Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Qupperneq 21
DV. LAUGARDAGUR 20. ÁGUST1983. 21 eð sakamál — Sérstæð sakamál meö því aö skjóta af haglabyssunni í vegginn rétt hjá mér,” sagöi Eriksen síöar í viðtali viö norskt dagblaö. Stuttu síðar var Eriksen einn heima er Hansen fór að tala við hann. Hann sagði honum allt af létta um moröiö. En var það satt? Var Hansen ekki aðeins aö monta sig af einhverju sem hann hafði aldrei gert? Roger Eriksen þagöi lengi þar til einn dag að hann fékk not fyrir upplýs- ingar sínar. Hann var handtekinn fyrir innbrot og gerði samning við lögregluna. Honum var lofað léttari dómi ef hann myndi aðeins endursegja frásögnHansen. Næsta skref var aö hafa hendur í hári Hansen og Lunde. Það reyndist einfalt, þeir voru báðir á bak við lás og slá fyrir önnur afbrot. Hansen þver- neitaði að hafa nokkru sinni farið í hinn örlagaríka bíltúr með Jimmy. Lunde kvaðst hafa gert það. En lögreglan gat ekkert aðhafst frekar án þess að finna líkið af Jimmy. I blaðaviðtali sagði lögreglan. „Við búum yfir svo miklum upplýsingum að í raun má segja að það sé leyst og morðinginn fundinn. Við bíðum nú aðeins eftir því að finna líkið af Jimmy í vatni, vafiö inn í vírnet.” Leitað að iíki Lögreglan sagði hins vegar ekki að hún hefði þegar fundið morðvopnið. Hansen hafði láðst að losa sig við það á öruggan stað. Vopnið var ótvírætt sönnunargagn og með Roger Eriksen sem vitni stóð lögreglan vel að vígi. Samt ekki nægilega vel. Hvemig myndi kviödómur dæma í máli sem þessu? Án efa hefði kviödómurinn verið ófús til að dæma mennina tvo seka fyrr en líkið væri komiö í leitirnar. Stuttu síðar luku Hánsen og Lunde við að afplána dóma sína. Þeir voru aftur orðnir frjálsir menn. Á meðan byrjaði leitin að líkinu. Kafarar og lögreglumenn leituðu í Bundefirði en án árangurs. Lögreglan leitaöi líka í sjónum við Hokksund en þar sögðu sumar tungur að Jimmy lægi í votri gröf. Ekkert fannst, hvorki þar né annars staðar. Hálfu öðru ári eftir að Jimmy hvarf fann blaðakonan Arne Bru tvö högl í bátaskýlinu við Hokksund. Höglin voru af sömu stærð og Roger Eriksen sagði að Hansen hefði skotið Jimmy með. Höglin voru afhent lögreglunni en það þótti alla tið ákaflega ólíklegt aö Jimmy hefði verið myrtur í Hokksund. Einnig var ekki talið líklegt að.Hansen og Lunde heföu farið með Ukiö þangað. Nýjar fréttir bárust nú frá Kaup- mannahöfn. Stúlka á veitingahúsi sagðist hafa séð Jimmy og ekki bara einu sinni heldur nokkrum sinnum eftir að hann hvarf. Við nánari eftir- grennslan kom í ljós aö stúlkan ruglaöi Jimmy saman við annan pilt. Jimmy sást ekki framar lifandi á þessari jörð. Grafíðímýri Sumarið 1976 komu ný gögn fram í máli Jimmy. Lögreglu var tilkynnt að verið gæti að Jimmy væri grafinn í mýri við Ulsrudvatnið í Austurmörk. Og þar sem sá sem slúðraöi var þekkt- ur í undirheimunum ákvað lögreglan aðkanna málið. Þegar lögreglan kom á staðinn þótt- ukt lögreglumennimir strax sjá þess merki aö nýlega hefði eitthvað veriö grafiö í mýrinni. En svo virtist sem það hefði verið fyrir nokkrum árum því við lá að náttúran hefði máð öll um- merki. Þar sem fólk er yfirleitt ekki að hafa fyrir því að grafa nokkuð í mýri ákvað lögreglan að þetta þyrfti að athuga nánar. En ekkert kom í ljós, ekkert sem gæti