Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 40
Urval ÚRVALSEFNI VIÐ ALLRA HÆFI ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022 LUKKUDAGAR 8. JAIMUAR: HARMÓNÍKA FRÁ I.H. AÐ VERÐMÆTI KR. 1500. 33422 9. JANÚAR: 59315 FLUGDREKI FRÁ I.H. AÐ VERÐMÆTI KR. 100 Vinningshafar hringi í síma 20068 ■' -Ííll ;i|i m WÍMMk ' 's LOKfi Jafnvel Jarúselski er I skárrí kostur en Dennil! TALSTÖÐVAR- BÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 8-50-60. ÞRÖSTUR SÍÐUMÚLA 10 27022 AUGLYSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSING AR AFGREIÐSLA SKRÍFSTOFUR; ÞVERHOLT111 86611 RITSTJÓRN SÍDUMÚLA 12-14 MANUDAGUR 9. JANUAR 1984. Helgarskákmótið íÓlafsvík: Helgi ef stur Helgi Olafsson varö hlutskarpastur á helgarskákmótinu, sem haldið var í Olafsvik nú um helgina. Hann hlaut 6 1/2 vinning af 7 mögulegum. Helgarskákmótiö var hiö 22. í rööinni og var það haldiö í minningu Ottós Arnasonar. Þátttakendur voru 42, þar af 29 úrOlafsvík. Sem fyrr sagöi hlaut Helgi Olafsson flesta vinninga. I ööru sæti varð Jó- hann Þórir Jónsson meö 6 vinninga og 23 1/2 stig. I þriöja sæti varö Guðmund- ur Arnason meö 6 vinninga og 21 1/2 stig, fjórði var Helgi Hansson meö 5 1/2 vinning, 28 stig og fimmti Sævar Bjarnason meö 5 1/2 vinning, 24 1/2 stig. Oli Valdimarsson varö sjötti meö 5 1/2 vinning og 23 1/2 stig. Hann varö jafnframt hlutskarpastur í öldunga- flokknum. Af 20 ára kcppendum og yngri uröu hlutskarpastir þeir Karl Þorsteinsson og Arni A. Arnason meö 5 vinninga, af 17 ára og yngri Tómas Björnsson og Arnór Björnsson meö 5 vinninga. Af fjórtán ára og yngri urðu efstir Kristján Sævarsson og Tómas Her- mannsson með 4 vinninga og hlut- skarpastur heimamanna varö Arnór V. Arnórssonmeö41/2vinning. -JSS Þökfukuá Fáskrúðsfirði Miklar skemmdir uröu á tveim hús- um á Fáskrúösfiröi í hvassviöri í nótt. Hluti af þaki húss Pólarsíldar fauk og lenti á ibúöarhúsinu Gilsbakka sem er viö Búöaveg 53. Stór hluti þaks íbúöar- hússins brotnaöiaf. Brot úr þökunum héldu ferðinni áfram, lögöu niöur Ijósastaur og skemmdu fólksbil. Rafmagn fór af byggöinni smátíma. Þetta gerðist um eittleytiö. I þessu suðaustan roki fuku einnig þakplötur af nokkrum húsum. Félagar úr björgunarsveitinni Geisla aöstoö- uöu húseigendur við að festa niður þak- plötur. Nokkur loönuskip leituöu inn á Fá- skrúösf jörö í var frá óveðrinu. -KMU/Ægir, Fáskrúösfiröi. Þingeyrí: Uppsagnir og refsiaðgerðir —langvarandi deilur í f rystihúsi staðaríns Hópur starfsfólks frystihúss Dýr- firöinga á Þingeyri hefur á undan- förnum mánuöum átl í nokkrum úti- stööum viö yfirmenn fyrirtækisins. Þetta mál á sér nokkuð langa for- sögu og er svo komið nú að ákveöin atriöi málsins eru komin í hendur lögfræðinga. Þar er um að ræöa brottrekstur tveggja starfsmanna frystihússins en þeim er meöal annars gefið að sök aö hafa falsaö vinnutímatölur og þannig stolið til sin bónusgreiöslum. Var þeim sagt upp fyrirvaralaust þrátt fyrirað báöir væru fastráðnir. Fleira fólki hefur verió sagt upp störf um i tengslum viö öll þessi deilu- mál og eftir því sem næst verður komist hafa yfirmenn frystihússins beitt refsiaögerðum gegn ýmsum sem teng jast deilunni. Þær aðgerðir hafa meðal annars verið fólgnar í útstrikunum á bónus, refsibónus og einnig hefur fólki veriö neitað um fastráðningu. Vcrkalýðsfélagið Brynja á Þing- eyri hefur ekki séð ásta'ðu til aðgerða vegna þessara deilumála og stafar hluti af óánægju verkafólksins af því. Hefur þaö því beðið Alþýðusamband Vestfjarða aö athuga máliö og er þeirri athugun