Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 2
2
DV. MANUDAGUR 9. JANUAR1984.
Albert býður hingað f ulltrúum f ranskra stórmarkaðshringja:
ÍSLENSKAR VÖRUR í
1000 STÓRMARKAÐI?
A næstunni er von á nokkrum inn-
kaupafulltrúum þriggja franskra
stórmarkaöshringja. Ætlunin er aö
þeir gangi hér að skyndisýningu á
íslenskum vörum sem til greina
kemur aö seljist í stórmörkuöum
erlendis. þessir hringir reka nærri
1.000 stórmarkaöi í Frakklandi og
nágrannalöndunum og eru reyndar
aö teygja anga sína til Banda-
ríkjanna um þessar mundir.
Þaö er Albert Guömundsson fjár-
málaráðherra sem stendur fyrir
komu Frakkanna hingaö. Hann er
ræöismaöur Frakka í Reykjavík og
eigendur markaðshringjanna eru
margir vinir hans.
„Þetta er rétt,” sagöi Albert í sam-
tali viö DV, „nokkur hópur eigenda
og stjórnenda hefur komiö hér
árlega síöustu 10—11 ár til laxveiða í
Noröurá. En þeir hafa alltaf ein-
skoröaö heimsóknir sínar hingaö viö
laxinn, ekiö beint að ánni og síðan aö
segja má beint aö flugvélinni aftur
eftir veiöarnar. Hins vegar hefur
vaknað hjá þeim traustur áhugi á
landi og þjóö og þaö hefur staöiö til
um skeiö aö þeir sendu hingaö sér-
fræðinga sína í innkaupamálum til
þess aö skoöa íslenskar vörur.
Eg bind vonir viö að framleiðendur
á íslenskum vörum sýni þessu
áhuga. Eins held ég aö þessi heim-
sókn geti orðið til nokkurrar fyrir-
myndar í því hvernig íslenskar vörur
megi kynna meö beinum sambönd-
um viö seljendur erlendis. Þaö er
enginn vafi á því aö viö erum allt of
svifaseinir í sölumennsku og aö hún
er ekki markviss.
Þessu þarf aö breyta núna og ég
trúi því aö menn skilji hvers konar
tækifæri bjóöast, til dæmis meö sam-
böndum viö þessa frönsku stór-
markaðshringi.”
HERB
P^MÁLN
MALIMINGARDEILDINNI
OKKAR bjóðum við eingöngu úrvalsefni.
VITRETEX
HEMPELS
CUPRINOL
p/astmálningu utan- og innanhúss.
þak- og gó/fmá/ningu.
fúavarnarefni og iakk.
Sérhæft starfsfó/k /eiðbeinir þér um vaiið.
Bffsflngnvóruvarxlao
Trgggva Hanntssonnr
SIOUMÚLA 37-SíMAR 83290-83360
Ld
Nýárssund fatlaðra
A laugardaginn fór fram í fyrsta sinn
í Sundhöllinni í Reykjavík nýárssund
fatlaöra bama og unglinga.
Börn úr öllum skaðahópum: hreyfi-
hamlaöir, blindir, sjónskertir og
Ó
Sigrún Pétursdóttir tekur við afreks-
verðlaunum úr hendi Vigdísar Finn-
bogadóttur forseta. Bikarinn er gjöf
frá íslenskum sjómanni til íþrótta-
félags fatlaðra.
DV-mynd GVA
þroskaheftir kepptu. Á þessu móti voru
einnig veitt sérstök afreksverðlaun
fyrir best unna afrekiö á mótinu og
hlaut Sigrún Pétursdóttir þau.
Farandbikarimi, sem hún fékk fyrst
manna, er nefndur sjómannabikarinn.
Hann er gjöf frá austfirskum sjó-
manni, Sigmari Olafssyni á togaran-
um Snæfugli frá Reyðarfirði.
