Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984.
Alversandstæðingar
draga f ram vopnin
Andstæðingar fyrirhugaðs álvers
viö Eyjaf jörð láta nú til sín taka með
dreifibréfi og umræðufundum í
byggðum Eyjaf jarðar. Þeir sendu ný-
lega frá sér bréf þar sem tíunduð eru
rök gegn því að byggt verði álver við
innanverðan Eyjafjörð. Álverið er
talin óskynsamleg fjárfesting vegna
þess að það mengi loft, lög og láð.
Ymsir aðrir möguleikar til atvinnu-
uppbyggingar séu áhættuminni og er
nefnd fullvinnsla á kjöti og fiski, líf-
efnaiönaður og rafeindaiðnaður. Þeirri
skoðun er lýst að landbúnaður eigi
hvergi meiri möguleika á að blómstra
enviðEyjafjörð.
Undir dreifibréfið rita fjórir ein-
staklingar fyrir hönd starfshóps gegn
álveri. Þeir eru Erlingur Sigurðarson,
Tryggvi Gíslason, Brynjar Skarp-
héðinsson og Gunnhildur Bragadóttir.
Erlingur sagði í samtali við DV að
þetta væri áhugafólk sem hefði farið að
hittast á útmánuðum og væri þar ekki
einlitur flokkshópur á ferð enda ekki
um flokkapólitík að ræða.
„Við höfum oröið vör við að fólk
ber fyrir sig skort á upplýsingum og
viljum því koma af stað umræðu og
veita upplýsingar um álver. Ef þögn
ríkir þá getur hún svæft menn,” sagði
Erlingur. Hann nefndi ýmis rök sem
höfð hafa verið í frammi fýrir álveri,
til dæmis aukna nýtingu vatnsorku og
lækkað rafmagnsverð. Það virtist þó
öðru nær, sagði hann, að almenningur
hefði búið viö lágt orkuverð þrátt fyrir
orkuframkvæmdir. Staðreyndin væri
sú að stóriðjuframkvæmdir með til-
heyrandi orkuframkvæmdum ykju á
erlendar skuldir þjóðarinnar. Þjóðin
skuldaði nú 36 milljarða króna og væri
tæpur helmingur vegna orkufram-
kvæmda. Það segði sig sjálft að stór-
iðja eins og verið væri að tala um við
Eyjafjörð kallaði á stórauknar er-
lendar lántökur.
Erlingur benti líka á að störf í nýju
álveri yrðu 40—50 sinnum dýrari en í
almennum iðnaöi. Dæmi væru á
siöustu mánuðum um að komið hefði
verið upp iðnaöi við Eyjafjörð sem
hefði þurft litla fjárfestingu.
Auk þess skapaði álver tiltölulega
fáum mönnum vinnu. Ef smáiðn-
aðurinn fengi til dæmis þær fjórar
milljónir af erlendu lánsfé sem þyrfti
ef farið yröi í stækkun álversins í
Straumsvík, mætti skapa 3500—4000 ný
störf á móti þeim 200 sem feng just.
Andstæðingar álversins hafa ekkert
á móti rannsóknum á lífríki Eyja-
fjarðar í tengslum við fyrirhugaða
stóriðju, sagði Erlingur, sérlega ef
máliö yrði kveðið niður nú. Rannsóknir
þessar gætu orðið gagnlegar þegar
næst kæmu upp hugmyndir um eitt-
hvað slíkt., ,Það getur hins vegar verið
hættulegt að svæfa fólk með rann-
sóknartali. Eg minni líka á að Náttúru-
vemdarþing ályktaöi um nauösyn
vandaðra rannsókna og lagði áherslu á
að samningar yrðu ekki hafnir fyrr en
niðurstöður væru fengnar.”
Á næstunni verða nokkrir fundir um
álversmálið í Eyjafjarðarbyggðum.
Fyrsti fundurinn var í í Freyvangi í
Eyjafirði. Hann var fjölsóttur og
umræður fjörugar. Þar var með einu
mótatkvæði samþykkt ályktun þar
sem öllum hugmyndum um álver við
Eyjafjörð er harölega mótmælt en
bent i staöinn á ónýtta möguleika í
matvælaframleiðslu, fiskirækt, líf-
efnaiönaöi og rafeindaiðnaöi.
