendinganna. Leiðsögumenn hafa hins vegar farið haUoka og fengið á sig' mikla gagnrýni og hnútukast fyrir. En hvar var Ævar þá? Eg minnist þess ekki að hafa séö Ævar vara við þessum ferðum fyrr en nú. Nú virðist hins veg- ar sem aðvaranir leiðsögumanna hafi verið tímabærar og að við séum að missa máUn út úr höndunum, ef ekki verður brugðist viö af einbeitni. Það væri óskandi að yfirvöld hefðu manndóm í sér tU að láta framfylgja reglum og koma á eftirliti. Viö Islendingar eigum ekki að liggja mar- flatir fyrir útlendingum og láta þá vaða yfir okkur í eigin landi. Mér fannst einnig mjög ódrengilegt af Ævari að stimpia alla félagsmenn í Félagi leiösögumanna sem náttúruspUla með sögunni úr Berufirði. Leiðsögumenn hafa oft heyrst kvarta yfir því að réttindi þeirra væru ekki virt og utanfélags- menn væru ráðnir tU að fylgja útlend- ingum um landið. Utanfélagsmenn þekkja ekki starfsreglur leiðsögu- manna og ef þeir brjóta af sér Uggja allir undir grun. Omar Ragnarsson segir í Morgunblaðinu 9. febrúar sL að landið sjálft sé auölind í likingu við hafið í kringum landið. Hvernig ætli yfirvöld í öðrum löndum Utu á það, ef auðlindir þeirra yröu settar í sams konar hættu með leikaraskap? Hvað ætU Norðmenn segðu ef útlendingar skipulegðu reiðhjólakeppni innandyra í ráðhúsinu í Osló eða innandyra í Sonja Henie Ustasafninu? Eða Danir ef útlendingur skipulegði svipaða uppákomu í Tívolígarðinum að þeim forspurðum? Eða frönsk yfirvöld ef halda ætti mótorhjólakeppni í Louvresafninu eða í Versölum? Eða grísk yfirvöld ef fara ætti um Akropolis á torfæruhjólum? Eöa spænsk yfirvöld ef skipuleggja ætti rallkeppni eftir spænskum baðströndum? Það ætti dómsmála- ráðherra okkar að hugleiöa áður en hann tekur ákvörðun í raUmáiinu. Já, ráðherra. Úrslitin í körfuboltanum: Hvers vegna ekki í íþróttaþætti sjónvarps? Ölafur Þ. Kristjánsson hringdi: Fyrirspurn tU Bjarna FeUxsonar. Hvaða skýringu geturðu gefið á því að láta ekki sigurvegarana í Islands- meistara- og bikarmeistaramótinu hafa eina einustu mínútu í íþrótta- þáttum þínum? Þeirra hefur ekki verið getið nema með einni mynd í almennum frétta- tíma. Hver er skýringin ? Bjarni FeUxson svarar: Körfubolti er sú íþróttagrein sem hefur fengið mesta umfjöllun í íþrótta- þáttunum í sjónvarpinu í vetur. Til þess aö taka myndir af íslenskum körfuknattleik hefur orðið að elta flesta leiki úrvalsdeUdar sem eru á Suðumesjum vegna þess aö skilyröi til upptöku eru ekki fyrir hendi hér í bænum. Það var ætlun okkar að gera úrslitaleiknum í körfubolta ekki síðri skil en hann var háður á sama tíma og ég var með íþróttaþátt. Eg fór fram á það við mótanefnd körfuboltasam- bandsins að leikurinn yröi háður á venjulegum leiktíma þetta kvöld svo að ég gæti fellt lokakafla leiksiru inn í íþróttaþátt í beinni útsendingu. Þetta samkomulag var brotið og leikurinn færður til til þess að ég gæti ekki sýnt körfuboltann þetta sama kvöld. Fyrir vikið sat ég hér niöri í sjónvarpssal og sá um minn íþróttaþátt að venju og sjónvarpið sat uppi meö allan undir- búning að þessari útsendingu sem varð aðengu. Það kom aldrei til mála að breyta beinni útsendingu frá leik Liverpool og Manchester United frá Wembley til þess að sýna gamlan körfubolta. „Körfubolti er sú íþróttagrein sem hefur fengið mesta umfjöllun í iþróttaþáttunum i sjónvarpinu i vetur,"segir Bjarni Felixson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.