Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 22. APRIL1983.
Tilkynningar
\
Finnsk vika —
finnsk menning
í Norræna húsinu
Fyrirlestrar og tónleikar.
1 sambandi viö finnsku vikuna, sem haldin
verður í Reykjavík 25.-30. apríl, koma þrír
góöir gestir í heimsókn til Norræna hússins
frá Finnlandi. Það eru þau Matti Tuloisela
söngvari, Gustav Djupsjöbacka píanóleikari
og Barbara Helsingius vísnasöngvari.
Laugardaginn 23. aprii kl. 13 heldur Matti
Tuloisela fyrirlestur og talar um helstu söng-
verk Finna og tónskáld og kl. 15 talar Gustav
Djupsjöbacka um finnska óperu. Flutt veröa
tóndæmi á snældum meö fyrirlestrunum, sem
eru á sænsku.
Sunnudaginn 24. april kl. 20.30 halda þeir
tónleika í Norræna húsinu. A efnisskránni eru
sönglög eftir Sibelius, Kilpinen, Palmgren og
Kuula.
Mánudaginn 25. apríl kl. 21 verða vísna-
tónleikar í Norræna húsinu. Finnska vísna-
söngkonan Barbara Helsingius syngur eigin
lögogljóö.
Aögöngumiöar á 100 kr. veröa seldir í bóka-
safni og viö innganginn.
Merkjasala og kökubasar á
kjördaginn í Seljahverfi
Byggingaframkvæmdir við kirkjumiöstöðina
í Seljahverfi eru um þaö bil aö hefjast. Mikill
áhugi er í þessu yngsta hverfi Reykjavíkur að.
koma upp húsnæði fyrir hiö blómlega safnað-
arstarf. Reiknað er með að framkvæmdir viö
kirkjubyggingarnar fari af staö snemma í
júnímánuöi og í sumar er stefnt aö því aö
ljúka öilum sökkulframkvæmdum. Verið er
þessa dagana að ganga frá verkfræðiteikning-
um og ráðningu meistara viö verkiö en vilji
framkvæmdaraðila er að sóknarfólk geti sem
mest lagt fram krafta sína og aðra aöstoð við
verkið. Margir hafa þai'gefið góðar gjafir eða
fyrirheit um þær. Formaður kirkjubygg-
ingarnefndar Seljasóknar er sr. Valgeir Ást-
ráösson en formaður fjáröflunarnefndar er
Jón Stefán Ragnarsson.
Fjáröflun er nú að fara af stað. Á kjördag
munu konur úr Kvenfélagi Seljasóknar bjóða
merki viö kjördyr í ölduselsskóla en einmitt í
þeim skóla fara almennar guðsþjónustur
safnaöarins fram nú. Merkið er hannað af
Erni Þorsteinssyni myndlistarmanni sem bú-
settur er í hverfinu. Allur ágóði af sölu merkj-
anna mun renna óskiptur til kirkjubyggingar-
sjóðs Seljasóknar. Þá munu konurnar einnig
hafa kökubasar í safnaðarsalnum Tindaseli 3
KVENNALISTINN
KJÓSENDUR OG STUÐNINGSFÓLK KVENNALISTANS:
Opið hús á kjördag, 23.04., á Hverfisgötu 50,3. hæð frá kl. 9 f.h. og frameftir. Rjúkandi kaffi á könnunni, gosdrykkir og nýbökuð brauð og kökur.
VERUM SAMAN - TÖLUM SAMAN - GLEÐJUMST SAMAN
Kvennalistinn í Reykjavík. Símar: 13725, 24430 og 17730.
