Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983.
Ólafur Guttormsson er látinn. Hann
fæddist á Kársstöðum í Helgafellssveit
9. desember 1919, sonur Guttorms
Andréssonar og seinni konu hans
Guðrúnar Þorkelsdóttur. Olafur lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1940. Á stríðsárunum
var Olafur túlkur hjá Bretum og síðar
Bandaríkjamönnum en síðar hóf hann
samstarf viö föður sinn við húsateikn-
ingar allt þar til faöir hans lést árið ’
1958 en síðan í samvinnu við aðra.
Einnig starfaði Olafur í mörg ár á
teiknistofu borgarverkfræðings. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Helena Geirs-
dóttir Zoéga. Eignuðust þau þrjár
dætur. Utför Olafs var gerð frá Foss-
vogskapeilu í morgun kl. 10.30.
Arnór Kr. Diego Hjálmarsson, fyrrv.
yfirflugumferöarstjóri, lést 25. mars.
Hann fæddist í Reykjavík 30. mars
1922, sonur hjónanna Hjálmars Diego
Jónssonar og Friðgerðar Sigurðar-
dóttur. Á stríösárunum var Arnór viö
nám og störf hjá breska flughernum,
RAF. Jafnframt því lauk hann prófi
frá Loftskeytaskólanum, einnig sótti
hann framhaldsnám í flugumferðar-
stjórn í Bandaríkjunum. Áriö 1955 tók
Arnór við störfum yfirflugumferöar-
stjóra flugstjórnarmiðstöðvar og flug-
tums í Reykjavík. Arnór var einn af
forystumönnum Kiwanis-hreyfingar-
innar hér á landi og annar forseti
klúbbsins Heklu. Hann gerðist einnig
félagi í Oddfellow-félagsskapnum.
Eftirlifandi eiginkona hans er Guð-
finna Vilhjálmsdóttir. Þau eignuöust
sjö böm. Otför Amórs verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Rannveig Sigurbjörasdóttir, lést 1.
apríl í Sjúkrahúsi Suöurlands.
Ragnheiður Guðjónsdóttir, Fornhaga
23, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 7. apríl kl. 15.
Elisabet Kristjánsdóttir lést í Borgar-
spítalanum þriöjudaginn 5. apríl.
Ástríður Eggertsdóttir, Nýlendugötu
19, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 8. apríl kl. 13.30.
Sigriður Jóhannsdóttir frá Arnarhóli,,
Vestur-Landeyjum, Háagerði 13, sem
andaöist 29. mars, verður jarðsungin'
frá Akureyjarkirkju í Vestur-Landeyj-
um föstudaginn 8. apríl kl. 14. Ferð
verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.
Ingibjörg Larsen (fædd Guðmunds-
dóttir) frá Akranesi lést að heimili sínu
í Kaupmannahöfn 4. apríl.
Hjalti Ingvarsson, Reykjahlið Skeið-
um, verður jarðsunginn frá Olafsvalla-
kirkju laugardaginn 9. apríl kl. 14.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 12.30.
Sigurmundur Gíslason, fyrrv. deildar-
stjóri, lést 29. mars. Hann fæddist 22.
febrúar 1913, sonur Gísla Guðmunds-
sonar og konu hans, Guðrúnar Einars-
dóttur. Sigurmundur lauk kennara-
prófi frá Kennaraskóla Islands vorið
1933. Sama vor hóf Sigurmundur störf
við Tollgæsluna í Reykjavík. Sigur-
mundur gerðist yfirmaður tollaf-
greiðslu í pósti. Um áratugi stjórnaði
hann þeirri deild Tollgæslunnar. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Sæunn
Friöjónsdóttir. Þau hjónin eignuðust
þrjú börn. Utför Sigurmundar verður
gerö frá Háteigskirkju í dag kl. 13.30.
Lovísa Edvardsdóttir lést 26. mars.
Hún fæddist á Hellissandi 29. maí 1913.
Foreldrar hennar voru hjónin Edvard
Einarsson og Stefanía Kristjánsdóttir.
