Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Side 4
22
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR1984.
Organleikari Jón Stefánsson, prestur sr.
Sigurður Haukur Guöjónsson. Sóknarnefndin.
Hvað er á seyði um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Leiklist
er eftir Egil Olafsson er flutt af Ingu og
Ingimar Eydal. Níu leikarar eru í sýningunni
og leika þær Sunna Borg og Guðlaug María
Bjarnadóttir aðalhlutverkin, mæðgumar
Önnu og Silju. Sjallinn býður upp á sérstakan
leikhúsmatseðiU á hagstæðu verði fyrir
sýninguna og aðrar veitingar. 4. sýnrng á
Súkkulaöi handa Silju er á sunnudagskvöld. Á
föstudags- og iaugardagskvöld veröa líklega
síðustu sýningar á My fair lady sem sýndur
hefur verið fyrir fullu húsi síðan í október sl.'
Verða þetta 50. og 51. sýning á leiknum sem
fyrir löngu hefur slegiö ÖU sýningarmet
norðan heiða. Fiugleiðir og ferðaskrif-
stofumar era með leikhúspakka til Akúreýrar
sem margir hafa notfært sér í vetur.
Risinn draumieyndi, bæði eftir Helgu
Steffensen.
Þær Bryndis Gunnarsdóttir, HaUveig
Thorlacius og Helga gera brúður og leik-
myndir en leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Brúðustjórn annast þær stöllur í Leik-
brúöulandi ásamt Þórhaíli.
Kam
Konur á öllum aldri!
Öölist sjálfstraust í lífi og starfi
KARON-skólinn kennir ykk-
ur:
• rétta líkamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburö
KARON-skólinn leiöbeinir
ykkur um:
• andlits- og handsnyrtingu
• hárgreiöslu
• fataval
• mataræði
• hina ýmsu borösiði og alla
almenna framkomu o.fl.
Öll kennsla í höndum fær-
ustu sérfræöinga. Allir tímar
óþvingaðir og frjálslegir.
Ekkert kynslóöabil fyrirfinnst
í KARON-skólanum.
6 vikna námskeið hefjast mánudaginn 27. febrúar.
Innritun og upplýsingar frá kl. 14—18 í dag og á morgun.
Ennfremur: 7 vikna
modelnámskeið í sérflokki.
Hanna Frímannsdóttir
Sími38126
Aukasýning á Forseta-
heimsókninni, Gísl, Guð gaf
mér eyra og Hart í bak
I kvöld (föstudagskvöld) er 16. sýning á leik-
riti Brendan Behans, Gísl, sem fallið hefur í
einkar góðan jarðveg hjá leikhúsgestum og
verið sýnt fyrir fullu húsi til þessa. Þar eru
meðal leikenda Gísli Halldórsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Jóhann Sigurðarson,
Guðbjörg Thoroddsen og Hanna María Karls-
dóttir, en alls koma 15 leikarar fram í sýning-
unni. Sigurður Rúnar Jónsson stjórnar
hljómsveit, sem eingöngu er skipuð leikuran-
um sjálfum en leikstjóri er Stefán Baldurs-
son.
Annað kvöld er bandaríska verðlaunaleik-
ritið Guð gaf mér eyra sýnt í Iðnó en þar hef ur
leikur Sigurðar Skúlasonar og Berglindar
Stefánsdóttur vakið mikla athygli í vandaðri
sýningu undir stjóm Þorsteins Gunnarssonar.
Sýningum fer nú senn að fækka á þessu verki.
Annað kvöld er líka miðnætursýning á For-
setaheimsókninni í Austurbæjarbíói. Um síð-
ustu helgi átti að vera síðasta sýning á verk-
inu en þar eð allt troðfylltist verður aukasýn-
ing nú um helgina. Miðasala á miðnætursýn-
inguna er í Austurbæjarbíói.
