Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1983, Page 40
40 DV. FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið lega. Höfuðandstæðingur hans, brennivínið, sá þó við honum og brá honum i lokin. Það þarf sterk bein til að þola góða daga. Velgengni„litla fuglsins"sté honum til höfuðs. En það var á fleiri sviðum en i knattspyrnunni sem hann lét til sin taka. Hann eign- aðist nitján börn. NÆR ÚTI- LOKAÐ ÞÓTTI AÐ HEMJA Umkringdur blómum lá hann á likbörum i Rio de Janeiro, þar sem þúsundir knattspyrnuáhugamanna syrgðu hann. „LITLA FUGLINN” brennivínið gerði það þóaðlokum „Mér er fyrirskipað af lífvörðum mínum að hreyfa mig sem mest á sviðinu,” segir Barbra Streisand. Margir af frægustu Hollywoodurum lifa nú í ótta við árásarmenn og mann- ræningja. Einn þeirra er söngkonan kunna Barbra Streisand. Hún segir um þessi mál: „Þegar ég er á konsert, er mér fyrirskipað af lifvörðunum mínum að halda áfram aö hreyfa mig á sviðinu ef uppkoma einhveróvænthlé. Með þessu segja þeir að bandóðir byssumenn, sem gætu leynst á meðal áhorfenda, eigi miklu ver með að hitta mig.” Goidie Hawn: „Og hann hringir jafnt' að degi sem nóttu. Rödd hans er agaleg.. Leikarar í Hollywood Og Barbra hef ur ekki lokiö máli sínu. „Það er varla til sá leikari í Hollywood sem ekki er plagaður af hræðslu um að fá upphringingar frá morðingjum eöa snarvitlausum mönnum, sem eru til í að láta til skarar skríða.” Goldie Hawn lifir einnig í ótta. „Mér bregður alltaf jafnmikið þegar einhver hringir óvænt í mig,” segir Goldie. „Málið er nefnilega það að ákveðinn maður hefur hringt í mig nokkuð lengi. Og það er sama þó að ég skipti um númer, hann grefur þau alltaf upp. Og Leikarinn Larry Hagman lifir í ótta við að einhver vilji drepa JR. Hann gengur því um í skotheldu vesti. hann hringir jafnt aö degi seni nóttu. Rödd hans er agaleg, nánast eins og hjá djöflinum sjálfum. Hann segir alltaf það sama: „Ég vil þig. Eg ætla að drepa þig.” Dallasmaðurinn frægi, Larry Hagman, sjálfur JR, gengur alltaf um í skotheldu vesti. „Imynd min í Dallas- þáttunum er þannig að margir vilja hana feiga þó að ég viti auðvitaö aö allir sjá að ég er að leika. En það er aldrei að vita til hvers fólk getur gripið og því geng ég í vestinu. Ég verð að verjamig.” „Garrincha, Garrincha,” hrópuðu aðdáendurnir. Þeir gátu aldrei leynt hrifningunni á knattspyrnustjörn- imni sinni. Og þeir Ieyfðu sér líka aö láta gleði sína í ljós. Hans rétta nafn var Manuel Francisco dos Santos. Auk Garrincha- nafnsins var hann einnig kallaður litli fuglinn. Hann gat alls staðar smogiö í gegn hjá andstæðingum sínum á knattspyrnuvellinum, og nær útilokað þótti að hemja hann. Að lokum var hann þó haminn. Það gerði maðurinn með ljáinn. Garrincha fæddist í Brasilíu og það var auðvitaö fyrir það land sem hann spilaði knattspyrnu. Heimsmeistari varð hann í íþróttinni 1958 og 1962. Þegar hann lést í janúar síðast- liönum var hann 49 ára að aldri. Dánarorsökin var drykkjuskapur. Þessum fyrrum knattspyrnusnillingi þótti ávallt sopinn góður, eins og sagt er, og það kom honum jú líka í koll. Leikni hans á knattspyrnuvell- inum þótti með ólikindum. Annar fótur hans var 4 sentímetrum styttri en hinn. Og þá var Garrincha hjól- beinóttur með afbrigðum. Þetta hafði samt engin áhrif, slíkir voru hæfileikar hans. Sem barn var Garrincha áhrifa- gjarn. Sagt er að vinum hans hafi gengið auðveldlega að fá hann í hin og þessi lætin. Garrincha var alltaf tu. En það var á fleiri sviðum en knattspymunni sem litli fuglinn lét til sín taka. Nítján börn skildi hann eftir sig. Það tiunda eignaðist hann níu mánuðum eftir heimsmeistara- keppnina í Stokkhólmi, með söng- konu á næturklúbbi. Áður en yfir lauk var eiginkonan farin og flaskan fékk sífellt meiri sess. Síðustu árin liföi hann í lok- uðum heimi. Hann átti ætíð mikið af vinum og sumir þeirra réttu honum hjálpar- hönd á siöustu árum með því að taka hann að sér. En honum tókst ekki að sigrast á flöskunni og því fór sem fór. Hann lést á sjúkrahúsi í Rio de Janeiro og flestir sem muna hann sem stjörnu syrgja hann enn. „Það er slokknaö á einni stjörnu,” segja þeir i sorg sinni. Lifa í stöðugum ótta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.