Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1984, Qupperneq 44
ÚRVALSEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
ÁSKRIFTARSlMINN ER
27022
AFMÆLISGETRAUN
Á
FULLU
ÁSKRIFTARSÍMI
27022
27022
AUGLÝSINGAR
SÍDUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLT111
86611
RITSTJORN
jsÍÐUMÚLA 12-14
Seðlabanki
fær ókeypis
kreditkort
Starfsmenn Seölabankans geta nú
fengiö kreditkort án endurgjalds eins
og starfsmenn annarra banka.
Starfsmannafélag Seðlabankans
óskaöi eftir því viö stjóm Kreditkorta
sf. aö fá Eurocard-kreditkort án endur-
, gjalds eins og aörir bankastarfsmenn,
þar sem Seðlabankinn er hvorki aðili
aö Eurocard eöa Visa. Stjórn Kredit-
korta sf. samþykkti aö veita þessa
fyrirgreiðslu og tók hún gildi frá ára-
mótum. Starfsmenn bankans munu
vera um 100 og þurfa þeir því ekki
lengur að greiöa 600 króna gjald fyrir
kort sín eins og aðrir notendur þeirra
utan bankakerfisins. OEF
Hellisheiði:
Lokað vegna
sparnaðar
Hellisheiöi hefur verið lokuö undan-
fama 10 daga vegna sparnaöar hjá
Vegageröinni. Hafa ferðalangar því
þurft aö fara ölfusið og Þrengslin
þennan tíma og munar þaö 12 km aöra
leiöin.
„Viö emm að hugsa um aö opna
heiðina núna þar sem veðurútlit er
gott,” sagöi Rögnvaldur Jónsson hjá
Vegagerðinni í Reykjavík nú í morgun.
„Hér hafa sparnaöarsjónarmið
ráðiö.” -EIR.
ÞRÍR ÁREKSTRAR
Á SAMA STAÐNUM
Umferðarslys varö á móts við Hjalla
í ölfusi í gær. Þar lentu tvær bifreiöar
saman viö þrönga brú sem þar er á
veginum og var tvennt flutt á sjúkra-
hús.
Á þessum sama staö hafa oröið þrír
árekstrar nú á stuttum tíma og orðiö
slys á fólki og mikið tjón á bílum. Var
annað slys þama á föstudaginn var en
hitt nokkrum dögum áöur. Em mikil
þrengsli þama viö brúna og vegurinn
hefur ekki boriö umferðina sem þarna
ervegnalokunarHellisheiðar. -klp-
LUKKUDAGAR
f 29. janúarj
24306
HLJÓMPLATA FRÁ FÁLKAN-
UM AÐ VERÐMÆTI KR. 400.
30. janúar
8869
MYNDSEGULBANDSTÆKI |
FRÁ FÁLKANUM AO VERÐ-
MÆTI KR. 40.000.
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Hvers vegna mokar vega-
gerðin ekki með kredit-
kortum?
Bændur búast
við gjaldþroti
— segir Gunnar Guðbjartsson
Margir
bændur
ívanskilum
vegna
lausaskulda:
Nær 600 bændur eru nú búnir að
sækja um aö breyta lausaskuldum
sínum í langtímalán en margir
bændur standa nú mjög höllum fæti.
„Þaö er ekkert nema gjaldþrot
sem standa til ef ekki er leyst úr
þessu á næstu vikum,” sagöi Gunnar
Guðbjartsson hjá Framleiðsluráði
landbúnaöarins. „Menn era komnir í
þá aðstöðu aö þeir veröa að taka
ákvöröun um að lýsa sig gjaldþrota.
Þetta er sérstaklega fólk sem hefur
veriö að standa í framkvæmdum.
Margir eru i vanskilum.”
Að sögn Guðmundar Oskarssonar,
bónda að Beitistöðum nálægt Akra-
nesi, er ástandið hjá honum mjög
slæmt.
„Þaö verður iskyggilegt ef þetta
kemur ekki. Þaö er hægt aö fleyta
þessu fram í mars, apríl, en ekki
lengur. Þetta er misjafnt hjá
mönnum. Þeir sem eru löngu búnir
aö byggja og standa ekki í neinum
framkvæmdum eru best staddir."
Sveinbjöm Dagfinnsson hjá land-
búnaöarráðuneytinu segir aö búiö sé
aö gera drög að framvarpi um aö
breyta lausaskuldunum í föst lán.
Málið var rætt í ríkisstjórninni í gær
og búist er við aö ákvöröun veröi
tekin á næstu dögum.
Aö sögn Sveinbjarnar er um aö
ræða fyrst og fremst útgáfu skulda-
bréfa sem lánardrottnar geta tekiö
við.
Þær skuldir sem sótt hefúr veriö
um skuldbreytingu á nema samtals
eitthvað nálægt 200 milljónum króna
en þaö hefur ekki verið reiknaö að
fullu.
-ÞóG
Verkfallið í Straumsvík er með nokkuð óvenjulegum hœtti. í morgun var hver staða
skipuð og unnið affullum krafti í álverinu. Þannig var það líka um helgina. Föstu-
dagurinn er í raun eini verkfallsdagurinn hingað til. Annar verkfallsdagur er
áa:tlaður á morgun, þriðjudag. Þess á milli verður að vinna við áltöku og skauta-
skipti til að eyðileggja ekki kerin. Svona getur þetta gengið í heilan mánuð. Þann
tíma hefur verksmiðjustjórnin aflögu til að draga smátt og smátt úr framleiðslunni,
sem enn var reyndar í fullum gangi ímorgun. DV-mynd: GVA.
Samninganefnd
starfsmanna í
álverinu eftir 14
tíma samningalotu:
Mætti beint á
einkafund í
Straumsvík
Kjaradeilan í álverinu er sögð á við-
kvæmu stigi. Samningafundur hófst
klukkan 16 í gær og honum lauk ekki
fyrr en klukkan 6 í morgun. Þá þegar
hélt samninganefnd starfsmanna til
einkafundar í Straumsvík. Næsti
samningafundur er boöaöur klukkan
20 í kvöld.
Hjá talsmönnum Isal fengust þær
upplýsingar einar að ekki væri slitnað
upp úr viðræðum. Engar upplýsingar
fengust hjá fulltrúum starfsmanna.
Þegar verkfall hófst aðfaranótt
föstudags var strax hætt að skipta um
skaut og taka ál. Það mun ekki geta
gengiö nema einn og einn dag án meiri-
háttar vandræða. Slíkri stöövun er
hótaö aftur á morgun.
Ef tvær vikur liöa án samkomulags
veröur að taka ákvöröun um hvort loka
eigi álverinu eöa ekki á næstu tveim
vikum þar á eftir. Þaö tekur þann tíma
aö „keyra niður” framleiösluna. Og
lengra svigrúm gefst ekki, samkvæmt
gildandi kjarasamningum.
HERB
Beðið eftir
loðnunni
Loönuveiði hefur engin verið frá
áramótum en þá höföu borist á land 133
þúsund lestir af þeim 375 þúsund
lestum sem leyfðar voru á þessari ver-
tíö.
Loðnan gengur oft upp að suðaustur-
horninu um þetta leyti og því er ekki
um annaö aö ræða en að bíöa. Tvö skip
frá Hafrannsóknastofnun eru nú við
loönuleit.
-GB
HRINGLEIÐIRNAR
ÁRÉTTURÓU
Hringleiöirnar númer 8 og 9 hjá
strætó ganga í dag samkvæmt eðlilegri
áætlun en fyrir helgina var ferðum
fækkaövegnaerfiðrarfærðar. óm