A sunnudagskvöldið er Hart í bak á f jöiun-
um í Iðnó. Það hefur nú verið sýnt yfir 40
sinnum og fer sýningum senn fækkandi. Þar
hefur leikur nýliðanna Eddu Heiörúnar Back-
man og Kristjáns Franklíns Magnús vakið
mikla athygli svo og hinna eldri og reyndari:
Soffíu Jakobsdóttur, Jóns Sigurbjömssonar
I tilefni af 20 ára afmæli Golfklúbbs Ness, sem er um þessar mundir, veröur
haldin mikil golfhátíð í veitingahúsinu Broadway á sunnudaginn kemur. Hefst
hún kl. 15.00 og mun standa fram eftir degi og kvöldi. Er hátíö þessi opin öllum
kylfingum svo og öörum, sem áhuga hafa, en þarna veröur ýmislegt til
skemmtunar.
Meðal þess er 18 holu púttkeppni eöa „mini-golf” á sérstökum brautum sem
lagöar veröa um allt veitingahúsiö. Geta allir tekiö þátt í þeirri keppni eins og þeir
best þekkja sem tekiö hafa þátt í „mini-golfi” hér á landi eöa erlendis.
Glæsileg verölaun eru í boöi í keppninni. Fyrstu verðlaunin eru t.d. utanlands-
ferð á vegum Samvinnuferöa og önnur verölaun, sem veitt verða, eru eigulegir
hlutir.
Nýjar golfmyndir veröa sýndar á tveim til þrem stööum í húsinu og fyrirtæki
munu kynna golfvörur og annaö. Ymislegt annaö veröur á boöstólum á þessari
golfhátíö sem hefst eins og fyrr segir kl. 15 á sunnudaginn.
Keppendum í púttmótinu er bent á aö hafa meö sér sinn eigin pútter og kúlu- eöa
kúlur, ef þeir skyldu týna á vellinum — en eitthvað mun þó veröa til leigu af
slíkum verkfærum á staönum fyrir gestina.
Frumsýning í Hrísey
I kvöld frumsýnir Leikklúbburinn Krafla í
Hrísey leikritið Deleríum búbónis eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Ámasyni.
Þetta er sjöunda verkefni Kröflu á átta ára
starfsferli. Leikstjóri þessa verks, sem fram-
sýnt verður í Hrísey í kvöld, er Bjarni
Ingvarssonfrá Reykjávik.
NESKIRKJA: Laugardagur: Samverustund
aldraðra kl. 15.00. Gils Guðmundsson rit-
höfundur les úr verkum sínum. Sr. Guðmund-
ur Oskar Ölafsson. Sunnudagur: Bamasam-
koma kl. 11.00. Sr. Frank M. Haildórsson.
Biblíudagurinn: Guðsþjónusta kl. 14.00 í um-
sjá sr. Olafs Jóhannssonar skólaprests.
Organleikari og kórstjóri Reynir Jónasson.
Sr. Guðmundur Oskar Olafsson. Mánudagur:
Æskulýðsfundur kl. 20.00. Miðvikudagur:
Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur
OskarOlafsson.
SELJASÖKN: Barnaguðsþjónusta Öldusels-
skóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í íþrótta-
húsí Seljaskólans kl. 10.30. Guðsþjónusta
Olduselsskóla kl. 14.00. Einsöngur Gunnar
Guðbjörnsson. Altarisganga. Þriðjudagur 28.
febr.: Æskulýösfundur kl. 20.00 Tindaseli 3.
Föstudagur 2. mars: Fyrirbænasamvera
Tindaseli 3 kl. 20.30. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÖKN: Barnasamkoma í
sal Tónlistarskólans kl. 11.00. Sr. Guðmundur
OskarOlafsson.
FRIKIRKJAN I HAFNARFIRÐI: Kl. 10.30
barnastundin. Kl. 14.00 guðsþjónusta. Tekið á
móti framlögum til Biblíufélagsins. Eftir
messu veröur fundur með vorfermingarbörn-
um og foreldrum þeirra. Sævar Guðbergsson
félagsráðgjafi ræðir „foreldravandamálið”.
Safnaðarstjórn.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudaga-
skóli ki. 10.30. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sóknar-
prestur.
