Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1984, Blaðsíða 6
24
DV. FÖSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1984.
Skíði
Um helgina fer fram bikarmót á
skíöum. Keppni í alpagreinum fer
fram á Húsavík og i göngu og stökki
á Akureyri. Þetta er keppni fullorð-
inna og unglinga. Þá fer fram göngu-
trimmmót í Kjarnaskógi viö Akur-
eyri.
Knattspyrna
Islandsmótið í innanhússknatt-
spyrnu verður í Laugardalshöllinni
um helgina og verður keppt í 1. og 3.
deild karla og kvennaflokki. Keppnin
hefst kl. 10 á laugardagsmorgun og á
sama tíma á sunnudaginn. Keppt
verður fram til 21 báðadagana.
Það verður meiri aivara i innanhússmótinu i knattspyrnu um helgina en
þegar þessi lið voru að ieika i Höiiinni á sinum tima. Nu er það sjáift
íslandsmótið i 7. og 3. deild, sem þar fer fram, og þá þýðir engan fifia-
gang....
íþróttir
um helgina
Blak
Föstudagur
Digranes kl. 20.00
1. deild. kv.
Digraneskl.21.20
2. deild ka.
UBK-KA
UBK-Samhygö
Laugardagur
Dalvíkkl. 14.00
2. deild ka. Reynivík-Skautafélag Ak.
Glerárskóli kl. 15.00
2. deild ka.
Hagaskóki kl. 14.00
l.deild ka.
Hagaskóli kl. 15.20
l.deildkv.
Hagaskóli kl. 16.40
l.deild kv.
Digraneskl. 15.50
1. deild ka.
Digraneskl. 17.10
2. deild ka.
KAa-KAb
IS-Víkingur
IS-Þróttur
Víkingur-KA
HK-Fram
UBK-HK b
Körfuknattleikur
Tveir leikir verða um helgina í úr-
valsdeildinni. Njarövík og Haukar
leika í Njarövík kl. 20 í kvöld og Val-
ur mætir KR á sunnudagskvöldið í
Seljaskóla kl. 20.
Á laugardaginn verða tveir leikir í
1. deild karla. UMFL mætir Fram á
Selfossi kl. 14 og á sama tíma leika
ÞóroglSá Akureyri.
Einn leikur veröur í 1. deild
kvenna. IR leikur gegn Njarðvík í
Seljaskóla kl. 21.30 á sunnudags-
kvöldiö.
Handknattleikur
3. deild — karla:
Föstudagur:
Vestmey. kl. 20 Týr-Akranes
Keflavík kl. 20 Keflavík-Þór Ak.
Laugardagur:
Varmá kl. 14 Afturelding-Þór Ak.
Sunnudagur:
Seljaskóli kl. 15 Ögri-Skallagrímur
1. deild — kvenna:
Föstudagur:
Seljaskóli kl. 19 Víkingur- Valur
Akranes kl. 14 Akranes-Fram
TVÖ BLÖÐ
ÁMORGUN
MEÐAL EFNIS:
Þar fóru hundruð
þúsunda
Sagt frá afdrifum Scheving-
mynda sem fóru sem innrétt-
ing þegar ESJA II var seld
1969.
Ævintýraleg augiýsing?
DV fylgist með ungfrú íslandi og stöllum hennar í keppninni um
titilinn ungfrú Evrópa.
Fyrirbyggjandi aðgerðir hafa hingað
til verið fálmkenndar
rætt við Árna Einarsson um fíkniefnaneyslu.
Gínurnar í bænum
Ein af þessum opinskáu nærmyndum
Náttúruauðiind sem fýkur burt
Ari Trausti fjallar um himin og jörð
Óiympíuieikarnir í Los Ange/es
— umferðaröngþveiti, mengun og glæpir?
Hvað er á seyði um helgina
tónlistarmanna i gegnum árin. Má þar nefna
Evan Parker, Aibert Mangelsdorfff, Carla
Bley, John McLaughlin, Leo Smith og Jon
Cage. Síðustu 2 árin hefur Kowald mikið
leikið með hljómsveitinni Jazz Doctors en
hana skipa auk hans Frank Lowe, Billy Bang
og Rashied Ali. Þá eru orðnar margar hljóm-
plöturnar sem hann hefur leikið inn á, bæði
undir eigin nafni og með öðrum. Það er hljóm-
plötuútgáfan Gramm sem stendur að þessum
tónleikum.
