Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Side 19
DV. FIMMTUDAGUR 7. APRIL1983. 19 ins við breyttar orkuverðsforsendur og með því að heimila stækkun á álverinu og auka þannig enn á hlut- fall hinnar ódýru orku í raforkufram- leiðslu landsmanna, töldu hinir slyngu samningamenn sig árið 1975 hafa náð fram verulegri hækkun á raforkuveröinu til álversins og leið- réttingum á framleiðslugjaldinu. Þessari mynd hefur a.m.k. veriö haldiö að almenningi til þessa. Nú liggur hins vegar fyrir sem óhrekjanleg staðreynd, að þessi „kjarabót” Islendinga var sjón- hverfing og blekking. Steingrímur, Jóhannes og Ingólfur sömdu þvert á móti hrapallega af sér og útkoman varð neikvæð. Islenskur almenn- ingur og fyrirtæki hafa greitt niöur raforkuna til álversins með því að axla sífellt þyngri byrðar Lands- virkjunar með síhækkandi verði á neyslurafmagni! Og minnist nokkur þess að sá maður, sem þá sat á stóli iðnaðarráðherra og nú er hafinn upp til skýjanna sem sérstakur land- vættur, hafi haft uppi einhver andmæli viö þessu ráðslagi? I fimmta lagi hefur Hjörleifur sannað að ein helsta röksemd Sjálf- stæðis- og Alþýðuflokks, fyrir kostum þess að selja álverinu raforkuna á spottprís, er reist á blekkingum. Staðhæfingar Geirs Hallgrímssonar, Birgis Isleifs o.fl. þess efnis að arðurinn af orkusölunni til álversins greiddi upp kostnaðinn við Búrfellsvirkjun á 19—25 árum, eru því miður skrök og staðleysur. Þvert á móti má teljast vel sloppið ef tekjur af raforkusölunni ná aö greiða upp Búrfellsvirkjun áður en þessi ánauðarsamningur rennur út árið 2014!! Hér er aöeins fátt eitt talið af þeim fjölmörgu atriðum sem Hjörleifur Guttormsson hefur dregið fram í dagsljósið varðandi viðskipti Alusuisse við Islendinga og afskipti álflokkanna þriggja af þessu máli. Hjörleifur hefur tekið á þessu verkefni af vísindalegri nákvæmni og fádæma vinnusemi og pólitísku þori. Hann hefur jafnframt leitaö allra hugsanlegra leiða til að sam- eina íslenska þjóð og stjómmála- flokka hennar undir þann gunnfána sem hæfir sjálfstæðri þjóö gagnvart alþjóðleguauðvaldi. Hjörleifur verð- ur ekki sakfelldur fyrir það gæfuleysi álflokkanna þriggja, að heykjast nú enn í hnjánum andspænis Alusuisse. Sjaldan eða aldrei hafa stjórnmálamenn verið berháttaöir jafnrækilega og sjaldan eða aldrei hafa stjómmálamenn haft aumari spjarir til að skýla nekt sinni með. Kemur meira að segja að litlu haldi sú augljósa aöstoð sem stjóm- endur Alusuisse og álfurstinn i Straumsvík kappkosta aö veita þeim. Og það er ekki nóg með að einstakir stjórnmálamenn standi strípaðir vegna barnaskapar síns og bleyðuháttar gagnvart auöhringn- um. Þar við bætist að sjálf hug- myndafræðin, orkusölustefnan, stendur afhjúpuð. Öll þjóðin finnur nú og skilur aö sjálfur grunntónninn í efnahags- og atvinnumálasöng íhaldsflokkanna er rammfalskur. Og sjálfur seðlabankastjórinn, sem um langt árabil hefur veriö hampað sem einhverjum slyngasta reikni- meistara og samningamanni þjóð- arinnar, hefur verið söngstjóri þessa kórs og æft raddimar. Það skyldi því engan furða þótt þessir kórfélagar snúist hatramlega til vamar og gagnsóknar gegn þeim manni sem ekki einasta hefur klætt þá úr hverri einustu spjör, heldur jafnframt húð- strýkt þá með þeirra eigin glópsku og yfirsjónum. I þessu liggur því miöur megin- skýringin á hinni undarlegu samfylk- ingu og áróðursherferð álflokkanna gegn Hjörleifi Guttormssyni og Alþýðubandalaginu. Eigin hags- munavarsla og hugleysi gagnvart Alusuisse eru ástæðurnar fyrir því auðnuleysi álflokkanna að sameinast nú á úrslitastundu í vamarliðssveit erlends auðhrings og kúgunarvalds. Gunnlaugur Haraldsson, Akranesi. Notaðir /yftarar í mik/u úrvali Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar STII.I. Rafmagns 1.51. 21. 2.51. m/snúningi. 31 m/snúningi. Dísil 2.51. m/húsi. 3.51. m/húsi. 41. Skiptum og tökum í umboðssölu. M K. JONSSON & CO. HF. s Vitastíg 3 Sími 91-26455 Klukkur sem skrifa! — fermingargjöfin í ár Já, þú færö margt skemmtilegt í STUD-búðinni. Þar færð þú t.d.: ★ Klistraðar köngulær sem skríða. ★ LAST-vökvann sem gerir þlötuna betri en nýja. ★ Leigðar videospólur (VHS) með Bob Marley, Black Uhuru, Grace Jones, Joy Division, Ca- baret Voltaire, Kid Creola, Doors, Madness, Kate Bush, Siouxie & The Banshees og mörg- um mörgum fleiri. ★ Flestar — ef ekki bara allar plöturnar meö: Stranglers • Doors • Tangerine Dream • D.A.F. • Art Bears • David Bowie • P.I.L. • Pere Ubu • John Lennon • Beatles • Rolling Stones • Brian Eno • Kizz • Mike Oldfield • Iron Maiden • Mississippi Delta Blues Band • Work • Killing Joke • Misty • Defunkt • ★ Vinsælustu plöturnar frá Skandinavíu. DAVE VAN RONK: Sunday Street Virtasti blússöngvari heims meö sina allra bestu plötu. RAR’s Greatest Hits Safnplatan vinsæla meö Clash, Tom Robinson. Stiff Little Fingers, Elvis Costello, Gang of 4 o.m.fl. TIL HVERS? FYRIR HVERN? stprzzjsissí vlö þa sem aðhyllast lrams®klð rokk. S,TU?klubburinn «r fyrir bá sem «ia fylojast með þvf he|sta 3em er aö gerast á sviði tramsækin- nar rokktónllstar. ' STbOklúbbnum fá reglulega heimsendar uþþlýs- 22'“» hvaða plö,ur m 4 Irm? ' hli°mP|ötuverslun- mLu h?Lvæn,anleaar plö,ur. S,u hræringar , bransanum o.s.frv. aUí',,á ,éia0ar ' STUOklúbbn- um a,siatl a öllum fáanlegum vðrum i STUOI; þelm gefst kostur aað serpanta sjaldgæfar plötur; P«r ta margvíslegar plðtur á melrlháttar tllboðsverði, svo a4«lns fátt eitt sé nefnt. VelkQmln/nl Laugavegi20 Sími27670

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.