Lovísa giftist ung Oliver Guðmunds-
syni, þau áttu saman tvö börn. Þau
slitu samvistum. Síðari maður Lovísu
var Guðmundur Finnbogason. Þau
eignuðust saman fjögur börn, þar af
dóu tvö í fæðingu. Guðmundur og Lov-
ísa slitu samvistum fyrir allmörgum
árum. Utför Lovísu verður gerö frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 14.
BETRI LEIÐIR
BJÓÐAST:
Nýtt lánakeríi
fyrir launafólk.
Afborganir fari
ekki fram úr
launaþróun.
Viðbótarlán til
húsnœðismála.
Alþýðuflokkurinn
Andlát
'VIDEO'
&
OPIO ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
KVIKMYNDAMARKAOURINN VIDEOKLUBBURINN
SKöiavörOustig 19 Rvík. StóftwWI.
S. IStaO. S. 35460.
Kirkjuvegi 19 Vestm.
í Vestmeyjum er opið kl. 14—20 en um helgar kl. 14—18.
.VIDEO,
í gærkvöldi _____I gærkvöldi
Nýju brúðumyndimar vöktu
mikla hrifningu
Er nauðsynlegt að leika alltaf
sama pípiö í útvarpi þegar gert er
hlé í eina mínútu, samanber hlé það
sem gert var á undan kvöldfréttum?
Hvemig væri að leika stutt brot úr
góðu lagi? En það fór sem oftar
þannig á mínu heimili í gærkvöldi að
einungis var hlýtt á sjónvarp þegar
útsending þaðan stóð yfir.
Verö ég að segja að mjög varð
mér hlýtt hugsað til þeirra semstóöu
fyrir því að fá stórfínar teiknimynda-
seríur til sýningar í sjónvarpi. Það er
langt síðan slíku hefur verið hrint í
framkvæmd. Daglegt líf í Dúfubæ og
þó einkum Palli póstur lofa góðu.
Hvern þátt mætti gjarnan endursýna
á laugardögum eða sunnudögum.
Víða sátu böm límd við skjáinn fast-
ar en nokkur Dallasaödáandi um
leið og foreldrarnir dáðust að því
hvað þau áttu stillt og „fróðleiksfús”
böm.
Að vanda var margar skemmti-
legar ný jungar aö sjá í þættinum Nýj-
asta tækni og vísindi. Eitt hjól fyrir
hjón sem ætla að skilja. Þau geta set-
iö á hjólinu, snúið bökum saman og
hjólað hvort í sína átt. Það er ekki öll
vitleysaneins!
Þættirnir um mannkynið hafa
heldur betur vakiö menn til umhugs-
unar. Þar er gerður skemmtilegur
samanburður á ólíkum lifnaðarhátt-
um. Allar eru þarfir mannsins þær
sömu, þó að þeir túlki þær á mis jafna
vegu. Að mínu mati voru þættirnir í
heildmjöggóðir.
Að loknu auglýsingaflóði, sem
einkum höföaði til kvenfólks, þar
sem snyrtivömr voru kynntar í griö
og erg, birtist sjálfur J.R. á skján-
um, þar sem hann hefur beöið á
skurðarborðinu frá því í síðustu viku.
Nú er það góði drengurinn hann
Bobby sem fær að taka ákvarðanir.
Ég sakna þess að sjá ekki fleiri
landslagsmyndir í dagskrárlok sjón-
varps, það var gaman að geta sér til
um hvaðan þær vom. Svo er það
spurning til útvarpsmanna í lokin.
Hvers vegna er útsending á tali oft-
ast mun lægri en á tónlist? Oft em
samtalsþættir eöa frásagnir og brot
úr lagi leikið öðru hvom. Þá þurfa
menn aö sitja við hljóðvörpin tilbúnir
að lækka tónlistina en hækka síðan
talið þegar það byr jar aftur og er þaö
miður.
Ragnhildur Ragnarsdóttir.
Fundir
Kvenfélag
Laugarnessóknar
Afmæiisfundur félagsins veröur haldinn aö
Hótel Esju, II. hæö, fimmtudaginn 7. apríl kl.
19.30.
MS félag íslands
heldur aöalfund í Hátúni 12, II. hæö, fimmtu-
daginn 7. apríl kl. 20.00. Venjuleg aðalfundar-
störf, lagabreytingar og önnur mál.
