Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Blaðsíða 4
22 DV. FÖSTUDAGUR 22. APRIL1983. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið sunnudaga og miðvikudaga frá kl. 13.30-16.00. KJARVALSTAÐIR VIÐ MOCLATÚN: Þar standa nú yflr f jórar sýnlngar i Austur-forsal sýnir franski ljðsmyndarinn Ives Petron. Hann sýnir 55 ljósmyndir sem fjalla um eigin hugmyndir. Ives Petron kom hingað til lands um páskana og kenndi ásamt aðstoðar- manni sínum ljósmyndatækni og hélt fyrir- lestur um videotækni við Myndlista- og hand- íðaskóla Islands. Sýningin verður opin til 1. maí. I Austursal sýnir Guðmundur Björgvins- son akrílmálverk. Um sextíu verk eru á sýn- ingunni og skiptast þau í þrjá hluta. I fyrsta hlutanum er rennt í gegnum listasöguna, í öðrum eru raunsæjar myndir og þriðji hlutinn samanstendur af myndum sem málaðar eru frjálslega eða expressioniskarmyndir. I Vestur-forsal sýnir Þorbjörg Pálsdóttir höggmyndir, eru flestar þeirra unnar síðast- liðin tvö ár og eru þetta alit bamamyndir að undanskilinni einni ófrískri konu. Þetta er þriðja einkasýning Þorbjargar og hefur hún tekið þátt í mörgum samsýningum. Þorbjörg stundaði myndlistamám bæði í Stokkhólmi og hér heima. Sýningin veröur opin daglega frá kl. 14—22 og er aðgangur ókeypis. I tengslum við sýninguna hefur verið gefin út bók um höggmyndir hennar og verður hún til sölu á sýningunni. I Vestursal sýnir Vilhjálmur Bergsson mál- verk. NÝLISTASAFNH) VATNSTÍG 3B. Þar stendur yfir sýning á verkum Guðbrands Harðarsonar. Opið er virka daga frá kl. 16—20 en um helgar frá kl. 14—20. Sýningunni lýkur 24. apríi. LISTMUNAHÚSIÐ: Ágúst Petersen sýnir portret og mannamyndir og eru 72 myndir á sýningunni og er hiub myndanna tii sölu. Sýn- ingin er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 10—18 og laugardaga og sunnudaga frá kL 14—18. Sýningunni lýkur 1. maí LISTASAFN ÍSLANDS VIÐ SUÐURGÖTU: Þar stendur yfir sýning er nefnist Höggmynd- ir-ljósmyndir. Em það myndir eftir Ásmund Sveinsson, Einar Jónsson og Sigrún Ölafs- son. Ljósmyndirnar tók Bandaríkjamaðurinn David Finn. Sýningin verður opin alla virka daga fram að mánaðamótum frá kl. 13.30— 18.00 og um helgar f rá kl. 13.30—22.00. Frá 1— 15. maí verður opið þriðjudaga og fimmtu- daga frá kl. 13.30—16.00 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30—18.00. GALLERl LANGBRÓK: Á morgun, laugar- dag, opnar Brynhildur Þorgeirsdóttir sýningu á glerskúlptúr. Sýningin stendur til 6. maí og er opin virka daga frá kl. 12—18 og laugar- daga f rá kl. 14—18. Lokað sunnudaga. ÁSMUNDARSALUR VIÐ FREYJUGÖTU: engin sýning um þessa helgi. GALLERY LÆKJARTORG: Á morgun, laugardaginn 16. apríl klukkan 15.00, verður opnuð í Gallery Lækjartorgi samsýning á vegum SATT — Sambands alþýðutónskálda og tónlistarmanna. Fjöldi myndlistarmanna á þátt í sýningunni en sýningin er haldin til styrktar SATT og rennur helmingur andvirðis seldra mynda til kaupa SATT á húsnæðinu Vitastíg 3 undir starfsemi félagsins. Sýningin verður mjög fjölbreytt og samanstendur hún af grafíkmyndum, teikningum, olíumálverk- um, vatnslitamyndum, pennateikningum o.fi. I tilefni sýningarinnar verður gefin út eftir- mynd af málverki Jóhanns G. Jóhannssonar sem málað var 1971 og tileinkað hljómsveit- inni Cream. Seld eintök verða tölusett og árituö á sýningunni en síðar verður dregið úr númerum seldra mynda og í vinning verður málverk eftir einn þeirra myndhstarmanna sem þátt taka í sýningunni Þeir sem óska eftir eintaki í póstkröfu geta hringt í síma 15310 og pantað eintak. Ágóði seldra mynda rennurtilSATT. I heild verður fyrirkomulag sýningarinnar með þeim hætti að í stað seldra mynda verða hengdar upp nýjar myndir jafnóðum, en boðið er upp á hagstæða greiðsluskilmála; við stað- greiðslu 10% afsl. og afborgunarskilmála frá þrem til sex mánuðum án aukakostnaðar fyrir kaupanda. Sýningin stendur til 1. maí og veröur opið daglega frá kl. 14—18, nema fimmtud. og sunnud. frá kl. 14—22. Fríkirkjuvegi 11 Dagana 16.