Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Side 23
DV: MAMlbACÍÚRb.jÁN’ÖAR'1984! 23 íþróttir íþróttir íþróttir Páll Björgvínsson var sínum gömlu félögum í Víkingi erfiðuriLaugardalshöllinniálaugardag. ÞRÓTIUR STEFNIR NÚ í ÚRSUTAKEPPNINA — í 1. deildinni í handknattleik eftir öruggan sigur áVíkingi, 28-25 Þróttur hefur nú góða möguleika á að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik eftir öruggan sigur á Víkingi, 28—25, í leik liðanna í 1. deild í Laugar- dalshöll á laugardag. Þýðingarmikill sigur Þróttar og verðskuldaður í heldur slökum leik, þar sem varnar- leikur beggja liða var lélegur, svo og markvarsla, einkum þó hjá Víkingum. Varla varið skot. Hins vegar brá oft fyrir þokkalegum köflum í sóknar- leiknum og falleg mörk sáust. Þróttur hefur nú hlotið 5 stig úr þremur síðustu leikjunum. Fimm stig í sjö þeim fyrstu. Þróttur var skárra liðiö nær allan leikinn. Páll Björgvinsson stjórnaði leikmönnum sínum eins og herforingi og skoraði grimmt, einkum í fyrri hálf- leik. Var sínum gömlu félögum erfiður og lék sinn besta leik með Þrótti. Þá réðu Víkingar einnig lítið við Pál Olafs- son þó þeir reyndu aö taka hann úr umferð. Þróttur lék yfirvegað, hélt hraðanum niðri og fann svo auðveld- lega glufurnar í vörn Víkings. Víkings- liðiö var hálf vængbrotið í þessum leik. Viggó Sigurðsson lék ekki með vegna meiðsla og Sigurður Gunnarsson gekk ekki heill til leiks. Þó hlýtur þessi leikur að vera Víkingum áhyggjuefni, einkum þó markvarslan. Steinar Birgisson og Guðmundur fyrirliði Guð- mundsson hinir einu sem eitthvað virkilega kvað að. Leikurinn var lengstum mjög jafn. Þróttur skoraði tvö fyrstu mörkin en Víkingur jafnaði í 2—2. Náði síðan forustu 5—3 og hafði yfir nær allan fyrri hálfleikinn. Staðan 14—13 fyrir Víking í hálfleik. Þróttur sneri dæminu STAÐAN 2. DEILD Fram sigraði ÍR 27—21 í 2. deild karla i handknattleiknum i Laugar- dalshöil í gær. Þá vann Breiðabiik Gróttu 25—24 fyrir helgi. Staðan í deiidinni er nú þannig: Fram Þór, Vest. Breiðablik Grótta HK IR Fylkir Reyuir 10 8 1 1 230-192 17 8 8 0 0 179—131 16 9 7 0 2 191—163 14 10 6 0 4 219—201 12 9 3 0 6 160—181 6 10 3 0 7 159—194 6 9 1 1 7 156-186 3 9 0 0 9 187-233 0 viö í síðari hálfleik. Skoraði tvö fyrstu mörkin og síðan jafnt á öllum tölum upp í 20—20. Síðan komst Þróttur yfir, 22—20, og hafði forustu það sem eftir var. Þegar tvær mín. voru eftir var staðan 26—25 en Þróttur skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Mörk Þróttar skoruöu Páll 01. 10, Páll Bj. 8, þar af fjögur af fimm fyrstu mörkum Þróttar. Konráð Jónsson 5, Birgir Sigurösson 3 og Jens Jensson 2. Mörk Víkings skoruðu Steinar 8/2, Guömundur 6, Hörður Harðarson 3, Karl Þráinsson 3, Hilmar Sigurgísla- son 3 og Einar Jóhannsson 2. Dómarar Guðmundur Kolbeinsson og Sigurður Baldursson. Víkingur fékk tvö vítaköst, Þróttur ekkert. Tveimur leikmönnum Þróttar var vikið af velli, fimm Víkingum. -hsím. Dómarinn lét ekki sjá sig —og 30 mín. tafir urðu á leik Hauka og Vals. Valsmenn unnu 28-17 Valsmeim unnu öruggan sigur yfir Haukum 28—17 í 1. deildarkcppnmni i handknattleik þegar þeir mættust í Hafnarfirði á laugardaginn. 