Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Síða 19
. fr.QorTwfTT ?»r crmAíTaAnTTíi t vrr DV. LAUGARDAGUR16. JUNI1984. söng. Einnig aö gleöjast viö létta tónlist, sem megnar aö lyfa þungu skapi upp úr leiöinda f jötrum; já, getur jafnvel komiö fólki til þess aö hreyfa fætuma í takt viö hina dillandi tóna. Þeir vissu hvaö þeir sungu, hérna fyrr á tímum. Þá var til siös að hittast reglubundiö inni á heimilum hver annars og iöka kammer-(stofu) tónlist af miklu kappi. Þar sameinuöust fjöl- skyldur og vinir þeirra, eöa bara fjöl- skyldan ein saman, til þess að leika á hljóöfæri og án efa hafa allir sem áttu hlut aö máli notið góðra stunda í sam- neytitóna og söngs. Við nútímamenn ættum aö gera meira að því aö hlúa aö tónlistinni á heimilum okkar. Láta sjónvarpið fara lönd og leiö nokkur kvöld í mánuöinum og skipuleggja tónlistarhald meö fjöl- skyldunni. Til aö byrja með þurfa hljóðfærin ekki endilega aö vera stór og fyrirferðarmikil, en ef áhugi er fyrir hendi má meö tímanum koma sér upp heilli hljómsveit og þá er nú aldeilis hægt aö taka til höndunum viö þessa sálarbætandi iöju. Það liggur í augum uppi að heima- vinnandi húsmóöir hefur góðan tíma til þess aö sinna börnum sínum og reynir auövitaö eftir bestu getu aö opna hug þeirra fyrir tónum og söng vegna þess að hún veit um hin jákvæöu áhrif tón- listarinnar á tilfinningalif þeirra. Þaö er góð undirstaöa fyrir hina veröandi borgara aö vera hlynntir tónlistariðkun, því aö þá er ávallt möguleiki til þess aö flýja frá striti og amstri hins daglega lífs til hinna róandi tóna, sem hafa þaö i sér aö bægja stressi og taugaspennu til hliöar. Slikar litlar, róandi stundir leiöa mikið gott af sér. Ennfremur er þaö sálarbætandi aö sækja tónleika og það má segja að við séum í heild býsna glöð gagnvart tón- leikahaldi og sækjum þaö vel. En stundum, þegar óstundvísir tónlistar- gestir æða fram og til baka í leit aö sætum sínum, eftir að konsertinn er byrjaður kemur upp í huga manns sú hugsun hvort við séum húsum hæf í sambandi við tónleika. Ostundvísi, og sú truflun sem henni fylgir, hlýtur aö teljast gróf móögun og tillitsleysi gagnvart f lytjendum og áheyrendum. ingum á áfengi, tóbaki og lyfjum. Rétt eins og ríkisútvarpið. Þaö var í nóvember 1981 sem fyrstu lögin í átt til slökunar á einokun ríkisins á útvarpsrekstri voru sam- þykkt. Þá mun Filioud hafa lagt til aö leyft yrði að auglýsa takmarkaö á rás- unum nýfrelsuöu en Gaston Deferre innanríkisráðherra og Pierre Mauroy forsætisráöherra voru á móti slíku. Nefnd var sett í málið og í lögunum um frjálst útvarp frá 29. júlí 1982 er auglýsingabanninu haldið til streitu. I þessum lögum er hins vegar kveðið á um stofnun hins svokallaöa Aöalút- varpsráðs. Ráö þetta hefur það starf að útdeila leyfum til útvarpsrekstrar, ákveöa bylgjulengdir hvers og eins og aö fylgjast meö að allt sé í sómanum á hvítfextum öldum ljósvakanna. Ekki veitir af ef forðast á italska stjórn- leysiö. Segja má aö lagafrumvarp þetta sé einfaldlega raunhæft svar stjórnar- innar viö ríkjandi ástandi því þrátt fyrir bannið hefur fjöldi stööva sent út auglýsingar leynt og ljóst. Nú í vetur hefur þetta mál veriö ofarlega á baugi hér í Frakklandi en þrátt fyrir þaö hafa stjórnvöld haft mest lítið um málið aö segja, a.m.k. framan af vetri. Þaö var Mitterrand forseti sem braut ísinn í sjónvarpsviðtali þann 4. apríl sl. en þar tilkynnti forsetinn aö uppi væru ráðagerðir um breytingar á lögum um frjálsan útvarpsrekstur og að líklegast yröu auglýsingar leyfðar. Áðumefnt lagafrumvarp er því efnd þessa loforðs. Þar með ætti leiðin aö vera greið fyrir útvarpsunnendur beggja vegna hljóönemans. Þeir sem kjósa að reka útvarpsstöð með auglýsingafé eins og hvert annaö fyrirtæki geta gert þaö eftir aö hafa endumýjað leyfið. Aörir, og þá einkum hagsmunahópar og héraös- eða borgarstjórnir, munu lík- legast halda áfram aö njóta stuönings hins opinbera. En áður en lögin öölast fullt gildi veröur samþykkt þingsins aö liggja fyrir en þingiö mun fá frum- varpiö til afgreiðslu í byrjun júli. Þannig hlúa Frakkar að tjáningar- frelsinu. Hvorki Marx né Mammon, heldurbáðir tveir. F.R., Frakklandi. 