Félag íslenskra
rithöfunda
Fundur til skemmtunar veröur haidinn í FlR
aö Hótel Esju, Skálafelli 9. hæö, sunnudaginn
10. apríl 1983 kl. 14. Eftirtaldir höfundar lesa
úr verkum sínum: Hilmar Jónsson, Sigurður
Guömundsson, Jón Oskar, Stefán Ágúst
Kristjánsson, Jón Thorarensen, Steingrímur
Sigurösson, Kári Tryggvason, Ævar R.
Kvaran.
Félagar, fjölmenniö og takið með ykkur
gesti — og mætið stundvíslega.
Kjörfundur JC
Hafnarfjarðar
Kjörfundur JC Hafnarfjarðar veröur haldinn
í veitingahúsinu Gaflinum Dalshrauni 5, í
kvöld fimmtudaginn 7. apríl, kl. 19.30. Gestir
fundarins veröa frambjóöendur til embætta
varalandsforseta J C hreyfingarinnar.
Fundur
Frá upplausn til ábyrgðar — betra mannlíf
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík halda
almennan hádegisverðarfund um fjölskyldu-
mál laugardaginn 9. apríl kl. 12—14 í Valhöll
við Háaleitisbraut. Framsögumenn: Sveinn
Jónsson viðskiptafræðingur, Birgir Isleifur
Gunnarsson alþingismaður, Elin Pálmadóttir
blaðamaður og Helga Hannesdóttir læknir.
Fundarstjóri, Björg Einarsdóttir skrifstofu-
maður. Léttur málsverður verður á boðstól-
um, barnagæsla og myndbönd fyrir börnin
meðan á fundi stendur. Allir velkomnir.
Heimdallur, Hvöt, Úðinn og Vörður.
Kosningarfundur hjá
Menntaskólanum við
Hamrahlíð
Kosningarfundur í tveim umferðum verður í
kvöld fimmtudagskvöld kl. 20.30. Framsögu-
menn verða Bjami Guðmundsson frá Alþýðu-
flokknum, Haraldur Olafsson frá Framsókn,
Vilmundur Gylfason frá Bandalagi jafnaðar-
manna, Friðrik Sophusson frá Sjálfstæðis-
flokknum, Olafur R. Grímsson frá Alþýðu-
bandalaginu, Ingibjörg Hafstað og Elín G.
Ölafsdóttir frá Kvennalistanum. Allir vel-
komnir á fundinn.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í félagsheimili
kirkjunnar fimmtudaginn 7. apríl ki. 20.30.
Dagskrá verður fjölbreytt: Einsöngur, Val-
gerður Jóna Gunnarsdóttir, frásöguþáttur og
nýjar litskyggnur frá starfi móöur Theresu í
Kalkútta, kaffi og hugvekja sem séra Karl
Sigurbjörnsson flytur. Fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Kvenfélag
Laugarnessóknar
Afmælisfundur félagsins veröur haldinn aö
Hótel Esju II. hæö í kvöld, fimmtudaginn 7.
apríl, kl. 19.30.
Kvæðamannafélagið
Iðunn
heldur fund á Hallveigarstöðum laugardag-
inn 9. april kl. 16.00. Athugiö breyttan fundar-
tíma.
Happdrætti
Happdrætti IOGT
Dregið hefur verið í happdrætti IOGT til efl-
ingar barnastarfi. Eftirtalin númer hiutu
vinning:
Skíðaferð fyrir tvo að eigin vali að verðmæti
kr. 27.000,-nr. 4576
18 vinningar skíðabúnaður á kr. 3000,- hver
nr. 143, 439, 522, 3544, 3890, 4574, 5552, 7322,
8496, 9199, 9344, 9510, 9674, 12090, 12339, 13187,
13269,13652,
Tilkynningar
Allir á bomsum sýnt
í Mosfellssveit í kvöld
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir nýju íslensku
revíuna, Allir á bomsum (nema einn!), í Hlé-
garöi klukkan 21. í kvöld og síðan laugardags-
og sunnudaeskvöld á sama tíma. Leikstjóri er
Guöný Haíldórsdóttir. Miöapantanir eru í
simum 66195 og 67150.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudagmn 10. apríl
1. kl. 9. Gengið á skíöum frá Hvalfirði og yfir
Kjöl. Verð kr. 200.-
2. kl. 13. Eyrarfjall (460 m) létt ganga. Verð
kr. 200,-
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn i
fylgdfullorðinna.
