Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR 7. APRIL1983. 35 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Matreiðslubók fyrir tímann Morgunblaðiö gerði mikla uppgötvun fyrir páska þegar sagt var í því ágæta blaði frá matreiðslubók sem Magnús Stephensen landshöfðingi átti að hafa skrlfað og gefið út árið 1800. Þarna er þó eitt- hvað máium blandið því Magnús Stephensen lands- hÖfðingi fæddist árið 1836 og hefði því þurft að vera óvenju bráðþroska til að vinna bók- menntaafrek árið 1800. Upp- lýsingar um fæðlngardag og ár landshöfðingjans er að finna í öllum kennslubókum í tsiandssögu sem kenndar eru í baraaskólum og ekki þörf að leita til bóka gefinna út árið 1800 til þess að komast að hinu sanna í málinu. Ódýrt ein- býlishús Nú er komið að því, að dreginn er út stóri vinningurinn hjá DAS. Það er einbýlishús að eigin vali fyrir eina milljón króna'. Hins veg- ar gæti tekið lengri tima að finna einbýlishús sem falt er fyrir eina milljón. Kunnugur maður á fasteignamarkaði segir að fyrir eina milljón megi menn teljast góðir að kaupa þriggja herbergja íbúð í kjallara, og hana litla. Engar kvensur Um næstu helgi leikur íslenska kvennalandsliðið tvo landsleiki við danska kvenna- landsliðið í handknattleik og er fyrri ieikurinn liður í und- ankeppni fyrir B-heimsmeist- arakeppnina sem halda á í Póllandi næsta haust. Til stóð að leika þennan fyrri leik á föstudagskvöld og skjóta hon- um inn á milli tveggja leikja í úrslitakeppni 1. deildar karla sem fara fram sama kvöld. Þetta var vegna þess að það er skemmtilegra að leika landsleiki frammi fyrir á- horfendum en þeir vilja verða fáir að kvennaleikjum. Þjálf- arar liðanna í f yrstu deildinni neituðu hins vegar alfarið að víkja til leiktímanum og mun þar hafa riðið á vaðið Bogdan Víkingsþjáifari. Ástæðan mun vera sú að hefði af þessu orðið hefðu leikmenn liðanna, sem leika áttu seinni lcikinn, fengið klukkutíma minni hvíld milli leikja en aörir, en leikið er aftur á laugardag. Það er hörð keppnin í handboltan- um. Hvað er að I Danaveldi? Það væri aldeilis munur að vera danskur bíleigandi. í Extrabladet fyrir páskana birtist grein undir fyrirsögn- inni: „Billig benzin i Pásk- i eu”. Þar segir frá því að bensínverð lækki um 10 aura lítrinn þann 30. mars og ekki nóg með það — Þetta var þriöja bensínlækkunin á ein- um mánuði! Það eru greinilega einhver tengsl milli dansks markaðar og heimsmarkaðar. En því er ekki fyrir að fara á tslandi. Hór kunna menn ekki nema eina verðbreytingu, upp! Hvernig væri með lögbann? Verðlagsstjóri hefur um nokkurt skeið beitt öllu skrif- stofuliði sínu tU þess aö efla styrjöld gegn Reykjavíkur- borg fyrir það eitt að vUja sjálf ráða taprekstri strætis- vagna sinna. Einnegin hefur hann verið með menn í dular- klæðum að kaupa fiskflök og kæra síðan fisksalann fyrir að taka sér ólöglega svo sem eins og tíu aura. Væri nú ekki ráð að verðlagsstjórinn { axlaði sin skinn og skoðaði j. verðlagsgrundvöU land- búnaðarins og léti skoðun sína í ljósi á því hvort rétt sé að taka upp einkasölu á eggj- um. Hvort það sé leiðin til þess að halda niðri verðlagi. Umsjón: Ólafur B. