Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Page 9
DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984. 9 Útlönd Utlönd Baskar myrtu hershöfðingja á leið heim frámessu Felipe Gonzalez, forsætisráöherra Spánar, mun veröa viö útför Guillermo Quintana Lacaci hershöföingja, sem gerö veröur í dag, á meðan lögreglan leitar dyrum og dyngjum tilræðis- mannanna sem drápu Quintana fyrir utan heimili hans í gær. Quintana hershöfðingi var myrtur þrátt fyrir aö síðustu tíu daga hefur Madrid-lögreglan haft mikinn andvara og viðbúnað vegna gruns um aö hryðjuverkamenn aöskilnaöarsinna baska mundu ætla aö láta til skarar skríöa gegn einhverjum háttsettum embættismanni eöa foringja í hemum. Tveir menn skutu Quintana þrívegis í höfuðið þegar hershöföinginn var að koma aö heimili sínu frá guðsþjónustu. Eiginkona hans fékk skot í fótinn og fyrrum ofursti í hernum, sem var þeim samferöa, særöist lítilsháttar af tveim skotum. Skothylkin sem fundust voru úr sams konar byssum og hryöjuverka- menn öfgasamtakanna ETA eru vanir að nota. ETA hefur 240 mannslíf á samviskunni síðan róttækir baskar griputil vopna 1968. Hryðjuverkamenn þeirra drápu 43 í fyrra Spenna hefur magnast uppLað nýju í Baskahéruðunum eftir aö samstarf hófst milli frönsku lögreglunnar og þeirrar spönsku við aö leita uppi hryðjuverkamenn Baska beggja vegna landamæranna. Fyrir skömmu smal- aði franska lögreglan sín megin saman meintum ETA-félögum sem taldir eru hafa haft bækistöðvar í Suöur-Frakk- landi. Kohl tekur af skarið Helmut Kohl kanslari, nýkominn heim frá opinberri heimsókn í Israel, mun í dag ákveða hvort Manfred Wörner sé stætt í vamarmálaráð- herraembættinu í öllu fjaörafokinu út af brottrekstri Kiesslings hershöfö- ingja. Stjórnarandstaöan meö sósíaldemó- krata í broddi fylkingar hefur krafist þess að Wömer segi af sér. Kohl sagði blaöamönnum við heim- komuna aö hann mundi ekki hliöra sér hjá því aö taka ákvörðun í málinu né heldur draga þaö að birta yfirlýsingu þar um, hvað sem ofan á yröi. Franz-Josef Strauss, leiðtogi kristi- legra demókrata (annars hægri flokk- anna í ríkisstjóminni), hefur krafist þess að málinu verði án tafar komið á hreint þvi aö þaö þoli enga biö aö veita hershöföingjanum uppreisn æm ef mistök hafi verið gerö í brottvikningu hans. Fyrirtæki, einstaklingar Höfum til leigu vel útbúnar gröfur til snjómoksturs einnig vörubíla ef fjarlægja þarf snjó eða annað. KRAFTVERK HF SÍMI 42763. Olyripla compact Rafeindaritvél í takt við tímann Hraði, nákvœmni og ýtrasta nýtni á skrifstofurými. Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst og hagkvœmni ekki síður en heilsusamlegan og hljóðlátan vinnustað. Prenthjólið skilar áferðarfallegri og hreinni skrift. Leiðréttingarminnið hefur 46 stafi. Pappirsfœrslu og dálkasetningu er stjómað án þess að fœra hendur af lyklaborði. Endurstaðsetning, leturþétting og ýmsar leturgerðir. KJARAIVI ARMULI 22 - REYKJAViK - SÍMI 83022 G^. &>'s IU5Í t \ Stórbingó verður haldið í Sigtúni fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.30 stundvíslega. Spilaðar verða 18 umferðir. Meðal vinninga er Skoda-bifreið að verðmæti 139.000 kr., heimilistæki frá Heimilistækjum sf. og matarkörfur frá Hólagarði, Straumnesi og versluninni Víði. Heildarverðmæti vinninga ca 250.000 kr. / sJ STJÓRNANDI ER HERMANN . x i . 'V GUNNARSSON ci HEPPNI ^.f,MÁSKODA? %@r m ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ LEIKNIR nmá MSr /f’

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.