„Okkar aöferð er aö halda upp-
lýsinga- og umræöufundi þar sem
verður frætt um álver sem stóriðju-
kost, síðan um stöðu rannsókna, hvað
búið er og hvað vantar, félagslega
Sandnes, sem liggur við Ægis-
garð. DV-mynd GVA
Ellefu læknar
á seglskútu
I vikunni kom seglskúta hingaö til
Reykjavíkur með ellefu sænska lækna
innanborðs; þeir eru í sænskum
siglingaklúbbi og tóku skútu þessa á
leigu hjá norskum einstaklingi.
Siglingin tók alls fimm sólarhringa og
komu þeir við í Færeyjum og dvöldu
þar í einn og hálfan sólarhring. Létu
þeir vel af ferðalagi þessu og voru
heppnir með byr.
Læknar þessir komu eingöngu til
þess að taka þátt í Norðurlandaþingi
bæklunarskurðlækna, sem haldið er í
Háskóla íslands.
Skúta þessi er úthafssiglari og er vel
búin siglingatækjum og vistarvemr
áhafnar eru mjög vandaðar, með setu-
stofu, litlum svefnklefum, salemi og
sturtu..
—KF
17. júnf hátíðarhöld á Seltjarnarnesi
Hátíðardagskráin 17. júní á Seltjarn-
arnesi hefst með því að skrúðganga fer
af stað frá horni Lindarbrautar og Hof-
garða kl. 13.30. Gengið verður að
Mýrarhúsaskóla, en þar er áætlaö að
dagskrá hefjist kl. 14.00. Þar mun
verða flutt hátíðarræða, f jallkona flyt-
ur ávarp, Lúðrasveit Tónlistarskóla
Seltjarnamess leikur nokkur lög og
sýndur verður breakdans. Trúðar
verða á svæðinu og munu þeir dreifa
sælgæti til barnanna og standa fyrir
leikjumá svæðinu.
I Félagsheimilinu verður kaffisala á
vegum Slysavarnardeildar Seltjamar-
ness frá kl. 15.00. Siglingaklúbburinn
Sigurfari mun hafa opiö hjá sér og
kynna aðstöðu sína. Kl. 14.30 mun
Lúðrasveit Tónlistarskólans leika fyrir
utan íbúöir aldraðra á Seltjamarnesi.
Tómstundaráð og J.C. Nes sáu um
undirbúning hátíðarhaldanna á
Nesinu.
SJ
þætti og aðra iðjukosti. Við gerum ráð
fyrir að fmmmælandi verði á hverjum
stað úr tölu búenda. Næstu fundir verða
í Barnaskólanum á Svalbarösströnd
19. júni, daginn eftir í Hlíðarbæ og
síðar fyrir Svarfdæli, Árskógs-
strendinga og Hríseyinga. Fundurinn á
Akureyri verður 26. júni. Auk
fundanna er farin í gang undirskrifta-
söfnun og verður listum dreift í
byggðum Eyjafjarðar. Þar er
byggingu álvers mótmælt og skoraö á
yfirvöld að fara aörar leiöir til atvinnu-
uppbyggingar.” JBH/Akureyri
Notaðir
sérflokki
Mazda 626 árg. 1979.
Þokkalegur bíll á
veröi og kjörum.
MMH4BK
JBYROÐ
Dodge Aspen Coupé árg.
gÓÖU 1978.
6 cyl., sjálfsk., í gólfi, með
stólum, vökvastýri, út-
varpi, toppbíll, ekinn
aðeins 62.000 km.
SK($>DA
Skynsemin
1982.
Ekinn 22.000
kjör.
rϚur
km. Góð
Subaru 4WD 1977.
Þokkalegur bíll á nýjum
dekkjum, gott verð.
Jeepster V61968
Ovenjulegur eldri
með original
V6 Buickvél.
jeppi
Opiö í dag 1—5
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600