Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Síða 8
DV. KtólíÚÖÁbÚlí§0. ÍÁKú'ÁBÍ 1984. 'n
RYÐVORN sf.
SMIÐSHÖFÐA 1, S. 30945
Orðsending til bifreiðaeigenda:
Eigendur bifreiða úrg. '81 og eldri;
vinsamlegast hugið að endurryðvörninni.
Það er mesti sparnaðurinn.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Okkar sérgrein er trúlofunar-
hringar. Mjög gott og fjöl-
breytt úrval. Sérstaklega góð
aðstaða til að skoða og velja
hringana. |_ÍTIÐ INN
Sendum litmyndalista
JÓIM og ÓSKAR,
Laugavegi 70, 101 fíeykjavík, simi24910.
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
BOLTAR. RÆR. SKÍFUR
m.m.-stærðir
Mikið úrval - Gott verð
BIFREIDAR & LANDBUNADARVELAR
Suðurlandsbraut 14
Varahlutir
392 30
Skiptiborð
38600
Útlönd Útlönd Útlönd
Reagan stefnir
aö endurkjörí
— Lýsti yf ir framboðsákvörðun sinni í sjónvarpsræðu í gærkvöldi
Reagan Bandaríkjaforseti tilkynnti
í sjónvarpsræðu í gærkvöldi aö hann
stefndi að endurkjöri í forsetakosning-
unum í nóvember.
„Okkar verki er ekki lokið,” sagði
hanníræöunni,” ogtilkynniégaðéger
frambjóðandi og mun leita eftir endur-
kjöri til þessa embættis sem ég nú
gegni.”
Innan Repúblíkanaflokksins mun
Reagan ekki mæta harðri samkeppni
um útnefningu sem frambjóðandi
flokksins sem ákveðiö verður á lands-
þinginu i ágúst.
Demókratar munu velja sinn fram-
bjóðanda í júlí en átta framboösefni
keppa að því að hljóta útnefningu.
Walter Mondale fyrrum varaforseti
þykir þar langliklegastur.
Reagan, sem er 72 ára, er elsti
Bandaríkjaforseti sögunnar. Hann
sagði að ákvörðunin um að stefna að
endurkjöri hefði verið erfið en honum
fyndist sem sér bæri að halda áfram
viðleitni sinni til atvinnusköpunar,
spamaöar þess opinbera og til heims-
friöar.Viö ,,Bush varaforseti vildum
gjarnan að þið stydduð okkur áfram til
að ljúka því sem viö byrjuðum á fyrir
þrem árum,” sagði forsetinn.
Vinsældir
Reagans
aukast
Vinsældir Reagans hafa aukist,
samkvæmt nýjustu skoðanakönnun
sem birt er í tímaritinu Newsweek.
Segir blaðið að „persónufyigi
Reagans virðist hafið yfir málefn-
in.”
Niðurstöður könnunarinnar
sýna að 56% þeirra sem spurðir
voru sögðust treysta Reagan til
þess að gera hið rétta.
I könnuninni kom f ram að mörg-
um fannst sem Reagan hefði hjálp-
að til þess að Bandaríkin endur-
heimtu virðingu sína og fyrra
heimsálit. Þó voru þeir eins og á
nálum yfir því hvernig Reagan
tæki á málum Mið-Ameríku og
Austurlanda nær.
Tveir af hverjum flmm landsmönn-
um Reagans virðast samkvæmt
þessari könnun þeirrar skoðunar
að heimurinn hefði færst nær
kjarnorkustyrjöld undir stjórn
Hans.
George Bush varaforseti verður í
framboði með Reagan því að enginn
annar innan Repúblikanaflokksins
þykir liklegur til að veita þeim neina
teljandi samkeppni.
Reagan, sem verður 73 ára þann 6.
febrúar, fékk yfirburðasigur yfir
Jimmy Carter í kosningunum 1980.
I sjónvarpsræðunni rif jaöi hann upp
að þegar hann tók við embætti 1.
janúar 1981 hefðu Bandaríkin staöið
höllum fæti bæði hernaðarlega og efna-
hagslega og þjóðin hefði veriö auð-
mýkt mjög með töku bandarisku gisl-
anna í Iran. — „En hlutirnir hafa
breyst,” sagði hann og vitnaði til þess
að verðbólgan hefði hjaðnað, skattar
og lánavextir lækkað, enda hefði vegur
Bandaríkjanna vaxið síðan.
„En verki okkar er ekki lokið. Það
þarf meiri atvinnusköpan, meiri
spamað hjá því opinbera, meiri sjálfs-
stjóm heima í fylkjum, meira átak til
varðveislufriðar.”
I skoðanakönnunum nýtur Reagan
meira fylgis en Mondale og aðrir
demókratar en ýmsra hald er aö utan-
ríkismálin eigi eftir að spilla fyrir hon-
um og þá aðallega vera bandarískra
friðargæslusveita í Líbanon.Stjórn
hans hefur einnig verið gagnrýnd
nokkuð af konum sem þykir jafnréttiö
hafa verið fyrir borð borið í stjórnartíö
Reagans. Minnihlutahópar hafa einnig
gagnrýnt stjómina og þykir þeim hún
hafa dregið taum hinna efnaðri í land-
inu.
Norðmenn veröa
harðir við Rússa
— Búist við fjöldabrottvísun sovéskra diplómata í dag eða á morgun
Samkvæmt norska Dagblaöinu er
fjöldabrottvísun sovéskra sendiráðs-
manna úr Noregi efst á lista yfir
hugsanlegar aðgerðir norsku stjómar-
innar vegna njósnamálsins.
Dagblaöið norska ber heimildir í
utanríkisráöuneytinu fyrir því aö við-
brögð stjórnarinnar muni verða hörð
og ákveðin. Þýtt af diplómatamáli yfir
á daglegt mál táknar þetta að sovésk-
um sendiráösmönnum verði visað úr
landi og spurningin einungis um hve
mörgum.
Hingað til hafa norsk yfirvöld ekki
rekið diplómata úr landi nema þeir
hafi verið staönir að beinum afskiptum
af njósnamálinu. Þannig var það þeg-
ar s jö sovéskum diplómötum var visað
úr landi eða lýstir óæskilegar persónur
eftir að Gunnvör Galtung Havik var
afhjúpuð.
I Treholtsmálinu hefur enginn af nú-
verandi sendiráösmönnum Rússa ver-
iö bendlaður við hann.
Er talið aö í staöinn verði gripið til
aðferða Breta og Frakka sem tak-
mörkuðu leyfilegan fjölda sovéskra
diplómata í löndum sinum. — I dag eru
72 sovéskir diplómatar í Noregi og að
auki eru 58 Rússar starfandi í
verslunamefndinni. Fjórtan Norð-
menn eru i norska sendiráðinu i
Moskvu.
Búist er við að brottvísanirnar verði
kunngerðar núna í vikubyr jun.