Spænskir gítartónleikar
í Grindavík
Gítarleikarinn Símon H. Ivarsson heldur tón-
leika í Grindavíkurkirkju sunnudaginn 26.
febrúar nk. kl. 17.15. A efnisskránni, sem er
tvíþætt, eru spænsk klassísk verk, m.a. eftir
Albeniz, Turina, Tarrega o.fl., og flamenco-
tónlist. Meö þessari efnisskrá vill Símon sýna
fram á hina fjölmörgu möguleika gítarsins og
hefur hann valið til þess tónlist frá „föður-
landi” gítarsins, Spáni.
Simon Ivarsson mun vera eini Islendingur-
inn sem leikur flamencotónlist og hefur hann
sótt námskeið hjá prófessor Andres Batista í
Madrid á Spáni. Klassískan gítarleik stundaði
Simon viö Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar undir leiðsögn Gunnars H. Jónssonar og
síðan við Tóniistarháskólann í Vínarborg, hjá
hinum fræga prófessor Karl Scheit. Símon
notar tvo mismunandi gítara við flutning
verkanna, annars vegar klassískan gítar og
hins vegar flamencogitar.
Símon Ivarsson er löngu orðinn þekktur á
Islandi í gegnum margar velheppnaðar tón-
leikaferðir um landið, svo og fjölda útvarps-
og sjónvarpsþátta.
Eins og áður sagði, verða tónleikamir í
Grindavíkurkirkju sunnudaginn 26. febr. ki.
17.15.
Tónleikar þessir eru haldnir í samvinnu við
Tónlistarskóla Grindavíkur.
Sýningar
Kjarvalsstaðir —
Ásmundarsalur
A morgun, laugardag, opnar Hringur
Jóhannesson sýningar á Kjarvalsstöðum og í
Asmundarsal. Eru verk hans á þessum tveim
sýningum hans 140 talsins. I Asmundarsal
sýnir hann pastelmyndir og á Kjarvals-
stöðum olíupastel.
KJARVALSSTAÐIR: A morgun laugardag
opnar Jón Oskarsson sýningu á verkum sín-
um á Kjarvalsstöðum.
LISTASAFN ASt: A morgun, laugardag,
verður opnuð sýning er ber yfirskriftina
„Myndir úr lífi mínu” eru það verk Jóns
Engilberts, en hann lést árið 1972. A sýning-
unni eru 78 myndir úr myndarööinni „Myndir
úr lifi mínu” en auk þess eru 30 teikningar.
Myndirnar eru allar til sölu. Sýningin verður
opin alla virka daga nema mánudaga kl. 16—
20 og um helgar kl. 14—22. Lýkur henni 18.
mars.
NVLISTASAFNIÐ Vatnsstíg: Þar stendur yf-
ir sýning á verkum í eigu safnsins. Opið er
daglega frá kl. 16—20 og um helgar kl. 16—22
fram til4.mars.
LISTMUNAHtlSIÐ, Lækjargötu 2: Þarstend-
ur yfir sýning Þorvalds Skúlasonar, sýnir
hann 40 verk unnin með blandaðri tækni,
þekjulitum, tússi og krít. Sýningin sem er
sölusýning er opin alla virka daga nema
mánudaga frá kl. 10—18 og um helgar frá kl.
14—18 og lýkur henni 26. febrúar.
Gallerý Lækjartorg:
Þar stendur yfir kynning á verkum Rúnu
(Sigrúnar Guöjónsdóttur). Á kynningunni eru
steinleirsmyndir og teikningar og eru verkin
til sölu. GaUeriiö er opiö virka daga kl. 12—18
og um helgar kl. 14—18.
MOKKAKAFFI: Olafur Sveinsson sýnir þar
30 myndir sem geröar eru meö vatnslitum,
penna, blýanti og rauökrít en auk þess sýnir
hann þar dúk- og tréristur.
NORRÆNA HÚSIÐ: Engin sýning fyrr en 4.
mars.
Kvikmyndir
Gömul mynd eftir
Rostotskí í MÍR
Sovéska kvikmyndin „Vindamir sjö” (með
ensku tah) verður sýnd í MlR-salnum, Lind-
argötu 48, nk. sunnudag 26. febrúar kl. 16.