19 ______VIKfl IHEGNINGARHUSINU: GLÆPAMYN ■ ■ A hverju ári eru fjölmargir Is- lendingar sakfelldir fyrir að aka bif- reið undir áhrifum áfengis. Yfirleitt lýkur málum þessa fólks meö því að þaö greiöir sekt til ríkissjóös og er svipt ökuskírteininu í mismunandi langan tíma eftir því hvað vínanda- magnið var mikiö í blóði þess. En ekki lýkur öllum málum með greiöslu sektar. Til eru þeir sem ekki treysta sér til að greiða sektarupp- hæðina, og þeirra bíður ekkert annaö en fangelsiö. Karlmenn eru í miklum meirihluta þeirra sem sitja af sér sektina enda í miklum meirihluta þeirra sem teknir eru ölvaöir undir stýri. Konur láta þó einnig svipta sig frelsinu um stundarsakir til aö losna viö að greiða sektina og verður rætt viö eina slíka hér á eftir. Hún er eina konán á þessu ári sem haldið hefur fangelsisvistina út, hinar sem hafa ætlað aö sitja af sér sektina hafa gefist upp eftir nokkra daga. Steina eins og viö köllum konuna sat inni í átta daga í Hegningarhúsinu viö Skólavöröustíg. Ókeypis sígarettur — Fjárhagslega var mér ómögu- legt aö greiöa þessa sekt þótt hún hafi ekki verið hærri en 6500 krónur. Ég hef ekki nema 12 þúsund í mánaðarlaun. Og þaö var því ekkert val hjá mér, ég varð aö fóma hluta af sumarfríinu mínu í þetta, segir Steina. Fyrst var reynt aö fá hana til að borga sektina með afborgunum en hún afþakkaði þaö með öllu enda taldi hún sig ekki koma neitt betur út úr því. Og þá var ekkert annaö að gera en aö pakka niöur og mæta í Hegningar- húsiö. — Þaö var augljóslega miklu hag- stæöra fyrir mig að sitja þetta af mér, þarna fékk ég þó mat og húsnæöi ókeypis og meira aö segja tóbak. Já, þótt furðulegt megi teljast fá þeir fangar, sem reykja, einn síga- rettupakka á dag frá ríkinu á meöan þeirsitja inni. Fiðringur í maganum Steina mætti í Hegningarhúsiö á mánudegi og viðurkennir aö sér hafi ekki liðið mjög vel. — Ég var meö dálítinn fiðring í maganum enda vissi ég ekki hverju ég átti von á, segir hún. A móti henni tók kvenfangavörður sem vísaöi henni inn í lítinn klefa þar sem hún afklæddist og fór aö því loknu ísturtu. — Þetta er víst einhver krafa af hálfu fangelsisins, alveg sama þó maður hafi fariö í baö sama dag, segir Steina. Eftir baöiö voru henni fengin fötin sem hún átti eftir að -vera í allan tímann í fangelsinu. Og þaö voru galla- buxur, skyrta.svokölluö háskólapeysa. Þessu næst var Steinu vísaö til þess klefa sem átti aö vera heimkynni hennar næstu átta dagana. — Þetta var lítill og frekar kulda- legur klefi, líklega ekki öðruvísi en aörir klefar þama. Inni í honum var rúm, borö og kollur. Fyrir enda klefans var lítill gluggi og fyrir honum rimlarogvírnet, segirSteina. Eini kvenfanginn Og svo byrjuðu dagarnir aö liöa langir og tilbreytingarlausir. Klukkan átta á morgnana var klefinn opnaöur og hálftíma síöar var morgunverður fram reiddur. Hann samanstóö ætiö af tveimur kaffibollum og tveimur brauð- sneiðum. — Þetta voru eiginlega ekki kaffi- bollar heldur plastmál og mér fannst þaö dálitið undarlegt að ég fékk alltaf tvö mál í einu. Ekki fyrst annað og svo hitt ef ég vildi. Alltaf tvö í einu. Og þegar ég spuröi hvort ég gæti ekki fengið annað í einu var mér sagt aö þaö væri ekki hægt. Klukkan hálftíu var Steinu leyft aö fara út í fangelsisgarðinn til aö viöra sig. Og það notfæröi hún sér á hver jum degi. — Mér