30 mín. tafir urðu á að leikurinn gæti hafist þar sem annar dómarinn lét ekki sjá sig. Það var Elías Jónasson, fyrrum leikmaður Hauka, sem er nú búsettur í Svíþjóð, sem hljóp í skarðið og dæmdi ieikinu fyrir dómarann sem mætti ekki og skilaði Elías hlutverki sinu mjög vcl. Haukarnir héldu í Valsmenn í fyrri hálfleik og var staöan 12—9 fyrir Val í leikhléi. Valsmenn tóku síöan leikinn í sínar hendur í seinni hálfleik og skutu Haukaá bólakaf. Júlíus Jónsson, hinn ungi og efnilegi leikmaður Vals, átti stórgóðan leik — hann skoraði sjö mörk úr sjö skot- tilraunum. Aðal Valsliðsins er hve jafnir leikmennirnir eru. Þórir Gíslason var yfirburðamaður í slöku liöi Hauka. Þeir sem skoruöu mörkin voru: Fyrir Hauka. Þórir G. 7, Hörður Sigmarsson 3, Ingimar Haraldsson 3, Karl Lárus 2, Jón Hauksson 1 og Sigur- jónSigurðssonl. Fyrir Val. Júlíus 7, Brynjar 7/5, Jakob S. 6, Valdimar 3, Steindór 3, Þor- björn Jensson 1 og Jón Pétur 1. -SOS. Stjörnusigur á KR Stjarnan úr Garðabæ tryggði sér bæði stigin gegn KR í 1. dcild karla í handknattieiknum með góðum loka- spretti í leik liðanna í nýja íþrótta- húsmu í Kópavogi á föstudagskvöld. Þaö var snjall leikur þeirra Hannesar Leifssonar, sem skoraði grimmt, og Brynjars Kvaran í marki sem tryggði Stjörnunni sigurinn. Lokatöiur 22—18. I hálfleik var staðan 10—10 og frainan af síöari hálfleik var einnig jafnt. Þá komust Stjörnumenn í 18—15 og unnu síöan öruggan sigur. KR-ingar reyndu að leika maður á mann loka- kaflann en þá jókst bara munurinn. Gunnar Gíslason lék sinn fyrsta leik með KR eftir dvölina í Þýskalandi. Mörk Stjörnunnar í leiknum skor- uðu: Hannes 9/3, Magnús Teitsson 5, Eyjólfur Bragason 3, Gunnlaugur Jónsson 3, Björgvin Elíasson og Bjami Bessason eitt hvor. Mörk KR: Guð- mundur Alfreösson 6/1, Jakob Jónsson 6/2, Jóhannes Stefánsson 3, Friðrik Þorbjörnsson 2 og Gunnar 1. Fóstrur Staða forstöðumanns viö dagheimilið og leikskólann viö Tjarnargötu í Keflavik er laus til umsóknar, staðan veitist frá 1. febrúar 1984. Upplýsingar um stöðuna eru veittar hjá félagsmálafulltrúa, Hafnargötu 32, sími 92-1555, frá kl. 9—12 alla virka daga. Skrif- legar umsóknir þurfa að berast félagsmálafulltrúa fyrir 20. janúar nk. Félagsmálaráð Keflavíkurbæjar. tiav*1. n9rl' ru fai sp r*1* ífrsei*1 et ótt» ieða fÞ1Sa3 _____ (SuPer ^°ou la9i’ r8^ír^ia Þjiðttfi ** að aU_,;kla n , * Ha*1 6l»steraa n>i8st° pV>* 3 mf® aiD- af ta‘la LLpC byrga. Sérst‘,„ ðvafn,r 6 áf* fe!9ur; 13 t0°";A. arjO 09 "rtda° e^S°l IUU .ZDA t>estat 1 10 BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.