Þessi mynd er frá árinu 1962 og merkileg að
því leyti að hún er ein af fyrstu kvikmyndum
hins fræga leikstjóra Stanislavs Rostotskí
sem komið hefur hingað til lands og þekkt-
astur er fyrir myndina „Og hér rikir kyrrð í
dögun”.
Aðgangur að MÍR-salnum er ókeypis og
öllum heimill.
Kvikmyndaklúbburínn
Norðurljós
Sunnudaginn 26. febr. kl. 17 hefjast sýningar
að nýju í Kvikmyndaklúbbnum Norðurljós i
Norræna húsinu.
Fyrsta myndin sem sýnd verður er sænska
kvikmyndin Lángt borta och nára, gerð árið
1976. Leikstjóri er Marianne Ahme og hefur
hún einnig samið handrit ásamt Bertrand
Huraault. I aðalhlutverkum era Lilga
Kovanko og Robert Farrant.
Myndin gerist á geðsjúkrahúsi og segir frá
ungri stúlku sem starfar við sjúkrahúsið og
verður hún ástfangin af sjúklingi, sem talar
ekki vegna sálrænna truflana. Lýst er ást
þeirra og því sambandi sem næst, þar sem
máliö er ekki eina tækið til tjáskipta.
Alls verða sýndar 6 kvikmyndir til vors og
verða sýningarnar í Norræna húsinu kl. 17 á
sunnudögum, eins og áður segir. Meðal mynd-
anna má nefna kanadísku heimiidarmyndina
Not a love story gerð af Bonnie Sherr Klein og
fjaliar um klámiðnaðinn í Bandaríkjunum.
Myndin var sýnd á Kvikmyndahátíðinni 1982
og vakti mikla athygli.
Aðgangskort að öllum sýningunum kosta
kr. 100 og að einstakri sýningu kr. 20. Kortin
era til sölu í Norræna húsinu.
Fundir
Félag íslenskra rithöfunda
Fundur til skemmtunar verður haldinn í
F.I.R. að Hótel Esju, Skálafelli, 9. hæð,
sunnudaginn 26. febrúar 1984, kl. tvö. Þessir
höfundar lesa úr verkum sínum:
Ásgeir hvítaskáld, Indriði Indriðason,
Gunnar Dal, Indriði G. Þorsteinsson, Hrafn-
hildur Valgarðsdóttir, Oskar Aðalsteinn,
Pjetur Hafstein Lárasson.
Félagar fjölmennið og takiö með ykkur
gesti, og mæúð stundvíslega.
Skemmtistaðir
BROADWAY: Einkasamkvæmi á föstudags-
kvöld. Laugardagskvöld: Rokk ’84, stanslaust
stuð meö Gunnari Þórðarsyni og 25 lista-
mönnum ásamt Zorro, Tarsan og Dúakvart-
ettinum.
KLÚBBURINN: A föstudags- og laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Crystal fyrir dansi,
tvö diskótek, skemmtidagskrá meö Ladda.
HÖTEL BORG: Á föstudagskvöld leikur
hljómsveitin Frakkarnir fyrir dansi. Diskótek
laugardagskvöld. A sunnudagskvöld verða
svo gömlu dansarnir undir stjórn Jóns
Sigurðssonar.
HÓTEL SAGA: Lokað á föstudagskvöld
vegna einkasamkvæmis. Laugardagskvöld:
„Söguspaug” í Súlnasal, skemmtidagskrá
með Ladda, Jörundi, Erni og Pálma. Hljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir
dansi.
ÞÓRSKAFFI: Á föstudags- og laugardags-
kvöld leikur Dansbandið fyrir gesti hússins.
Magnús Olafsson mætir á staðinn með grín,
glens og gaman, stúlkur frá ballettskóla Eddu
Scheving sýna gríntangó o.fl.
ARTUN, Vaguhöfða 11: Gömlu dansarnir á
föstudagskvöld, einkasamkvæmi laugardags-
kvöld.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir leikur
fyrir dansi í kvöld og laugardagskvöld. Big
Foot verður í diskótekinu.
LEIKHUSKJALLARINN: Diskótek í kvöld og
laugardagskvöld. Girnilegur matseðill.
ÓÐAL: Dúndrandi diskótek í umsjón Halldórs
Árna.
SAFARI: Diskótekiðá fuilu um helgina.
■SIGTUN: Opið í kvöld og laugardagskvöld.
Diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek alla helgina.