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Donald Sutherland skUar hlutverki sínu með miklum ágætum. Hann sést hér í einu atriði kvikmyndarinnar Eye of the Needle. r Tónabíó—Nálarauga: Ágætri sögu gerd góð skil Tónabíó, Nálarauga (Eye of the Needle): Stjórn: Richard Marquand. Handrit: Samkvœmt skóldsögu Ken Folletts „Eye of the Needle". Kvikmyndahandrit: Stanley Mann. Kvikmyndataka: Alan Hume. Aðalhlutverk: Donald Sutherland, Kate Nellig- an, Christopher Cazenove. Tónlist: Miklos Rosza. Framleiðandi: United Artists. Það hefur heldur farið í vöxt á síöasta áratug eða svo að skáldsögur þekktra spennusagnahöfunda séu notaðar viö handritsgerö kvik- mynda. Nægir þar að benda á marg- ar helstu skáldsögur Alisters nokkurs McLean. Ekki hefur þótt saka að bókin, sem ráðgert er að endurvinna í kvikmynd, hafi komist í tölu metsölubóka. Það aö tug- þúsundir hafi lesið hana hlýtur að vekja von kvikmyndaframleiöenda um aö annar eins fjöldi sjái kvik- myndagerð verksins. Þessi leið hefur sem sagt verið talin kjörinn gróðavegur. En hvaö um gæðin? Þaö verður aö segjast að misjafnlega hefur tekist að útfæra spennusögur reyfarahöfunda í kvik- mynd. Flestar þessara mynda hafa falliö í gryfju algjörrar meöal- mennsku, aörar dottiö enn neðar í viröingarstigann, enda telst það eng- inn hægðarleikur að vinna kvik- myndahandrit upp úr spennusögu sem margir hafa lesið og gert sér at- burði hennar í hugarlund. Það er einu sinni svo að bókmenntir og kvik- myndir eru tveir heldur ólíkir miðlar semerfitt er að tvinna saman. Kvikmyndagerð Nálaraugans, njósnasögu Ken Folletts, sem hér er til umfjöllunar, er að flestu leyti hafin yfir meðalmennsku. Svo er að sjá sem Stanley Mann hafi tekist bærilega að vinna kvikmyndahand- rit úr þessari ágætu spennusögu Folletts. Og ekki verður öðruvísi tekiö eftir en Richard Marand hafi auðnast aö leikstýra persónum sögunnar nokkuð til samræmis við það sem Follett gerði með stíl- vopninu. Fyrir þá sem ekki hafa lesið sögu Folletts, þá fjallar bók þessi um örlög Henry nokkurs Fabers, sem er starfsmaöur bresku jámbrautanna, þegar heimsstyrjöldin síöari brýst út. Þrátt fyrir vingjarnlegt útlit og aö því er virðist eðlilega enska háttu er hann ekki allur þar sem hann er séöur. Hann er nefnilega þýskur að uppruna en hefur einungis dvaliö í Englandi um nokkurra ára skeið. Þegar stríðiö skellur á tekur hann aö sér að njósna um breska herinn fyrir þjóö sína. Og sem slíkur er hann nasistum mjög mikilvægur þegar þeir hefja styrjöld sína. Eyöileggjandi væri fyrir þá sem ekki hafa séð kvikmyndina Nálar- auga aö fylgja söguþræðinum lengur eftir. Hann líður óhikaö áfram á hvíta tjaldinu. Ekki beint í mikilli spennu heldur taktfast og skipulega. Þannig er atburðarásin í heild sinni ' trúverðug og gæti sem slík hafa gerst í veruleikanum. Aldrei eru per- sónumar gerðar yfirnáttúrulegar að burðum og viti. Þær em aöeins mannlegar verur sem gegna sínum skyldum og tilfinningum. Donald Sutherland leikur hinn kaldrifjaða og óútreiknanlega njósnara virkilega vel. Túlkun hans er yfirveguð og ömgg, sérstaklega nær hann þeirri manngerð njósnara ; að vera hvort tveggja í senn hrotta- fenginn og tilfinninganæmur. Þá verður ekki annað sagt um leik annarra í myndinni en hann sé góður. Má þar sérstaklega geta Kate Nelligan sem leikur móthlutverk Sutherlands í myndinni. Hún skilar hlutverki sínu heilsteyptu. Loks er rétt að benda á samleik þessara tveggja leikara sem er prýðilegur í nær öllum atriðum. Erfitt er að finna sérstakt lýti á myndinni. Einna helst er það að sum atriði myndarinnar vilja gerast heldur langdregin, sumum þeirra mætti reyndar sleppa að ósekju því þó að þau hafi verið fyrir hendi í sögu FoUetts þá gefa þau atburðarás kvik- myndarinnar lítið sem ekkert gildi. Á þetta til dæmis við um lokaatriði myndarinnar. Þegar kvikmyndin er í raun búin er bætt viö stuttu velluatriði að því er virðist til þess eins að undirstrika „happy ending a 'la american stæl”. Slík atriði em ill- ' þolandi í lok