Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Qupperneq 24
24 DV. MÁNUDAGUR 30. JANUAR1984. íþróttir íþróttir íþróttir Rakarastofan Klapparstíg Sími12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 Valur vann einvígið við Pétur — og Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu ÍR-inga Njarðvíkingar sýndu það og sönnuðu á föstudagskvöldið að það er engin til- viljun að lið þeirra skipar langefsta sætið í úrvalsdeildinni er þeir sigruðu IR-inga, sem unnið hafa hvern leikinn á fætur öðrum síðan Pétur Guðmunds- son gekk í lið með þeim, með 83—72, eftir að hafa leitt í hálfleik, 34—32. Leikurinn var á köflum hraður og skemmtilegur. ÍR-ingarnir ætluðu svo sannarlega að næla sér í tvö stig og vonina um að halda sæti sinu í úrvals- deildinni en slæmur gangur í byrjun seinni hálfleiks varð til þess að UMFN náði 18 stiga forustu, 57—43, og það bil tókst þeim ekki að brúa þótt þeim tækist að saxa allmikið á forskotið þegar nær dró leikslokum. Greinilegt var að Njarðvíkingar óttuðust risann Pétur Guðmundsson. UMFN reyndi aö hefta för Péturs meö því að setja menn til höfuös honum en þar sem Pétur bar höfuð og herðar yfir flesta þeirra leikmenn gekk þaö erfiö- lega að undanskildum fyrstu mínút- unum. Pétur komst því ekki á blað alveg strax en á meðan skoruðu bræðurnir Gylfi og Hreinn Þorkels- synir, en þeir voru ásamt Pétri bestu menn iR-inga. Þegar langt var liðið á fyrri hálfleik höfðu IR-ingar náð fimm stiga forustu, 30—25. Fram að því höfðu liðin skipst á um að leiöa leikinn, en þá tóku heima- menn fjörkipp. Gunnar Þorvarðarson, leikmaður og þjálfari, endurskipulagði aðgeröir og hann skoraði einmitt þegar mest lá við ásamt því aö ná fráköstum. Hittnastur í leiknum var þó Valur Ingimundarson, skoraöi 29 stig, þremur fleiri en Pétur Guömundsson sem bætti þaö upp með sterkum vamarleik. Pétur stöövaði mörg skot UMFN og náði sæg af fráköstum. Lið UMFN reyndist mjög jafnt, leik- ur þess yfirvegaður og fátt um gróf mistök. Auk Gunnars og Vals stóðu þeir Kristinn Einarsson, Július Val- geirsson, Isak Tómasson og Arni Lárusson sig mjög vel, einnig Sturla örlygsson. iR-ingamir mættu að þessu sinni ofjörlum sínum en losið sem kom á leik þeirra um tíma varð þeim að falli. Baráttugleði þeirra var mikil og þeir létu einskis ófreistað aö ná knettinum. Benedikt Ingþórsson meira að segja sveif yfir borö fréttamanna og yfir þá líka í tilraun sinni til að ná knettinum. Lenti hann mjúklega inni í áhaldaher- berginu eftir að hafa tekið eitt stól- bakið með sér á ristinni. Honum varð samtekki meintaf. Jón Otti Olafsson og Gunnar Guð- mundsson dæmdu leikinn lýtalaust. • Maður leiksins. Gunnar Þorvaröarson UMFN. Stigln. UMFN: Valur Ingimundarson 29, Gunnar Þorvarðarson 16, Sturla örlygsson 15, Krist- inn Einarsson 7, ísak Tómasson 5, Árni Lárusson 6, Júlíus Valgeirsson 5. ÍR: Pétur Guðmundsson 26, Gylfi Þorkels- son 19, Hreinn Þorkelsson 16, Hjörtur Odds- son 7, Benedikt Ingþórsson 4. -emm. Valur Ingimundarson átti mjög góðan leik með Njarðvikingum. Furu-borðstofuhúsgögn ■ pc.S'V ÚRVAL HÚSGAGNA ° ÁTVEIMUR HÆÐUM Hjólaði 51,151 km á einni klukkustund! — ítalinn Francesco Moser setti nýtt heimsmet íMexíkó-borg „Þetta þýðir ekkert fyrir hann, — honum tekst það ekki. Moser er of gamall,” sögðu frægustu hjólreiða- menn heims þegar þeir fréttu að Ital- inn Francesco Moser hygðist reyna að setja nýtt heimsmet í hjólreiðum á ólympíubrautinni í þunna loftinu i Mexíkó-borg. Moser er 32 ára gamall og er þjóðhetja á Italíu nú. Hann setti heimsmet og hjólreiðar eru þjóðar- iþrótt Itala. I byrjun janúar hélt hann ásamt fylgdarliði til Mexíkó. Þurfti að æfa sig vel og venjast þunna loftinu. Heimsmetstilraunina gerði hann svo í lok síðustu viku — hjólaði í klukku- stund. Honum tókst að ieggja 51 km og 151 metra að baki á klukkustundinni. Bætti heimsmet Belgíumannsins fræga, Eddy Merckx, um 342 metra. Þaö var sett á sömu braut 1972 eða fyrir rúmum eliefu árum. Merckx margreyndi þá við metið áður en hon- um tókst aö bæta það. Italinn vann sitt afrekífyrstutilraun. Hjól hans er mjög fullkomið og þeg- ar maður sér þaö á myndum er frekar hægt aö ímynda sér einhvern grip utan úr hinum mikla geimi en hjól fyrir menn. Það vegur 7,5 kg og er metið á rúmlega eina milljón íslenskra króna. Afrek Moser er mikið aö mati þeirra sem til hjólreiöa þekkja. Rúmlega 51 km hraði á klukkustund og þaö krefst gífurlegs úthalds. Ef miðað er við mesta hraða manns, þá má geta þess að heimsmetið í 100 m hlaupi karla jafngildir innan við 40 km meöalhraða áklukkustund. Merckx kærir Um helgina barst svo Reuters-frétt um að Beigíumaðurinn Merckx heföi kært árangur Italans til alþjóðahjól- reiðasambandsins. Allar iíkur eru á að kæran verði tekin til greina. Hjólaút- búnaðurinn hjá Itaianum kemur í veg fyrir loftmótstööu, sem er þegar teinar eru notaöir í hjólunum. Það má ekki samkvæmt reglunum. hsím. M/S BALDUR fer frá Reykjavík miðvikudaginn 8. febrúar nk. til Breiðafjarðarhafna. Vörumóttaka til kl. 17 þriðju- daginn 7. febrúar. RfKISSKIP Hjónarúm í miklu úrvali Opið virka daga til kl. 19, opið föstu- daga til kl. 20, laugardaga til kl.16. Jli -cv~y Jón Loftsson hf. Hringbraut 12! Sími 10600 Hjól Moser til vinstri en til hægri kemur hann í mark á nýju heimsmeti i Mexíkóborg. Munið okkar hagstæðu greiðs/uskilmá/a^ íþróttir íþróttir íþróttir nýtt SÍMA imúmer OFEL iUI isuzu 687300 ■bifreidadeild sambandsins HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ.GÆÐAVORU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.