Ferðafélag Islands
Tónleikar í
Flensborgarskóla
í Hafnarfirði
föstudaginn 8. apríl. Fram koma hljómsveit-
irnar Haugur, Filharmóníusveitin og Agnes
og útvarpið. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og að-
gangseyri er mjög stillt í hóf eða kr. 50.
Tónleikar í
Keflavík
Sinfóníuhljómsveit Islands heldur tónleika í
íþróttahúsinu í Keflavík í kvöld, fimmtudag 7.
april, og hef jast þeir kl. 20.30.
Efnisskráin verður sem hér segir: Rossini:
forleikur að óp. Rakaranum í Sevilla,
Vieuxtemps: Ballaða og pólonesa, Mascagni:
Intermezzó úr óp. L’Amico Fritz, Puccini:
Aría úr óp. Gianni Schicchi, Puccini: Aría úr
óp. La Boheme, Joh. Strauss: Forleikur að
óperettunni Sígaunabaróninum, Ámi
Thorsteinsson: Vorgyðjan kemur, Josef
Strauss: Dynamiden, vals, Lehar: Söngur úr
óperettunni Kátu ekkjunni, Joh. Strauss:
Donner und Blitz.
Stjórnandi tónleikanna verður Páil P.
Pálsson, einsöngvari Olöf K. Harðardóttir í
forföllum Sieglinde Kahmann en einleikari á
fiðlu veröur Unnur Pálsdóttir. Unnur tók
burtfararpróf frá Tónlistarskólanum í Kefla-
vík vorið 1980 og hefur stundað framhalds-
nám í Belgíu síðan og iýkur þar námi að ári.
Afmæli
85 ára er í dag Þorgils Guðmundsson,
áöur til heimilis að Hafnargötu 123
Bolungarvík, nú vistmaöur í sjúkra-
skýlinu í Bolungarvík.
Alusuisse:
GETUR SAM-
ÞYKKT HÆKKUN
Alusuisse, eigandi álversins í
Straumsvík, getur samþykkt hækkun
orkuverðs til Isals náist heildar-
samningar um samskipti viö stjórn-
völd og framtíðarstööu fyrirtæksins.
Frá þessu var skýrt í blaðinu í gær.
I fyrirsögn þeirrar fréttar var skotiö
inn orði í prófarkalestri, sem breytti
merkingu fyrirsagnarinnar á þann veg
aö Alusuisse heföi samþykkt orku-
veröshækkun.
Talsmenn Alusuisse hafa marg-
sinnis lýst því yfir aö þeir vilji setjast
aö samningaborði með íslenskum
stjórnvöldum. Þeir hafa á hinn bóginn
haldið því fram aö ásakanir og
einhliða kröfur iðnaöarráöherra séu
ekki tilefni til samningaviðræöna milli
aðila á jafnréttisgrundvelli.
-HERB.
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra:
Ekki dreifingarstöð
nema með reglugerð
— málið til athugunar í ráðuneytinu
„Nei, þaö þarf reglugerð til aö þetta
heildsöluleyfi taki gildi,” sagöi Pálmi
Jónsson landbúnaöarráðherra í
morgun þegar hann var spurður um
hvort veiting Framleiösluráös land-
búnaöarins á heildsöluleyfi á eggjum
til framkvæmdanefndar Sambands
eggjaframleiöenda væri endanleg.
Ráöherrann sagði aö menn væru hér
aö tala um dreifingarstöö þar sem
eggin væru heilbrigðisskoöuö, geymd
og stimpluð, síðan fari þau yfir í smá-
söluna. Framkvæmdanefndin hefði
fengið meömæli framleiösluráös til aö
koma þessari dreifingarstöö upp.
„Máliö er til athugunar í ráöu-
neytinu,” sagði Pálmi, „og ekkert
meira um þaö aö segja á þessu stigi.”
-JBH.