Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR 20. AGUST1983.
5
*
jsplíp.
innar. Þessar skærur áttu sér oft stað
meðal araba og höfðu gert á umliðnum
árum og þvi fannst Múhameð ekkert
athugavert við það að bjóða fylgjend-
um sinum að gera úlfaldalestum
Mekkabúa fyrirsát. Þegar svo kom að
þvi aö einn Mekkabúi lést í þessum er j-
um fannst þeim Abu Sofian og Abu
Jahl æriö tilefni vera komiö til þess að
grípa til vopna gegn múhameðstrúar-
mönnum og segja þeim strið á hendur.
Arið 624, á f jórða ári flóttans, bárust
Múhameö þær fréttir að Abu Jahl væri
á leiöinni til Medina meö þúsund
manna her. Enda þótt hann hefði mót-
mælt blóðsúthellingum i predikunum
sinum og bardögum manna á milli yf-
irleitt þá lýsti spámaöurinn — verjandi
trúarinnar — yflr Jehad, heilögu striði.
„Fjúki hann
framan í ykkur."
Múhameð tókst ekki aö safna saman
nema þrjú hundruð illa þjáifuðum
mönnum til átakanna, sem auk þess
voru lélega vopnum búnir. En ósmeyk-
ur f ór hann fy rir þeim út úr borginni og
ákvaö að taka sér stöðu við Jadr,
sandsléttu sem lækur rann eftir og
stíflaður hafði verið hér og hvar til að
mynda uppistööulón. Af innblásirmi
hernaðarlist kom hann „her” sínum
fyrir kringum iónin sem voru næst
óvinunum og lokaöi leiö að hinum. Með
þessu móti réð hann yfir vatnsbólunum
og þaö haföi mikið aö segja. Múhameð,
sem fylgdist með bardaganum frá hæð
einni, sá aö hersveitir Mekkamanna,
sem neyddust til að verjast i steikjandi
hitanum, og gátu ekki slökkt þorsta
sinn, voru þó engu að síður að ná yf-
irhönd. Hann kastaöi þá fullri lúku af
sandi upp i loftið i átt til þeirra og hróp-
aði: , Ji’júki hann framan í ykkur!” Þá
gerðist það undur að á skall sand-
stormur ailt i einu og stóð beint framan
i Mekkabúana. Brennheit sandkornin
særöu Mekkahermennina og þeir fóru
að hörfa. „Afram, áfram!”, æpti Abu
Jahl og hljóp til og réðst á einn af for-
ingjum múhameðstrúa rmannanna.
Eftir skamman bardaga reið foringinn
á Jahl ofan og hjó af honum höfuðiö i
einu höggi með bjúgsveröi aínu. Þegar
foringi Mekkabúa var fallinn héldu
þeir undan meö skömm.
Orrustan við f jallið Whud
Abu Sofian hét hefndum. Og á
fimmta ári flóttans hélt hann gegn
múhameðstrúarmönnum með miklu
stærri her en Abu Jahl hafði gert ári
áður. Þessi önnur orrusta Mekkabúa og
múhameðstrúarmanna var háð hjá
f jallinu Whud. Múhameð, semstjómað
hafði litlum liðskosti snilldarlega við
Jahl, hafði gefiö bogskyttum sínum
ströng fyrirmæli um að hreyfa sig ekki
af staönum þar sem hann hafði sett þá.
En illu heilli óhlýönuðust skytturnar
boði hans og þegar óvinurinn hörfaði
undan áhlaupi sverðsveita múhameðs-
trúarmanna og þær ruddust fram til
árásar myndaðist geil sem Mekkaher- •
mennirnir komust i gegnum. Múham-
eö, sem skundaði til bardagans þar
sem hann var harðastur tll þess aö
safna saman iiði sinu, féll til jaröar i
kastspjótaregninu. Abu Sofian sá er
hann féll og hrópaði siguróp en eftir aö
múhameðstrúarmenn höfðu neyöst tll
að hörfa undan til Medína leitaöi hann
árangurslaust aö iíki Múhameös i
valnum. Það var ekki fyrr en á heim-
leiðinni að honum barst til eyrna að
Múhameð hefði aðeins lítillega særst
við falliö. Oöur af bræði safnaði hann
saman her sinum og hugðist taka
Medinaborg meö áhlaupi.
Medínaborg
varín áhlaupi
Persneskur trúskiptingur, lang-
reyndur i hemaði, bjargaði borginni.
Hann lagöi fyrir verjendur hennar að
grafa skurö, breiðari en svo að hestar
gætu stokkið yfir hann. Og þvi var það
að þegar hersveitiraar frá Mekka
hleyptu fram til áhlaups komust þær
að raun um aö virkisgröf skildi að þær
og borgarveggina. Og handan viö virk-
isgröfina skutu múhameðstrúarmenn
örvum að þeim. Dag eftir dag sneru
Mekkahermennirnir þó aftur til árás-
ar. Nótt eftir nótt skuifu þeir hins vegar
í búðum sínum í vetrarkuldanum. En
þá kom steypiregn og ofsastormur sem
fylgdi, þeytti um koll tjöldum þeirra
svo að hestamir fældust. Sveitimar
héldu þá loks heimleiöis i ringulreið.