varpað ljósi á hvarf Jimmy. Tveimur árum síðar, 1978, kom enn ný vísbending um hvar líkið væri graf- ið. Nú áttu Hansen og Lunde að hafa grafiö það í skóginum í Lier. Sagt var að Hansen væri að fara á taugum og samviskan léti hann ekki í friði. Hann væri nú byrjaður að kaupa blóm til að leggja á staðinn þar sem líkið væri grafið og kæmi þangað vikulega þeirra erinda. Þaö var skógarvörður í Lier sem sagðist hafa séð Hansen og eins og skógarvTarða er siöur vissi hann upp á hár hvert Hansen var vanur að fara. Skógarverðir þekkja yfirleitt sinn skóg nokkuð vel. 1 þetta sinn vom það ekki lögreglu- menn sem vom látnir grafa heldur var fengin skurðgrafa og allt svæðið í kring sundurgrafið. Ekki kom líkið í leitimar og þetta mun vera í síðasta sinn sem skipulega hefur verið leitað að líki Jimmy. Hansen sest að í smábæ Veturinn 1977—78 fluttist Hansen búferlum til lítils bæjar í nágrenni Oslóar. Af tillitssemi við íbúana skulum við halda nafni bæjarins leyndu. Þegar hér var komið sögu var Han- sen um fertugt. A því tímabili verða oft miklar breytingar í lífi karlmanna og Hansen fór ekki varhluta af þeim. Hann var nú skilinn, samviskan nagaði hann og Hansen þráði þaö eitt að kom- ast frá Osló. Burt frá borg og stressi. Hann drakk óhóflega mikið áfengi og gat ekki sofnað á nóttunni nema taka inn svefntöflur. Hansen var orðinn hættulegur, einkum þegar hann var undir áhrifum og ef hann hafði vopn undir höndum. Og það var oft sem hann var vopnaður byssu. Hansen var nú að mestu hættur fyrri iðju. Hann haföi leigt íbúð við Stóru- götu, í tveggja hæða steinhúsi, og í portinu var hann með verkstæði í litl- um kofa. Þar fékkst Hansen við gull- smíðar og skartgripagerð en þá iðn hafði hann lært þótt hann hefði lítt stundað hana fram að þessu. Stundum skrapp Hansen til Oslóar og seldi þá skartgripina. Síðan kom hann aftur til baka og var iðjulaus í langan tíma þar til neyöin rak hann aftur út í vinnuskúr. Þannig gekk líf hans fyrir sig og engan í bænum grun- aöi að við Stórugötuna byggi morðingi. Kona kemst / spilið Ekki einu sinni Birtu Hagen, sem var nágranni Hansen, grunaði að hann væri glæpamaður. Hún var nýgengin í gegnum erfitt tímabil ævi sinnar. Mað- urinn hafði skiliö við hana og hún var nú einmana. Það var Hansen líka og einmanaleikinn dró þau hvort að öðru. Vinskapur þeirra varð sífellt nánari og nánari en enga aðra vini eignaðist Hansen í bænum. Gömlu vinirnir voru einnig að mestu hættir að hafa sam- band við hann. Einstöku sinnum heyröi hann í Per Lunde, vitorðsmanni sín- um. En það var sjaldan. Rétt hjá húsi Hansen var bílaverk- stæði og þangað fór hann nú að leggja leið sína annað slagið. Hansen hafði unnið við það að taka bila í sundur og var því vel heima í öllu sem að bílavið- gerðum sneri. Hann vakti því strax mikla athygli fyrir kunnáttu sína og fagmannleg vinnubrögð og það fréttist að sá nýflutti væri úrvals bifvélavirki. Málið barst til eyrna lögreglumanns nokkurs sem var veikur fyrir bílum. Þá var nokkuð um liðiðsíðan mál Jimmy hafði veriö á fréttasíðum norsku dagblaðanna og flestir búnir að gleyma því öllu. Þeirra á meöal var lögreglumaðurinn sem einnig var ný- byrjaðurístarfi. Hansen kjaftar frá Hansen var nú orðinn hugsjúkur, samviskan nagaði hann alla daga og nætur og lét