f annst þaö alveg nauðsynlegt aö komast út undir bert loft á hverjum degi. Eg var eini kvenfanginn i fangelsinu, haföi engan til að tala viö svo aö þaö bætti svolítið úr einmana- leikanum aö komast út, segir Steina. Henni heföi vissulega þótt best heföi hún fengið aö fara út á. sama tíma og karlfangarnir en þeir fengu aö viöra sig hálftímann á undan Steinu. — En það var aö sjálfsögöu bannað, segirhún. Gangurinn 14 skref Eftir aö útiverunni lauk haföi Steina um ýmislegt aö velja til aö stytta sér stundimar. Hún gat lesið blööin og bækur. Og hún gat hlustað á útvarp. Eöa gengið um. — Það var erfitt aö festa hugann viö lestur til lengdar, þaö er svo margt sem maður hugsar viö þessar aö- stæður. Og þá var ekki um neitt annaö aö ræða en aö rölta um ganginn. Hann var 14 skref á lengd og ég náöi milli veggjanna með því aö teygja út hand- leggina. Hádegismatur kom klukkan 12. — Þaö var sæmilegur matur þarna. Þeir elduðu hann sjálfir fanga- veröimir. Hann var aö minnsta kosti hollur. Og vel útilátinn. Síöan þurfti aö drepa tímann fram aö kaffi klukkan þrjú. Þaö var meö sama sniöi og morgunverðurinn nema hvað á sunnudeginum bættist ein köku- sneiö við brauðsneiðarnar. Steinu var hleypt aftur út klukkan hálffimm til fimm og svo var kvöld- matur klukkan hálfsjö. Hálsrígur Kvöldin vom eini tíminn sem Steinu gafst tækifæri á aö hafa sam- skipti viö meðfanga sína. Og þaö kom til vegna þess aö aðeins eitt sjónvarp er í fangelsinu og á þaö veröa allir fangarnir að horfa, hafi þeir á annaö borö áhuga á aö glápa á sjánvarp. — Okkur var aö sjálfsögöu bannað að tala saman en fangaverðirnir vom ekkert strangir þó aö við gerðum það, segirSteina. En það var ekki tekið út meö sældinni einni saman aö horfa á sjón- varpið. Tækiö sjálft var uppi á vegg og áhorfendur uröu aö gera sér baklausa kolla að góöu aö sitja á. — Eg var iðulega meö hálsríg og bakverk eftir kvöldiö, segir Steina. Glæpamyndir Fangelsisyfirvöld hérlendis fylgjast greinilega meö tímanum því aö ekki þurfa fangarnir í Hegningar- húsinu aö minnsta kosti að kvíða sjón- varpslausu fimmtudagskvöldinu. Videovæðingin hefur nefnilega haldiö innreiö sína í fangelsið. — Það var dálítið fyndið aö fimmtudagskvöldið sem ég var þarna vom sýndar tvær bíómyndir í video- inu. Og báöar voru glæpamyndir, segir Steina og hlær. — Og það sem meira var, önnur myndin fjallaöi um menn sem voru aö br jótast út úr fangelsi. Þegar sjónvarpi lauk vom fangamir læstir inni í klefum sínum og þeir voru ekki opnaöir aftur fyrr en átta næsta morgun. — Ég get ekki sagt aö ég hafi sofið mjög vel þessa daga. En samt vildi ég ekki fá neinar pillur, segir Steina. Símtölin hleruð Þessa rúmu viku, sem Steina dvaldi innan veggja fangelsisins, fékk hún aö hringja þrisvar sinnum. — Símtölin vom hleruö og ég varö að skrifa niöur hvert ég hafði hringt og í hvern. Og símtölin máttu ekki vera lengri en fimm mínútur. Einu sinni kom vinkona hennar í heimsókn og þurfti aö berhátta sig áöur en hún mátti hitta Steinu. — Svona eftir á aö hyggja sé ég ekki eftir því að hafa setiö þessa sekt af mér. Vissulega var ég hræðilega ein- mana en samt held ég aö þetta hafi veriö góö lifsreynsla, segir Steina. Hún segist til dæmis h'ta allt öðrum augum nú á fanga og fangelsisvist. Hún dæmi menn ekki eins hart þótt hún heyri aö þeir hafi setið inni. — Ég held aö sumir ættu aö prófa þetta, sem hafa verið dæmdir fyrir eitthvaö í svipuðum dúr og ég. Og ef þeir gefast upp geta þeir komist út með því að borga. Það má hka geta þess að ég léttist um tvö kíló þessa viku, segir Steina og brosir. — En ég held samt aö ég myndi ekki sitja af mér aðra sekt, að minnsta kosti ekki á næstunni, bætir húnviö. —SÞS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.