Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 9
DV. MANUDAGUR 9. JANUAR1984. 9 Útlönd Útlönd TENGDADÓTTIRIN ÖGRARINDIRU Maneka Gandhi þykir tengda- móður sinni Indiru farast illa stjómun ríkisins og býður sig fram gegn syni hennar. Tengdadóttir Indiru Gandhi býöur henni byrf>inn í næstu þingkosningum meö þvi aö bjóöa sig tram gegn mág- inum, Rajiv Gandhi, eldrisyni Indiru. Maneka Gandhi, ekkja Sanjays (27 ára), ætlar aö bjóöa sig fram í Uttar Pradesh, helsta vígi Kongressflokks Indiru, cn þaö var áöur kjördæmi Sanjays. Aðalkosningamál hennar og flokks hennar „Sanjey-þjóðarfylking- arinnar” er baráttan gcgn „svörtum peningurrt”, en þar. er átt viö spillingu meöal embættismanna og pólitíkusa. Indrira ól Sanjey upp til þess aö veröa pólitiskur arftaki hennar á Ind- landi en hann og ýmsir fleiri ung- gæöingar í Kongressflokknum voru umdeildir fyrir óvönduð meööl í kosn- inga- og stjórnmálabaráttunni. Sanjey fórst í flugslysi í júní 1980. — Tveim árum síöar flutti Maneka af heimili Indiru og stofnaöi eigin f lokk. I aukakosningum í síöasta mánuöi gekk Kongressflokki Indiru upp og of- an en vann þó 9 kjördæmi af 14 þarsem kosið var. En hann tapaöi 4 af G í Uttar Pradesh. Indira styöst viö tvo þriöju meirihluta í neöri deildinni en nauman meirihluta í efri málstofunni. Atal Behari Vajapyee, fyrrum utan- ríkisráöherra, hefur skoraö á stjórnar- andstööuflokkana aö stofna kosninga- bandalag gegn Indiru og Kongress- flokknum. Sagöi hann aö hryöjuverk og óreiöa einkenndi stjórnarfarið og aö stjórnin hrektist stýrislaust frá einni kreppunni til annarrar. ísland brautrydjandi í kvennapólitík? “KVENNAPOUTIK” LIVES! I nýlegu hefti banda- ríska timaritsins Ms. birtist frétt undir fyrirsögninni „Kvenna- politik lives”. Er þar skýrt frá sigri Kvennalistans í þingkosningunum á Islandi sl. vor, þar sem hann náöi 5 prósentum þingsæta og varö þar með fyrsti „kvennaflokkur” í heiminum til aö vinna slíkan sigur í f ulltrúalýöræði. Segir cnnfremur í frétt Ms. aö sigur Kvennalistans komi í kjölfar baráttu sem hófst meö því aö mörkuð voru tímamót á kvennadaginn 1975 meö stærsta mótmælafundi í sögu þjóöar- innar. Þá segir frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur i embætti forseta lýðveldisins áriö 1980, sem einnig markaöi skref í mannkynssögunni. Síðan segir í fréttinni aö stefna Kvennalistans sé endurdreifing valds II1 1 * Umsjón: Guðmundur Pétursson og aukin þátttaka kvenna í stjórn- sýslunni, endurmat á launum þar sem hlutur kvenna hafi veriö skertur, um- hverfisvernd og varðveisla Islands sem kjarnorkuvopnalauss svæðis. Blaöiö hefur eftir Guörúnu Agnars- dóttur þingmanni aö hugtakiö kvenna- pólitík tákni baráttu kvenna til aö skapa umhverfi og umheim út frá „okkareigin sjónarmiöum”. o I n April 23, a dream came true as Iceland's Kven- nalistinn (literally I "Women's list") gained 5 percent of the seats in the Icelandic parliament and became one of the first women's parties in the world towin federal representation The victory came afte’- decade of dramatic f' beginning with th*- ■'en's strike, 4’ Klappliðið kúgar dansara Ballettaödáendur sem klappa uppáhaldsstjörnur sínar upp hjá Bolshoi-ballettinum í Moskvu eru ekki allir jafn einlægir. Sumir þeirra mynda glæpaflokk sem kúg- ar ballettstjörnurnar. Sovéska blaöið Sovietskaya Rossia segir aö ungir dansarar sem telja sig þurfa aö vekja góöa athygli til að komast áfram á lista- braut sinni freistist til þess að láta frimiöa í hendur þessu klappliöi og þaö jafnvel á sýningar þar sem miðar eru af skornum skammti. En klappliöið gengur stundum svo langt að krefja þá uin fleiri miöa eöa jafnvel peningagreiöslur meö hótunum. Hótaö er t.d. aö gera dansarann andvaka meö stööugum simhringingum nóttina fyrir sýningu eða hefja upp mikinn hóstakór þegar dansarinn komi fram á sviðið. I einu staöfestu tilfelli var músum sleppt lausum í áhorfendasalnum á meöan sólóat- riöistóðyfir. SKODA120 LS ARG. 1980. Þrælduglegur í snjónum eins og allir hinir Skodarn- ir. Toppástand, skoðaður 1984 og 6 mánaða ábyrgð fylgir. JÖFUR HF. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaöinu á fasteigninni Hafnar- götu 53, efri hæð og risi í Keflavik, þingl. eign Guöinundar Oddbergs- sonar og Hrafnhildar G. Atladóttur, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Jóns G. Briem hdl. og Veðdeildar Landsbanka Islands, fiinmtudaginn 12. 1. 1984 kl. 11.15. Bæjarfógetiun í Kcflavík. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur veriö í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Framnes- vegi 1 í Keflavík, þingl. eign Hraöfrystihúss Keflavíkur hf., fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Utvegsbanka Islands og Vilhjálins Þórhalls- sonar hrl. fimmtudaginn 12.1.1984 kl. 11.30. Bæjarfógetinn í Keflavik. Úrvals skíðaferð til Austurríkis er örugglega skemmtilegasta ævintýri sem íslenskir skíðamenn eiga kost á, því Badgastein er án efa einn allra besti skíðastaður Austurríkis. Aðstaðan er öll eins góð og hægt er að hugsa sér: Snjóhvít fjöll, fagurblár himinn, heit sól, endalausar skíðabrekkur, vinalegir veitingastaðir, hlýleg hótel, elskulegt fólk. I einu orði sagt: Ævintýri. Við bjóðum úrvals gistingu á: Gletschermuhle m/morgunverði Leimböch m/morgunverði Simader m/hálfu fæði Satzburgerhof m/hálfu fæði. Nú er bara að taka fram skíðaskóna! Næsta brottför er 5. febrúar, - örfá sæti laus. Verð aðeins 21.650.- krónur, — m/morgunverði. Aðrar brottfarir í vetur: 19. febrúar 4. mars, - örfá sæti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.