Sigmar hefur fylgst meö íþrótta-
starfi fatlaöra úr fjarlægð og eitt sinn
er hann var staddur í erlendri höfn
kom hann auga á bikarinn og datt í hug
aö senda félaginu hann til frjálsrar
ráðstöfunar. Sambandiö ákvaö síöan
að nota hann í framangreindu skyni og
gaf honum nafniö sjómannabikarinn.
SGV
Norræna husið:
Webem-tónleikar
— á vegum Musica nova
Aldaraafmælis austurríska tón-
skáldsins Anton Webern veröur minnst
meö tónleikum í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20.30 en tónleikarnir eru
haldnir á vegum Musica Nova. Webern
haföi mikil áhrif á tónlist á þessari öld
því aö nýjar tónsmíðaaðferðir sem
hann og félagar hans tileinkuðu sér í
byrjun aldarinnar uröu leiöarljós
margra yngri tónskálda lengi á eftir.
Webern fæddist í Vínarborg 3.
desember 1883 og starfaöi mestan
hluta ævinnar sem hljómsveitarstjóri,
tónskáld og kennari. Hann lést áriö
1945.
A tónleikunum í Norræna húsinu
veröa flutt verk frá ýmsum tímabilum
ævi hans, sex bagatellur fyrir
strengjakvartett, fjögur verk fyrir
fiölu og píanói, þrjú smálög fyrir selló
og píanó, Tilbrigði fyrir píanó, Fimm
sönglög op. 4 og Kvartett fyrir fiðlu,
klarinett, saxófón og pianó.
Flytjendur verða Þórhallur Birgis-
son, Kathleen Bearden, Helga Þór-
arinsdóttir. Nóra Kornblueh, Snorri
Sigfús Birgisson, Guöríöur Siguröar-
dóttir, Rut Magnússon, Jónas Ingi-
mundarson, Oskar Ingólfsson, Vil-
hjálmur Guðjónsson og Svana Víkings-
dóttir.
-OBG
Kjötsmyglsmálið:
Skoðun en ekki rannsókn
— segir Þórir Oddsson
„Þaö er verið að skoöa ýmsa hluti,
en þaö er ekki hægt aö segja að rann-
sókn sé í fullum gangi,” sagöi Þórir
Oddsson vararannsóknarlögreglu-
stjóri er DV spuröi hann hvaö liöi rann-
sókn RLR á meintu kjötsmygli til
landsins.
Framleiösluráö landbúnaöarms
haföi sem kunnugt er sent beiöni til
RLR um rannsókn á meintu kjöt-
smygli vegna háværs oröróms þar um.
Sagöi Þórir að erindið heföi veriö
þannig sett upp aö það heföi veriö held-
ur haldlítiö þegar það heföi veriö skoð-
aö. Ekki kvaöst hann geta tímasett
hvenær skoðun RLR á málinu lyki.-JSS
Skaftamálið:
Yfirheyrslurekki
haf nar hjá Sakadómi
Dómsyfirheyrslur í dómsrannsókn í Sakadómi, sem annast máliö af hálfu
Sakadóms Reykjavíkur í Skaftamálinu Sakadóms, hafa engar ákvarðanir ver-
svokallaöa eru enn ekki hafnar. ið teknar um þaö hvenær dómsyfir-
Að sögn Agústs Jónssonar, fulltrúa heyrslurnar hefjast. -JGH
Selfoss:
Innheimta opinberra gjalda gengur vel
Innheimta útsvara og fasteigna- samatímaáriöá undan.
gjalda ársins 1983 nam 88,72% af Ibúatala Selfoss 1.12.1983 var 3607
álagningu þann 31. desember, aö sögn manns samkvæmt bráöabirgðatölum,
Olafs Olafssonar fjármálafulltrúa Sel- og haföi fjölgað um 50 manns á árinu.
fossbæjar. Þaö er 0,46% betra en á Regína/Selfossi.