Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Side 8
8 DV. LAUGARDAGUR 20. AGUST1983. , 9Ef Batmann er svona klár.. — af hverjii er hann þá í nærbuxinium utan vfir buxunum?” letraö á breska veggi. Hann segir sjálfur að við fyrstu sýn hafi hann verið lítt hrifinn af veggjakrotinu sem slíku en brátt orðið var við að eitt og annað bitastætt væri þar að finna. Rees segir í formála að bók sinni Graffiti lives o.k. að í versta falli sé veggjakrot hreinn vandalismi og hund- ljótt að auki. En hann leitist við að gefa hinum óþekktu hugsuðum og húmoristum, sem hafi veitt almenn- ingi ókeypis skemmtun með kroti sínu, uppreisn æru. Gleymum því ekki að veggjakrot for- feðra okkar hefur reynst fomleifa- fræðingum og málvísindamönnum ómetanlegt. Sem dæmi má taka að á Bretlandseyjum hafa fundist setning- ar sem þreyttir verkamenn í þjónustu Rómverja rituðu á veggi. 1 Pompei fundust útkrotaðir veggir. Til dæmis var ritað á vegg einn: „Claudia bene futius” — Gott er að serða Kládiu. — Reyndist þetta fomleifafræðingum ómetanlegt því þar með fundu þeir eina vændishúsið sem varðveist hefur óskemmt frá tímum Rómverja. Krot forfeðra okkar Norðurlandabúa hefur reynst málvísindamönnum betra en ekkert. Rúnimar sem þeir krotuðu eru uppspretta þekkingar okkar um forna búskaparhætti. Ýmir nefstóri Vissulega væri það ófélegt ef fom- Blaöamenn DV óku um borgina á dög- unum í von um að sjá œsilegt veggja- ; krot. Skemmst er frá að segja að óljósar hugmgndir um vanþroska og j hugmyndaskort ís- I lenskra veggjakrot- j ara staðfestust. DV-myndir: Helgi J. Hauksson. To be is to do — Sartre To do is to be — Descartes Do-de-do-de-do — Sinatra Ofangreind orö em ritsmíð óþekktra veggjakrotara. Veggjakrot hefur heldur slæmt orð á sér, að minnsta kosti hérlendis. Flestir hafa megnustu skömm á krassi þvi sem islensk ungmenni hafa fyllt auöa veggi strætisvagna og -skýla og sal- erna með. Og vissulega er afstaöa þeirra skiljanleg. Islenskt veggjakrot hefur aldrei þroskast. Tómur vand- alismi ræður ríkjum sem hver skyni borin vera hlýtur að f ordæma. En er þar með öll sagan sögð? Nei. Veggjakrot, svo hvimleitt sem það er að flestu leyti, hefur sínar björtu hlið- ar. Islensk ungmenni hafa ekki látiö auöa veggi n jóta gáska síns og fr jórrar hugsunar eins og sjá má svo víöa í sið- menntuðum löndum. „Jói plús Stína”, og „Ýmir er með stórt nef” virðist vera þroskaðasta hugsunin sem krotuö er á vegg, að ógleymdum myndum af kynfærum karla og kvenna. Gárungarnir segja ástæðuna fyrir þessu vera þá að allir Islendingar gefi út sögu eöa ljóð hafi þeir eitthvað pínu- lítið til málanna að leggja, en víöast hvar erlendis láti flestir sér nægja að krota á veggi. Ég. skal ekki leggja dóm á þetta en vissulega hefur manni oft blöskraö hugmyndafátækt islenskra ungmenna ef miö er tekið af veggjakrotinu. Graffiti lives o.k. Nigel heitir maður Rees og er Breti að ætt og uppruna. Hann hefur safnaö í fjögur kver því besta sem hann hefur rekist á krotað á veggi á Stóra-Bret- landi. Nefnir hann bækurnar Graffiti Lives o.k. Nigel er þekktur útvarps- maður á Bretlandseyjum, einkanlega fyrir þáttinn Quote . . . unquote og fyrir samnefnda bók. Fyrir nokkrum árum tók hann að skrifa niður hjá sér það skondnasta og besta sem hann sá leifafræðingar framtíðarinnar sætu með sveittan skalla yfir einu heimild- unum um byggð á þessari köldu og ill- byggilegu eyju: Strætisvagnaskýli sem staðið hefði af sér kjarnorku- sprengingu, og á það væru letraðar setningarnar: „Englabossarnir eru bestir”. „Vmir nefstóri”, , JSprelli ljósameistari”, ,,Jói plús Stína, Sönn ást”. Fyrr er minnst á veggjakrotssafnar- ann Nigel Rees og bækur hans sem nefnast „Graffiti lives o.k. „Við birt- um úrval úr þeirri bók og úr bókinni Graffiti — The Writing on the wall,” sem Mark Barker tók saman. Ef skráningarstaður skiptir máli er hann með. Algengustu skráningar-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.