Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1983, Síða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. MAI1983.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Undir eðiilegum
kringumstæðum
Sú athugasemd hefur veriö
gcrð við sandkorn um hugs-
anlegan eftirmann Birgis
Thorlacius í embætti ráðu-
neytisstjóra menntamála-
ráöuneytisins að þar hefði
verið leitað langt yfir
skammt því hinn sjálfsagði
eftirmaður Birgis væri Knút-
ur Hallsson, skrifstofustjóri
ráðuneytisins. Það er rétt og
satt að að öðru jöfnu ætti
hann að vera hinn sjálfsagði
eftirmaður. En nú hefur ráð-
herra menntamála, Ingvar
Gíslason, áður komið lands-
mönnum á óvart með emb-
ættisveitingum sinum og við
skulum bíða og sjá.
Knútur Hallsson: hinn sjalf-
sagði eftirmaður Birgis.
Erfrtt atvinnu
ástand
Þess má geta, í framhaldi
af ofanskráðu, að komið hef-
ur fram ný skýring á því af
hverju framsóknarráðherrar
eru taldir öðrum ráðherrum
djarfari við það að hygla
flokksmönnum sinum. Það er
vegna þess að atvinnuástand-
ið í Framsóknarflokknum er
svo crfitt. Það vill enginn
hafa framsóknarmenn i
vinnu.
Dagur um Dallas
Eftirfarandi saga úr video-
æðinu birtist í Degi, Akur-
eyri.
„Sífellt fjölgar þeim sem
kaupa sér myndsegulbands-
tæki, bæði til þess að geta tek-
ið upp efni úr sjónvarpinu og
eins til þess að geta leigt sér
myndir og stytt sér stundir
yfir þeim. Af einum fréttum
við sem gerir mikið aðþví aö
taka upp efni úr sjónvarpinu
heima hjá sér og notar hann
þá kvöldin gjarnan „til ann-
ars” eins og sagt var í auglýs-
ingunni. Hann var eitt sinn
spurður aö því hvort hann
hefði séð ákveðinn þátt í sjón-
varpinu og eftir smáumhugs-
un sagði hann: „Nei, ég
slökkti á sjónvarpinu þcgar
hann byrjaði og horfði á
gamlan Dallas í staðinn.”
Aurbleyta
Þessa ágætu sögu heyrðum
viö frá Stykkishólmi. Fyrir
helgina stóð til að Vegagerðln
heflaði veginn milli Grundar-
fjarðar og Stykkishólms.
Þegar hefja átti verkið
reyndist hann of þurr til að
rétt væri aö standa í fram-
kvæmdum. Daginn eftir var
tekið til við verkið að nýju og
vegurinn vökvaöur hressi-
lega. Þá um kvöldið var hon-
um svo lokað vegna aur-
bleytu!
Skólastjóri
útskrrfast
Nýlega var skipaður skóla-
meistari við Fjölbrautaskól-
ann á Selfossi, Þór Vigfússon.
Hann mun nýlega hafa út-
skrifast úr skólanum sjálfur,
tekið þar próf i húsasmíði.
.. A
Þór Vigfússon: útskrifaðist
úr eigin skóla.
Þetta er örugglega einhvers
konar met.
Umsjón: ÖlafurB.
Guðnason
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Austurbæjarbíó — Nana:
Austurbæjarbíó: Nana.
Heiti: Nana.
Leikstjóri: Dan Wolman.
Handrit: Marc Behrr.
Framleiðendur: Menahem Golan og Yoram
Globus.
Tónlist: Ennio Morricone.
Aðalhlutverk: Katya Berger, Jean Pierre
Aumont, Mandy Rice-Davis, Debra Berger og
Shirin Taylor.
Það verður að segjast eins og er að
það er langt síðan mér hefur leiðst
eins ægilega í bíói og þegar ég sá
kvikmyndina Nönu. Nokkuð sem ég
átti ekki von á því nafn Emile Zola
tengist jú myndinni og er flaggað í
auglýsingum um hana. En sá gæða-
stimpill brást. Hér er aö minu mati
ekki um stórmynd aö ræða heldur lé-
lega klámmynd. Og svo slappir eru
„leikararnir” að ég hélt eiginlega
frekar aö þeir væru aö fíflast en að
þeir viöheföu leiktilþrif.