Eftir þessa auðmýkjandi mistök að
ná Medínaborg minnkaði vegur
Mekkabúa. En að sama skapi óx vegur
spámannsins. Allar kynkvíslir í
grennd við borgina söfnuðust saman
um hann og gengu islam á hönd.
Múhameð varö svo voldugur að Abu
Sofian neyddist tll að gera samning viö
hann, þar sem Múhameö var meðal
annars leyft að fara í pílagrímsför til
Mekka ásamt Medínamönnum. Rof á
þessum samningi vakti reiöi Múham-
eðs og á s jöunda ári flóttans hélt hann i
hergöngu til hinnar helgu borgar.
Steinguðirnir
muldlr mólinu smœrra
Með tiu þúsund manna her kom hann
aö borgarhliöi Mekka. Abu Sofian sá
hvert stefndi og veitti ekki viðnám. Og
spámaöurinn hélt innreiö sina i borg-
ina. Til blóðsúthellinga kom ekki —
Múhameð þyrmdi jafnvel lífi erkióvin-
arsíns.
Þegar Múhameð var kominn inn fyr-
ir borgarmúra Mekka, iklæddist hann
hvítri pílagrímsskikkju og gekk til
Kaaba ásamt allmörgum trúbræörum
sínum sem bám svipaðan búning og
hann. Steinguðirnir vora muldir mél-
inu smærra. Loks hafði draumur
Múhameös ræst.
Abu Sofian og allir Mekkabúar ját-
uðu islam. Nú var Múhameö í raun orð-
lnn stjómandi ailrar Arabíu og hann
gerði út sendiherra til Egyptalands,
Rómar, Persíu og Abyssiníu með það
fyrir augum aö breiða út trú sina.
A tiunda ári flóttans átti kveðjupUa-
grímsförin sér stað. Fjöratíu þúsund
pilagrimar fylgdu Múhameö til fjalls-
ins Ararat. Viö dagsbrún stjórnaöi
hann bænum þeirra. Og frá tlndi f jails-
ins las hann upp fy rir þeim úr Kóranin-
um. Þá hrópaði hann hárri röddu: „0,
Allah, ég hef komið boðskap þínum til
skiia og f ullkomnað verk mitt! ”
Einlægni og alger
ráðvendni
Nokkrum mánuðum eftir endur-
komu Múhameös til Medína, úr þessari
pílagrímsför, tók heilsu hans að hraka.
Arið 632, á ellefta ári flóttans, dó
Mtihameö þar sem hann hvíldi höfuð
sitt i skauti Aisha, hinnar ungu eigin-
konusinnar.
Af öllum miklum leiðtogum hefur
enginn verið ófrægður meira en
Múhameð. Margir af ófrægjendum
hans hafa kallað hann erkisvikara en
sú ásökun er hrein ósannindi því afrek-
um hans og eindrægni við sína sannfær-
ingu verður ekki neitað. Aðeins sá
maður sem hefur til að bera brennandi
einlægni og algera ráðvendni getur
stofnað þau trúarbrögð sem draga að
sér fleiri fylgjendur en nokkur önnur.
Siíkur var máttur Múhameðs.
M OTOROLA
Alternatorar — —
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 — Sími 37700.
Snoghej Folkehojskole er en
nordisk folkehojskole,
hvor du udover nordiske emner
bl.a. kan vælge mellem mange tilbud indenfor:
musik, litteratur, vævning, keramik,
samfundsforhold, psykologi m.m.
Pá vil mode mange elever fra de ovrige
nordiske lande,
og vi tager pá studietur i Norden.
Kursustider:
31/10 - 21/4
eller
2/1 - 21/4
Skriv efter vor nye skoleplan
SNOGH0J
NORDISK FOLKEH0JSKOLE
DK 7000 Fredericia
GÖÐ
MATARKAUP
Kindahakk,
aðeins69kr. kg.
Karbonade iamba,
aðeins 10 kr. stk.
Saltkjötshakk,
aðeins 78 kr. kg.
KJÖTMiÐSTÖÐIN
Lambahakk, aðeins
78 kr. kg.
Nautahamborgarar,
stórir, 17 kr. stk.
Nautahakk,
10 kg, 138 kr. kg.
Svínahakk,
158 kr. kg.
Folaldahakk,
68 kr. kg.
Laugalæk 2. s. 865II
GOLF I
SKOTLANDI
Úrval efnir til sérstakrar
haustferöar fyrir golfáhugafólk
23. september
11 dagar
Verö í tvíbýli
kr. 19.195
Innifalið: Gisting á Marine Hótel
í North Berwick - Hálft fæði -
Akstur milli flugvallar og hótels.
URVAL
vift Austurvöli S26900
Umboðsmenn um allt land