Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 39
DV1FIMMTUDAGUR 7. APRÍL1983. 39 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL „Hvaltönn er eins og lifandi skepna — og hún verðurað fá ráðrúm til að deyja, segir hagíeiksmaðurinn Hjörtur Guðmundsson Norrænir menn skáru út í tré til f orna svo snilldarlega aö ekki hafa aör- ir eftir leikiö og jöröin hefur skilað okk- ur seinni tíma mönnum ótölulegum fjölda slíkra dýrgripa. Þá voru margir afburöahagir á járn, gull og silfur en þess mun óvíða getiö aö menn hafi skorið út í hvaltennur; þó mun ög-' mundur biskup Pálsson hafa látiö skuröhaga menn gera sér lúöra úr rostungstönnum en ekki kann ég fleiri dæmi úr sögunni um smíöisgripi úr þessum einstaklega fallega efnivið. Fyrir einum átta árum réöst Hjörtur Guðmundsson til matreiöslu á hval- veiöibátum og gegndi þeim starfa í fimm sumur. Safnaöi hann þá hval- tönnum og fór aö dunda viö aö skera þær til og uppgötvaöi fljótt aö þarna var viðfangsefni sem útheimti mikla elju og þolinmæöi, en veitti jafnframt snjöllum mönnum ríkulega í aðra hönd ef rétt var aö verki staðið. Frumstæðar aðferðir og skemmti/egar „Ég var því vanastur aö skera í tré,” sagði Hjörtur, „og þetta voru voðaleg viðbrigði, eins og nærri má geta, því aö hvaltönnin er svo miklu haröara efni og fer í hana meiri vinna og lengri tími. En ég var meö messastráka til þess aö annast uppvaskiö svo aö ég fékk oft stund og stund á milli máltíða og var Lýsandi viti, unninn ur fiiabeini norðursins. þá aö skera þetta inni á herbergi, ýmsa muni sem strákamir um borð báöu mig aö gera, svo sem íþróttamerki og annaö smálegt.” — Hvaöa verkfæri gastu notað? „Ég notaði þá eingöngu þjalir og svo fínt sporjám til aö pikka meö og snyrta. Þetta vom mjög frumstæðar aðferðir en þaö var líka hálfu skemmtilegra aö vinna þetta fyrir vik- iö.” — En er ekki hægt að nota renni- bekkinn þann arna til þess aö slípa og pússa? „Þaö er nú varasamt því aö efnið er svo geysilega hart og hreinlega splundrast í rennibekknum. En ég nota hann til þess að bora tönnina aö innan þegar ég er aö búa til tóbaksbauka. Mér finnst gaman að búa til bauka — það em þess háttar munir sem eru aö hverfa smám saman úr daglegri notk- un og mönnum finnst til um aö eiga slíkarmenjarfyrri lífshátta.” tekur hana heilt ár aö ryðja sig og okkur mennina — hár og skegg heldur deyja. Fyrir þann tíma þýöir ekki að áfram að vaxa í viku eða lengur eftir smíða úr henni. Þetta er eins og meö aðviödeyjum.” Tönnin lifir! — Hvaö ertu lengi aö klára einn bauk? „Svona vikutíma, allt eftir því hvernig stundir gefast til aö sinna hon- um. En þaö er mikilvægt aö leyfa tönn- inni aö eldast áöur en maður fer að vinna meö hana. Einu sinni var ég bú- inn aö smíöa rosalega fallegan bauk — en, BANG!, einn daginn heyröi ég háan hvell og þar lá hann, sundur- sprunginn og gerónýtur.” — Hvaö er æskilegt að tönnin sé orö- in gömul þegar maöur fer aö vinna hana? „Minnsta kosti ársgömul. Hvaltönn er nánast eins og lifandi skepna og þaö Myndir BH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.