Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1983, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1983, Síða 12
22 DV. LAUGARDAGUR14. MAl 1983. I5lóimn I byrjun júní hefst sá tími sem setja ber niöur plöntur, svo sem sumarblóm og fjölærar plöntur. Þó mun vera í lagi aö setja plöntur niöur seinna. Þegar valinn er staður fyrir plönturnar þarf fyrst og fremst aö hugsa um aö staðurinn sé sólríkur og auövitað þarf aö hafa í huga aö eigendur geti notið jurtanna. Ef setja á niöur rósir veröur aö velja besta staðinn í garöinum. Garðáhugamenn veröa líka aö gera sér grein fyrir aö rósir þurfa mjög mikla umhyggju. Best er aö setja rósirnar niður á vorin áöur en þær laufgast. Einnig þarf aö athuga að hlúa þarf vel aö rósunum yfir vetrar- tímann. 1 garöyrkjustöövum er hægt aö fá keyptar plöntur og getur starfsfólk þeirra leiöbeint kaupandanum í vali. Þaö er nauösynlegt fyrir þann sem kaupir plöntur aö vita hvar og hvemig setja ber plöntumar niöur og hvemig umönnun þær þarfnast. Það er ekki nóg aö eyöa stórfé í faUegar plöntur, troöa þeim í beðin og horfa á þær. Allur gróður þarf umönnun og hlýju. Þá veröur fólki þaö oft á aö troöa of miklu af blómum í garöinn sinn. Blómin em falleg sé þeim raöað niöur á smekkleg- an hátt en þau geta líka oröiö ljót sé of mikið af þeim. Blómin þurfa líka aö passa saman því aö ekki þykir fallegt aö vera með margar ólíkar tegundir saman. Ja, ekki nema þær tegundir passi saman. Lauka, eins og t.d. páskaliljulauka og túlípana, þarf ekki að taka upp á haustin. Hins vegar em til laukar sem þola illa veturinn, t.d. gladíólur og er nauösynlegt aö taka upp. Þegar laukamir eru keyptir er nauösynlegt aö spyr jast fy rir um hvort þeir þoli veturinn eöa hvort taka eigi þá upp. Það þarf ekki endilega stóran garö til aö rækta blóm. Þaö má allt eins gera á svölunum sínum. Svalakassar meö fallegum plöntum, hvort sem þær eru f jölærar eða sumarblóm, eru alltaf til mikillar prýöi. Ef þú býrö í f jölbýlis- húsi meö góðum svölum, geturöu búið þér til fallegan garð þar, bæöi meö svalakössum, sem settir em á svala- handriöiö, og eins getur þú haft blóma- ker á svalagólfinu eöa hengt blómapotta upp á vegginn. Þaö þarf nefnilega alls ekki endilega stóran garö til aö gera blómlegt í kringum sig. Muniö bara aö láta garðyrkju- manninn gefa upplýsingar um hvemig beri aö hiröa þær plöntur sem þiö kaupið. Garöánægjan vex meö falleg- um blómum og þaö er okkar verk að halda þeim fallegum. ÍÉÉ Veröndin er skemmtilegasti staöurinn í garöinum fyrir heimilisfólkið og ætti þvi að reyna að gera hana tkemmtiiega og hagkvæma. Biíið ykknr til notalegan stað í garðinum: eldáaðveradjjr I garðinum er eiginlega nauösynlegt að hafa verönd. Þaö er að segja af- markað pláss þar sem heimilisfólkiö og gestir geta sett út borö og stóla yfir sumartímann og boröaö gómsætan mat af útigrillinu. Veröndin þarf ekki endilega að vera stór til aö vera notaleg. Þó þyrfti hún aö vera á skjól- góðumstaö. Margar fjölskyldur eyða mestum sínum tíma yfir sumarmánuðina í garöinum. Þegar búiö er aö rækta garðinn er veröndin einmitt besti staö- urinn til aö láta fara vel um sig. Lesa í bók eða láta sólina skína á sig. En veröndin þarf ekki endilega aö vera mjög dýr, þó að allt kosti auðvitað peninga, þaö má t.d. smíöa pall og mála síðan. Ef börn eru á heimilinu er upplagt aö mála veröndina í einhverjum sterkum lit t.d. í stíl viö grasið, bara ennþá grænni, rauöu eöa gulu og í leiðinni aö gera svolítiö sumarlegt í kringum sig. Það er líka hægt aö kaupa hellur og leggja á veröndina eöa steinflísar en þá veröa auraráðin aö vera meiri. Þaö er algjör misskilningur að þaö þurfti endilega aö kaupa dýrustu hluti til aö gera skemmtilega verönd. Þaö er einmitt mest gaman aö því þegar f jöl- skyldan getur unnið saman, jafnt börn sem fullorðnir, aö gera garðinn sem heimilislegastan. Þaö hefur of oft viljaö brenna viö hjá garöeigendum aö skreyta garðinn með hundruöum tegunda af rándýrum plöntum og uppgötva síöan er upp er staðið aö garðurinn er í rauninni oröinn of fínn til aö mannlegar verur geti haft not af honum. Þannig er garðurinn oröinn heilagur staður, aöeins til aö horfa á og dást að, og sem verra er, sem enginn hefur not af. Þaö má stundum líkja garöeigendum viö kaupóöar húsmæður sem fylla stofur sínar af rándýrum antikhúsgögnum og kristalsvösum en átta sig ekki á því aö engum líöur vel í slíkum stofum en allirdástaöþeim. Nei, garöurinn á bæði aö vera augna- yndi og staöur þar sem eigendunum og öðrum getur liöiö vel og slappað af. Veröndin er nauðsynleg aö því leytinu aö þar getur fólk hreiðrað um sig á notalegan hátt aö deginum og aö kvöldinu er veröndin besta og skemmtilegasta eldhús sem hægt er aö hugsa sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.