vel uppbyggðrar sögu. -Sigmundur Erair Rúnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Félag Húsgagna- og innréttingaframleiðenda: Uppsagnir framundan „Málefnum íslensks tréiðnaðar er svo komið að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða nú þegar má búast við fjöldauppsögnum í iðngreininni og jafnvelstöðvun fyrirtækja.” Svosegir meðal annars í ályktun sem samþykkt var einróma á fundi hjá Félagi hús- gagna- og innréttingaframleiöenda nýlega. I ályktuninni segir ennfremur að á- stæðan fyrir þessu sé meðal annars óðaverðbólga og aðgerðarleysi stjóm- valda við að bæta samkeppnisaðstöðu innlendrar framleiðslu til jafns við er- lenda keppinauta eftir inngöngu okkar ÍEFTA. Skoraöi fundurinn á Alþingi og stjórnvöld að láta þessi mál til sín taka því efnahagsvandi þjóðarinnar veröi vart leystur nema með eflingu íslenskrar framleiðslu. -SþS. Ferðamálaráð: AGREININGUR UM NÝJA REGLUGERD „Það er ekkert launungarmál að innan Ferðamálaráðs eru skiptar skoöanir um ýmislegt í sambandi við þessa reglugerð og hvernig hún skuli framkvæmd,” segir Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs, er hann er spurður um afstöðu ráðsins til reglugerðar þeirrar sem samgöngu- ráðuneytið gaf út fyrir skömmu um eftirlit með hópferðum útlendinga hér- lendis. „Hins vegar vil ég ekki tjá mig nánar um smáatriði á þessu stigi málsins, ” segir Heimir. Hann lét þess þó getið að efnisatriöi reglugerðarinnar voru til umræðu við samgönguráðuneytið. Hann sagðist reikna með því að einhver niðurstaða fengist milli ráðuneytisins og Ferða- málaráðs um framkvæmd reglugerð- arinnar. „Eg tel þaö skyldu mína, sem formanns ráðsins, að sjá til að þessi mál, sem um ræðir, verði leyst,” segir Heimir. -SþS. Sveitarstjórn Laxárdalshrepps íDölum: Raforkuverð verði jaf nað Sveitarstjórn Laxárdaishrepps í Dölum hefur sent iðnaðarráöherra og þingmönnum Vesturlands bréf þar sem vakin er athygli á mismun orku- verðs eftir landshlutum og tekiö undir óskir um leiöir til úrbóta. Þar er bent á aö eölilegt sé að taka raforkukostnaö inn í dæmið um jöfnun framfærslukostnaöar þar eð hann sé svo stór hluti af heildarútgjöldum heimila og fyrirtækja. Sveitarstjómin telur að samfara niðurgreiðslu eða öðmm leiðum til jöfnunar orkuverðs, verði að fara fram ítarleg athugun á hvernig megi ná fram spamaði í framleiðslu og dreifingu á raforku. Ýmislegt bendi til aö orkukerfið sé allt of stórt og dýrt og því sé ýmiss konar spamaður hugsan- legur. Minnt er á það meginhlutverk stjóm- valda að sjá til þess að allir landsmenn búi við svipuð skilyröi og hafi jafna möguleika til framfærslu. Ef ekki verður bmgöist hart viö núverandi misrétti er fyrirsjáanleg veruleg byggðaröskun í landinu með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. -PÁ. Hagnaður hjá Eimskip 1982 — ífyrsta skipti á 5 árum Hagnaöur varð af rekstri Eimskipa- félags Islands árið 1982 í fyrsta sinn sl. fimm ár. Kom þetta fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var á dögunum. I ræðu Halldórs H. Jónssonar, stjórnarformanns félagsins, kom fram að hagnaðurinn af rekstri varð 7,9 milljónir króna en samt sem áður varð 12% samdráttur í flutningum félagsins miðaö við 1981. Stjórnarformaðurinn taldi batnandi afkomu félagsins mega rekja til mikilla flutninga og góðrar nýtingar á skipum f élagsins fyrri hluta ársins og áframhaldandi hagræðingar og endurskipulagningar á ýmsum þáttum í rekstri félagsins. I árslok 1982 rak Eimskip 21 skip. Þar af á félagið 16 skip en 5 hefur félagið á leigu. . -AS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.