Kosningaskrifstofur Sjálf- stæðisflokksins i Reykja- neskjördæmi á kjördag:
KJÓSARHREPPUR: FeNi <91)67010
KJALARNESHREPPUR: Brautarholti (91) 66044
MOSFELLSSVEIT: Þverholti 17 (JC salur) Upplýsinga- og bHasími (91) 67230
SELTJARNARNES: Félagsheimilið Upplýsinga- og bílasími (91) 18644
KÓPAVOGUR: Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1 (3. hæð) Upplýsinga- og bílasímar (91) 40708 og 46544
GARÐABÆR: Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll Upp/ýsinga- og bílasímar (91) 45380 og 54084
BESSASTAÐAHREPPUR: Akrakot (91) 51865
HAFNARFJÖRÐUR: Sjá/fstæðishúsinu Strandgötu 29 Upplýsinga- og bílasímar (91) 50228 og 52989
VOGAR: Samkomuhúsið Glaðheimar (92) 6560
NJARÐVÍK: Sjálfstæðishúsinu Hólagötu 15 Upplýsinga- og bílasímar (92) 3021 og 3969
KEFLAVÍK: Sjá/fstæðishúsinu Hafnargötu 46 Upplýsinga- og bílasímar (92) 2021 og 3327
GARÐUR: Gefnarborg (92) 7166
SANDGERÐI: Rafnh.f. (92)7166
HAFNIR: Sólvöllum (92) 6941 Jaðri (92) 6919
GRINDAVÍK: Heiðarhrauni 18 Upplýsinga- og bílasími (92) 8593
Stuðningsmenn D-listans — Lítið inn — Kaffi á könnunni
X D-LISTINN X D-LISTINN X D-LISTINN X D-LISTINN
en sá basar mun hefjast kl. 14. Er safnaðar-
fólk og aðrir velunnarar þessa málefnis hvatt
til að styðja þar byggingu kirkjumiðstöðvar-
innar í Seljahverfi. Skipulag allt og hönnun
kirkjubygginganna sem hefur verið rækilega
kynnt innan sóknarinnar, leggur áherslu á
sem fjölbreytilegasta notkun þannig að þar
megi hýsa hina fjölbreytilegustu starfsemi
fyrir alla aldursflokka.
Auk merkjasölunnar hefur fjáröflunar-
nefnd í undirbúningi happdrætti til styrktar
kirkjubyggingunum. Til þessa happdrættis
hafa margir listamenn í hverfinu gefið af
verkum sínum, auk margs annars sem þar
verður til vinninga. Sala happdrættismiða
mun hefjast um næstu mánaðamót.
Leiklist
60. sýning á
Sölku Völku
Fáar sýningar eftir. Gísll Haildórsson tekur
við hlutverki Bogesens.
A föstudagskvöldið verður Salka Valka eftir
Halldór Laxness sýnd í 60. skipti hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur en sýningin hefur verið þar
á fjölunum á annað leikár við afbragðsgóðar
viðtökur. Leikgerðin er unnin af Þorsteini
Gunnarssyni og Stefáni Baldurssyni, sem
jafnframt er leikstjóri. Gísli Halldórsson
tekur nú við hlutverki Bogesens kaupmanns
vegna fjarveru Jóns Sigurbjömssonar, sem
er að syngja í Silkitrommunni i Caracas.
Hlutverkaskipan er að öðru leyti óbreytt frá
upphafi. Guðrún Gísladóttir og Margrét
Helga Jóhannsdóttir hafa hlotið mikið lof
fyrir leik sinn í hlutverkum Sölku og Sigur-
línu, sömuleiðis Jóhann Sigurðarson og Þor-
steinn Gunnarsson sem Arnaldur og Steinþór.
Með önnur stór hlutverk fara Steindór Hjör-
leifsson (Guðmundur kadett), Sigríður Haga-
lín (Steinunn), Soffia Jakobsdóttir (Todda
trunta), GisU Rúnar Jónsson (Angantýr
Bogesen) en aUs koma 16 leikarar fram í
sýningunni, sem er ein viðamesta sýning
Leikfélagsins hin seinni ár. Mikil tónlist er í
Sölku, og hefur ÁskeU Másson umsjón með
henni og samdi að hluta til. Leikmynd og
búningar hafa vakið mikla athygU en Þórunn
S. Þorgrímsdóttir er höfundur þeirra. Eins og
áður hefur komið fram, var sýningu Leikfé-
lagsins boðið á leUcUstarhátíðina Leikhús
þjóðanna sl. sumar.