Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 17
17 Hoo a r< rTTTr-> ,* n'Finnrrv ^t,*t DV. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL1983. Lesendur Lesendur Lesendur „Hingað er að koma leikstjóri sem setja á upp sjónleikinn Sjóleiðina til Bagdad eftir hinn kunna iistamann, Jökul Jakobsson," segir Jón Kr. Olafsson meðal annars ibréfi sinu frá BHdudai. HÆKKANDI SÓLÁ BÍLDUDAL Ætla að fara að setja upp Sjóleiðina til Bagdad Jón Kr. Ólafsson skrlfar: Þessi vetur, sem maður skyldi ætla að fari nú að sleppa af manni sínum ómiidu klóm, hefur lagst þungt á marga. Allavega er sú staðreynd ekki langt héðan frá okkur sem búum hér á Vestfjörðum. Það eru allir búnir að fá nóg að ég held og mikið meira en það. En við stóran er að deila í þessum efnum. Nú fer að skína listræn stjarna hér á Bildudal í gegnum þennan vetrarsorta og fagna ég þeim væntanlega áfanga fyrir hönd allra þeirra sem þá hluti varða, sem er að vísu misjafnt eins og gengur. En eftir um það bil tveggja ára hlé í leiklist hér á Bíldudal er að renna upp sú stund að hingað er að koma leikstjóri sem setja á upp sjónleikinn Sjóleiðina til Bagdad eftir hinn kunna listamann, Jökul Jakobsson. Leikstjóri sá sem hefur þessa uppfærslu með höndum er hin góðkunna og mikilhæfa leik- kona, Kristín Anna Þórarinsdóttir, sem er öllum landsmönnum kunn fyrir sína hæfileika. Það hefur hún sýnt svart á hvítu á þessum stað, með uppfærslu sinni á tveim fyrri verkum og tel ég mig ekki halla á neinn í þessari grein þótt ég segi þetta besta leikstjóra sem hingað hefur komið. Hér er nú þó nokkur vandi að koma og gera hluti fyrir almenning á vissan hátt, það þekki ég af minni eigin reynslu. Það er eins gott að hafa allt á hreinu og dugir ekki til. Hér um daginn voru tveir ungir nemendur úr dansskóla Sigurðar Há- konarsonar frá Reykjavík og eru þeir eftir því sem ég best veit ungir í þessari listgrein sinni. Þeir höfðu samt kjark til aö stíga yfir þröskuld meðalmennskunnar, sem gengur oft um eða nær því alltaf holdi klædd allt niður í lágkúruhátt sem einkennir oft daglegt líf í borg og ekki síst í litlum samfélögum. Þeir sýndu frá- bæra hæfileika í sinni list og vona ég að þeim eigi eftir að vaxa öryggi og leikni í komandi framtíð. Vona að þeir komi hingað aftur og miðli af list sinni. Ekki mun af veita. Bensínlausáleið til vinnufyrir opnunartíma: Ekki virtur svars af afgreiðslu- mönnum 7895—3403 skrifar: Eg varð fyrir því einn morgun að bif- reiö mín varö bensínlaus er ég var á leið til vinnu. Þar sem ég vissi af bensínstöð Olís við Alfabakka í ná- grenninu ákvað ég að ganga þangaö og festa kaup á bensínbrúsa og bensíni. Þegar ég kem að bensínstöðinni klukkan rúmlega sjö sé ég menn á ferli þar inni við. Dyr stöðvarinnar reynd- ust hins vegar harðlæstar. Þar sem greinilegt var að ég óskaði eftir að komast í talsamband við menn þessa hélt ég að þeir myndu lúka upp dyrum sínum, þó ekki til annars en að vita hvað ég vildi. En það var eitthvað annað. Þeir laumuðust úr sjónmáli við mig og sá ég þá síðan rétt annaö veifið er þeim brá fyrir bak við hillur drekkandi kaffi inni í hlýjunni. Leið nú drykklöng stund, en þá bar að aöra starfsmenn stöðvarinnar. I þann mund er þeir gengu fram hjá mér innti ég þá eftir því hvenær stöðin yrði opnuö. Fékk ég þau svör að hún yrði opnuð klukkan hálfátta. Þangað til voru um fimmtán mínútur og mér bæði farið að leiðast og kólna á biöinni og spurði því hvort ekki væri möguleiki á að fá að festa kaup á bensínbrúsa og bensínlögg þótt opinber opnunartími væri ekki hafinn. En það var eins og að tala við steininn, hersingin strunsaði fram hjá mér án þess að virða mig svars og læsti vendilega á eftir sér. Fékk ég síðan að bíða þarna utandyra þar til opnað var á meðan þeir háu herrar innandyra röltu um gólf í mestu makindum. Það gefur augaleið að svona hroka- fullir starfsmenn eru hverju fyrirtæki til háborinnar skammar og vona ég sannarlega að ekki séu allir starfs-. menn Olis svona innrættir. SVAR: Kristinn Sumarliðason, verkstjóri á bensínstöð Olís viö Álfabakka: Þaö kemur oft fyrir fyrir opnunar- tíma á morgnana að menn koma til að kaupa bensín. Það væri ekki hægt að gera klárt á morgnana ef við önsuöum hverjum manni sem knúði hér dyra fyrir opnunartíma. Þórhallur Ásgeirsson starfsmaður kannaðist ekki við annaö en að starfs- menn stöðvarinnar sýndu fullkomna kurteisi. Kjósendur! Athugið hvort þið eruð á. kjörskrá. Kærufrestur er til 8. apríl. Ef þið finnist ekki á kjörskrá, vinsamleg- ast hafið samband við kosningaskrif- stofuna, kjallara Kjörgarðs (gengiö inn Hverfisgötumegin), símar 11179 og 21202. A-LISTINN ÍREYKJAVÍK PANTANIR Sími 13010 HÁRGREIÐSLU- STOFAN KLAPPARSTÍG 29 HUMANIC KVENSKÓR LAUGAVEGI 1 - SÍM116584 Póstsendum Skósalan Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 Póstsendum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.