Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Side 16
DV. LÁUGÁRÖAGUR16. JtTNl 1984.
Heimsmet í
munnhörpuleik
Það var enginn sem trúði þvi að
hann gæti það. En margur er knár
þótt hann só smár. Hann litli Leo
Carpato var ekki i vandræðum
með að setja heimsmet i munn-
hörpuleik. Hann spilaði i25 tima á
14 mismunandi stöðum i Kaup-
mannahöfn. Hann er þvi hór með
kominn í heimsmetabókina eins
og allir hinir.
Brésnef og gallabuxur
Við rákumst nýlega á þessa sér- vinsælaríSovét.
stæðu auglýsingu í einu erlendu dag- Brésnef hvíslar í eyra Nixons: „Eg
blaði. Það sem er verið að auglýsa hata kapítalismann en ég elska
eru gallabuxur sem eru víst nokkuð gallabuxumarykkar.”
BOXARARERU
ILLA FARNIR
Um 87prósentaf þeim boxurum íBandaríkj-
unum sem gengust undir rannsókn þar i landi
eru með varanlegar heilaskemmdir. Þetta er ein
af niðurstöðum könnunar sem nýlega var gerð í
Bandarikjunum. Þetta þýðir að 13 af hverjum 15
boxurum þar i landi eru með heilaskemmdir
sem ekki er hægt að lækna. Það er því ekki að
ástæðulausu sem þessi íþrótt er bönnuð á ís-
landi.
Hinn kunni kappi Floyd Patterson var meðal
þeirra sem þátt tóku í þessari könnun. Það kom
i Ijós i könnuninni að hann er einn þeirra sem er
með skaðaðan heila.
Kryddarinn er að þessu sinni
sagður af Sigurði Baldurssyni
hæstaréttarlögmanni og segir hann
svofrá:
Vísir, fyrsta dagblaö á Islandi,
hóf göngu sína árið 1910. Þegar ég
man fyrst eftir mér á þriöja ára-
tugnum, var blaðið 4 síöur og
fremsta síðan þakin augiýsingum.
Neðst yfir þvera síðuna var þessi
auglýsing, að mig minnir, á
hverjumdegi:
„Vísis kaff iö gerir aila glaða”
Blaðið var prentað í Féiagsprent-
smiðjunni við Ingólfsstræti, og einn
af eigendum þess var Guðmundur
Hannesson prófessor.
Verslunin Vísir var aftur á móti
aö Laugavegi 1 og eigandi hennar
Sigurbjörn Þorkelsson, þekktur
maður í bænum, m.a. sem einn af
forystumönnum KFUM.
Nú gerðist þaö einu sinni, að
setjarar Visis brugðu á leik og
„löguðu” auglýsinguna án þess að
prófarkalesarar fengju rönd við
reist:
VísLs kaffið gerír alla graða
Auglýsingin vakti mikla athygli
og kátinu í bænum. Rétt á eftir hitt-
ust þeir Sigurbjörn og Hannes Guð-
mundsson húðsjúkdómalæknir,
sonur Guömundar prófessors. Sig-
urbjörn var bæði sár og reiður og
sagðist ætla i mál við blaðiö vegna
þessarar svívirðu. Hannes hlustaði
á.ensagöi lítið.
Nú liðu nokkrir dagar. Þá mætti
Hannes Sigurbirni og spurði, hvort
hann væri byrjaður á málssókn-
inni.
„Nei,” sagöi Sigurbjörn. „Salan
hefur aukist svo mikið.”
Sigurður skorar á Þorstein Thor-
arensen borgarfógeta sem næsta
Kryddarahöfund.
Við hittum þennan apa nú fyrir skömmu og eins og allir vita eru apar ákafiega getspakir um
veðurfar. Hann vildi koma þvíá framfæri við þá er hyggjast njóta útiverunnar á þjóðhátiðar-
daginn að vissara væri að taka með sér regnhlif að þessu sinni. En við vonum að sjálfsögðu
að apinn hafi á röngu að standa.
HEILRÆÐIUM ELDINGAR
AFMÆLIS-
BARNIÐ
Afmælisbamið okkar að þessu
sinni er Kristbjörg Kjeld leikkona.
Hún er fædd áriö 1935 í Reykjavík og
mun því eiga stórafmæli á næsta ári.
Hvað segir svo afmælisdagabókin
um þessa leikkonu sem leikhúsgestir
kannastsvovelvið.
— Þú hefur aðlaðandi, áhuga-
vekjandi persónuleika en verður aö
temja þér jákvæðari afstööu gagn-
vart lífinu. Láttu ekki hindranir
halda aftur af þér. Vertu ákveðnari
og meira drottnandi og sjálfsörugg-
ari.
Við óskum Kristbjörgu innilega til
hamingju með afmælið.
Við tslendingar erum ekki vanir því
að hér á landi komi þrumuveður og eld-
ingar. Erlendis er þrumuveður hins
vegar nokkuö algengt. Við ferðumst
orðið nokkuð mikið erlendis og er því
ekki úr vegi að fræða eilítiö um það
hvernig hægt er að forðast það að fá
eldingu í sig. Það er þó ekki mikil
ástæða til að óttast eldingar um of. En
þar sem slíkt er algengt verða alltaf
nokkrir fyrir eldingum og hefur slíkt
stundum dauða í för með sér.
En til að vera örugg getum við litið á
hvað hægt er að gera til að forðast eld-
ingar.
1. Forðist að vera á opnum svæðum og
reynið að komast hjá því að standa
þar sem landiö er hæst.
2. Ekki hlaupa í skjól undir trjám sem
standa ein úti á víðavangi.
3. Sitjið ekki í nánd við glugga eða ar-
inn þegar þiö eruð innan dyra.
4. Notið ekki rafmagnsáhöld og takið
símann úr sambandi.
5. Farið ekki í bað á meðan á þrumu-
veðri stendur.
6. Að vera úti á bát í slíku veðri getur
veriðvarasamt.
7. Það getur verið hættulegt aö nota
veiðistangir úr málmi í þrumuveðri.
Oruggasti staðurinn að vera á með-
an þrumuveöur og eldingar eru er að
dvelja í bílnum sínum. Ef eldingu slær
niður í bilinn fer straumurinn í gegn-
um bílinn og beint í jörð.
Breid
síðan
DJÖFLADÝRKEND-
UR í NOREGI?
Eins og við öll vitum fer það orð af
Norðmönnum að þeir séu manna
kristnastir og trúræknir eftir því. Nú
hafa hinsvegar borist þær fréttir frá
Noregi að í stærstu bæjum þar sé að
finna söfnuði sem dýrka satan sjálfan.
Þessir söfnuðir munu víst vera litlir að
stærð enn sem komið er. Sérfræðingur
í trúmálum telur aö skipta megi þeim
sem stunda þessa dýrkun í tvo hópa.
Þetta er fólk sem hefur komist á skjön
við kristindóminn og gengur í slíka
söfnuði í þeim tilgangi að mótmæla
kristnum söfnuðum. Þetta fólk trúir
ekki á satan. Hinn hlutinn er fólk sem
raunverulega trúir á skrattann sem
andlegt afl og fýsir mjög aö komast í
náið samband við hann.