Síðustu sýningar
á „Jakob og meistaranum"
hjá Stúdentaleikhúsinu
Nú um þessa helgi mun Stúdentaleikhúsið
reka smiðshöggið á kröftuga starfsemi sína í
Tjarnarbæ í vetur. Þá verða tvær allra
síðustu sýningar á „Jakob og meistaranum”
eftir Milan Kundera í leikstjórn Sigurðar
Páissonar. Fyrri sýningin verður miðnætur-
sýning föstudaginn 24. febr. kl. 23.30 en sú
seinni mánudaginn 27. febr. kl. 20.30.
Þetta veröa 11. og 12. sýningar á gleöileik
Kundera sem hann samdi til heiðurs skáld-
sögu Diderot „Jakob örlagatrúar”.
Stúdentaleikhúsið hvetur alla velunnara
sína til að fjölmenna nú í Tjarnarbæ en að-
sókn hefur verið með lakara móti. Það skai
tekið fram að ekki verða fleiri sýningar á leik-
ritinu.
Stúdentaleikhúsið mun nú flytja þunga-
miðju starfsemi sinnar í Félagsstofnun
stúdenta, sjá auglýsingar og fréttatilkynning-
ar þaraðlútandi.
Leikfélag Akureyrar
sýnir „Súkkulaði
handa Silju"
Um síðustu helgi frumsýndi L.A. leikritið
„Súkkulaði handa Silju” eftir Nínu Björk
Ámadóttur í Sjallanum, Akureyri. Höfundur
hefur breytt likhúsinu að nokkra frá því það
var sýnt í Þjóðleikhúsinu, í samráði við leik-
stjórann, Hauk Gunnarsson. Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir hannaði leikmynd og búninga
og nýtir sér innviði Sjallans þar sem leikurinn
gerist að nokkru á skemmtistað. Viðar
Garðarsson hannaði lýsingu og tónlistin sem
Tröllaleikir í Iðnó
Á sunnudaginn kl. 3 verða Tröllaleikir sýnd
Iðnó. Þetta eru fjórir einþáttungar; Ást
saga úr fjöllunum, Guðrúnar Helgadótt
Búkolla, íslenska þjóðsagan og Eggið
Hringur sýnir í
tveim sölum í einu
Hinn góökunni listmálari, Hringur Jóhannesson, opnar á laugardaginn þá
stærstu málverkasýningu sem hann hefur haldiö til þessa. Raunar má segja aö
þarna sé um tvær sýningar aö ræöa því aö önnur þeirra er á Kjarvalsstööum en
hin í Ásmundarsal. Munu verk hans á þessum tveim sýningum vera um 140
talsins.
Hringur hefur ekki haldið einkasýningu hér síöan 1980, en þá sýndi hann í Nor-
■ræna húsinu. Eru verkin, sem hann sýnir núna, öll gerð síðan þá.
Hringur sagöi aö hann hefði ákveðið aö hafa sýningu sína í tveim sölum aö
þessu sinni vegna þess aö sér fyndist olíupastel ekki passa með olíumálverkum.
Pastelmyndir hans eru allar til sýnis í Asmundarsal en hinar á Kjarvalsstöðum.
Veröur sýning hans á Kjarvalsstööum opnuö kl. 14 á laugardaginn en sýningin í
Asmundarsal tveim klukkustundum síöar.
Barnaleikhúsið Tinna:
Frumsýnir
„Nátttröllið”
íTjarnarbíói
á sunnudag
Barnaleikhúsiö Tinna frumsýnir
leikritiö „Nátttrölliö” eftir Ragnheiöi
Jónsdóttur, sunnudaginn 26. febrúar
kl. 15 í Tjarnarbíói. Miöasala í
Tjarnarbíói á sunnudag frá kl. 13.
Nánari upplýsingar og miðapantanir
í síma 13757. Okeypis aögangur fyrir
fulloröna, vægt gjald fyrir böm.
Alls taka um 20 böm þátt í sýning-
unni en aðalhlutverk eru um níu
talsins.
Framkvæmdastjóri Barnaleikhúss-
ins er Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Golfhátíð í Broadway
LUBBURINN