Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Side 6
' ÖV.'MÁMJDAGUR 9. JÁNÖAR1984.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Hlutverki kaupmannsins á horninu er ekki lokið.
Kaupmaðurinn
á horninu
á hann í vök að verjast?
Hvort kaupmaðurinn á horninu sé aö
líða undir lok hefur nokkuð verið á
vörum fólks í seinni tíð. Meö tilkomu
stórmarkaðanna er ljóst aö eitthvað
hefur dregið úr veltu hinna smærri
kaupmanna sem voru allsráðandi hér
fyrir nokkrum árum. Svipuð þróun
hefur átt sér staö erlendis og hafa
margar hinar smærri verslanir orðiö
að lúta í lægra haldi fyrir hinum stóru.
Það eru margir sem álíta að þetta sé
óheillavænleg þróun. Þörfin fyrir
til samanburöar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátltak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
Qölsk.vldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tseki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
•i i
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í desember 1983.
Matur og hreinlætisvörur kr.
1 Annaö kr.
I
Alls kr.
)i
Stöndum ekki
illa að vígi
— segirlngibjörn
Hafsteinsson kaupmaður
..Flestir hafa verið þeirrar skoöunar
að selja skuli fyrst og fremst vörur
sem viðskiptavinirnir vilja kaupa.
Þessi hugmynd hefur ekki komið upp á
borð hjá okkur. Kaupmenn eru ekki
uggandi bara vegna tilkomu Mikla-
garðs. Samkeppnin milli matvöru-
kaupmanna er orðin geysileg og engin
takmörk virðast vera á því hversu
margir stórmarkaðir fá aö rísa hér á
höfuðborgarsvæðinu,” sagöi Ingibjörn
Hafsteinsson, kaupmaður og formaður
framkvæmdanefndar K-kaupmanna,
þegar við spurðum hann hvort eitthvað
væri til í þeim orðrómi sem heyrst
hefur aö smávörukaupmenn hyggist
taka höndum saman og hætta að selja
vörur sem framleiddar eru af SIS-
verksmiðjum.
Ingibjörn sagði að útilokað væri að
hætta aö selja ákveðnar vörur frá
ákveðnum aðilum. Sambandið væri
reyndar samkeppnisaöili þeirra en
betra væri að reyna aðrar aðferðir í
þessum efnum. t
Nýlega stofnuðu kaupmenn samtök
þar sem áhersla er lögð á aö hafa ætíð
ákveðnar vörur á tilboösveröi.
„Þetta hefur fengið góðar viðtökur
hjá viðskiptavinum okkar og reynsla
af þessu er góð. Eg álít að þegar upp er
staðið sé ekki dýrara að versla í hinum
smærri verslunum. Við bjóðum upp á
þjónustu sem stórmarkaðirnir gera
ekki eins og til dæmis aö skrifa hjá
fólki og senda vörur heim til fólks.”
— Er hætta á að kaupmaöurinn á
horninu hverfi úr sögunni?
„Mér hefur fundist að nú í seinni tíö
höfum við fengið meðbyr og tel ég það
stafa m.a. af því að fólk er orðið leitt á
að versla í stórmörkuðum. Einnig
hefur komið í ljós að smáverslanir
hafa ekki komið illa út úr þeim verö-
könnunum sem gerðar hafa verið bæði
í DV og af Verðlagsstofnun. Eg tel að
við stöndum ekki illa að vígi,” sagöi
Ingibjörn Hafsteinsson.
-APH
kaupmanninn á horninu er enn fyrir
hendi. En svo virðist sem smákaup-
mennirnir ætli ekki að gefa sig og
reyna nú öll tiltæk ráð til að b jarga hag
sínum. Heyrst hefur að sumir þeirra
séu argir út í Sambandið vegna til-
komu hins stóra markaðs, Miklagarðs,
og hafa þeir jafnvel haft á orði aö
hætta að selja vörur sem framleiddar
eru í verksmiðjum Sambandsins.
En hvað sem því líður er þörfin fýrir
kaupmanninn á horninu fyrir hendi.
