Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 9. JANUAR1984. Fjölgun dómara í Hsstarétti hefur ekki reynst bæta úr vandanum, segir Lög- mannafélag íslands. Lögmenn krefj- ast úrbóta í réttarfari —- meðf erð dómsmála tekur of langan tíma — dómarar fari ekki með veigamikil störf á sviði stjómsýslu „Stjórn Lögmannafélags Islands vekur athygli dómsmálaráöherra á aö hún telur brýnt aö hiö fyrsta veröi gerðar úrbætur í réttarfari,” segir í ályktun sem DV hefur borist. „Meöferö dómsmála tekur of langan tima, einkum í Hæstarétti. I venjulegu einkamáli þarf nú aö bíöa í allt aö eitt og hálft ár frá því mál er þar tilbúið til málf lutnings þar til þaö f æst f lutt. A undanförnum árum hefur verið gripiö til þess ráðs aö fjölga dómurum í Hæstarétti í því skyni aö auka afköst réttarins og stytta þar meö tímann, sem mál þurfa aö bíöa málflutnings. Þetta úrræöi hefur ekki reynst bæta úr vandanum. Þar aö auki hefur þaö leitt til þess aö fordæmisgildi dóma rétt- arins hefur minnkaö. Finnast dæmi þess að sömu lögfræðilegu álitaefnin fái mismunandi úrlausnir eftir því hvaöa dómendur skipa dóm hverju sinni. I réttarfari vestrænna ríkja þekkist ekki sú skipan, sem hér á landi gildir, aö dómarar fari meö veigamikil störf á sviöi stjórnsýslu. Sýnist þaö og kunna aö fara i bága viö 6. grein Mannrétt- indasáttmála Evrópu aö hafa þann hátt á þessu sem hér ríkir. Til úrbóta á ofangreindum efnum hefur aðeins veriö bent á eina hald- bara leiö. Hún er fólgin í þvi aö stofna millidómsstig, Lögréttu, meö dóm- endum, sem emungis hafa dómsstörf meö hönduin. Fyrir liggur frumvarp um þetta efni, sem réttarfarsnefnd hefursamið. Stjórn Lögmannafélags Islands telur að ekki megi lengur dragast aö ráöast í þær umbætur sem í frumvarpi þessu felast. Leyfir hún sér því aö beina áskorun til dómsmálaráöherra um aö hann flytji frumvarpiö á því þingi sem núsitur.” -KMU. Fáskrúðsfjörður: RÆST HEFUR IÍR ATVINNU Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara DV á Fáskrúðsfirði. Mjög gott veður var á Fáskrúösfiröi um jól og áramót. Það var fyrst á miðvikudag að ófært varö á milli staða, ófært er á Reyðarfjörð nema fyrir stærri bíla. Um 80 manns voru á atvinnuleysis- skrá um áramót en nú hefur eitthvað ræst úr. Skuttogarinn Hoffell fór á veiöar á fimmtudag en Ljósafell fer eftir helgi. Unniö hefur veriö aö viögerðum á togurunum síöan þeir komu úr síöustu veiöiferöunum fyrir jól. Afli Ljósafells var 3100 tonn á síðastliðnu ári en var 3220 tonn áriö 1982. Afli Hoffells var 3254 tonn 1983 en 3202 tonn 1982. Þorri SU er byrjaður með línu en afli er tregur, 8 tonn í tveimur veiöi- ferðum. Sæbjörn fer á veiöar eftir helgina. Vinna er hafin við síldina hjá Pólar- síld og Sólborgu eftir smáhlé. Um 2000 tunnum veröur skipaö út frá Pólarsíld um helgina og eru þá farnar um 3800 tunnur frá síöustu vertíö. A gamlárskvöld var brenna og flug- eldasýning hér fyrir botni fjarðarins, sem tókst mjög vel. Handan fjarðarins var komiö fyrir logandi kyndlum, sem sýndu ártaliö 1983, en á miönætti var ártalinu breytt í 1984. Aramótadans- leikur var f jölsóttur og fór vel fram. -GB. Vopnafjörður: Atvinnuleysi Frá Asgeiri H. Sigurðssyni, frcttarit- ara DV á Vopnafirði. Nokkurt atvinnuleysi er nú á Vopna- firöi þar sem engin vinnsla hefur verið í frystihúsinu Tanga hf. síðan fyrir jól. Minni togari Vopnfirðinga, Eyvindur Vopni, bilaði fyrir miðjan desember en meira en áður vonir standa til aö hann fari aftur á veiðar í næstu viku. Brettingur er hins vegar á veiöum nú og er væntanlegur til hafnar eftir helgi. Rætist þá vænt- anlega eitthvaö úr atvmnuástandinu sem hefur ekki veriö jafnslæmt síöustu árin. -GB. Hótel Loftleiðir: Óprúttnir settu brunakerf ið í gang Einhverjir óprúttnir tóku sig til á Slökkviliöiö kom strax á vettvang en Hótel Loftleiðum um áttaleytið á laug- enginn var eldurinn. Ekki er vitað hver ardagskvöldiö og brutu gler í bruna- eöa hverjir settu boöunarkerfiö í gang. boöunarkerfi hótelsms og settu það í -JGH. gang. Baldwin Crsel SL Skemmtara $kelinn Ármúla 38 — Sími 32845 1 Nú geta aliir lært að spila létta og skemmtilega músík á skemmtara eða rafmagnsorgel. Námskeiðið byrjar 9. janúar Innritun í Hljóðfæraverslun Pálmars Árna hf., Ármúla 38. aítarskóli •^ÖLAFS GAUKS Innritun allra aldursflokka fer fram daglega kl. 2—5 e.h. í skólanum, Stórholti 16, sími 27015. Upplýsingasími á öðrum tíma 85752. Olyrnpia compact Rafeindaritvél í takt við tímann Hraði, nákvœmni og ýtrasta nýtni á skrifstofurými. Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst og hagkvœmni ekki síður en heilsusamlegan og hljóðlátan vinnustað. Prenthjólið skilar áferðarfallegri og hreinni skrift. Leiðréttingarminnið hefur 46 stafi. Pappirsfœrslu og dálkasetningu er stjómað án pess að fœra hendur af lyklaborði. Endurstaðsetning, leturþétting og ýmsar leturgerðir. KJARAIM ARMÚLI 22 - REYKJAVÍK - SiMI 83022 MIKIL VERÐLÆKKUN Mlk’ MIKIL VERÐLÆKKUN ipíáfwn Laugavegi 66, sími 25980.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.