-23. apríl 1983, heldur Ketill Larsen málverkasýningu að Fríkirkjuvegi 11. Sýninguna nefnir hann „Ljós frá öðrum heimi”. Þetta er 14. einkasýning Ketils. Á sýningunni eru um 45 myndir. Þær eru ýmist málaðar í oliu- eða akríllitum. Einnig eru nokkrar teikningar. Á sýningunni verður leik- in tónlist eftir Ketil af segulbandi, til að undir- strika blæbrigði myndanna. Sýningin verður opin alla dagana frá kl. 14—22. Gallerí Austurstræti 8 Myndlistarmaðurinn Haukur Friðþjófsson, fæddur 15.08. ’57, opnar sýningu á verkum sín- um í Gallerí Austurstræti 8 um helgina og stendur hún í 2 vikur. Haukur hefur stundaö nám við Myndlista- og handíðaskóla Islands og hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Núna sýnir hann 2 máluð myndverk og er þá kannski rétt að geta þess að Gallerí Aust- urstræti 8 samanstendur af 2 bíóauglýsinga- kössum utan á húseigninni númer 8 við Aust- urstræti og er sýningin opin öllum þeim sem leið eiga hjá. SAM 83 — listsýning félagsmanna Hamragarða Laugardaginn 16. apríl kl. 14.00 verður opnuð í Hamragörðum, Hávallagötu 24, listsýning 35 félagsmanna í aðildarfélögum Hamragaröa, en það eru starfsmannafélög samvinnufyrir- tækjanna í Reykjavík og Nemendasamband Samvinnuskólans. Alls eru 86 verk á sýningunni og er þar um að ræða olíumyndir, vatnslitamyndir, grafík, akrílmyndir, teikningar, tréskurð, hluti gerða úr stáli og beini, koparstungu og fleira. Hluti verkanna er til sölu. Sýningin verður opin frá 16. apríl til 1. maí og opin daglega frá kl. 16.00 — 20.00 virka daga og um helgar og sumardaginn fyrsta kl. 14.00-22.00. Flestir sem taka þátt í þessari sýningu, sem heitir — SAM 83, hafa ekki sýnt verk sín opinberlega áður, en hér er um tómstunda- verk f ólks að ræða. Kvikmyndir Sovésk-finnsk kvikmynd í MÍR-salnum Nk. sunnudag, 24. apríl kl. 16, verður kvik- myndin Trúnaður frá árinu 1977 sýnd í MtR- salnum, Lindargötu 48. Mynd þessi er gerð í samvinnu finnskra og sovéskra kvikmynda- gerðarmanna. Leikstjóri er Viktor Tregúbovits en með aðalhlutverkin fara: Kir- ill Lavrov, sem leikur Lenin, Margarita Térekhova, Irina Miroshnitsenko og Viljo Sli- vola. Myndin greinir frá atburðum sem gerðust í lok ársins 1917. 1 kjölfar Októberbyltingar- innar og með valdatöku bolsévíka í Rúss- landi, Lenins og samstarfsmanna hans, fengu Finnar fyrirheit um fullt sjálfstæði, en Finn- land hafði verið undir rússnesku keisarakrún- unni frá árinu 1803. Finnska þingið sendi Swinhuvud forsætisráð- herra til Rússlands með bréf þar sem óskað var eftir formlegri fullveldisviðurkenningu, en sá galli var á þessu bréfi að það var stílað til ríkisstjórnar Rússlands en ekki æðstu stjórnar sovétlýðveldisins, Sovnarkom. Af þessum sökum var ekki tekið við bréfinu og formaður finnsku sendinefndarinnar beðinn um að endursemja það. En þá komst finnska sendinefndin í vanda, því að formleg beiðni finnska þingsins til Sovnarkom yrði túlkuð sem viðurkenning á Ráðstjórninni. Swin- huvud hikaði því. I Sovnarkom mælti Lenin fyrir tillögu um full- veldi til handa Finnlandi en mótmælaraddir heyrðust einnig. Lenin flutti rök sín í málinu, honum var ljóst að þessi ákvörðun myndi varöa miklu um framtíð heillar þjóðar. Áður en sýningin ó kvikmyndinni hefst flytur Mikhaíl Dedjúrín sendifulltrúi stutt ávarp á ensku í tilefni afmælisdags Lenins, 22. april. Aðgangur að MlR-salnum er ókeypis og öllum heimill. W

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.