ekki lokið. -SþS. Margir skíðaiiK'im uotuðu golt skíðafæri á laugardag og brugðu sér í skíðalöndin. Myudiie var tckin af biðröðiuui i Blál'.jöllum. Nýja lyftau hefur eiiu ekki verið tekin í iiolkuu. DV-myiid GVA. 6 ltfU ♦ ' i j n jf-ð Ju t fl (i Símanúmera- happdrættið: Sú sem borg- aðifærvinn- inginn ,,Eg er 'mjög ánægð," sagði stúlkan í Keflavik sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur ákveöið að afhenda bílavinning í símanúmerahappdrætti félagsins. Eins og lesendum blaösins er kunnugt risu deilur milli stúlkunnar í Keflavík sem hefur símann og borgaði happdrættismiöann og annarrar stúlku sem geröi tilkall til vinningsins á þeim forsendum aö sími stúlkunnar í Kef la vík væri á sínu nafni. Styrktarfélagiö tók þessa ákvörðun eftir leiöbeiningum Guðmundar Ingva Sigurðssonar hæstaréttarlögmanns. ,Hann hefur kynnt sér málið rækilega og skilaöi áliti byggöu á viötali við málsaöila og reglugeröum um happdrætti," sagöi Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaöra. „Bíllinn veröur afhentur á þriöjudag- rnn ásamt öörum bílum sem voru vinningar i happdrættinu,” bætti Sigurður viö. -SGV. Siglufjörður: Snjóflóð féHskammt f rá húsi Tvö snjóflóö féllu í Siglufiröi í gær en ollu engum skaða. Aö sögn lög- reglunnar á staönum var hvort flóðanna um 150 metrar á breidd neöantil. Innra flóðiö var talsvert þykkra en þaö sem féU nær bænum. Ytra flóðið fór aðeins 20 til 25 metra frá húsinu númer 86 viö Suðurgötu, sem er syðsta húsið i bænum. Snjóflóðin féllu sitt úr hvoru gilinu klukkan 16.45. Almannavarnanefnd Siglufjarðar kom saman til fundar í gærkvöldi og sendi frá sér aðvörun um frekari snjóflóðahættu. Lögreglan var á vakt i alla nótt. Fólk fór úr þremur syðstu húsum bæjarins í öryggisskyni. I morgun taldi lögreglan að snjóflóða- hættan væri liðin hjá. I nótt fór rafmagn tvisvar af Siglu- firði. Við það datt hitaveitan út. I fyrra skiptið varð samsláttur á Iinu frá Skeiösfossvirkjun en síðan bUaði strengur sem liggur milli spennistöðva innanbæjar. -JBH, Akurcyri. fólksins farinn f rá Islandi Aðeins 12 manns eru eftir af þeim 26 manna hópi pólskra flóttamanna sem kom hingað til lands á vegum Rauöa kross Islands í maímánuði 1982. Tvær fjölskyldu fóru burt af land- inu þegar á sama ári og þær komu. Síóan hefur verið að fækka í hópnum. A síðasta ári fór ein kona til London, ein fjölskylda fór aftur til Austur- ríkis, þaðan sem flóttamennirnir komu í upphafi, og hinir sneru aftur heim til Póllands. Tæpur helmingur hópsins er enn í landinu, þrjár fjöl- skyldur, með samtals fimm börn, og einn einstaklingur. „Þetta er sama reynsla og ná- grannar okkar á Norðurlöndum hafa haft,” sagði Björn Friöfinnsson, stjórnarmaður Rauða kross Islands, er hann var spurður hverju þetta sætti. „Þaö pólska flóttafólk sem kom til Norðurlanda hefur sótt mikiö vestur um haf og einnig til Suður- Afriku þar sem mikil laun eru í boði fyrirmenntaöfólk. Margt af því fólki sem kom hingaö festi hér ekki yndi. Þaó hafði orð á því að því fyndist hér kalt og dimmt. En ég tel að fólkið sem cnn er eftir hafi haft meiri ástæðu til að flýja land en það sem sneri aftur,” sagði Björn Friðfinnsson. Enn eru hér á landi hjónin Stefan og Ivona Salbert sem lentu i nokkr- uin útistöðum við læknadeild Háskól- ans á siðasta ári Vegna starfsleyfa. Hann var áður starfandi háls-, nef- og eyrnalæknir cn hún starfaöi sem tannlæknir. Þau stunda nú bæði nám viö Háskóla Islands til aö afla sér til- skilinna réttinda. ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.