hann aldrei í friði. Oftlega var hann kominn á fremsta hlunn með að segja lögreglumanninum alla sólar- söguna en gat þó aldrei komið sér að því. Talaði í gátum, líkt og véfrétt. Ánnaö hélt líka aftur af Hansen, Per Lunde var kominn í heimsókn og reyndi mjög að koma í veg fyrir að Hansen kjaftaði frá. Svo virtist sem Lunde hefði náð að halda aftur af Han- sen en um vorið 1978 fór löngunin að láta allt flakka að verða Hansen um megn. Hann eyddi löngum stundum með lögreglumanninum unga og um síðir lauk hann upp hjarta sínu fyrir honum. Hansen sagði honum allt af létta. Sag- an sem Hansen sagði var sú sama og Roger Erikssen hafði sagt lögreglunni fyrr. En lögreglumaðurinn gerði sér ekki ljóst mikilvægi þessarar játning- ar. Hansen sagði þó ekki allt. Aldrei lét hann uppskátt hvar lík Jimmy væri að finna, það hef ur aldrei fundist. Lunde gerði sér grein fyrir því að Hansen var að tapa sönsum. Hann stakk því upp á því að þeir færu í bíltúr saman. Hansen samþykkti og þeir fengu lánaðan bíl lögreglumannsins í túrirrn. Hansen tók hlaupsagaða hagla- byssu með sér, sömu stærð og tegund og hann hafi myrt Jimmy með. Lunde lét sér hvergi bregða þótt eflaust hafi hann vitað af byssunni í bílnum. Koriuþjófurinn Lunde haföi þó ástæöu til að vera hræddur. Hann hafði daörað dulítið við Birtu Hagen, vinkonu Hansen, og Hansen var ljóst aö hún bar mun hlýrri hug til Lunde en sín. Þó er ólíklegt að Hansen hafi haft í hyggju að drepa Lunde. Hvaö þeim fór á milli í bíltúrnum veit enginn, en eflaust hefur Hansen sagt Lunde frá þeirri ætlan sinni að fremja sjálfsmorð. Hansen var, þegar hér var komiö sögu, búinn aö tapa öllu. Eiginkonu, vinkonu, vinum, æru, ekk- ert var eftir til að lifa fyrir. Jens Hansen og Per Lunde sneru aftur til bæjarins og héldu í húsiö við Stórugötu. Þeir ræddust við og svo kvaddi Lunde sinn gamla vin. Hansen var einn eftir og settist niður í slitna hægindastólinn. Það var enginn heima hjá honum þegar hann tók í gikkinn og sendi sjálfan sig inn í eilífðina. Enginn nema hann sjálfur. Jimmy Johanaon var aAeins 22 Ara þegar hann var myrtur er hann gerði til- raun til að kúga fé út úr Jens Hansen, konungi glæpamannanna í Osló. Rafsuðuvélar og vír Haukur og Ólafur Armúla 32 - Simi 37700. BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI HAMARSHÖFÐA 8, SÍMI 85018. Innanhúss-arkitektúr í frítíma yðar með bréfaskriftum. Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátt- töku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, veggklæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, húsgagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHUSS-ARKITEKT-NAMSKEIÐ. Nafn................................. Heimilisfang...................................... Akademisk Brevskole Badstuestræde 131209 Köbenhavn K. DV 29.08. —1983 HÚSBYGGJENDUR Að halda að ykkur hita er sérgrein okkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging- arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. I Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pípueinangrun: frauð- plast/glerull. BORGARPLASTHTÍr Borgamesi simi 93-737ðni Kvöjdsími og helgarslmi 9^7355 lý*'ar't fyrir alla ÚRVALS EFNI AF ÖLLU TAGI. Fæst á næsta blaösölustaö,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.