Ummyndina segir meðal'annars
svo í sýningarskrá: „Um síöustu
aldamót er næturklúbburinn
Minotaur einn sá þekktasti og ill-
ræmdasti í París. Karlmenn sem
hafa auraráð sækja þangaö ákaft en
í augum flestra er staðurinn ekkert
annaö en pútnahús. En þaö skiptir
litlu máli, aösóknin er mikil og þar
geta menn keypt sér holdsins lysti-
semdir.”
Nana hefst á því að kvöld eitt, í
Minotaurklúbbnum, kemur töfra-
maðurinn Melis fram meö nýtt at-
riði, djarfa hreyfimyndmeö ungri og
aö því er virðist saklausri stúlku,
Nönu aö nafni. Sú hreyföa slær í gegn
og Nana líka. Og svo virðist sem
myndin hafi dáleitt alla í nætur-
klúbbnum, ekki síst auðugan banka-
stjóra sem byrjar aö „mjálma” á
stúlkuna, svo viðþolslaus er hann af
„holdlegrifýsn” tilhennar.
Og Nana gengur á lagið. Hún upp-
götvar fljótt „hæfileika” sína og
gaml'i eðlisfræöilögmáliö sem nefnt
hefur veriö aödráttarafl. Hún er
heldur ekki meö neina greiöasemi
gagnvart þeim sem hafa auraráðin í
lagi og þrá hana, þeir fá allir aö
borga svo um munar og einn þeirra
missir reyndar aleiguna fyrir vikið.
Myndin snýst þannig upp í eina
allsherjar ,,hott-hott”-mynd sem
gæti allt eins veriö tekin á kappreiö-
um uppi í Víðidal eða á Vindheima-
melum eins og í París. Réttara væri
kannskiað segja aö „hitt-hitt”-mynd
svo notuö séu orö meistara.
Þaö hefur sýnt sig að eigi þessar
svokölluöu djörfu myndir aö njóta
einhverra vinsælda þurfa þær að
höföa til kímnigáfunnar fyrst og síð-
ast. En því er ekki fyrir aö fara í
Nönu, aö minnsta kosti hefur þá sú
fyndni fariö framhjá mér og flestum
öörum.
„Leikaramir” í myndinni finnast
mér slappir og þar er hún Nana-
namminamm, Katya Berger, engin
undantekning. Tel ég víst að „leik-
stjórinn” hafi ekki spurt stúlkuna
um leikhæfileika heldur hitt hvort
hún gæti viðhaft flóknar stellingar,
svona flækt fótunum hér og þar og
alls staöar þar á milli.
Um tækniatriöi myndarinnar ætla
.ég ekki aö ræöa. Og hvaö þá um hin
„tækniatriðin”, þessi sem hver og
einn veröur jú að dæma sjálfur. En
heldur bendir þaö til þess aö „síðu
frakkamir” séu lítt spennandi fyrst
margir þeirra tínast út af myndinni,
þó f rönsk sé, löngu fyrir hlé.
Það er í sjálfu sér óþarfi aö hafa
fleiri orö um þessa mynd, hún selur
sig sjálf eins og allar hinar. Fyrir
mitt leyti get ég þó ekki ráðlagt nein-
Wnaðsjáhana.
Jón G. Hauksson
Leiðinleg Nana
Prentari óskast
Öskum að ráða prentara í smáverkefnaprentun.
Uppl. gefur Ölafur Brynjólfsson.
HILMIRH/F
SÍÐUMÚLA 12.
é , %
Meira en 20 SkttLO frábær reynsla af
FERGUSON áíslandi.
Videostar 3V29 fjarstýring með þræði. Úrvals tæki fyrir öll venjuleg heimilisnot. Mest seldu og
vinsælustu tækin.
ORRIHJALTASON
HAGAMEL 8 SÍMI 16139
NY ÞJONUSTA VIÐ
LANDSBYGGÐINA
Geríst áskrifendur að ii
Fyllið út pöntunarseðilinn og sendið tii Heima-Bingo,
Hamarshúsinu Tryggvagötu, 101 Reykjavík.
Einnig getið þér hringt i síma 91-28010 til að gerast áskrif-
andi.
íþróttasamband fat/aðra
Hamarshúsinu v/Tryggvagötu,
simi 91-28010.
r--------------------------------------------------
■ Undirritaður óskar hér með eftir að fá sendar____
Heima-Bingo blokkir í hverri umferð sem spiluö er.
Verö pr. blokk kr. 50,-
| Ath. minnst 2 blokkir veröa sendar.
I
I
| Nafn.............................................
I Heimilisf........................................
I
v| Poststoð........................................
r
| Póstnúmer.......................Sími............
'I_____________________________.____________________
1