Hann þjónar sínu hverfi, sem kemur
sér vel fyrir aldraöa og bíllausa sem
eiga erfitt með að ferðast langar leiðir
til að kaupa inn sínar nauðsynjar.
Einnig telja kaupmenn í hinum smærri
verslunum að verðið hjá þeim sé ekki
hærra en hjá stóru verslunum þegar á
heildina er litið
Það er ljóst aö mikil samkeppni er
meöal matvörukaupmanna og verður
spennandi að sjá hvernig henni lyktar.
Aukin samkeppni kemur fram í lækk-
andi vöruverði og er til bóta fyrir neyt-
endur, en getur einnig haft slæmar
afleiðingar fyrir þá ef niðurstaðan
verður sú að kaupmaðurinn á horninu
verðuraðloka.
-APH
„Unnið að
skipulags-
breytingum”
— segir Þór Fannar,
framkvæmdastjóri IMA
„Eg hef heyrt þessu fleygt en ég tel
aö þetta sé meira sagt í hita leiksins
en í alvöru. Við erum sjálfir með
samning við Sambandsfyrirtæki og
höfum góða reynslu af því. En því er
ekki að leyna aö þaö vekur gremju
meðal kaupmanna þegar vörur frá
Sambandinu eru seldar á betri kjör-
um í verslunum sem eru á þeirra
böndum,” sagði Þór Fannar, fram-
kvæmdastjóri Innkaupasambands
matvörukaupmanna. (IMA) Inn-
kaupasambandiö er fyrst og
fremst samband hinna smærri kaup-
manna. Þaö flytur inn vörur og sér
einnig um aö kaupa inn vörur frá
öðrum heildsölum og reynir að fá
magnafslátt á vörum.
Þór Fannar sagði aö þessi
afsláttur hefði ekki komið mikiö
fram í vöruverði kaupmanna m.a.
vegna þess að þeir hafa þurft á fullri
álagningu að halda. Nú væri hins
vegar unnið aöskipulagsbreytingum
á sambandinu þar sem áhersla yrði
lögð á að fá meiri afslátt af vörum og
stefnt að því að það komi fram í smá-
söluverðinu. Fundur verður haldinn
næstkomandi fimmfudag þar sem
þessi mál verða rædd nánar.
Hann sagði ennfremur að nú væru
að hans mati allt of margar stór-
verslanir hér á höfuðborgarsvæðinu
og vonaðist eftir þvíaöekkifærisvo
sem svo víða erlendis þar sem oröiö
, heföi að loka smáverslunum í stórum
stíl.
Einnig sagði hann aö líklega yröi
tekin einhver ákvöröun varðandi
greiöslukort. En þau hafa skapað
aukinn vanda fyrir kaupmenn. Hann
sagði að þau væru engum til góðs og
allra síst kaupmönnum. Það væri
ekki fráleit hugmynd aö kaupmenn
tækju upp á því að gefa þeim við-
skiptavinum sinum afslátt sem
greiddu út í hönd.
-APH
Húsráð
Fersk salatblöð
Ferdd kál, til dæmis salatblöð,
verður yfirleitt lint og lepjulegt við
geymslu i ísskáp, þó aðeins sé þaö
geymt í einn eða tvo daga. Það getur
verið prýðilegt að geyma ferska
kálið í lokuöum plastpoka í ísskápn-
um. Þó myndast óæskilegur raki í
pokanum sem linar kálið. Ef við
setjum eitt blað af eldhúsrúllu með
kálinu í lokaðan plastpokann
geymist það betur. Bréfið „drekkur”
í sigrakann.
Korktappar
Það er vandamál aö troöa korktappa
aftur í flöskustút hálftómra flaskna
því þeir bólgna út þegar þeir eru
teknir úr flöskunum. Ef við aftur á
móti skerum korktappann í tvennt, á
ská eins og myndin sýnir, leysum viö
þetta vandamál auðveldlega. Þegar
viö höfum klofiö tappann í tvennt
leggjum við breiðari enda hvors
hluta saman. Utkoman verður tappi
sem auðveldlega er hægt að nota í
flestar flöskur því að mjóu endarnir
■ smellaístútinn.
-ÞG
—